Wiesje Kokmeijer skrifaði:
Net een vraag gesteld over de trui strand jumper. Ik zie nu dat het twee steken voor de markeerdraad moet en twee erna. Ik ben nu zonder averecht verder gegaan en dit is voor mij gemakkelijker. Het is opgelost. (Helaas had ik niet alles uitgeprint, dus niet gelezen)
19.02.2022 - 07:55
Wiesje Kokmeijer skrifaði:
Betreft trui, strand jumper. Ik ben bezig met de raglan. Ik moet meerderen aan weerskanten van een rechte steek. Nu moet ik steeds twee averecht aan weerskanten breien. Ik heb bv 1 averecht gebreid, moet meerderen, dus een lus en dan een rechte steek, dan weer een lus, maar dit gaat zo moeilijk want daarna weer een averecht. Hoe doen jullie dat. Ik zit dus met dat meerderen met lussen van averecht naar recht en andersom.
19.02.2022 - 07:21DROPS Design svaraði:
Dag Wiesje,
Als je tussen een averechte en rechte steek een omslag moet maken en dan is dus na de averechte steek de draad aan de voorkant. Je legt de draad over de rechter naald heen naar de achterkant om een omslag te maken. Dan brei je de rechte steek. Als je een omslag moet maken tussen een rechte en een averechte steek, dan haal je de draad onderdoor naar de voorkant en dan breng je de draad naar boven over de rechter naald en dan weer naar achteren, daarna weer onder de rechter naald naar voren, zodat je de volgende steek averecht kan breien.
21.02.2022 - 12:01
Marilyn skrifaði:
Buonasera sto facendo la taglia 9/10 anni nella parte dello SPRONE quando devo misurare il lavoro dal collo prima di dividere per le maniche, si intende dall'inizio del collo che poi verrà piegato? Grazie
07.12.2021 - 22:25DROPS Design svaraði:
Buonasera Marilyn, sì esatto, deve prendere le misure dall'inizio del lavoro. Buon lavoro!
08.12.2021 - 18:17
Karin Spaniel skrifaði:
Kan jeg finde den opskrift til Herre i str. S- M-L..
12.10.2021 - 10:36DROPS Design svaraði:
Hej Karin, ja her ser du vores søg på dine ønsker: Herre, Raglan, Ovenfra og ned, Garngruppe C
13.10.2021 - 09:28
Yasmin skrifaði:
Muy bello Patrón pero no me dan los cálculos para los aumentos del canesu para el talle 11/12.
18.08.2021 - 17:49DROPS Design svaraði:
Hola Yasmin, el patrón está correcto. Para la talla 11-12, 76 puntos del cuello + 16x 8 (en el raglán hay 8 aumentos en la vuelta) = 204
20.08.2021 - 21:12
Strand Jumper#strandjumper |
|||||||
![]() |
![]() |
||||||
Prjónuð peysa fyrir börn úr DROPS Alaska. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með tvöföldum kanti í hálsmáli og laskalínu. Stærð 2 til 12 ára.
DROPS Children 40-3 |
|||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1. LASKALÍNA: Aukið út um 1 lykkju hvoru megin við A.1 með því að slá 1 sinni uppá prjóninn = 8 lykkjur fleiri í umferð. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt, svo ekki myndist gat. LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING/ÚRTAKA (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig fjölga/fækka eigi lykkjum jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 102 lykkjur) og deilið þeim lykkjum sem eftir eru með fjölda útaukninga/úrtöku sem á að gera (t.d. 10) = 10,2. Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn eftir ca 10. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt, svo ekki myndist gat. Ef fækka á lykkjum, þá er prjónuð í þessu dæmi ca 9. og 10. hver lykkja slétt saman. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA (á við um miðju undir ermum): Byrjið 3 lykkjum á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). LEIÐBEININGAR AFFELLING: Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 6. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Tvöfaldur kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað í hring á hringprjón, ofan frá og niður. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað í hring á hringprjón, ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna, ofan frá og niður. TVÖFALDUR KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 56-60-60-64-64-68 lykkjur á sokkaprjóna 5,5 með DROPS Alaska. Prjónið 1 umferð slétt. Skiptið yfir á stuttan hringprjón 4. Prjónið síðan stroff hringinn (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 7 cm. Síðar er kanturinn í hálsmáli brotin saman tvöfaldur við frágang þannig að það myndist kantur í hálsmáli ca 3 cm. Setjið nú 4 prjónamerki í stykkið – þessi prjónamerki eru notuð síðar þegar auka á út fyrir laskalínu á berustykki. Teljið 8-10-10-10-10-12 lykkjur, setjið 1 prjónamerki í næstu lykkju (= slétt lykkja), teljið 9 lykkjur, setjið 1 prjónamerki í næstu lykkju (= slétt lykkja), teljið 17-19-19-21-21-23 lykkjur, setjið 1 prjónamerki í næstu lykkju (= slétt lykkja), teljið 9 lykkjur, setjið 1 prjónamerki í næstu lykkju (= slétt lykkja). Nú eru 9-9-9-11-11-11 lykkjur eftir í umferð á eftir síðasta prjónamerki. Í næstu umferð er aukið út um 8 lykkjur með því að slá 1 sinni uppá prjóninn hvoru megin við 4 lykkjurnar með prjónamerki í (= 8 lykkjur fleiri) = 64-68-68-72-72-76 lykkjur. Prjónið síðan berustykki eins og útskýrt er að neðan. BERUSTYKKI: Skiptið yfir á hringprjón 5,5. Prjónið sléttprjón hringinn – JAFNFRAMT er prjónað A.1 í hverri skiptingu á milli framstykkis/bakstykkis og erma (þ.e.a.s. hver lykkja með prjónamerki í = miðju lykkjan í A.1 – í fyrstu umferð er uppslátturinn prjónaður frá fyrri umferð snúinn brugðið, svo ekki myndist gat). Þegar prjónuð hefur verið 1 umferð byrjar útaukning fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan. Aukið út fyrir laskalínu í annarri hverri umferð alls 11-12-13-14-15-16 sinnum = 152-164-172-184-192-204 lykkjur. Prjónið 1 umferð án útaukninga. Prjónið síðan 1 umferð þar sem aukið er út 1 sinni í hvorri hlið á framstykki og bakstykki í stærð 2 – 3/4 og 9/10 ára (ekki er aukið út á ermum í þessari umferð) = 156-168-172-184-196-204 lykkjur. Prjónið sléttprjón án útaukninga (A.1 heldur áfram eins og áður) þar til stykkið mælist 14-15-16-17-18-19 cm frá þar sem prjónamerki var sett í eftir kant í hálsmáli. Nú skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar, þ.e.a.s. næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið eins og áður yfir fyrstu 22-25-26-27-29-31 lykkjur (= ½ bakstykki), setjið næstu 33-35-35-37-39-41 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið eins og áður yfir næstu 45-49-51-55-59-61 lykkjur (= framstykki), setjið næstu 33-35-35-37-39-41 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi) og prjónið eins og áður yfir síðustu 23-24-25-28-30-30 lykkjur (= ½ bakstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 102-110-114-122-130-134 lykkjur. Prjónið sléttprjón hringinn. Prjónið þar til stykkið mælist 15-18-21-24-27-29 cm frá skiptingu. Nú eru eftir ca 4 cm að loka máli, mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd. Til að koma í veg fyrir að stroffið sem prjóna á dragi stykkið saman eru lykkjur auknar út eins og útskýrt er að neðan. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 10-10-12-12-14-14 lykkjur jafnt yfir – sjá LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING/ÚRTAKA = 112-120-126-134-144-148 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 4. Prjónið stroff hringinn (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 4 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá LEIÐBEININGAR AFFELLING! Peysan mælist ca 36-40-44-48-52-55 cm frá öxl og niður. ERMI: Setjið 33-35-35-37-39-41 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjóna 5,5 – prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 6 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 39-41-41-43-45-47 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt undir ermi, þ.e.a.s. mitt í 6 lykkjur sem fitjaðar voru upp undir ermi. Byrjið umferð við prjónamerki og prjónið sléttprjón hringinn. Þegar ermin mælist 3-3-4-4-4-4 cm frá skiptingu, fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá LEIÐBEININGAR ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með 3½-4-5-6-8-9 cm millibili alls 4 sinnum á hæðina = 31-33-33-35-37-39 lykkjur. Prjónið án úrtöku þar til ermin mælist 17-20-24-29-33-36 cm frá skiptingu. Nú eru eftir ca 4 cm að loka máli, mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd. Prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 3 lykkjur jafnt yfir í öllum stærðum = 28-30-30-32-34-36 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjóna 4. Prjónið stroff hringinn (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 4 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – munið eftir LEIÐBEININGAR AFFELLING! Ermin mælist ca 21-24-28-33-37-40 cm frá skiptingu. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Brjótið stroffið niður efst í hálsmáli að innan verðu á stykki. Saumið stroffið niður þannig að það myndist tvöfaldur kantur í hálsmáli. Til að koma í veg fyrir að kanturinn dragist saman og beygist út, er mikilvægt að saumurinn sé teygjanlegur. |
|||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||
|
|||||||
![]() |
|||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #strandjumper eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 29 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS Children 40-3
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.