Jutta skrifaði:
In Ihren Anleitungen hatten Sie immer ein Diagram mit Symbolen fuer das Muster und eine Skizze mit den Massen. Seit ein paar Tagen ist das in keinem ihrer Anleitungen. Warum nicht ? Muss ich etwas besonderes tun um dies zu bekommen?
02.10.2021 - 21:16DROPS Design svaraði:
Liebe Jutta, wir hatten einige Darstellungsprobleme, aber jetzt ist alles eingestellt, aktualisieren Sie die Seite oder bereinigen Ihren Browser-Cache, Bilder und Diagramme sollten jetzt angezeigt werden. Viel Spaß beim stricken!
04.10.2021 - 08:11
SOFIA skrifaði:
It took me four hours, a drawing and lots of frogging to understand the first part. Many Drops patterns are sooo time consuming!!! Such a waste of time.
14.06.2021 - 19:26
Willy skrifaði:
Prachtig mooi voor de zomer
22.02.2021 - 09:35
Monique skrifaði:
Beauty
20.02.2021 - 22:32
Julie skrifaði:
Scent of the sea
11.01.2021 - 04:46
Doris skrifaði:
May
08.01.2021 - 16:39
Valeria skrifaði:
Elegante e ricercato.
08.01.2021 - 09:17
Conny skrifaði:
Rosalie
08.01.2021 - 08:13
Fanny skrifaði:
Evening stroll
07.01.2021 - 22:13
Rosebud Parade Cardigan#rosebudparadecardigan |
||||||||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Muskat eða DROPS Sky. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með laskalínu, gatamynstri, hnútum og ¾-löngum ermum. Stærð S - XXXL.
DROPS 221-33 |
||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. ÚTAUKNING/ÚRTAKA (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig fjölga/fækka eigi lykkjum jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 112 lykkjur), mínus kanta að framan (t.d. 10 lykkjur) og deilið þeim lykkjum sem eftir eru með fjölda útaukninga/úrtöku sem á að gera (t.d. 2) = 51. Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn eftir 51. hverja lykkju og ekki er aukið út yfir kanta að framan. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat. Ef fækka á lykkjum þá er prjónuð í þessu dæmi 50. og 51. hver lykkja slétt saman. LASKALÍNA: Öll útaukning er gerð frá réttu! Aukið út um 1 lykkju hvoru megin við 3 lykkjur slétt í hverri skiptingu á milli framstykkis/bakstykki og erma = 8 lykkjur fleiri í umferð (það eru 2 lykkjur á milli útaukninga á framstykki/bakstykki og prjónamerki og 1 lykkja á milli útaukningar á ermi og prjónamerki). Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn, svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur á ermum í sléttprjóni. Á framstykki og bakstykki eru nýjar lykkjur prjónaðar jafnóðum inn í mynstur A.1 (þ.e.a.s. prjónað er sléttprjón þar til nægilega margar lykkjur eru komnar til að byrja á nýrri mynstureiningu með gatamynstri/hnút = A.1). Setjið e.t.v. eitt prjónamerki á undan/á eftir hverja mynstureiningu A.1 svo auðveldara sé að sjá hvar ný mynstureining byrjar. ÚRTAKA (á við um ermar): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan lykkju með prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið næstu 3 lykkjur slétt (miðjulykkjan af þessum lykkjum er lykkja með prjónamerki í), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan (þegar flíkin er mátuð): Fellið af frá réttu þegar 3 lykkjur eru eftir á prjóni þannig: Sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 næstu lykkjur slétt saman og prjónið síðustu lykkju slétt. Í næstu umferð (ranga) er uppslátturinn prjónaður slétt, svo það myndist gat. Fellið af fyrir fyrsta hnappagatinu þegar stroff í hálsmáli mælist ca 2 cm. Fellið síðan af fyrir 4-4-5-5-5-5 næstu hnappagötum með ca 9-9-8-8-8½-9 cm millibili. AFFELLING: Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 5. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Kantur í hálsmáli og berustykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna frá miðju að raman, ofan frá og niður. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykkið er fram og til baka á hringprjóna, ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna / stuttan hringprjón, ofan frá og niður. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 113-118-123-128-133-133 lykkjur (meðtaldar 5 kantlykkjur að framan í hvorri hlið við miðju að framan) á hringprjón 3 með Muskat eða Sky. Prjónið 1 umferð brugðið (= ranga). Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið 5 kantlykkjur að framan í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * prjónið 3 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* þar til 8 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 3 lykkjur og endið með 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff í 2 cm – munið eftir HNAPPAGAT í hægri kanti að framan – sjá útskýringu að ofan. Þegar stroffið hefur verið prjónað til loka, prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem lykkjufjöldinn er jafnaður út til 114-114-122-122-142-142 lykkjur með því að auka út eða fækka lykkjum jafnt yfir – sjá ÚRTAKA/ÚTAUKNING. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu (uppslátturinn er prjónaður snúinn brugðið og kantar að framan eru prjónaðir í garðaprjóni). Skiptið yfir á hringprjón 4. Setjið eitt prjónamerki á eftir kant að framan í byrjun á umferð mitt að framan, berustykkið er nú mælt frá þessu prjónamerki! BERUSTYKKI: Prjónið nú mynstur og setjið 4 prjónamerki í stykkið þannig: Prjónið 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, prjónið síðustu 8 lykkjur í A.1, síðan er A.1 prjónað yfir næstu 0-0-9-9-9-9 lykkjur (= 0-0-1-1-1-1 mynstureining með 9 lykkjum), prjónið fyrstu 7-7-0-0-5-5 lykkjur í A.1, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 lykkjur sléttprjón, setjið eitt prjónamerki hér (= í skiptinguna á milli vinstra framstykkis og vinstri ermi), 1 lykkja sléttprjón, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið sléttprjón yfir næstu 15 lykkjur, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja sléttprjón, setjið eitt prjónamerki hér (= í skiptinguna á milli vinstri ermi og bakstykkis), 2 lykkjur sléttprjón, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið síðustu 7-7-0-0-5-5 lykkjur í A.1, prjónið A.1 yfir næstu 18-18-36-36-36-36 lykkjur (= 2-2-4-4-4-4 mynstureiningar með 9 lykkjum), prjónið fyrstu 7-7-0-0-5-5 lykkjur í A.1, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 lykkjur sléttprjón, setjið eitt prjónamerki hér (= í skiptinguna á milli bakstykkis og hægri ermi), 1 lykkja sléttprjón, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið sléttprjón yfir næstu 15 lykkjur, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja sléttprjón, setjið eitt prjónamerki hér (= í skiptinguna á milli hægri ermi og hægra framstykkis), 2 lykkjur sléttprjón, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið síðustu 7-7-0-0-5-5 lykkjur í A.1, prjónið A.1 yfir næstu 0-0-9-9-9-9 lykkjur (= 0-0-1-1-1-1 mynstureiningar með 9 lykkjum), prjónið fyrstu 8 lykkjur í A.1, 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Nú hafa verið auknar út 8 lykkjur fyrir LASKALÍN – sjá útskýringu að ofan. Haldið svona áfram með mynstur og aukið út fyrir laskalínu í annarri hverri umferð (þ.e.a.s. í hverri umferð frá réttu) alls 24-26-29-32-35-38 sinnum = 306-322-354-378-422-446 lykkjur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar öll útaukning fyrir laskalínu hefur verið gerð, mælist stykkið ca 17-19-21-23-25-27 cm frá prjónamerki við hálsmál. Haldið áfram með mynstur og sléttprjón þar til berustykkið mælist 19-21-23-25-27-29 cm frá prjónamerki. Nú skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. Næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið fyrstu 46-49-53-58-65-70 lykkjur (= framstykki), setjið næstu 65-67-75-77-85-87 lykkjur á þráð fyrir ermi og fitjið upp 7-9-11-11-11-11 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið næstu 84-90-98-108-122-132 lykkjur (= bakstykki), setjið næstu 65-67-75-77-85-87 lykkjur á þráð fyrir ermi og fitjið upp 7-9-11-11-11-11 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið síðustu 46-49-53-58-65-70 lykkjur (= framstykki). Prjónið síðan fram- og bakstykki og ermar til loka hvert fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 190-206-226-246-274-294 lykkjur. Haldið áfram fram og til baka með 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni eins og áður og prjónið eins margar einingar A.1 og pláss er fyrir að hliðum undir ermum - þær lykkjur sem eru eftir eru prjónaðar í sléttprjóni. Haldið svona áfram þar til stykkið mælist ca 17 cm frá skiptingu – endið eftir 8. eða 16. umferð í mynstri og prjónið e.t.v. nokkrar umferðir í sléttprjóni til að ná réttu máli. Í næstu umferð frá réttu eru auknar út 28-32-32-37-39-44 lykkjur jafnt yfir = 218-238-258-283-313-338 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 3. Prjónið 1 umferð til baka frá röngu. Nú er prjónað stroff frá réttu þannig: Prjónið 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, * prjónið 3 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* þar til 8 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 3 lykkjur slétt og endið með 5 kantlykjum að framan í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff í 2 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá AFFELLING. Peysan mælist ca 42-44-46-48-50-52 cm frá öxl og niður. ERMI: Setjið til baka 65-67-75-77-85-87 lykkjur af þræði í annarri hlið á stuttan hringprjón / sokkaprjóna 4. Prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 7-9-11-11-11-11 lykkjum undir ermi = 72-76-86-88-96-98 lykkjur. Setjið eitt prjónamerki í miðjulykkju undir ermi. Látið prjónamerkið fylgja með í stykkinu, það á að nota það síðar þegar fækka á lykkjum undir ermi. Haldið áfram hringinn í sléttprjóni. Þegar stykkið mælist 4-4-3-3-3-2 cm frá skiptingu, fækkið um 2 lykkjur undir ermi – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með ca 2½-2-1½-1½-1-1 cm millibili alls 11-12-16-15-19-19 sinnum = 50-52-54-58-58-60 lykkjur. Haldið áfram þar til ermin mælist 30-28-27-25-23-22 cm. Aukið út um 5-8-6-7-7-10 lykkjur jafnt yfir = 55-60-60-65-65-70 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjóna 3. Prjónið stroff (= 3 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 2 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – munið eftir AFFELLING. Ermin mælist ca 32-30-29-27-25-24 cm. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið tölur í vinstri kant að framan. |
||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||
|
||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #rosebudparadecardigan eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 27 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 221-33
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.