Merethe skrifaði:
Hej. Rapport i højden. Jeg forstår simpelthen ikke disse pinde . Skal man gentage mønstret over hinanden , både på vrang og retsiden.
21.09.2024 - 08:22DROPS Design svaraði:
Hei Merethe. Vi skal hjelpe deg så godt vi kan. Men fint om du opplyser hvilket / hvilken diagram du ikke forstår / hvor i oppskriften, og oppgi gjerne hvilken str. du strikker. mvh DROPS Design
23.09.2024 - 13:50
Liza skrifaði:
Hi, I have few questions regarding the pattern. When you say complete A1, does that mean combining A1A and A1B? For example, after the first row of A1 in the Yoke, I should repeat the pattern 3k 1P 3k 2p on the wrong side followed by 3p 1fisherman 3p 2fisherman on the right side? thanks
28.12.2023 - 22:20DROPS Design svaraði:
Dear Liza, "After the first row in A.1 there are 91-99-99-107-115-115 stitches. Complete A.1, then repeat the 2 rows with stars in A.1 until the piece measures 3-3-3-4-4-4 cm from the marker on the neck." You have established the pattern with A.1a and A.1b in the first row and have increased to 91-99-99-107-115-115 stitches. Now continue working both charts upwards, row by row, as established on the first row. After working all 6 rows of both charts, you will have completed A.1 ( or a repeat of A.1). Now repeat the last 2 rows of the chart, in the previously established pattern (so A.1a 10 to 13 times, depending on the size and A.1b). Happy knitting!
29.12.2023 - 00:31
Dagny Djurhuus skrifaði:
Hvad betyder en rapport i højden . Har aldrig set ordet rapport i en strikkeopskrif før, ved ikke hvad det betyder.
20.09.2023 - 10:36DROPS Design svaraði:
Hei Dagny. Om du scroller deg nederst på oppskriften ser du flere diagrammer. I oppskriften gjentar du f.eks A.1A flere ganger i bredden = gjentar rapporten A.1A i bredden. Når det står 1 rapport i høyden, gjentar du diagrammet i høyden (oppå hverandre). F.eks de 2 øverste pinnene i diagram A.2A er vist med en stjerne. Det er disse 2 radene som gjentas i høyden. mvh DROPS Design
26.09.2023 - 14:44
Lena skrifaði:
Ska beställa garn till barnkofta 7/8 40-8 med Flora (200 g) och Kid-Silk (100 g) Jag hittar inte i mönstret när jag ska använda Kid -Silk. Vänligen Lena
23.07.2023 - 15:00DROPS Design svaraði:
Hei Lena. Du strikker Flora og Kid-Silk samtidig = det strikkes med 2 tråder. Slik starter oppskriften: Lägg upp 71-75-77-79-79-81 maskor (inklusive 5 framkantsmaskor i varje sida mot mitt fram) på rundsticka 5 med 1 tråd i varje kvalitet (= 2 trådar). mvh DROPS Design
25.07.2023 - 09:27
Sophie skrifaði:
Hallo, ich bin gerade beim Aufteilen der Passe. Ist es richtig, dass in den ersten 39 Maschen die Blenden-Maschen schon dabei sind? Und kann man die 6 neuen Maschen anschlagen, wenn man später die stillgelegten Maschen aufnimmt?
31.01.2023 - 21:32DROPS Design svaraði:
Liebe Sophie, ja richtig, die BlendenMaschen sind in den 39 ersten Maschen der Reihe mitgezählt; diese Lektion zeigt ab Bild 8 wie die Aufteilung gearbeitet wird, z.B. wie die neuen Maschen angeschlagen werden (Bild 11) und wie die Ärmel später gestrickt werden (Bild 18). Viel Spaß beim stricken!
01.02.2023 - 08:48
Sophie skrifaði:
Hallo, kann ich mit Garngruppe C auch eine einfache Halsblende stricken? Oder passt das nicht zum Muster?
17.01.2023 - 21:44DROPS Design svaraði:
Liebe Sophie, also gerne können Sie hier mit 1 Faden der Garngruppe C anstatt mit 2 Fäden der Gargruppe A stricken - die Halsblende können Sie auch verkürzten wenn Sie es so lieber möchten. Viel Spaß beim stricken!
18.01.2023 - 09:48
Sophie skrifaði:
Ich möchte die Jacke Forest Vines Kids stricken. Bitte helfrn Sie mir bei Garnberechnung. Ich würde gern mit Big Merino aus der Garngrppe C stricken und zwar Gr. 134/140 . Wie viel Garn werde ich dazu brauchen? Mit der Umrechnung bei 2 verschiedenen Garnen von A zu einem Garn aus Gruppe C bin ich leider nicht zurecht gekommen. Im Voraus vielen Dank!
02.01.2023 - 18:30DROPS Design svaraði:
Liebe Sophie, hier wird es erklärt, wie man das umrechnet - siehe 2 Fäden unterschiedlicher Garne durch 1 Faden ersetzen. Gerne wird Ihnen auch Ihr DROPS Händler damit (auch per Telefon oder per E-Mail) weiterhelfen. Viel Spaß beim stricken!
03.01.2023 - 09:11
Forest Vines Kids Cardigan#forestvineskidscardigan |
|||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||||||||
Prjónið peysa fyrir börn úr DROPS Flora og DROPS Kid-Silk. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með tvöföldum kanti í hálsmáli, hringlaga berustykki og áferðamynstri með klukkuprjónslykkjum á berustykki. Stærð 2 til 12 ára.
DROPS Children 40-8 |
|||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.3. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING/ÚRTAKA (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig fjölga/fækka eigi lykkjum jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 89 lykkjur), mínus kanta að framan (t.d. 10 lykkjur) og deilið þeim lykkjum sem eftir eru með fjölda útaukninga/úrtöku sem á að gera (t.d. 8) = 9,9. Í þessu dæmi er aukið út jafnt yfir með því að slá 1 sinni uppá prjóninn eftir ca 10. hverja lykkju - ekki er aukið út yfir kanta að framan. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat. Ef fækka á lykkjum þá er prjónuð í þessu dæmi 9. og 10. hver lykkja slétt saman. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA (á við um miðju undir ermum): Byrjið 3 lykkjum á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan (þegar flíkin er mátuð): Fellið af frá réttu þegar 3 lykkjur eru eftir á prjóni þannig: Sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 næstu lykkjur slétt saman og prjónið síðustu lykkju slétt. Í næstu umferð (ranga) er uppslátturinn prjónaður slétt, svo það myndist hnappagat. Fellið af fyrir fyrsta hnappagatinu þegar stroff í hálsmáli mælist ca 7 cm. Fellið síðan af fyrir 5-5-5-6-6-6 næstu hnappagötum með ca 5½-6½-7½-6½-7½-8 cm millibili. LEIÐBEININGAR AFFELLING: Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 6. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Tvöfaldur kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað fram og til baka hringprjón frá miðju að framan, ofan frá og niður. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað fram og til baka á hringprjón frá miðju að framan, ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna, ofan frá og niður. TVÖFALDUR KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 71-75-77-79-79-81 lykkjur (meðtaldar 5 kantlykkjur að framan í hvorri hlið við miðju að framan) á hringprjóna 5 með 1 þræði í hvorri tegund (= 2 þræðir). Prjónið 1 umferð brugðið (= ranga). Skiptið yfir á hringprjón 4. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 1 kantlykkja í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið *, prjónið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 1 lykkju slétt og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff í 7 cm. Síðar á að brjóta kant í hálsmáli tvöfaldan og við frágang er hann ca 3 cm. Setjið 1 prjónamerki eftir kant að framan í byrjun á umferð við miðju að framan, berustykkið er nú mælt frá þessu prjónamerki! Prjónið 1 umferð slétt frá réttu og aukið jafnframt út 0-2-0-4-10-8 lykkjur jafnt yfir – sjá LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING/ÚRTAKA og munið eftir HNAPPAGAT í hægri kanti að framan – sjá útskýringu að ofan = 71-77-77-83-89-89 lykkjur. Prjónið 1 umferð slétt frá röngu (kantur að framan er prjónaður í garðaprjóni). Prjónið síðan berustykki eins og útskýrt er að neðan. BERUSTYKKI: Skiptið yfir á hringprjón 5. Fyrsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, prjónið A.1A þar til 6 lykkjur eru eftir í umferð (= 10-11-11-12-13-13 mynstureiningar með 6 lykkjum), prjónið A.1B (= 1 lykkja) og endið með 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Eftir fyrstu umferð í A.1 eru 91-99-99-107-115-115 lykkjur í umferð. Prjónið A.1 til loka, síðan eru endurteknar 2 umferðir með stjörnu í A.1 þar til stykkið mælist 3-3-3-4-4-4 cm frá prjónamerki við hálsmál. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, prjónið A.2A þar til 6 lykkjur eru eftir í umferð (= 10-11-11-12-13-13 mynstureiningar með 8 lykkjum), prjónið A.2B og endið með 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni. Eftir fyrstu umferð í A.2 eru 135-147-147-159-171-171 lykkjur í umferð. Prjónið A.2 til loka, síðan eru endurteknar 2 umferðir með stjörnu í A.2 þar til stykkið mælist 6-7-7-8-8-9 cm frá prjónamerki við hálsmál. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, prjónið A.3A þar til 10 lykkjur eru eftir í umferð (= 10-11-11-12-13-13 mynstureiningar með 12 lykkjum), prjónið A.3B (= 5 lykkjur) og endið með 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Eftir fyrstu umferð í A.3 eru 175-191-191-207-223-223 lykkjur í umferð. Prjónið A.3 til loka, síðan eru endurteknar 2 umferðir með stjörnu í A.3 þar til stykkið mælist 13-14-15-16-17-18 cm frá prjónamerki við hálsmál. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem lykkjufjöldinn er jafnaður út til 178-190-198-210-222-234 lykkjur – munið eftir LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING/ÚRTAKA. Prjónið síðan sléttprjón með 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni í hvorri hlið þar til stykkið mælist 14-15-16-17-18-19 cm frá prjónamerki við hálsmál. Í næstu umferð skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar, þ.e.a.s. næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið eins og áður yfir fyrstu 30-32-33-35-37-39 lykkjur (= framstykki), setjið næstu 34-36-38-40-42-44 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið eins og áður yfir næstu 50-54-56-60-64-68 lykkjur (= bakstykki), setjið næstu 34-36-38-40-42-44 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi) og prjónið eins og áður yfir síðustu 30-32-33-35-37-39 lykkjur (= framstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ STYKKIÐ MÆLT! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 122-130-134-142-150-158 lykkjur. Haldið áfram fram og til baka í sléttprjóni og 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni í hvorri hlið við miðju að framan. Prjónið þar til stykkið mælist 14-17-20-23-26-28 cm frá skiptingu. Nú eru eftir ca 5 cm að loka máli, mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd. Til að koma í veg fyrir að stroffið sem prjóna á dragi stykkið saman eru lykkjur auknar út eins og útskýrt er að neðan. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem aukið er út um 13-15-15-15-17-17 lykkjur jafnt yfir – munið eftirLEIÐBEININGAR ÚTAUKNING/ÚRTAKA = 135-145-149-157-167-175 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 4. Næsta umferð er prjónuð frá röngu þannig: 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, * 1 lykkja brugðið, 1 lykkja slétt *, prjónið frá *-* þar til 5 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 1 lykkju brugðið og endið með 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff í 5 cm. Fellið af með garðaprjón yfir garðaprjón, sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá LEIÐBEININGAR AFFELLING! Peysan mælist ca 36-40-44-48-52-55 cm frá öxl og niður. ERMI: Setjið 34-36-38-40-42-44 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjóna 5 – prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 6 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 40-42-44-46-48-50 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt undir ermi, þ.e.a.s. mitt í 6 lykkjur sem fitjaðar voru upp undir ermi. Byrjið umferð við prjónamerki og prjónið sléttprjón hringinn. Þegar ermin mælist 1 cm frá skiptingu, fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá LEIÐBEININGAR ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona í 6. hverri umferð alls 4 sinnum á hæðina = 32-34-36-38-40-42 lykkjur. Prjónið án úrtöku þar til ermin mælist 17-20-24-28-32-36 cm frá skiptingu. Nú eru eftir ca 5 cm að loka máli, mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd. Prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 4 lykkjur jafnt yfir í öllum stærðum = 28-30-32-34-36-38 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjóna 4. Prjónið stroff hringinn (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 5 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – munið eftir LEIÐBEININGAR AFFELLING! Ermin mælist ca 22-25-29-34-37-41 cm frá skiptingu. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Brjótið stroffið niður efst í hálsmáli að innan verðu á stykki. Saumið stroffið niður þannig að það myndist tvöfaldur kantur í hálsmáli. Til að koma í veg fyrir að kanturinn dragist saman og beygist út, er mikilvægt að saumurinn sé teygjanlegur. Saumið saman op við miðju að framan á kanti að framan með smáu spori. Saumið tölur í vinstri kant að framan. |
|||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #forestvineskidscardigan eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 32 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS Children 40-8
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.