Hanne Jensen skrifaði:
Jeg kan ikke få masketal og strikkefasthed til at passe med målskitsen. I str S skal man have 93 m. Med en strikkefasthed på 17m=10 cm giver det knap 55cm, men ifølge målskitsen skal det give 46 cm,. Det er en ret stor afvigelse. Har jeg misforstået noget?
07.10.2020 - 07:04DROPS Design svaraði:
Hej Hanne. Du börjar med att sticka rib så det är därför du inte får det att stämma. Stickfastheten är uppgett i glatstrik/mönster. När du börjar sticka glatstrik minskar du till 79 m och då stämmer det med målskitsen. Mvh DROPS Design
07.10.2020 - 08:33
Severine Sanchez skrifaði:
Hoe neem ik de maat voor dit patroon?
06.09.2020 - 10:07DROPS Design svaraði:
Dag Severine Sanchez,
Onderaan het patroon staat een maattkening. Om de juiste maat te kiezen kun je het beste de maten vergelijken met een bestaand kledingstuk die je goed zit.
11.09.2020 - 13:55
Cider Mill skrifaði:
I think Cider Mill is a good name for this sweater vest.
17.06.2020 - 15:05
Birgitta Svaneblom skrifaði:
Den är så vacker så jag hoppas att den blir med
07.06.2020 - 10:28
Mistletoe Muse Vest#mistletoemusevest |
|||||||||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||||||||||||||
Prjónað vesti / slipover úr DROPS Air. Stykkið er prjónað með norrænu mynstri. Stærð S - XXXL.
DROPS 217-2 |
|||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. LEIÐBEININGAR: Til að koma í veg fyrir að stykkið missi teygjanleika þar mynsturprjón er prjónað, er mikilvægt að herða ekki á þráðum á bakhlið á stykki. Skiptið e.t.v. yfir á grófari prjóna þegar mynstrið er prjónað ef það herpist aðeins saman. Ef prjónfestan passar ekki á hæðina og prjónað er of fast, kemur einingin með mynstri að verða styttri en gefið er upp í uppskrift – þetta er hægt að jafna til með því að prjóna 1 auka umferð með jöfnu millibili í einlitu einingunum. Ef prjónað er of laust, þá kemur einingin með mynstri að verða lengri en gefið er upp í uppskrift, þá er hægt að prjóna 1 umferð færri með jöfnu millibili í einlitu einingunum. ÚRTAKA (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig fækka eigi lykkjum jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 93 lykkjur), mínus kantlykkjur í garðaprjóni (t.d. 4 lykkjur) og deilið þeim lykkjum sem eftir eru með fjölda úrtöku sem á að gera (t.d. 14) = 6,4. Í þessu dæmi þá er lykkjum fækkað með því að prjóna til skiptis ca 5. og 6. hverja lykkju og 6. og 7. hverja lykkju slétt saman. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- VESTI / SLIPOVER - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er fyrst prjónað fram og til baka í stykkjum þar til klauf í hvorri hlið hefur verið gerð til loka. Bakstykki er 4 cm lengra en framstykki. Setjið síðan framstykki og bakstykki inn á sama hringprjón og prjónið í hring upp að handveg. Prjónið síðan framstykki og bakstykki til loka hvort fyrir sig. Að lokum er kantur í hálsmáli og í handvegi prjónað í stroffprjóni hringinn. BAKSTYKKI: Fitjið upp 93-101-109-115-129-145 lykkjur á hringprjón 4 með litnum hveiti. Prjónið 1 umferð brugðið (= ranga). Prjónið síðan stroff þannig: UMFERÐ 1 (rétta): Prjónið 2 kantlykkjur GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * prjónið 1 lykkju snúið slétt, 1 lykkja brugðið *, prjónið frá *-* þar til 3 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 1 lykkju snúið slétt og endið með 2 kantlykkjur garðaprjón. UMFERÐ 2 (brugðið): Prjónið 2 kantlykkjur garðaprjón, * prjónið 1 lykkju snúið brugðið, 1 lykkja slétt *, prjónið frá *-* þar til 3 lykkjur eru eftir í umferð, 1 lykkja snúið brugðið, 2 kantlykkjur garðaprjón. Endurtakið umferð 1 og 2 þar til stroffið mælist 8 cm. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem fækkað er um 14-16-18-18-20-24 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚRTAKA = 79-85-91-97-109-121 lykkjur. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Geymið stykkið og prjónið framstykki. FRAMSTYKKI: Fitjið upp 93-101-109-115-129-145 lykkjur á hringprjón 4 með litnum hveiti. Prjónið 1 umferð brugðið (= ranga). Prjónið síðan stroff þannig: UMFERÐ 1 (rétta): Prjónið 2 kantlykkjur garðaprjón, * prjónið 1 lykkju snúið slétt, 1 lykkja brugðið *, prjónið frá *-* þar til 3 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 1 lykkju snúið slétt og endið með 2 kantlykkjur garðaprjón. UMFERÐ 2 (ranga): Prjónið 2 kantlykkjur garðaprjón, * prjónið 1 lykkju snúið brugðið, 1 lykkja slétt *, prjónið frá *-* þar til 3 lykkjur eru eftir í umferð, 1 lykkja snúið brugðið, 2 kantlykkjur garðaprjón. Endurtakið umferð 1 og 2 þar til stroffið mælist 4 cm. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem fækkað er um 14-16-18-18-20-24 lykkjur jafnt yfir – munið eftir ÚRTAKA = 79-85-91-97-109-121 lykkjur. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Prjónið nú bæði stykkin saman þannig: Skiptið yfir á hringprjón 5. Prjónið sléttar lykkjur þar til 1 lykkja er eftir á framstykki, prjónið síðustu lykkjuna á framstykki slétt saman með fyrstu lykkju á bakstykki (= 1 lykkja færri), prjónið sléttar lykkjur þar til 1 lykkja er eftir á bakstykki, prjónið síðustu lykkju á bakstykki slétt saman með fyrstu lykkju á framstykki (= 1 lykkja færri) = 156-168-180-192-216-240 lykkjur. Setjið eitt prjónamerki í hvora hlið, þ.e.a.s. í lykkju þar sem 2 lykkjur voru prjónaðar slétt saman í hvorri hlið. Prjónamerkin eru notuð síðar þegar fella á af lykkjum fyrir handveg. Til að mynstrið í stykkinu verði áfram samhverft mitt að framan er mikilvægt að umferðin byrji eins og útskýrt er að neðan. Í stærð M, XL, XXL og XXXL er lykkjan með prjónamerki í eini af hliðum 1. lykkja í umferð. Í stærð S og L er 3. lykkja á undan lykkju með prjónamerki í einni af hliðum 1. lykkja í umferð (þ.e.a.s. lykkja með prjónamerki í er 4. lykkja í umferð) – setjið e.t.v. auka prjónamerki til að merkja 1. lykkju í umferð. FRAM- OG BAKSTYKKI: Haldið áfram hringinn með sléttum lykkjum yfir allar lykkjur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist alls 6-8-9-11-12-14 cm mælt frá uppfitjunarkanti á framstykki, prjónið mynstur A.1 hringinn í umferð (= 13-14-15-16-18-20 mynstureiningar með 12 lykkjum hringinn í umferð) – sjá LEIÐBEININGAR. Þegar stykkið mælist 25-26-27-28-29-30 cm frá uppfitjunarkanti á framstykki, fellið af 9-9-11-11-13-13 lykkjur í hlið undir hvorri ermi (þ.e.a.s. lykkja með prjónamerki í og 4-4-5-5-6-6 lykkjur hvoru megin við prjónamerki) = 69-75-79-85-95-107 lykkjur fyrir framstykki og bakstykki. Síðan er framstykki og bakstykki prjónað til loka hvort fyrir sig. Setjið 1 prjónamerki í miðjulykkju á framstykki og miðjulykkju á bakstykki. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! FRAMSTYKKI: Haldið áfram fram og til baka í sléttprjóni og 1 kantlykkju garðaprjón í hvorri hlið og prjónið mynstur A.1 eins og áður – mynstrið á að halda áfram yfir hverja mynstureiningu eins og áður og prjónaðar eru jafn margar lykkjur af mynstri við hvorn handveg eins og pláss er fyrir. JAFNFRAMT er fellt af fyrir handvegi í byrjun á hverri umferð í hvorri hlið þannig: Fellið af 3 lykkjur 1-1-1-1-2-3 sinnum, 2 lykkjur 1-2-3-4-4-5 sinnum og 1 lykkju 2-2-2-2-3-3 sinnum = 55-57-57-59-61-63 lykkjur. Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka á hæðina er prjónað með A.2 yfir A.1 – mynstrið á að halda áfram yfir hverja mynstureiningu eins og áður og prjónaðar eru jafnmargar lykkjur af mynstri við handveg í hvorri hlið og pláss er fyrir. Þegar A.2 hefur verið prjónað til loka á hæðina mælist stykkið alls 39-41-42-44-45-47 cm ef prjónfestan passar á hæðina. Haldið áfram með litnum hveiti til loka. Þegar stykkið mælist 15-16-16-17-17-18 cm frá prjónamerki, setjið miðju 15-15-17-17-19-19 lykkjur á þráð fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Fellið síðan af lykkjur fyrir hálsmáli í hverri umferð frá hálsmáli þannig: Fellið af 2 lykkjur 2 sinnum og 1 lykkju 2 sinnum = 14-15-14-15-15-16 lykkjur fyrir öxl. Þegar stykkið mælist 25-26-27-28-29-30 cm frá prjónamerki, fellið af með sléttum lykkjum frá réttu. Vestið mælist ca 50-52-54-56-58-60 cm frá öxl og niður á framstykki. Prjónið hina öxlina á sama hátt. BAKSTYKKI: Haldið áfram fram og til baka í sléttprjóni og 1 kantlykkju garðaprjóni í hvorri hlið og prjónið mynstur A.1 eins og áður – mynstrið á að halda áfram yfir hverja mynstureiningu eins og áður og prjónaðar eru jafn margar lykkjur af mynstri við hvorn handveg eins og pláss er fyrir. JAFNFRAMT er fellt af fyrir handvegi í byrjun á hverri umferð í hvorri hlið þannig: Fellið af 3 lykkjur 1-1-1-1-2-3 sinnum, 2 lykkjur 1-2-3-4-4-5 sinnum og 1 lykkja 2-2-2-2-3-3 sinnum = 55-57-57-59-61-63 lykkjur. Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka á hæðina er prjónað með A.2 yfir A.1 – mynstrið á að halda áfram yfir hverja mynstureiningu eins og áður og prjónaðar eru jafnmargar lykkjur af mynstri við handveg í hvorri hlið og pláss er fyrir. Þegar A.2 hefur verið prjónað til loka á hæðina mælist stykkið alls 39-41-42-44-45-47 cm ef prjónfestan passar á hæðina. Haldið áfram með litnum hveiti til loka. Þegar stykkið mælist 23-24-25-26-27-28 cm frá prjónamerki, felli af miðju 25-25-27-27-29-29 lykkjur fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Í næstu umferð frá hálsi er felld af 1 lykkja = 14-15-14-15-15-16 lykkjur. Þegar stykkið mælist 25-26-27-28-29-30 cm, fellið af með sléttum lykkjum frá réttu. Vestið mælist ca 54-56-58-60-62-64 cm frá öxl og niður á bakstykki. Prjónið hina öxlina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma með lykkjuspori innan við affellingarkantinn – passið uppá að saumurinn verði ekki stífur. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Byrjið uppi á öxl með stuttum hringprjón 4 með litnum hveiti og prjónið upp ca 78-84 lykkjur í kringum kant í hálsi (lykkjufjöldinn verður að vera deilanlegur með 2). Prjónið stroff (= 1 lykkja snúin slétt, 1 lykkja brugðið) hringinn í ca 3 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá AFFELLING. KANTUR Í HANDVEGI: Byrjið frá réttu þar sem stykkið skiptist fyrir handveg. Notið hringprjón 4 og prjónið upp ca 82 til 106 lykkjur í kringum handveg (lykkjufjöldinn verður að vera deilanlegur með 4) með litnum hveiti. Prjónið stroff (= 1 lykkja snúin slétt, 1 lykkja brugðið) hringinn í 3 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Prjónið hinn kantinn í handvegi á sama hátt. |
|||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #mistletoemusevest eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 27 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 217-2
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.