Woodland Sparkle#woodlandsparklecardigan |
|
![]() |
![]() |
Prjónuð peysa úr 4 þráðum DROPS Kid-Silk eða 1 þræði DROPS Wish. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með laskalínu. Stærð S - XXXL.
DROPS 226-1 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan (þegar flíkin er mátuð): 1 hnappagat = prjónið frá réttu eins og áður þar til 3 lykkjur eru eftir í umferð, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 næstu lykkjur slétt saman og endið með 1 lykkju slétt. Í næstu umferð (ranga) er uppslátturinn prjónaður slétt svo það myndist gat. Fellið af fyrir fyrsta hnappagatinu nákvæmlega á eftir stroffi í hálsmáli, síðan er fellt af fyrir 4-4-4-4-5-5-5 næstu hnappagötum eins og útskýrt er að ofan með ca 9 cm millibili. LASKALÍNA: Aukið út um 1 lykkju hvoru megin við 1 lykkju í sléttprjóni (laskalína) í hverri skiptingu á milli fram- og bakstykkis og erma (= 8 lykkjur fleiri í umferð). Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn brugðið (= það eiga ekki að myndast göt). Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni. ÚTAUKNING (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 69 lykkjur), mínus kanta að framan (t.d. 8 lykkjur) og deilið þeim lykkjum sem eftir eru með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 7) = 8,7. Í þessu dæmi er aukið út jafnt yfir með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 9. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn, svo ekki myndist gat. AFFELLING: Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 4. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja). ÚRTAKA (á við um miðju undir ermum): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Kantur í hálsmáli, berustykki og fram- og bakstykki er prjónað fram og til baka á hringprjóna frá miðju að framan, ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á stuttan hringprjón / sokkaprjóna, ofan frá og niður. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 59-61-63-63-69-71 lykkjur (meðtaldar 4 kantlykkjur að framan í hvorri hlið við miðju að framan) á hringprjón 7 með einum þræði í hvorum lit í DROPS Kid-Silk (= 4 þræðir) eða 1 þræði DROPS Wish. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Prjónið síðan frá réttu þannig: 4 kantlykkjur að framan í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið *, prjónið frá *-* þar til 5 lykkjur eru eftir, prjónið 1 lykkju slétt og endið með 4 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Prjónið stroff svona í 4 cm. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu þar sem aukið er út um 1-3-5-5-7-5 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING = 60-64-68-68-76-76 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 8. Prjónið síðan berustykki eins og útskýrt er að neðan. HÉÐAN ER NÚ STYKKIÐ MÆLT! BERUSTYKKI: Fyrsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 4 kantlykkjur að framan í garðaprjóni,7-8-9-9-11-11 lykkjur sléttprjón (= framstykki), sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 1 lykkju sléttprjón (= laskalína), sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 10 lykkjur sléttprjón (= ermi), sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 1 lykkju sléttprjón (= laskalína), sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 14-16-18-18-22-22 lykkjur sléttprjón (= bakstykki), sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 1 lykkju sléttprjón (= laskalína), sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 10 lykkjur sléttprjón (= ermi), sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 1 lykkju sléttprjón (= laskalína), sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 7-8-9-9-11-11 lykkjur sléttprjón og endið með 4 kantlykkjur að framan í garðaprjóni (= framstykki). Fyrsta útaukning fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan, er nú lokið. Fellið nú af fyrir HNAPPAGAT – sjá útskýringu að ofan! Haldið áfram í sléttprjóni og haldið áfram með 4 kantlykkjur að framan í garðaprjóni í hvorri hlið við miðju að framan og haldið áfram með útaukningu fyrir laskalínu í hverri skiptingu á milli fram- og bakstykkis og erma. Aukið svona út í annarri hverri umferð (þ.e.a.s. í hverri umferð frá réttu) þar til aukið hefur verið út alls 14-16-17-19-19-21 sinnum - ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Á eftir síðustu útaukningu eru 172-192-204-220-228-244 lykkjur í umferð. Prjónið án útaukningar þar til stykkið mælist 22-24-25-27-29-31 cm á eftir kanti í hálsmáli. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið 27-30-32-35-37-40 lykkjur slétt (= framstykki), setjið næstu 36-40-42-44-44-46 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-6-6-8-8 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið 46-52-56-62-66-72 lykkjur slétt (= bakstykki), setjið næstu 36-40-42-44-44-46 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-6-6-8-8 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi) og prjónið þær 27-30-32-35-37-40 lykkjur sem eftir eru slétt (= framstykki). HÉÐAN ER NÚ STYKKIÐ MÆLT! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 112-124-132-144-156-168 lykkjur. Haldið áfram í sléttprjóni og með 4 kantlykkjum að framan í garðaprjóni í hvorri hlið (fyrsta umferð er prjónuð frá röngu). Þegar stykkið mælist 18-18-19-19-19-19 cm prjónið 1 umferð frá réttu þar sem aukið er út um 1 lykkju = 113-125-133-145-157-169 lykkjur. Skiptið yfir í hringprjón 7. Næsta umferð er prjónuð frá röngu þannig: 4 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, * 1 lykkja brugðið, 1 lykkja slétt *, prjónið frá *-* þar til 5 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 1 lykkju brugðið og endið með 4 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff í 6 cm. Fellið laust af með garðaprjóni yfir garðaprjón, sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá AFFELLING. Peysan mælist ca 50-52-54-56-58-60 cm frá öxl og niður. ERMI: Setjið 36-40-42-44-44-46 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjóna eða stuttan hringprjón 8, prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja og eina af 6-6-6-6-8-8 lykkjum sem fitjaðar voru upp í hlið undir ermi = 42-46-48-50-52-54 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt í 6-6-6-6-8-8 lykkjur undir ermi og byrjið umferð hér. Prjónið sléttprjón hringinn. Þegar stykkið mælist 2 cm fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá ÚRTAKA. Haldið áfram með úrtöku með 12-6-6-4-4-4 cm millibili alls 3-5-5-6-6-6 sinnum = 36-36-38-38-40-42 lykkjur. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 36-34-34-32-30-29 cm frá skiptingu (eða að óskaðri lengd, nú eru eftir ca 4 cm að loka máli – ATH: Styttra mál í stærri stærðum vegna víðari hálsmáls og lengra berustykkis). Skiptið yfir á sokkaprjóna 7 og prjónið stroff hringinn (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 4 cm. Fellið laust af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Ermin mælist alls 40-38-38-36-34-33 cm. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið tölur í vinstri kant að framan. |
|
![]() |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #woodlandsparklecardigan eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 29 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 226-1
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.