DROPS Soft Tweed
DROPS Soft Tweed
50% Ull, 25% Alpakka, 25% Viscose
frá 1210.00 kr /50g
DROPS Karisma
DROPS Karisma
100% Ull
frá 616.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 4840.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Bee Season Jumper

Prjónuð peysa fyrir börn úr DROPS Soft Tweed. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með laskalínu og með útaumuðum blómum og býflugu. Stærð 3-14 ára.

DROPS Children 40-1
DROPS Design: Mynstur st-001-bn
Garnflokkur B
-----------------------------------------------------------

STÆRÐ:
3/4 - 5/6 - 7/8 - 9/10 - 11/12 - 13/14 ára
Stærðin jafngildir ca hæð á barni í cm:
98/104 - 110/116 - 122/128 - 134/140 - 146/152 - 158/164

EFNI:
DROPS SOFT TWEED frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
200-250-250-300-350-400 g litur 13, sítrónu pie

Fyrir blómin og býflugu höfum við notað:
DROPS KARISMA frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
50 g litur 53, koksgrár
50 g litur 52, sinnepsgulur
50 g litur 80, bleikur
50 g litur 19, hvítur

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 4: lengd 40 cm og 60 cm.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 3: lengd 40 cm og 60 cm.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 4.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 3.
Hægt er að nota MAGIC LOOP aðferðina – þá þarf einungis hringprjón 80 cm í hverju prjónanúmeri.

NÁL: Fyrir útsaum.

PRJÓNFESTA:
21 lykkja á breidd og 28 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm.
ATH: Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Soft Tweed
DROPS Soft Tweed
50% Ull, 25% Alpakka, 25% Viscose
frá 1210.00 kr /50g
DROPS Karisma
DROPS Karisma
100% Ull
frá 616.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 4840.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2.

ÚTAUKNING (jafnt yfir):
Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 76 lykkjur) og deilið lykkjum með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 16) = 4,75.
Í þessu dæmi er aukið út jafnt yfir með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 5. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn, svo ekki myndist gat.

LASKALÍNA:
Aukið út um 1 lykkju hvoru megin við 4 lykkjur með prjónamerki í umferð (= 8 lykkjur fleiri í umferð) þannig: Prjónið þar til 1 lykkja er eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa 2 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt, svo ekki myndist gat. Síðan eru nýjar lykkjur prjónaðar í sléttprjóni.

ÚRTAKA (á við um miðju undir ermum):
Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð.

AFFELLING:
Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá einu sinni uppá prjóninn á eftir ca 4. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja).

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Kantur í hálsi og berustykki er prjónað í hring á hringprjón / sokkaprjóna, ofan frá og niður. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað í hring á hringprjón. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna. Að lokum eru saumuð út tvö blóm og blýfluga á framstykkið.

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Fitjið upp 104-104-104-112-112-112 lykkjur á sokkaprjóna eða stuttan hringprjón 3 með Soft Tweed. Prjónið 1 umferð slétt, prjónið síðan A.1 (13-13-13-14-14-14 mynstureiningar með 8 lykkjum) hringinn í umferð. Í síðustu umferð í A.1 eru auknar út 0-3-3-0-3-3 lykkjur jafnt yfir = 78-81-81-84-87-87 lykkjur. Prjónið nú mynstur A.2 hringinn í umferð. Þegar stykkið mælist 4 cm frá þar sem það er lengst, setjið eitt prjónamerki í byrjun á umferð. Stykkið er nú mælt frá þessu prjónamerki!

BERUSTYKKI:
Skiptið yfir í hringprjón 4.Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 14-15-15-16-17-17 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING = 92-96-96-100-104-104 lykkjur. Setjið nú 4 ný prjónamerki í stykkið eins og útskýrt er að neðan – þetta er gert án þess að prjóna lykkjurnar og hvert og eitt af þessum 4 prjónamerkjum eru sett á milli 2 lykkja.
Prjónamerkin eru notuð þegar auka á út fyrir laskalínu.
Byrjun á umferð = mitt að aftan. Teljið 17-18-18-19-20-20 lykkjur (hálft bakstykki) og setjið 1. prjónamerki hér (= á milli bakstykkis og ermi).
Teljið 12 lykkjur og setjið 2. prjónamerki hér (= ermi).
Teljið 34-36-36-38-40-40 lykkjur (= framstykki) og setið 3. prjónamerki hér.
Teljið 12 lykkjur (= ermi) og setjið 4. prjónamerki hér. Nú eru 17-18-18-19-20-20 lykkjur (= hálft bakstykki) fram að byrjun á umferð.
ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Prjónið sléttprjón hringinn, JAFNFRAMT í fyrstu umferð byrjar útaukning fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan. Aukið svona út í annarri hverri umferð alls 16-17-19-19-20-22 sinnum = 220-232-248-252-264-280 lykkjur í umferð.

Prjónið sléttprjón þar til stykkið mælist 14-15-16-17-18-19 cm frá prjónamerki við háls.
Nú á að skipta stykkinu fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Byrjið mitt að aftan og prjónið að 1. prjónamerki (= hálft bakstykki), setjið næstu 44-46-50-50-52-56 lykkjur á þráð fyrir ermi án þess að prjóna þær, fitjið upp 6-6-6-8-8-8 nýjar lykkjur í hlið undir ermi. Prjónið næstu 66-70-74-76-80-84 lykkjur (= framstykki), setið næstu 44-46-50-50-52-56 lykkjur á þráð fyrir ermi án þess að prjóna þær, fitjið upp 6-6-6-8-8-8 nýjar lykkjur í hlið undir ermi og prjónið fram að byrjun á umferð (= 66-70-74-76-80-84 lykkjur á bakstykki).
Prjónið síðan fram- og bakstykki og ermar hvert fyrir sig. Takið prjónamerkin úr stykkinu.
HÉÐAN ER NÚ STYKKIÐ MÆLT!

FRAM- OG BAKSTYKKI:
= 144-152-160-168-176-184 lykkjur. Haldið áfram í sléttprjóni. Prjónið þar til stykkið mælist 19-22-25-28-30-32 cm frá skiptingu. Nú eru eftir ca 4 cm til loka máls. Mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd. Nú eru lykkjur auknar út til að koma í veg fyrir að stroffið sem á að prjóna, dragi stykkið saman. Prjónið 1 umferð slétt þar sem auknar er út 27-28-32-33-37-35 lykkjur jafnt yfir = 171-180-192-201-213-219 lykkjur.
Skiptið yfir á hringprjón 3. Prjónið A.2 hringinn í 4 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá AFFELLING.
Peysan mælist ca 40-44-48-52-55-58 cm frá öxl og niður.

ERMAR:
Setjið 44-46-50-50-52-56 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjóna 4 og prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja og eina af nýjum 6-6-6-8-8-8 lykkjum sem fitjaðar voru upp í hlið undir ermi = 50-52-56-58-60-64 lykkjur. Setjið eitt prjónamerki mitt í nýjar 6-6-6-8-8-8 lykkjur (= 3-3-3-4-4-4 nýjar lykkjur hvoru megin við prjónamerki). Látið prjónamerkið fylgja með í stykkinu, það á að nota þau síðar þegar fækka á lykkjum mitt undir ermi. Byrjið umferð við prjónamerki og prjónið sléttprjón hringinn. Þegar ermin mælist 3 cm, fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með ca 4-5-5-6-7-6½ cm millibili alls 4-4-5-5-5-6 sinnum = 42-44-46-48-50-52 lykkjur. Prjónið án úrtöku þar til ermin mælist 21-25-29-33-37-41 cm frá skiptingu. Nú eru eftir ca 4 cm til loka máls. Mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 9-10-8-9-10-8 lykkjur jafnt yfir = 51-54-54-57-60-60 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjóna 3.
Prjónið A.2 hringinn í 4 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá AFFELLING.
Ermin mælist ca 25-29-33-37-41-45 cm frá skiptingu.
Prjónið hina ermina alveg eins.

BLÓM OG BÝFLUGA:
Saumið er út 1 býfluga og 2 blóm á framstykki – sjá mynd.
Býflugan er saumuð út með einföldum þræði og flatsaumi í röndum og á toppinn eru staðsettir 2 vængir í keðjuspori.
Saumuð eru út 2 mismunandi blóm.

BÝFLUGA – KOKSGRÁR BÚKUR:
Byrjið með 1 þræði með litnum koksgrár – sjá mynsturteikningu C og útskýringu á mynsturteikningu. Byrjið á að sauma út ca 4-5 cm niður frá kanti í hálsi og ca 8-10 cm frá vinstri laskalínu á framstykki.
Saumið út 2 spor með flatsaum á ská upp til hægri, þétt saman ca 0,5 að lengd. Hoppaðu upp til vinstri ca 0,5 cm, samhliða með fyrstu 2 sporunum og saumaðu 4 spor með flatsaum þétt saman sem eru ca 1 cm að lengd (= miðjan á býflugu), hoppaðu fram 0,5 cm samhliða með miðju spori og saumaðu 2 spor flatsaum þétt saman sem eru ca 0,5 cm löng.
Nú á að sauma út fætur undir miðju á 4 miðju sporum, saumið 2 spor flatsaum fyrir fætur sem eru ca 0,5 langir.

BÝFLUGA – SINNEPSGULUR BÚKUR:
Skiptið yfir í 1 þráð með litinn sinnepsgulur. Saumið nú með flatsaumi í bilið á milli miðju á býflugu og framhlið á býflugu – saumið 4 spor með flatsaum jafn löng spor og koksgráa sporið sem er næst. Saumið síðan flatsaum í bilið á milli miðju á býflugu og bakhluta á býflugu – saumið 4 spor með flatsaumi jafn löng og koksgráa sporið sem er næst.

BÝFLUGA – VÆNGIR:
Notið 1 þráð og litinn hvítur, vængirnir samanstanda af 2 sporum keðjusaum sem báðir byrja frá sömu átt.
Byrjið á að sauma út þannig:
SPOR 1: Saumið út spor með keðjusaum sem er ca 1 – 1,5 cm á lengd og látið sauminn snúa aðeins aftur á bak að bakhluta á býflugu – sjá mynsturteikningu B og útskýringu á mynsturteikningu.
SPOR 2: Saumið út spor með keðjusaum sem er ca 1 – 1,5 cm á lengd og látið sauminn snúa aðeins fram að framhlið á býflugu.

BLÓM-1 (7 krónublöð):
Byrjið með að sauma út leggsaum með litnum bleikur – sjá mynsturteikningu A og útskýringu á mynsturteikningu – hnúturinn er saumaður þannig að hann verði ca 1 cm að þvermáli. Hnúturinn er staðsettur ca 3 cm frá býflugu, á ská niður til hægri.
Þetta er miðjan á blóminu.
Síðan er saumaður keðjusaumur í kringum miðju á blómi með litnum hvítur - sjá mynsturteikningu B og útskýringu á mynsturteikningu, það á að sauma út 7 spor í kringum miðju og hvert spor er ca 1,5 cm langt. Klippið þræðina og festið.

BLÓM-2 (5 krónublöð):
Byrjaðu á að sauma út leggsaum með litnum bleikur – sjá mynsturteikningu A og útskýringu á mynsturteikningu – hnúturinn er saumaður út þannig að hann verði ca 1 cm að þvermáli. Hnúturinn er staðsettur ca 5 cm frá miðju á blómi-1, á hlið niður til vinstri.
Þetta er miðjan á blóminu.
Síðan er saumaður keðjusaumur í kringum miðju á blómi með litnum hvítur – sjá mynsturteikningu B og útskýringu á mynsturteikningu, það á að sauma út 5 spor í kringum miðju og hvert spor er ca 1 cm langt. Klippið þræðina og festið.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 23.09.2021
BERUSTYKKI:..Skiptið yfir á hringprjón 4.

Mynstur

symbols = snúin slétt lykkja
symbols = brugðin lykkja
symbols = slétt lykkja
symbols = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn, svo ekki myndist gat
symbols = prjónið 6 lykkjur slétt saman
symbols = Leggsaumshnútur mynd 1-4.
MYND 1: Stingdu nálinni inn frá röngu og upp að framhlið þar sem leggsaumurinn á að byrja.
MYND 2: Stingdu nálinni niður í stykkið og út aftur að röngu ca 0,5 – 1,5 lykkju frá gati þar sem þráðurinn kom upp.
MYND 3: Saumaðu upp og niður í þessi göt eins mörgum sinnum og þörf er á til að hnúturinn verði í óskaðri stærð.
MYND 4: Leggsaumshnútur. Festu þræðina frá röngu.
symbols = Keðjusaumur - einfaldur mynd 1-6.
MYND 1: Stingdu nálinni inn frá röngu og upp að framhlið þar sem þú vilt að keðjusaumurinn byrji.
MYND 2: Stingdu nálinni aftur niður í sama gat og þráðurinn kom frá og stingdu toppnum á nálinni aftur upp í framhliðina ca 2 cm lengra fram – láttu þráðinn liggja undir toppnum á nálinni.
MYND 3: Dragðu nú nálina í gegnum stykkið og þá myndast lykkja með þræðinum sem kemur upp í miðju á lykkju.
MYND 4: Stingdu nálinni niður í stykkið ca 0,5 lykkju framan við bogann og dragðu nálina í gegnum stykkið.
MYND 5: Keðjusaumurinn er nú tilbúinn, ef þú vilt hafa fleiri spor þá er hægt að endurtaka MYND 1. Festu þráðinn frá röngu.
MYND 6. Hér er keðjusaumur sýndur saumaður lóðrétt, lárétt og frá hlið, nokkrir byrja frá sama gati og aðrir saumar frá sitt hvoru gatinu.
symbols = Flatsaumur mynd 1-4.
MYND 1: Stingdu nálinni inn frá röngu og upp að framhlið þar sem þú vilt að fyrsta sporið með flatsaum byrji.
MYND 2: Hoppaðu fram 0,5 – 1 cm og stingdu nálinni niður í stykki og aftur upp þar sem þú vilt byrja á næsta spori með flatsaum og dragðu þráðinn í gegn.
MYND 3: Hoppaðu fram 0,5 – 1 cm og stingdu nálinni niður í stykkið og aftur upp þar sem þú vilt byrja á næsta spori með flatsaum og dragðu þráðinn í gegn.
Haltu svona áfram þar til þú hefur eins mörg spor og þig langar til. Festu þræðina að röngu.
MYND 4: Flatsaumur sýndur í mismunandi stefnum og mismunandi lengdum.
diagram
diagram
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS Children 40-1

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (14)

country flag AM wrote:

How do you knit 6 stitches together?

17.02.2024 - 08:40

DROPS Design answered:

Dear AM, you can use the following video, but you need to knit together 6 instead of 5 as in the video: https://www.garnstudio.com/video.php?id=685&lang=en. Knit 6 tog as follows: K 6, pass them back on left needle, pass the next to last st over the last so that this st is around the last st, repeat until all 5 sts have been passed over (= 5 sts dec), pass the last st worked back on right needle. Happy knitting!

18.02.2024 - 21:54

country flag Cristiana wrote:

In A1 si legge di lavorare 6 maglie assieme. Non riesco a mettere 6 maglie assieme e lavorarle, come posso fare? Grazie

16.02.2024 - 21:14

DROPS Design answered:

Buongiorno Cristiana, può lavorare 6 maglie diritto e poi accavallare la penultima maglia sull'ultima e così via fino a quando sono state diminuite tutte le maglie. Buon lavoro!

17.02.2024 - 13:24

country flag Valentina wrote:

Hallo, ich kann nicht sehen Diagramm A1 und A2. Wie kann man es finden?

14.12.2023 - 18:44

DROPS Design answered:

Liebe Valentina, Diagramme A.1 und A.2 finden Sie bei der Maßskizze, unter den Ärmel. Viel Spaß beim stricken!

15.12.2023 - 09:05

country flag Margret wrote:

Können Sie mir bitte erklären wie ich 6Maschen zusammenstricken kann, ohne dabei die Nadeln zu verbiegen

17.11.2022 - 16:44

DROPS Design answered:

Liebe Margret, dieses Video zeigt, wie man 5 Maschen zusammenstrickt, so stricken Sie aber mit 6 Maschen anstatt 5. Viel Spaß beim stricken!

17.11.2022 - 17:12

country flag Åshild wrote:

Hei! Jeg sliter med starten. Hvordan strikker jeg A1?

15.04.2022 - 20:20

DROPS Design answered:

Hei Åshild, A.1 gir deg toppen av halsen som ruller litt utover. Første omgangen er 1 rett, strikke 6 masker rett sammen, 1 rett og dette gjentar du til slutten av omgangen. Neste omgang har du 1 kast, 1 rett, 1 kast, 1 rett, 1 kast, 1 rett og dette gjentas rundt. 3 omgang er strikke rett. Håper dette hjelper og god fornøyelse!

19.04.2022 - 10:29

country flag Helen wrote:

I have the pattern for your Bee Season Jumper and am confused as to A.1 directions. How do I knit into 6 stitches at once? Can you give me written instructions for A.1 rather than as a diagram?

31.01.2022 - 23:19

DROPS Design answered:

Dear Helen, the first row in A.1 is worked over 8 sts as follows: K1, K6 together, K1 (=3 sts remain); on next row work: (YO, K1, YO, K1, YO, K1), there are now 6 sts. Knit all sts on 3rd round, knitting the yarn overs twisted to avoid holes. Happy knitting!

01.02.2022 - 09:20

country flag Sharon wrote:

Hi, Could you please explain A.1 and A.2 in text, as in French above. Many thanks.

10.01.2022 - 22:37

DROPS Design answered:

Hi Sharon, A.1: Row 1 - K1, knit 6 together, K1, repeat. Row 2 - 1 yarn over, K1, 1 yarn over, K1, 1 yarn over, K1, repeat. Row 3 - Knit. A.2: All rows - Knit 2 twisted (knit in the back loop), P1|, repeat. Happy knitting!

11.01.2022 - 07:43

country flag Sara wrote:

Buongiorno, per favore, posso chiedere la spiegazione di A1 e A2 in testo? Non riesco a capire correttamente il diagramma. Grazie mille in anticipo per l'aiuto

28.12.2021 - 15:44

DROPS Design answered:

Buongiorno Sara, purtroppo non ci è possibile scrivere le spiegazioni dei diagrammi, ma se ha delle specifiche difficoltà possiamo aiutarla. Buon lavoro!

28.12.2021 - 16:18

country flag M Laure wrote:

Bonjour Je ne comprends pas le diagrame A1. SVP, pourriez vous me l'expliquer en texte. Merci beaucoup.

11.12.2021 - 09:32

DROPS Design answered:

Bonjour M Laure, le diagramme A.1 se tricote sur 8 mailles ainsi: 1er tour: *1 m end, 6 m ens à l'end, 1 m end*, répétez de *-* (il reste 3 m dans chaque A.1). Au tour suivant, tricotez ainsi: *1 jeté, 1 m end, 1 jeté, 1 m end, 1 jeté, 1 m end*, répétez de *-* (= vous avez maintenant (6 m dans chaque A.1). Au 3ème tour, tricotez toutes les mailles à l'endroit. Bon tricot!

13.12.2021 - 08:55

country flag Tombeur wrote:

On fait le col sur 112 mailles puis on tricot A1 puis on augmente de 3 mailles et on se retrouve avec 87 mailles on tricote A2 et a l'empiècement on augmente de 16 m on a 100m , on perd autant de maille avec le dessin A1

04.10.2021 - 13:03

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Tombeur, A.1 se tricote sur 8 mailles soit 14 x 8 = 112 mailles. Quand A.1 est terminé, il reste 6 mailles x 14 = 84 mailles, on augmente 16 mailles après A.2 = 100 mailles. Est-ce que ceci peut vous aider?

05.10.2021 - 06:53