DROPS Snow
DROPS Snow
100% Ull
frá 550.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 2750.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS Super Sale

Diamonds in the Sky

Prjónuð peysa úr DROPS Snow eða DROPS Wish. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með laskalínu, gatamynstri og ¾-löngum, víðum ermum. Stærð S - XXXL.

DROPS 221-29
DROPS Design: Mynstur ee-714
Garnflokkur E eða C + C
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL - XXXL

EFNI:
DROPS SNOW frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki E)
500-550-600-650-750-800 g litur 88, krít
Eða notið:
DROPS WISH frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki E)
400-400-450-500-550-600 g litur 02, hvít þoka

PRJÓNFESTA:
10 lykkjur á breidd og 14 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 9: lengd 40 cm og 80 cm fyrir sléttprjón/mynstur.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 8: lengd 40 cm og 80 cm fyrir stroff.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Snow
DROPS Snow
100% Ull
frá 550.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 2750.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS Super Sale

30% AFSLÁTTUR á 6 tegundum af bómullargarni!
Tilboðið gildir til 12.04.2024

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------<br />
UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.6. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð.

ÚTAUKNING (jafnt yfir):
Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 46 lykkjur) og deilið lykkjum með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 10) = 4,6.
Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn til skiptis á eftir ca 4. og 5. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn, svo ekki myndist gat.

LASKALÍNA:
Aukið út um 1 lykkju hvoru megin við 2 lykkjur með prjónamerki (prjónamerki situr mitt á milli þessa 2 lykkja) - í hverri skiptingu á milli fram- og bakstykkis og erma (= 8 lykkjur fleiri í útaukningsumferð) þannig. Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt, það eiga að myndast göt. Prjónið síðan nýjar lykkjur inn í mynstur á framstykki og bakstykki og í sléttprjóni á ermum.

AFFELLING:
Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 4. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja).

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað í hring á hringprjóna, ofan frá og niður. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Hvert stykki er prjónað í hring á hringprjón hvert fyrir sig, ofan frá og niður.

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Fitjið upp 46-48-50-54-56-58 lykkjur á stuttan hringprjón 8 með Snow eða Wish. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff (= 1 lykkju slétt, 1 lykkju brugðið) hringinn í 4 cm.
Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 10-8-6-6-4-2 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING = 56-56-56-60-60-60 lykkjur. Prjónið 1 umferð slétt.
Skiptið yfir á hringprjón 9. Setjið 1 prjónamerki eftir 20-20-20-21-21-21 lykkjur (= ca mitt að framan), berustykkið er nú mælt frá þessu prjónamerki!

BERUSTYKKI:
Nú er mynstrið prjónað og það eru sett 4 prjónamerki í stykkið þannig: Setjið eitt prjónamerki í byrjun á umferð (= í skiptinguna á milli bakstykkis og hægri ermi), 1 lykkja slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, slétt lykkja yfir næstu 7 lykkjur, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt, setjið eitt prjónamerki hér (= í skiptinguna á milli hægri ermi og framstykki), 1 lykkja slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, A.1 yfir fyrstu 5-5-5-6-6-6 lykkjurnar, A.2 yfir næstu 8 lykkjur, A.3 yfir næstu 4-4-4-5-5-5 lykkjur, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt, setjið eitt prjónamerki hér (= í skiptinguna á milli framstykkis og vinstri ermi), 1 lykkja slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 7 lykkjur slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt, setjið eitt prjónamerki hér (= í skiptinguna á milli vinstri ermi og bakstykkis), 1 lykkja slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, A.1 yfir fyrstu 5-5-5-6-6-6 lykkjur, A.2 yfir næstu 8 lykkjur, A.3 yfir næstu 4-4-4-5-5-5 lykkjur, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Fyrsta útaukningin fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan, er nú lokið. Haldið áfram hringinn með mynstur svona og aukið út fyrir laskalínu í annarri hverri umferð alls 14-16-17-18-20-21 sinnum = 168-184-192-204-220-228 lykkjur.
Eftir síðustu útaukningu mælist stykkið ca 20-23-24-26-29-30 cm frá prjónamerki eftir stroff. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 21-23-25-27-29-31 cm frá prjónamerki eftir stroff í hálsi án þess að auka út fleiri lykkjur (prjónið eins margar lykkjur af mynstri og hægt er að laslaklínu, en passið uppá að það séu gerðir jafnmargir uppslættir og lykkjur sem fækkað var í mynstri þannig að lykkjufjöldinn haldist stöðugur – þær lykkjur sem eftir eru, eru prjónaðar í sléttprjóni).

Í næstu umferð (þ.e.a.s. í umferð með sléttum lykkjum) – stillið af að umferðin byrji nú 1 lykkju á undan byrjun á umferð, prjónið þannig:
Setjið fyrstu 39-43-45-47-51-53 lykkjurnar á þráð fyrir ermi, fitjið upp 5-5-7-7-9-9 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið næstu 45-49-51-55-59-61 lykkjur eins og áður (= framstykki), setjið næstu 39-43-45-47-51-53 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 5-5-7-7-9-9 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið næstu 45-49-51-55-59-61 lykkjur eins og áður (= bakstykki).
Prjónið síðan fram- og bakstykki og ermar hvert fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ MÆLT!

FRAM- OG BAKSTYKKI:
= 100-108-116-124-136-140 lykkjur. Prjónið sléttar lykkjur fram að miðjulykkju sem fitjuð var upp undir ermi.
Nú byrjar umferð á undan þessari lykkju.
Síðan á mynstrið frá berustykki að halda áfram á fram- og bakstykki.
Þess vegna er mikilvægt að stilla af í hvaða umferð í mynsturteikningu á að byrja þegar mynstrið er prjónað.
Prjónið mynstur og sléttprjón í hliðum þannig:
* Prjónið 1-3-5-3-6-7 lykkjur, A.4 yfir næstu 9 lykkjur (veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð), prjónið A.6 yfir næstu 24 lykkjur (veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð), prjónið fyrstu 8-8-8-16-16-16 lykkjur í A.6, prjónið A.5 yfir næstu 8 lykkjur (veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð), 0-2-4-2-5-6 lykkjur slétt *, prjónið frá *-* 1 sinni til viðbótar í umferð.
Þegar stykkið mælist 24 cm, prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 10-10-12-12-14-14 lykkjur jafnt yfir = 110-118-128-136-150-154 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 8. Prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) hringinn í 4 cm.
Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Peysan mælist ca 54-56-58-60-52-64 cm frá öxl og niður.

ERMI:
Setjið til baka 39-43-45-47-51-53 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á stuttan hringprjón 9 og prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 5-5-7-7-9-9 nýjum lykkjum sem fitjaðar voru upp í hlið undir ermi = 44-48-52-54-60-62 lykkjur. Prjónið sléttprjón hringinn. Þegar ermin mælist 20-18-17-15-13-12 cm, aukið út 4-4-4-4-6-6 lykkjur jafnt yfir = 48-52-56-58-70-68 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 8. Prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) hringinn í 4 cm.
Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Ermin mælist ca 24-22-21-19-17-16 cm frá skiptingu.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

Mynstur

symbols = slétt lykkja frá réttu, brugðin lykkja frá röngu
symbols = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt – það eiga að myndast göt
symbols = 2 lykkjur slétt saman
symbols = lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð
symbols = lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 2 lykkjur slétt saman, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjurnar sem prjónaðar voru saman
symbols = ef prjónfestan hefur haldist er berustykkinu lokið við ör í þinni stærð
diagram
diagram
diagram
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 221-29

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (27)

country flag Mary wrote:

But that’s precisely the problem! If I start the third line A4 from the underarm (the first stitch of the new round is basically the third stitch from the underarm) I get the mismatch because the triangle will be stitched earlier: I can’t understand where I am going wrong

09.04.2023 - 14:12

DROPS Design answered:

Dear Mary, you need to adjust the stitches before starting the triangle. In this case, you need to simply knit stitches (not just the amount indicated in the pattern) so that the triangle won't be mismatched. The pattern under the arm may get slightly mismatched initially but that isn't important, since it will later on match correctly. Happy knitting!

10.04.2023 - 13:34

country flag Mary wrote:

Yes, I can see that the pattern is the same. But if I follow the instructions from A4 third line, I should start the "triangle" after 3 stitches of the body, while according to the stitches I have after the line with the arrow, A1, I should start the triangle after 5 stitches but this means that it will be "anticipated" hence the mismatch. Does it mean that I have not divided the garment accordingly? Many thanks and Happy Easter!

09.04.2023 - 11:09

DROPS Design answered:

Dear Mary, take into account that you should have adjusted the start of the round in the body; you adjust so that the beginning of the round is in the middle stitch cast on under the sleeve. This should help adjust the pattern so that the triangle in A.4 won't get mismatched with the pattern in the yoke in A.1. Happy knitting!

09.04.2023 - 13:30

country flag Mary wrote:

Thanks! But I am still confused: the instructions say that the yoke is finished when I have 168 stitches (S size). If I had not knit the last row (the one with the arrow), I would not have got 168 stitches. In any case, once I have knit the row with the arrow, if I then start A4 from the third line I still get a mismatch in the pattern and I do not know where I get it wrong. Well, I know that I do something wrong while shifting from the yoke to the body but I can't figure out what.

07.04.2023 - 10:25

DROPS Design answered:

Dear Mary, after having worked the row with the arrow, you should have knitted round, where you separated the stitches for each part of the garment. Then, you should start the body with the third row of A.4. There shouldn't be a mismatch there. You can check that the third row of A.4 is exactly like the third row in A.1 after the row with the arrow, so they should be matching. Hope this helps!

08.04.2023 - 20:58

country flag Mary wrote:

Thanks! But I am still confused: the instructions say that the yoke is finished when I have 168 stitches (S size). If I had not knit the last row (the one with the arrow), I would not have got 168 stitches. In any case, once I have knit the row with the arrow, if I then start A4 from the third line I still get a mismatch in the pattern and I do not know where I get it wrong. Well, I know that I do something wrong while shifting from the yoke to the body but I can't figure out what.

07.04.2023 - 10:20

DROPS Design answered:

Dear Mary, after having worked the row with the arrow, you should have knitted round, where you separated the stitches for each part of the garment. Then, you should start the body with the third row of A.4. There shouldn't be a mismatch there. You can check that the third row of A.4 is exactly like the third row in A.1 after the row with the arrow, so they should be matching. Hope this helps!

08.04.2023 - 20:59

country flag Mary wrote:

Sorry, I am still unclear: I have finished the yoke knitting the A1-A3-A5 line with the arrow. Then I divided the work and I went for a knitted round. Now which line should I knit first and from which diagram?

05.04.2023 - 09:04

DROPS Design answered:

Dear Mary, the arrows in the chart mean that, if the gauge is correct, you should finish the raglan/yoke when you reach the arrow for your size (before working it). If you have worked this row, then you will need to start the new part by working the third row of the new chart (A.4). Happy knitting!

06.04.2023 - 23:29

country flag Mary wrote:

Hi! "Continue the pattern from yoke on body – making sure to continue with the correct row in the diagram after the yoke. " Does this mean that if I finish A1 (S size) with the line with the arrow, the next line for the body in A4 is in fact the thirs one of the diagram?

04.04.2023 - 08:59

DROPS Design answered:

Hi Mary, Yes, if you finished the diagram before separating for the body and sleeves, you continue with the first row in the diagram. Happy Easter!

05.04.2023 - 07:01

country flag Mary wrote:

"Knit as far as the middle stitch cast on under the sleeve. The round now starts here." Does it mean that the round starts after the second or after the third stitch under the sleeve? Many thanks!

08.03.2023 - 16:03

DROPS Design answered:

Dear Mary, yes correct: work the first 2 of the 5 stitches cast on under 1st sleeve, the rounds will now start here, before the middle of the new stitches. Happy knitting!

08.03.2023 - 16:08

country flag Mary wrote:

Following from your last answer: "...you will start the next round 1 stitch eariler. So, you need to not work the last stitch of the previous round". I interpret this as moving the stitch marker one stitch behind and working that stitch as the first one of the next round rather than the last one of the previous round. Is this correct? So it is basically just a matter of moving the stitch marker?

07.03.2023 - 12:16

DROPS Design answered:

Dear Mary, you will now work the dividing round, this means you don't need the markers anymore, you start working the dividing round when the last stitch on previous round remain on left needle, slip the next 39 sts (starting with the last stitch previous round + the first 38 sts next round). Happy knitting!

07.03.2023 - 14:37

country flag Mary wrote:

Hi, I have just finished all the increases on the raglan and I have 168 stitches (S size). I'll go now go for a knitted round but what does it mean " adjust so the round now starts 1 stitch earlier"? Plus, the 39 stitches I habe to put aside, correspond to the stiches that are within the first and the second marker?

04.03.2023 - 10:25

DROPS Design answered:

Dear Mary, after finishing the increases and reaching the indicated length (21cm from the marker), you will start the next round 1 stitch eariler. So, you need to not work the last stitch of the previous round. On the other hand, the first marker was inserted in the transition between the back and the sleeve and the second marker between the sleeve and the front. Since you have to put aside the stitches which correspond to the sleeve, these stitches are all in between the first and 2nd marker. Happy knitting!

05.03.2023 - 20:45

country flag Mary wrote:

I am sorry, I have tried many times to work this without success. Can you please just tell me what I should do between the 1st and the 2nd marker in the second raglan? Maybe in this way, I can understand the logic. But if you do not specify the bit between these 2 markers, I am lost. Many thanks in advance!

11.02.2023 - 10:45

DROPS Design answered:

Dear Mary, Work as follows: marker 1, k1 (=raglan line), 1YO, k7 (= sleeve), 1 YO, k1, 2nd marker, k1 (=raglan line), 1 YO, A.1, A.2, A.3 (for the front), 1 YO, k1, 3rd marker, k1 (= raglan line), e.t.c. Happy knitting!

13.02.2023 - 00:02