Time for Fun |
||||
|
|
|||
Settið samanstendur af: Prjónuðum heilgalla fyrir börn án ermasauma í garðaprjóni og hekluðum kanti, húfu með garðaprjóni með hekluðum kanti og dúskum og prjónuðum sokkum. Stærð fyrirburar - 4 ára. Settið er prjónað úr DROPS BabyMerino.
DROPS Baby 31-15 |
||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka – á við um heilgalla og sokka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. GARÐAPRJÓN (prjónað í hring – á við um húfu): *1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*. ÚTAUKNING (á við um heilgalla): Lykkjur eru auknar út innan við 1 kantlykkju að framan. Öll útaukning er gerð frá réttu. Aukið er út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Uppslátturinn er prjónaður snúinn slétt í næstu umferð, það eiga ekki að myndast göt. ÚRTAKA (á við um heilgalla): Lykkjum er fækkað innan við 1 kantlykkju að framan. Öll úrtaka er gerð frá réttu. Fækkið lykkjum á eftir 1 kantlykkju að framan þannig: Takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir. Fækkið lykkjum á undan 1 kantlykkju að framan þannig: Prjónið 2 lykkjur slétt saman. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- HEILGALLI - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað neðan frá og upp. Prjónið fyrst 2 skálmar, síðan eru skálmarnar prjónaðar saman og prjónað fram og til baka upp að ermum. Fitjaðar eru upp lykkjur fyrir ermi í hvorri hlið á stykki og framstykki og bakstykki er prjónað hvort fyrir sig til loka. Axla- og hliðarsaumar eru saumaðir og kantur heklaður í kringum op á gallanum með litnum natur í lokin. Allur gallinn er prjónaður í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. SKÁLM: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjón til að fá pláss fyrir allar lykkjur. Fitjið upp 46-50-54-58 (66-70) lykkjur (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið) á hringprjón 3 með litnum ljós grár. Prjónið garðaprjón. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 6 cm er aukið út um 1 lykkju hvoru megin á stykki innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni (= 2 lykkjur fleiri). Aukið svona út í 3.-4.-5.-5. (8.-8.) hverri umferð alls 11-11-12-14 (13-16) sinnum = 68-72-78-86 (92-102) lykkjur. Þegar stykkið mælist 15-18-21-24 (29-34) cm fækkið um 5 lykkjur í byrjun á 2 næstu umferðum fyrir klofi (þ.e.a.s. fækkið lykkjum hvoru megin á stykki) = 58-62-68-76 (82-92) lykkjur. Geymið stykkið og prjónið hina skálmina á sama hátt. GALLI: Setjið báðar skálmarnar á sama hringprjón 3 með affellingarkanta að hvorum öðrum = 116-124-136-152 (164-184) lykkjur. Setjið 1 prjónamerki í stykkið. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Prjónið 6 umferðir garðaprjón, fram og til baka, með byrjun við miðju að framan. Prjónið síðan þannig: Fitjið upp 3 nýjar kantlykkjur að framan í lok 2 næstu umferða = 122-130-142-158 (170-190) lykkjur. Setjið 1 prjónamerki 32-34-37-41 (44-49) lykkjur inn frá hvorri hlið. Látið prjónamerkin fylgja með í stykkinu, þær merkja framstykki og bakstykki. Nú eru auknar út lykkjur við miðju að framan (þ.e.a.s. í hvorri hlið á stykki) þannig að framstykkin komi yfir hvert annað: Aukið út um 1 lykkju innan við 1 kantlykkju að framan í hvorri hlið á stykki (= 2 lykkjur fleiri) – lesið ÚTAUKNING! Aukið síðan út í 4. hverri umferð 3-2-0-3 (2-13) sinnum til viðbótar, síðan í 6. hverri umferð 8-11-16-17 (21-15) sinnum (= alls 12-14-17-21 (24-29) lykkjur fleiri í hvorri hlið á stykki) = 44-48-54-62 (68-78) lykkjur á hvoru framstykki = 146-158-176-200-218-248 lykkjur alls. LESIÐ ALLAN KAFLANN ÁÐUR EN PRJÓNAÐ ER ÁFRAM OG LYKKJUM ER FÆKKAÐ AÐ FRAMAN FYRIR HÁLSMÁLI INNAN VIÐ 1 KANTLYKKJU AÐ FRAMAN JAFNFRAMT ÞVÍ SEM STYKKIÐ SKIPTIST OG FITJAÐAR ERU UPP LYKKJUR FYRIR ERMI. FÆKKIÐ LYKKJUM VIÐ MIÐJU AÐ FRAMAN FYRIR HÁLSMÁLI ÞANNIG: Prjónið garðaprjón yfir allar lykkjur þar til stykkið mælist 17-20-25-28 (32-34) cm frá prjónamerki. Fækkið síðan um 1 lykkju innan við 1 kantlykkju að framan fyrir hálsmáli í hvorri hlið á stykki (= 2 lykkjur færri) – lesið ÚRTAKA! Fækkið lykkjum svona í annarri hverri umferð 20-24-27-31 (35-41) sinnum til viðbótar, síðan í 4. hverri umferð 2 sinnum (= alls 23-27-30-34 (38-44) lykkjur færri í hvorri hlið á stykki). HÉÐAN SKIPTIST STYKKIÐ OG FITJAÐAR ERU UPP LYKKJUR FYRIR ERMI ÞANNIG: HÆGRA FRAMSTYKKI: Þegar stykkið mælist 21-26-30-35 (40-43) cm frá prjónamerki, skiptist stykkið við 2 prjónamerkin og fram- og bakstykki er prjónað til loka hvort fyrir sig. Stillið af að næsta umferð sé frá réttu. Prjónið nú yfir lykkjur að fyrra prjónamerki (= hægra framstykki). Setjið þær lykkjur sem eftir eru á þráð. Fitjið nú upp lykkjur fyrir ermi í lok hverrar umferðar frá réttu þannig (ATH: Haldið áfram að fækka lykkjum innan við 1 kantlykkju að framan í byrjun á umferð eins og áður): Fitjið upp 4-6-6-6 (6-6) lykkjur alls 4-4-5-6 (7-8) sinnum, síðan 17-17-16-16 (18-20) lykkjur alls 1 sinni (= alls 33-41-46-52 (60-68) lykkjur fitjaðar upp fyrir ermi). Þegar allar lykkjurnar hafa verið fitjaðar upp og úrtökur hafa verið gerðar eru 54-62-70-80 (90-102) lykkjur í umferð. Prjónið garðaprjón þar til stykkið mælist 45-53-62-70 (81-90) cm alls, mælt frá skálm að öxl. Fellið af. VINSTRA FRAMSTYKKI: Prjónið yfir síðustu lykkjurnar sem settar voru á þráð, fram að prjónamerki. Prjónið eins og hægra framstykki, nema gagnstætt. Þ.e.a.s. fitjið upp lykkjur fyrir ermi í lok umferðar frá röngu. Haldið áfram að fækka lykkjum innan við 1 kantlykkju að framan í lok umferðar eins og áður fyrir hálsmáli. BAKSTYKKI: = 58-62-68-76 (82-92) lykkjur. Fitjið upp nýjar lykkjur í lok hverrar umferðar á hvorri hlið fyrir ermar þannig: Fitjið upp 4-6-6-6 (6-6) lykkjur alls 4-4-5-6 (7-8) sinnum, síðan 17-17-16-16 (18-20) lykkjur alls 1 sinni (= alls 33-41-46-52 (60-68) lykkjur fitjaðar upp fyrri ermi í hvorri hlið á stykki) = 124-144-160-180 (202-228) lykkjur. Þegar stykkið mælist alls 44-52-61-69 (80-89) cm fellið af miðju 16-20-20-20 (22-24) lykkjur af fyrir hálsmáli og hvor öxl/ermi er prjónuð til loka fyrir sig (= 54-62-70-80 (90-102) lykkjur eftir á öxl). Prjónið þar til stykkið mælist alls 45-53-62-70 (81-90) cm, mælt frá skálm að öxl, stillið af við framstykkin. Fellið af. Prjónið hina öxlina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið sauma ofan á ermi/axlasauma með lykkjuspori frá réttu. Saumið saum undir ermum kant í kant í ystu lykkjubogana. Saumið skálmar saman innan við 1 kantlykkju og saumið 5 lykkjur sem felldar voru af á milli skálma saman. Saumið klauf upp þar sem fitjaðar voru upp 3 nýjar lykkjur í hvorri hlið fyrir kantlykkjur að framan og saumið þær 3 kantlykkjur að framan í hvorri hlið á stykki á gallanum. HEKLAÐUR KANTUR: Heklið með heklunál 2,5 með litnum natur í kringum allt opið við miðju framan á gallanum þannig: UMFERÐ 1 (= frá röngu): Byrjið við miðju að framan neðst niðri á vinstra framstykki, heklið 1 fastalykkju í fyrstu lykkju þar sem fitjaðar voru upp 3 kantlykkjur að framan, * 1 loftlykkja, hoppið yfir ca 1 cm, 1 fastalykkja í næstu lykkju *, heklið frá *-* (passið uppá að kanturinn verði ekki stífur), haldið áfram að hekla kantinn í kringum gallann fram að horni þar sem úrtaka fyrir hálsmáli byrjaði á vinstra framstykki, heklið snúru þannig: 1 fastalykkja í hornið, heklið síðan loftlykkjur í ca 20-25 cm, snúið og heklið 1 keðjulykkju til baka í hverja loftlykkju, heklið síðan 1 fastalykkju aftur í hornið á framstykki, heklið síðan í hring að næsta horni (þ.e.a.s. á hægra framstykki), heklið snúru, haldið áfram eins og áður í kringum afganginn af gallanum niður þar sem fitjaðar voru upp 3 kantlykkjur að framan, stillið af að endað sé með 1 fastalykkju. UMFERÐ 2 (= frá réttu): Heklið 1 loftlykkju, 1 fastalykkja um fyrstu loftlykkju, * 4 loftlykkjur, 1 stuðull í 4. loftlykkju frá heklunálinni, hoppið yfir 1 fastalykkju + 1 loftlykkja + 1 fastalykkja, heklið 1 fastalykkju um næstu loftlykkju *, heklið frá *-* (passið uppá að heklað sé yfir snúru þannig að snúran liggi undir kanti, þ.e.a.s. ekki hekla í lykkju í snúru), endið með 1 keðjulykkju í fyrstu fastalykkju frá fyrri umferð. Klippið frá og festið enda. Heklið með heklunál 2,5 með litnum natur neðst í kringum báðar skálmar þannig: UMFERÐ 1: Byrjið við saum. Heklið 1 fastalykkju í fyrstu lykkju, * 1 loftlykkja, hoppið yfir ca 2 lykkjur, 1 fastalykkja í næstu lykkju *, prjónið frá *-* og endið með 1 keðjulykkju í fyrstu fastalykkju í byrjun á umferð. UMFERÐ 2: Heklið 1 loftlykkju, 1 fastalykkja um fyrstu loftlykkju, * 4 loftlykkjur, 1 stuðull í 4. loftlykkju frá heklunálinni, hoppið yfir 1 fastalykkju + 1 loftlykkju + 1 fastalykkja, heklið 1 fastalykkju um næstu loftlykkju *, heklið frá *-* umferðina hringinn, endið með 1 keðjulykkju í fyrstu fastalykkjur í byrjun á umferð. Heklið með heklunál 2,5 með litnum natur neðst í kringum báðar ermar þannig: UMFERÐ 1: Heklið 1 fastalykkju í fyrstu lykkju neðst niðri á ermi, * 1 loftlykkja, hoppið yfir ca 1 cm, 1 fastalykkja í næstu lykkju *, heklið frá *-* (passið uppá að kanturinn verði ekki stífur) og endið með 1 keðjulykkju í fyrstu fastalykkju í byrjun á umferð. UMFERÐ 2: Heklið 1 loftlykkju, 1 fastalykkja um fyrstu loftlykkju, * 4 loftlykkjur, 1 stuðull í 4. loftlykkju frá heklunálinni, hoppið yfir 1 fastalykkju + 1 loftlykkja + 1 fastalykkja, heklið 1 fastalykkju um næstu loftlykkju *, heklið frá *-* umferðina hringinn, endið með 1 keðjulykkju í fyrstu fastalykkju í byrjun á umferð. Heklið síðan 1 snúru alveg eins og í horni á hægra og vinstra framstykki, að utan verðu á vinstra framstykki, undir ermi (þ.e.a.s. í hlið) og á innan verðu á hægra framstykki – passið uppá að bandið komi í sömu hæð og horn á framstykki. ------------------------------------------------------- HÚFA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna. HÚFA: Fitjið upp (68) 82-94-100-104 (112-116) lykkjur á sokkaprjón 2,5 með litnum natur. Prjónið GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, í hring þar til stykkið mælist 3,5 cm (= kantur). Í næstu umferð slétt er skipt yfir á sokkaprjóna 3 og fækkað er um 8 lykkjur jafnt yfir = (60) 74-86-92-96 (104-108) lykkjur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Haldið áfram í garðaprjóni þar til stykkið mælist (17) 18-19-20-21 (22-23) cm. Fellið af. Leggið húfuna flata saman og saumið saman toppinn. DÚSKUR: Gerið 2 þétta dúska 5 cm að þvermáli með litnum ljós grár og saumið þá niður í hvorn enda á saumnum. HEKLAÐUR KANTUR: Snúið húfunni við þannig að kanturinn sé heklaður frá röngu, í hann á að hekla. Heklið með heklunál 2,5 með litnum ljós grár í kringum kant á húfu þannig: UMFERÐ 1: Heklið 1 fastalykkju í fyrstu lykkju, * 2 loftlykkjur, hoppið yfir ca 2 lykkjur, 1 fastalykkja í næstu lykkju *, heklið frá *-* og endið með 1 keðjulykkju í fyrstu fastalykkju í byrjun á umferð. UMFERÐ 2: Heklið 1 loftlykkju, 1 fastalykkja um fyrstu loftlykkju, * 4 loftlykkjur, 1 stuðull í 4. loftlykkju frá heklunálinni, hoppið yfir 1 fastalykkju + 1 loftlykkja + 1 fastalykkja, heklið 1 fastalykkju um næstu loftlykkju *, heklið frá *-* umferðina hringinn. Endið með 1 keðjulykkju í fyrstu fastalykkju í byrjun á umferð. Snúið húfunni með réttuna út og brjótið uppá kantinn. ------------------------------------------------------- SOKKAR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka frá miðju að aftan. STROFF / LEGGUR: Fitjið upp 48-52-56 (56) lykkjur á hringprjón 2,5 með litnum natur. Prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 5-6-6 (7) cm – stillið af þannig að næsta umferð sé frá röngu. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu JAFNFRAMT er fækkað um 14-14-18 (14) lykkjur jafnt yfir = 34-38-38 (42) lykkjur. MEÐ KANTI MEÐ GATAUMFERÐ: Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 1 lykkja slétt, * 2 lykkjur slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn *, prjónið frá *-* og endið með 1 lykkju slétt. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. ÁN KANTS MEÐ GATAUMFERÐ: Prjónið 1 umferð slétt frá réttu og 1 umferð brugðið frá röngu. FÓTUR: Setjið nú ystu 12-13-13 (15) lykkjur í hvorri hlið á þráð. Prjónið 4-4½-5½ (6½) cm GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, yfir miðju 10-12-12 (12) lykkjur (= miðju stykki). Setjið til baka lykkjur af þræði á prjóninn og prjónið upp 10-11-13 (16) lykkjur hvoru megin á miðju stykki = 54-60-64 (74) lykkjur. Setjið 1 prjónamerki 27-30-32 (37) lykkjur inn = mitt í stykki. Prjónið garðaprjón í 3-4-5 (5) cm JAFNFRAMT þegar eftir eru 1½-2-2½ (3) cm er lykkjum fækkað í annarri hverri umferð til loka þannig: Fækkið um 1 lykkju í byrjun og í lok á stykki og prjónið 2 lykkjur slétt saman hvoru megin við 2 miðju lykkjurnar. Fellið af og saumið saum undir fæti og upp meðfram miðju að aftan í ystu lykkjubogana svo að saumurinn verði ekki þykkur. Þræðið e.t.v. silkiborða í gegnum gataumferð. Prjónið annan sokk á sama hátt. |
||||
Skýringar á teikningu |
||||
|
||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (43)
Pia wrote:
Skall virka kanten runt om. På 2:a varvet är beskrivningen underlig. Vad menas? Tittar man på videon så är det två omgångar med 4 maskotens i samma luftmaska sedan hoppa över en fastnagla på arbetet etc. Er beskrivning är endast en gång 4 maskor etc. Sedan har ni skrivit + tecken.. vad menas där?
25.04.2024 - 13:47Pia Imbro wrote:
Jag har kommit till vänster framstycke. Höger med ärm är klart. Bakstyckets maskor sitter på tråd. Nu undrar jag hur jag skall göra. Det står; ”Sticka över de sista maskorna som sattes på en tråd, fram till markören.” Vad menas?
19.03.2024 - 08:38DROPS Design answered:
Hej Pia. Nu sätter du maskorna som hör till vänster framstycke på stickan och stickar de enligt beskrivningen. Mvh DROPS Design
20.03.2024 - 13:36Lorraine wrote:
Help! I am really struggling to understand the instructions for the second row of the crochet border. What do you mean by double crochet around the first chain? What does treble crochet in 4th chain from hook meanWhen you say skip 1 double crochet + 1 chain stitch + 1 double crochet, does this mean skip all of them. I wam very new to crochet
01.02.2024 - 19:41DROPS Design answered:
Dear Lorraine, you will work 1 double crochet in the 1-chain-space, ie not in the chain but around the chain. Then work *4 chains and 1 treble crochet in the 1st of these 4 chains to create a picot, skip then (1 dc, 1 ch, 1 dc) and repeat from *. Happy crocheting!
02.02.2024 - 08:14Victoria wrote:
In the overall:"Increase on very 4th row 3-2-0-3 (2-13) more times, then on every 6th row 8-11-16-17 (21-15) times (= 12-14-17-21 (24-29) stitches increased in total in each side of piece) = 44-48-54-62 (68-78) stitches on each front piece". My size is 6/9months so 0+16 is not 17 stitches. Could you please explain it. Thank you.
25.01.2024 - 10:09DROPS Design answered:
Dear Victoria, in this size you have to work the first increase as described + 0 more times = 1 time then 16 times on every 6th row = 17 sts in total. Happy knitting!
26.01.2024 - 07:00Pia wrote:
Skall jag dela upp arbetet INNAN jag börjar med ärmarna? Fortsätter jag med rundstickorna? Mäter jag från grenens markör eller från framstycketsmarkören när det skall mätas från”markören”?
05.01.2024 - 21:57DROPS Design answered:
Hej Pia, arbejdet er allerede delt fra der hvor du har sat arbejdet sammen efter benene.... så vi forstår ikke rigtig hvor du er i opskriften. Start opskriften efter der hvor det står HELDRESSEN .... BEN ... Lägg upp 46 m (i den minste størrelse) osv...
11.01.2024 - 14:23Lovisa wrote:
När benen ska sättas på samma rundsticka, vad gör man med garnänden, från ena benet, som man inte fortsätter sticka med? På något sätt måste den ju fästas i arbetet, annars går det upp.
03.01.2024 - 19:54DROPS Design answered:
Hej Lovisa, ja du fäster alle ender når du er færdig med at strikke :)
09.01.2024 - 15:11Benafsha wrote:
Hello, for the hat it says Work 1 chain stitch, 1 double crochet around first chain stitch. I am not sure what that means. Is there any video explaining this part of the pattern? Thank you.
01.01.2024 - 11:36DROPS Design answered:
Dear Benafsha, this video should help you understanding how to crochet the first row of the crochet edge. Just remember to follow the number of stitches stated in the pattern, even if the video is different, it's just showing the technique but other variations are worked the same way. Happy knitting!
02.01.2024 - 11:57Barbara Renna wrote:
Buona sera - sto eseguendo la tutina taglia 1/3 mesi.\r\ncome si fanno gli aumenti? dopo le 3 maglie del bordo e dai segnapunti per cui 4 aumenti per giro ? 2 ogni 4 ferri? 11 ogni 6 ferri? alla fine i numeri di maglie non mi tornano. forse sbaglio qualcosa ?\r\ngrazie e saluti\r\nBarbara
07.09.2023 - 21:17DROPS Design answered:
Buonasera Barbara, deve aumentare ad ogni lato del lavoro 1 maglia (2 maglie aumentate), poi deve aumentare ogni 4 ferri altre 2 volte (4 maglie aumentate), poi ogni 6 ferri 11 volte (22 aumenti), per un totale di 28 maglie aumentate: passerà quindi da 130 a 158 maglie. Buon lavoro!
07.09.2023 - 23:25Myrth Eliassen wrote:
Ved montering, skal alle ‘sømmer’ syes sammen fra retten?
22.03.2023 - 10:51DROPS Design answered:
Hei Myrth Ja, da vil du ikke få en tykk monteringskant. Men om du syns det blir penest fra vrangen, selv med en noe tykkere kant, kan du fint gjøre det. mvh DROPS Design
27.03.2023 - 10:54Strikker wrote:
Hvordan knyter man sammen dressen? Det skal lages knytebåns på hver spiss, men det gir ikke mening når man skal feste den rundt? Eller har jeg tenkt helt feil?
06.03.2022 - 11:55DROPS Design answered:
Hej, Længere nede i opskriften står det hvordan du hækler knytebåndene i siderne: Deretter hekles det 1 knytebånd tilsvarende det i spissen på høyre og venstre forstykke, på utsiden av venstre forstykke, under ermet (dvs i siden) og på innsiden av høyre forstykket – pass på at båndene kommer i samme høyde som spissene på forstykkene. :)
09.03.2022 - 10:27