DROPS Baby Merino
DROPS Baby Merino
100% Ull
frá 924.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 13860.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Time for Fun

Settið samanstendur af: Prjónuðum heilgalla fyrir börn án ermasauma í garðaprjóni og hekluðum kanti, húfu með garðaprjóni með hekluðum kanti og dúskum og prjónuðum sokkum. Stærð fyrirburar - 4 ára. Settið er prjónað úr DROPS BabyMerino.

DROPS Baby 31-15
DROPS Design: Mynstur nr bm-075-by
Garnflokkur A
----------------------------------------------------------

ALLT SETTIÐ:
Stærð: 1/3 - 6/9 - 12/18 mán (2) ára
Stærð jafngildir ca hæð á barni í cm:
56/62 - 68/74 - 80/86 (92)
Höfuðmál í cm: ca 40/42 - 42/44 - 44/46 (48/50) cm
Lengd fótar: 10-11-12 (14) cm

Efni:
DROPS BABYMERINO frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
250-250-250 (300) g litur 22, ljós grár
100-100-100 (100) g litur 02, natur

-----------------------------------------------------------

HEILGALLI:
Stærð: 0/1 - 1/3 - 6/9 - 12/18 mán (2 - 3/4) ára
Stærð jafngildir ca hæð á barni í cm:
48/52 - 56/62 - 68/74 - 80/86 (92 - 98/104)

Efni:
DROPS BABYMERINO frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
200-200-250-250 (300-300) g litur 22, ljós grár
50-50-50-50 (50-50) g litur 02, natur

DROPS HRINGPRJÓNN NR 3 - eða þá stærð sem þarf til að 24 lykkjur og 48 umferðir með garðaprjóni verði 10 cm á breidd og 10 cm á hæð.

DROPS HEKLUNÁL NR 2,5 – fyrir kant og snúru.
----------------------------------------------------------

HÚFA:
Stærð: (0) 0/1 - 1/3 - 6/9 - 12/18 mán (2 - 3/4) ára
Höfuðmál í cm:
ca (28/32) 34/38 - 40/42 - 42/44 - 44/46 (48/50 - 50/52) cm

Efni:
DROPS BABYMERINO frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
(50) 50-50-50-50 (50-50) g litur 22, ljós grár
(50) 50-50-50-50 (50-50) g litur 02, natur

DROPS HRINGPRJÓNN NR 3 - eða þá stærð sem þarf til að 24 lykkjur og 48 umferðir með garðaprjóni verði 10 cm á breidd og 10 cm á hæð.

DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 2,5 fyrir kant með garðaprjóni - eða þá stærð sem þarf til að 26 lykkjur og 51 umferðir með garðaprjóni verði 10 cm á breidd og 10 cm á hæð.

DROPS HEKLUNÁL NR 2,5 – fyrir kant og snúru.
----------------------------------------------------------

SOKKAR:
Stærð: 1/3 - 6/9 - 12/18 mán (2) ára
Lengd fótar: 10-11-12 (14) cm

Efni:
DROPS BABYMERINO frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
50-50-50 (50) g litur 02, natur

DROPS HRINGPRJÓNN NR 2,5 - eða þá stærð sem þarf til að 26 lykkjur og 51 umferð með garðaprjóni verði 10 cm á breidd og 10 cm á hæð.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Baby Merino
DROPS Baby Merino
100% Ull
frá 924.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 13860.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka – á við um heilgalla og sokka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

GARÐAPRJÓN (prjónað í hring – á við um húfu):
*1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*.

ÚTAUKNING (á við um heilgalla):
Lykkjur eru auknar út innan við 1 kantlykkju að framan. Öll útaukning er gerð frá réttu.
Aukið er út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Uppslátturinn er prjónaður snúinn slétt í næstu umferð, það eiga ekki að myndast göt.

ÚRTAKA (á við um heilgalla):
Lykkjum er fækkað innan við 1 kantlykkju að framan. Öll úrtaka er gerð frá réttu.
Fækkið lykkjum á eftir 1 kantlykkju að framan þannig: Takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir.
Fækkið lykkjum á undan 1 kantlykkju að framan þannig: Prjónið 2 lykkjur slétt saman.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

HEILGALLI - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað neðan frá og upp. Prjónið fyrst 2 skálmar, síðan eru skálmarnar prjónaðar saman og prjónað fram og til baka upp að ermum. Fitjaðar eru upp lykkjur fyrir ermi í hvorri hlið á stykki og framstykki og bakstykki er prjónað hvort fyrir sig til loka.
Axla- og hliðarsaumar eru saumaðir og kantur heklaður í kringum op á gallanum með litnum natur í lokin. Allur gallinn er prjónaður í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan.

SKÁLM:
Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjón til að fá pláss fyrir allar lykkjur.
Fitjið upp 46-50-54-58 (66-70) lykkjur (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið) á hringprjón 3 með litnum ljós grár. Prjónið garðaprjón. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Þegar stykkið mælist 6 cm er aukið út um 1 lykkju hvoru megin á stykki innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni (= 2 lykkjur fleiri). Aukið svona út í 3.-4.-5.-5. (8.-8.) hverri umferð alls 11-11-12-14 (13-16) sinnum = 68-72-78-86 (92-102) lykkjur. Þegar stykkið mælist 15-18-21-24 (29-34) cm fækkið um 5 lykkjur í byrjun á 2 næstu umferðum fyrir klofi (þ.e.a.s. fækkið lykkjum hvoru megin á stykki) = 58-62-68-76 (82-92) lykkjur. Geymið stykkið og prjónið hina skálmina á sama hátt.

GALLI:
Setjið báðar skálmarnar á sama hringprjón 3 með affellingarkanta að hvorum öðrum = 116-124-136-152 (164-184) lykkjur. Setjið 1 prjónamerki í stykkið. HÉÐAN ER NÚ MÆLT!
Prjónið 6 umferðir garðaprjón, fram og til baka, með byrjun við miðju að framan.
Prjónið síðan þannig: Fitjið upp 3 nýjar kantlykkjur að framan í lok 2 næstu umferða = 122-130-142-158 (170-190) lykkjur. Setjið 1 prjónamerki 32-34-37-41 (44-49) lykkjur inn frá hvorri hlið. Látið prjónamerkin fylgja með í stykkinu, þær merkja framstykki og bakstykki.
Nú eru auknar út lykkjur við miðju að framan (þ.e.a.s. í hvorri hlið á stykki) þannig að framstykkin komi yfir hvert annað: Aukið út um 1 lykkju innan við 1 kantlykkju að framan í hvorri hlið á stykki (= 2 lykkjur fleiri) – lesið ÚTAUKNING! Aukið síðan út í 4. hverri umferð 3-2-0-3 (2-13) sinnum til viðbótar, síðan í 6. hverri umferð 8-11-16-17 (21-15) sinnum (= alls 12-14-17-21 (24-29) lykkjur fleiri í hvorri hlið á stykki) = 44-48-54-62 (68-78) lykkjur á hvoru framstykki = 146-158-176-200-218-248 lykkjur alls.
LESIÐ ALLAN KAFLANN ÁÐUR EN PRJÓNAÐ ER ÁFRAM OG LYKKJUM ER FÆKKAÐ AÐ FRAMAN FYRIR HÁLSMÁLI INNAN VIÐ 1 KANTLYKKJU AÐ FRAMAN JAFNFRAMT ÞVÍ SEM STYKKIÐ SKIPTIST OG FITJAÐAR ERU UPP LYKKJUR FYRIR ERMI.
FÆKKIÐ LYKKJUM VIÐ MIÐJU AÐ FRAMAN FYRIR HÁLSMÁLI ÞANNIG:
Prjónið garðaprjón yfir allar lykkjur þar til stykkið mælist 17-20-25-28 (32-34) cm frá prjónamerki. Fækkið síðan um 1 lykkju innan við 1 kantlykkju að framan fyrir hálsmáli í hvorri hlið á stykki (= 2 lykkjur færri) – lesið ÚRTAKA! Fækkið lykkjum svona í annarri hverri umferð 20-24-27-31 (35-41) sinnum til viðbótar, síðan í 4. hverri umferð 2 sinnum (= alls 23-27-30-34 (38-44) lykkjur færri í hvorri hlið á stykki).
HÉÐAN SKIPTIST STYKKIÐ OG FITJAÐAR ERU UPP LYKKJUR FYRIR ERMI ÞANNIG:
HÆGRA FRAMSTYKKI:
Þegar stykkið mælist 21-26-30-35 (40-43) cm frá prjónamerki, skiptist stykkið við 2 prjónamerkin og fram- og bakstykki er prjónað til loka hvort fyrir sig. Stillið af að næsta umferð sé frá réttu. Prjónið nú yfir lykkjur að fyrra prjónamerki (= hægra framstykki). Setjið þær lykkjur sem eftir eru á þráð. Fitjið nú upp lykkjur fyrir ermi í lok hverrar umferðar frá réttu þannig (ATH: Haldið áfram að fækka lykkjum innan við 1 kantlykkju að framan í byrjun á umferð eins og áður): Fitjið upp 4-6-6-6 (6-6) lykkjur alls 4-4-5-6 (7-8) sinnum, síðan 17-17-16-16 (18-20) lykkjur alls 1 sinni (= alls 33-41-46-52 (60-68) lykkjur fitjaðar upp fyrir ermi).
Þegar allar lykkjurnar hafa verið fitjaðar upp og úrtökur hafa verið gerðar eru 54-62-70-80 (90-102) lykkjur í umferð. Prjónið garðaprjón þar til stykkið mælist 45-53-62-70 (81-90) cm alls, mælt frá skálm að öxl. Fellið af.

VINSTRA FRAMSTYKKI:
Prjónið yfir síðustu lykkjurnar sem settar voru á þráð, fram að prjónamerki.
Prjónið eins og hægra framstykki, nema gagnstætt. Þ.e.a.s. fitjið upp lykkjur fyrir ermi í lok umferðar frá röngu. Haldið áfram að fækka lykkjum innan við 1 kantlykkju að framan í lok umferðar eins og áður fyrir hálsmáli.

BAKSTYKKI:
= 58-62-68-76 (82-92) lykkjur. Fitjið upp nýjar lykkjur í lok hverrar umferðar á hvorri hlið fyrir ermar þannig: Fitjið upp 4-6-6-6 (6-6) lykkjur alls 4-4-5-6 (7-8) sinnum, síðan 17-17-16-16 (18-20) lykkjur alls 1 sinni (= alls 33-41-46-52 (60-68) lykkjur fitjaðar upp fyrri ermi í hvorri hlið á stykki) = 124-144-160-180 (202-228) lykkjur.
Þegar stykkið mælist alls 44-52-61-69 (80-89) cm fellið af miðju 16-20-20-20 (22-24) lykkjur af fyrir hálsmáli og hvor öxl/ermi er prjónuð til loka fyrir sig (= 54-62-70-80 (90-102) lykkjur eftir á öxl). Prjónið þar til stykkið mælist alls 45-53-62-70 (81-90) cm, mælt frá skálm að öxl, stillið af við framstykkin. Fellið af.
Prjónið hina öxlina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið sauma ofan á ermi/axlasauma með lykkjuspori frá réttu.
Saumið saum undir ermum kant í kant í ystu lykkjubogana.
Saumið skálmar saman innan við 1 kantlykkju og saumið 5 lykkjur sem felldar voru af á milli skálma saman. Saumið klauf upp þar sem fitjaðar voru upp 3 nýjar lykkjur í hvorri hlið fyrir kantlykkjur að framan og saumið þær 3 kantlykkjur að framan í hvorri hlið á stykki á gallanum.

HEKLAÐUR KANTUR:
Heklið með heklunál 2,5 með litnum natur í kringum allt opið við miðju framan á gallanum þannig:
UMFERÐ 1 (= frá röngu): Byrjið við miðju að framan neðst niðri á vinstra framstykki, heklið 1 fastalykkju í fyrstu lykkju þar sem fitjaðar voru upp 3 kantlykkjur að framan, * 1 loftlykkja, hoppið yfir ca 1 cm, 1 fastalykkja í næstu lykkju *, heklið frá *-* (passið uppá að kanturinn verði ekki stífur), haldið áfram að hekla kantinn í kringum gallann fram að horni þar sem úrtaka fyrir hálsmáli byrjaði á vinstra framstykki, heklið snúru þannig: 1 fastalykkja í hornið, heklið síðan loftlykkjur í ca 20-25 cm, snúið og heklið 1 keðjulykkju til baka í hverja loftlykkju, heklið síðan 1 fastalykkju aftur í hornið á framstykki, heklið síðan í hring að næsta horni (þ.e.a.s. á hægra framstykki), heklið snúru, haldið áfram eins og áður í kringum afganginn af gallanum niður þar sem fitjaðar voru upp 3 kantlykkjur að framan, stillið af að endað sé með 1 fastalykkju.
UMFERÐ 2 (= frá réttu): Heklið 1 loftlykkju, 1 fastalykkja um fyrstu loftlykkju, * 4 loftlykkjur, 1 stuðull í 4. loftlykkju frá heklunálinni, hoppið yfir 1 fastalykkju + 1 loftlykkja + 1 fastalykkja, heklið 1 fastalykkju um næstu loftlykkju *, heklið frá *-* (passið uppá að heklað sé yfir snúru þannig að snúran liggi undir kanti, þ.e.a.s. ekki hekla í lykkju í snúru), endið með 1 keðjulykkju í fyrstu fastalykkju frá fyrri umferð. Klippið frá og festið enda.

Heklið með heklunál 2,5 með litnum natur neðst í kringum báðar skálmar þannig:
UMFERÐ 1: Byrjið við saum. Heklið 1 fastalykkju í fyrstu lykkju, * 1 loftlykkja, hoppið yfir ca 2 lykkjur, 1 fastalykkja í næstu lykkju *, prjónið frá *-* og endið með 1 keðjulykkju í fyrstu fastalykkju í byrjun á umferð.
UMFERÐ 2: Heklið 1 loftlykkju, 1 fastalykkja um fyrstu loftlykkju, * 4 loftlykkjur, 1 stuðull í 4. loftlykkju frá heklunálinni, hoppið yfir 1 fastalykkju + 1 loftlykkju + 1 fastalykkja, heklið 1 fastalykkju um næstu loftlykkju *, heklið frá *-* umferðina hringinn, endið með 1 keðjulykkju í fyrstu fastalykkjur í byrjun á umferð.

Heklið með heklunál 2,5 með litnum natur neðst í kringum báðar ermar þannig:
UMFERÐ 1: Heklið 1 fastalykkju í fyrstu lykkju neðst niðri á ermi, * 1 loftlykkja, hoppið yfir ca 1 cm, 1 fastalykkja í næstu lykkju *, heklið frá *-* (passið uppá að kanturinn verði ekki stífur) og endið með 1 keðjulykkju í fyrstu fastalykkju í byrjun á umferð.
UMFERÐ 2: Heklið 1 loftlykkju, 1 fastalykkja um fyrstu loftlykkju, * 4 loftlykkjur, 1 stuðull í 4. loftlykkju frá heklunálinni, hoppið yfir 1 fastalykkju + 1 loftlykkja + 1 fastalykkja, heklið 1 fastalykkju um næstu loftlykkju *, heklið frá *-* umferðina hringinn, endið með 1 keðjulykkju í fyrstu fastalykkju í byrjun á umferð.
Heklið síðan 1 snúru alveg eins og í horni á hægra og vinstra framstykki, að utan verðu á vinstra framstykki, undir ermi (þ.e.a.s. í hlið) og á innan verðu á hægra framstykki – passið uppá að bandið komi í sömu hæð og horn á framstykki.
-------------------------------------------------------

HÚFA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna.

HÚFA:
Fitjið upp (68) 82-94-100-104 (112-116) lykkjur á sokkaprjón 2,5 með litnum natur. Prjónið GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, í hring þar til stykkið mælist 3,5 cm (= kantur). Í næstu umferð slétt er skipt yfir á sokkaprjóna 3 og fækkað er um 8 lykkjur jafnt yfir = (60) 74-86-92-96 (104-108) lykkjur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Haldið áfram í garðaprjóni þar til stykkið mælist (17) 18-19-20-21 (22-23) cm. Fellið af. Leggið húfuna flata saman og saumið saman toppinn.

DÚSKUR:
Gerið 2 þétta dúska 5 cm að þvermáli með litnum ljós grár og saumið þá niður í hvorn enda á saumnum.

HEKLAÐUR KANTUR:
Snúið húfunni við þannig að kanturinn sé heklaður frá röngu, í hann á að hekla.
Heklið með heklunál 2,5 með litnum ljós grár í kringum kant á húfu þannig:
UMFERÐ 1: Heklið 1 fastalykkju í fyrstu lykkju, * 2 loftlykkjur, hoppið yfir ca 2 lykkjur, 1 fastalykkja í næstu lykkju *, heklið frá *-* og endið með 1 keðjulykkju í fyrstu fastalykkju í byrjun á umferð.
UMFERÐ 2: Heklið 1 loftlykkju, 1 fastalykkja um fyrstu loftlykkju, * 4 loftlykkjur, 1 stuðull í 4. loftlykkju frá heklunálinni, hoppið yfir 1 fastalykkju + 1 loftlykkja + 1 fastalykkja, heklið 1 fastalykkju um næstu loftlykkju *, heklið frá *-* umferðina hringinn. Endið með 1 keðjulykkju í fyrstu fastalykkju í byrjun á umferð. Snúið húfunni með réttuna út og brjótið uppá kantinn.

-------------------------------------------------------

SOKKAR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka frá miðju að aftan.

STROFF / LEGGUR:
Fitjið upp 48-52-56 (56) lykkjur á hringprjón 2,5 með litnum natur. Prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 5-6-6 (7) cm – stillið af þannig að næsta umferð sé frá röngu. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu JAFNFRAMT er fækkað um 14-14-18 (14) lykkjur jafnt yfir = 34-38-38 (42) lykkjur.

MEÐ KANTI MEÐ GATAUMFERÐ:
Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 1 lykkja slétt, * 2 lykkjur slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn *, prjónið frá *-* og endið með 1 lykkju slétt. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu.

ÁN KANTS MEÐ GATAUMFERÐ:
Prjónið 1 umferð slétt frá réttu og 1 umferð brugðið frá röngu.

FÓTUR:
Setjið nú ystu 12-13-13 (15) lykkjur í hvorri hlið á þráð. Prjónið 4-4½-5½ (6½) cm GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, yfir miðju 10-12-12 (12) lykkjur (= miðju stykki). Setjið til baka lykkjur af þræði á prjóninn og prjónið upp 10-11-13 (16) lykkjur hvoru megin á miðju stykki = 54-60-64 (74) lykkjur. Setjið 1 prjónamerki 27-30-32 (37) lykkjur inn = mitt í stykki.
Prjónið garðaprjón í 3-4-5 (5) cm JAFNFRAMT þegar eftir eru 1½-2-2½ (3) cm er lykkjum fækkað í annarri hverri umferð til loka þannig: Fækkið um 1 lykkju í byrjun og í lok á stykki og prjónið 2 lykkjur slétt saman hvoru megin við 2 miðju lykkjurnar. Fellið af og saumið saum undir fæti og upp meðfram miðju að aftan í ystu lykkjubogana svo að saumurinn verði ekki þykkur. Þræðið e.t.v. silkiborða í gegnum gataumferð.

Prjónið annan sokk á sama hátt.

Mynstur

symbols = prjónstefna
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS Baby 31-15

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (42)

country flag Liliane Legrand wrote:

Je ne comprend pas comment joindre les 2 jambes sur la meme aiguille. Je les ai mises sur la meme aiguille et la je suis coincee. Merci de m'aider.

25.10.2021 - 22:44

country flag Aurora wrote:

Hei, står det feil i oppskriften her? ØKETIPS! Øk videre på hver 4.pinne 3-2-0-3 (2-13) ganger til. Regner med at det ikke skal stå 0? Hjelp :)

16.10.2021 - 01:08

DROPS Design answered:

Hei Aurora, Når det står 0 i oppskriften på din størrelse, betyr det at du ikke trenger å øke her. God fornøyelse!

18.10.2021 - 07:18

country flag Anna Maria Vitulano wrote:

Buonasera. Sto lavorando la tutina con i ferri diritti. Come faccio ad unire le gambe con le maglie intrecciate rivolte una verso l'altra e dividere il lavoro? Grazie infinite

11.10.2021 - 21:45

DROPS Design answered:

Buonasera Anna Maria, deve posizionare le gambe sui ferri in modo da avere i lati con le maglie intrecciate verso l'interno, in modo da essere vicini. Buon lavoro!

13.10.2021 - 18:23

country flag Silvia wrote:

Buongiorno! Scusate la domanda da principiante. È possibile usare i Ferri circolari per il cappello (nel mio caso taglia 2 anni)? La circonferenza è talmente piccola che riesco solo a lavorare con i ferri a doppia punta. Con i circolari sarebbe decisamente più comodo! Grazie!

20.09.2021 - 09:55

DROPS Design answered:

Buongiorno Silvia, se preferisce utilizzare i ferri circolari, può provare la tecnica del magic loop, altrimenti può proseguire con i ferri a doppia punta. Buon lavoro!

21.09.2021 - 10:51

country flag Undine wrote:

Was heißt: " Die Ärmel- und Schulternähte im Maschenstich von der Vorderseite schließen." ? Im Video wird das nur für ein glatt rechts gestricktes Teil gezeigt. Wie geht das denn bitte bei Kraus rechts ?

17.08.2021 - 17:17

DROPS Design answered:

Liebe Undine, die Schulter nähen Sie zusammen wie im Video, auch wenn es hier Krausrechts ist, wird es genauso genäht, dh die Nadel unter die 2 Schlingen von den abgekettenen Maschen einstecken - genauso wie auf dem Foto beim Video. Viel Spaß beim zusammennähen!

17.08.2021 - 17:36

country flag Undine wrote:

Ich verstehe daß es einfacherist, due Beine in Hin- und rückreihen ubd nicht rund zh stricken, danke. Aber ich habe noch diese Feage: Bedeutet ' einschließlich Randmasche' bei den Beinen, daß diese nicht im Muster kraus, sondern glatt rechts gestrickt werden ?

02.08.2021 - 11:17

DROPS Design answered:

Liebe Undine, die Randmaschen sind eingeschlossen, dh sie sollen nicht extra angeschlagen werden, sie werden krausrechts - wie alle anderen Maschen gestrickt. Viel Spaß beim stricken!

02.08.2021 - 13:10

country flag Undine wrote:

Kann ich die Hosenbeine denn nicht sofort rund stricken ? Warum erst später umständlich zusammen nähen ?

31.07.2021 - 15:15

DROPS Design answered:

Liebe Undine, gerne können Sie die Anleitung so anzupassen, um die Beinen in Runden zu stricken . Mit Krausrechts ist es einfacher immer rechte Maschen zu stricken (= in Reihen) anstatt abwechslungsweise rechte und linke Maschen (= in Runden). Viel Spaß beim stricken!

02.08.2021 - 07:19

country flag Gabrielle wrote:

Bonjour, Pour la combinaison (taille 6-9 mois), au niveau des jambes, quand il est dit d'augmenter 12 fois au total, tous les 5 rangs, doit on faire l'augmentation sur le cinquième rang ou sur le sixième (par extension, sur les rangs 5, 10, 15 etc.. ou 6, 12, 18 etc...) Merci

22.11.2020 - 19:51

DROPS Design answered:

Bonjour Gabrielle!Vous devez faire l'augmentation sur le cinquième rang, etc. Regardez la lecon DROPSsur ce sujet ICI. Bon tricot!

22.11.2020 - 20:53

country flag Sofi Romanov wrote:

Jag förstår inte de 11 sista orden i stycket MONTERING. Jag förstår fram t.o.m. Sy sprudet upp till där det lades upp 3 nya maskor i varje sida till framkanstsmaskor, men sedan förstår jag inte vad som menas. Snälla svara så jag förstår.

02.09.2020 - 15:34

DROPS Design answered:

Hej Sofi. Vi menar att du syr fast de 3 nya framkantsmaskorna du la upp i dressen. Så när du har sytt igen sprundet så syr du även fast de nya framkantmaskorna i underkant så att de sitter fast. Hoppas att du förstår vad jag menar. Mvh DROPS Design

03.09.2020 - 08:48

country flag Nella wrote:

Bij het kruippak staat bij het minderen voor de hals: 'Minder dan 1 steek aan de binnenkant van de 1 voorbies steek voor de hals aan elke kant van het werk (= 2 steken geminderd) -Minder zo op iedere andere naald 20-24-27-31 (35-41) keer." Wordt met 'iedere andere naald ' bedoeld de heen- en teruggaande naald?

15.07.2020 - 22:46

DROPS Design answered:

Dag Nella,

Met iedere andere naald wordt bedoelt de ene naald wel en de andere naald niet.

20.07.2020 - 08:56