DROPS Air
DROPS Air
65% Alpakka, 28% Polyamide, 7% Ull
frá 1364.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 15004.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Mistletoe Muse

Prjónuð peysa úr DROPS Air. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með hringlaga berustykki og norrænu mynstri. Stærð S - XXXL.

DROPS 217-1
DROPS Design: Mynstur ai-304
Garnflokkur C eða A + A
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL - XXXL

EFNI:
DROPS AIR frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki C)
200-200-200-250-250-300 g litur 02, hveiti
50-50-50-50-50-50 g litur 05, brúnn
50-50-50-50-50-50 g litur 26, beige
50-50-50-50-50-50 g litur 22, gulur
50-50-50-50-50-50 g litur 07, rúbínrauður
50-50-50-50-50-50 g litur 28, rauður múrsteinn
50-50-50-50-50-50 g litur 29, bleikvínrauður
50-50-50-50-50-50 g litur 30, salvíugrænn

PRJÓNFESTA:
16 lykkjur á breidd og 20 umferðir á hæð með sléttprjóni/norrænu mynstri = 10 x 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 5,5.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 5,5: lengd 40 cm og 80 cm fyrir sléttprjón/norrænt mynstur.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 4,5.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 4,5: lengd 40 cm og 80 cm fyrir stroff.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Air
DROPS Air
65% Alpakka, 28% Polyamide, 7% Ull
frá 1364.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 15004.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.3. Allar lykkjur í mynstri eru prjónaðar í sléttprjóni.

LEIÐBEININGAR:
Til að koma í veg fyrir að stykkið missi teygjanleika þar mynsturprjón er prjónað, er mikilvægt að herða ekki á þráðum á bakhlið á stykki. Skiptið e.t.v. yfir á grófari prjóna þegar mynstrið er prjónað ef það herpist aðeins saman.
Ef prjónfestan passar ekki á hæðina og prjónað er of fast, þá kemur stykkið til með að verða of stutt og handvegur of lítill – þetta er hægt að jafna til með því að prjóna 1 auka umferð með jöfnu millibili í einlitu einingunum.
Ef prjónað er of laust, þá verður stykkið of langt og handvegur of stuttur, þá er hægt að prjóna 1 umferð færri með jöfnu millibili í einlitu einingunum.

ÚTAUKNING (jafnt yfir):
Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 80 lykkjur) og deilið lykkjum með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 22) = 3,6.
Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn til skiptis á eftir ca 3. og 4. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat.

ÚRTAKA (á við um ermi):
Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð = 2 lykkjur færri.

AFFELLING:
Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 4. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja).

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Kantur í hálsmáli og berustykkið er prjónað í hring á hringprjóna frá skiptingunni á milli vinstri ermi og bakstykkis og prjónað er ofan frá og niður. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Síðan er fram- og bakstykki prjónað í hring á hringprjóna. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna/stuttan hringprjón, ofan frá og niður.

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Fitjið upp 80-84-88-94-96-102 lykkjur á hringprjóna 4,5 með litnum hveiti. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff (= 1 lykkja snúin slétt / 1 lykkja brugðið) hringinn í 9 cm.
Þegar stroffið hefur verið gert til loka, prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 22-24-26-26-30-36 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING = 102-108-114-120-126-138 lykkjur.
Skiptið yfir á hringprjóna 5,5. Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð, berustykkið er nú mælt frá þessu prjónamerki!

BERUSTYKKI:
Prjónið nú mynstur A.1 (= 6 lykkjur) alls 17-18-19-20-21-23 sinnum hringinn í umferð – sjá LEIÐBEININGAR. Í umferð með ör er aukið út jafnt yfir – munið eftir ÚTAUKNING, þannig:
Ör-1: Aukið út 24-24-30-30-30-30 lykkjur jafnt yfir – munið eftir ÚTAUKNING = 126-132-144-150-156-168 lykkjur. Nú er pláss fyrir 21-22-24-25-26-28 mynstureiningar A.1 í umferð.
Ör-2: Aukið út 14-22-24-18-19-21 lykkjur jafnt yfir = 140-154-168-168-175-189 lykkjur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Prjónið nú áfram mismunandi eftir stærðum þannig:

Stærð S og M:
Prjónið nú A.2 (= 7 lykkjur) alls 20-22 sinnum hringinn í umferð.
Þegar stykkið mælist 22-24 cm, er stærð S-M lokið. Ef prjónfestan passar á hæðina eru eftir 4-0 umferðir í A.2 og það eru 240-264 lykkjur í umferð. Ef stykkið mælist styttra en 22-24 cm, prjónið áfram með umferðum sem eftir eru í A.2 og síðan A.3 yfir A.2 (það er pláss fyrir 2 mynstureiningar A.3 yfir 12 lykkjur í A.2) að réttu máli.

Stærð L og XL:
Prjónið nú A.2 (= 7 lykkjur) alls 24-24 sinnum hringinn í umferð. Þegar mynsturteikning hefur verið prjónuð til loka á hæðina eru 288-288 lykkjur í umferð. Ef prjónfestan passar á hæðina á stykkið að mælast 24-24 cm frá prjónamerki. Prjónið síðan með A.3 yfir A.2 (það er pláss fyrir 2 mynstureiningar A.3 yfir 12 lykkjur í A.2) þar til stykkið mælist 25-26 cm frá prjónamerki.

Stærð XXL og XXXL:
Prjónið nú A.2 (= 7 lykkjur) alls 25-27 sinnum hringinn í umferð. Þegar mynsturteikningin hefur verið prjónuð til loka á hæðina eru 300-324 lykkjur í umferð. Ef prjónfestan passar á hæðina á stykkið nú að mælast 24-24 cm frá prjónamerki.
Prjónið síðan A.3 yfir A.2 (nú er pláss fyrir 2 mynstureiningar A.3 yfir 12 lykkjur í A.2) þar til stykkið mælist 28-30 cm frá prjónamerki, jafnframt í 8. umferð í A.3 er aukið út um 12-12 lykkjur jafnt yfir = 312-336 lykkjur.

Allar stærðir:
Nú skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. Til að mynstrið verði staðsett samhverft á framstykki og bakstykki færist byrjun á umferð 3 lykkjur til baka í umferð í stærð M og XXXL (þ.e.a.s. klippið ekki þráðinn frá og færið til baka 3 ystu lykkjurnar á hægri prjóni á vinstri prjón áður en prjónað er áfram). Í stærð S, L, XL og XXL heldur byrjun á umferð áfram eins og áður.
Prjónið næstu umferð í mynstri eins og áður þannig: Prjónið fyrstu 72-78-84-84-96-102 lykkjurnar (= bakstykki), setjið næstu 48-54-60-60-60-66 lykkjur á þráð fyrir ermi og fitjið upp 6-6-6-12-12-12 nýjar lykkjur (= í hlið undir ermi), prjónið næstu 72-78-84-84-96-102 lykkjur (= framstykki), setjið næstu 48-54-60-60-60-66 lykkjur á þráð fyrir ermi og fitjið upp 6-6-6-12-12-12 nýjar lykkjur (= í hlið undir ermi).
Prjónið síðan fram- og bakstykki og ermar hvort fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ MÆLT!

FRAM- OG BAKSTYKKI:
= 156-168-180-192-216-228 lykkjur. Prjónið síðan mismunandi eftir stærðum þannig:

Stærð S:
Setjið eitt prjónamerki mitt í 6 nýjar lykkjur sem fitjaðar voru upp undir ermi í hvorri hlið (= 3 nýjar lykkjur hvoru megin við prjónamerki). Haldið síðan áfram með mynstur A.2 eins og áður þar til mynsturteikning hefur verið prjónuð til loka á hæðina – ATH: Mynstrið kemur ekki til með að ganga jafnt upp í hliðum mitt undir ermum, prjónið eins margar lykkjur af mynstri og pláss er fyrir undir ermi. Síðan er prjónað A.3 (= 6 lykkjur) alls 26 sinnum hringinn í umferð. Þegar allt A.3 hefur verið prjónað til loka, prjónið eins og útskýrt er að neðan:

Stærð M, L, XL, XXL og XXXL:
Haldið síðan áfram hringinn með A.3 (= 6 lykkjur) alls 28-30-32-36-38 sinnum hringinn í umferð. Þegar A.3 hefur verið prjónað til loka á hæðina, prjónið áfram eins og útskýrt er að neðan.

ALLAR STÆRÐIR:
Þegar A.3 hefur verið prjónað til loka á hæðina prjónið með litnum hveiti til loka. Þegar stykkið mælist 26-26-27-28-28-28 cm frá skiptingu, prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 28-30-32-32-36-38 lykkjur jafnt yfir = 184-198-212-224-252-266 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 4,5. Prjónið stroff (= 1 lykkja snúin slétt, 1 lykkja brugðið) hringinn í 4 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá AFFELLING.
Peysan mælist ca 56-58-60-62-64-66 cm frá öxl og niður.

ERMI:
Setjið til baka 48-54-60-60-60-66 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjóna/stuttan hringprjón 5,5 og prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja og eina af 6-6-6-12-12-12 nýjum lykkjum sem fitjaðar voru upp í hlið undir ermi = 54-60-66-72-72-78 lykkjur. Setjið eitt prjónamerki mitt undir ermi, mitt í 6-6-6-12-12-12 nýjar lykkjur sem fitjaðar voru upp í hlið undir ermi (= 3-3-3-6-6-6 nýjar lykkjur hvoru megin við prjónamerki). Haldið áfram hringinn með mynstri alveg eins og á fram- og bakstykki – mynstrið kemur ekki til með að ganga jafnt upp mitt undir ermi. Þegar ermin mælist 5-3-3-3-3-3 cm frá skiptingu, fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með ca 3½-3-2½-2-2-1½ cm millibili alls 9-11-13-15-14-17 sinnum = 36-38-40-42-44-44 lykkjur. Prjónið áfram þar til ermin mælist 37-36-35-34-33-31 cm (styttri ermi í stærri stærðum vegna lengra berustykkis). Nú er prjónuð 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 6-6-6-6-8-8 lykkjur jafnt yfir = 42-44-46-48-52-52 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjóna 4,5. Prjónið stroff (= 1 lykkja snúin slétt, 1 lykkja brugðið) hringinn í 5 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – munið eftir AFFELLING.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 27.11.2020
Leiðrétting: Mynsturteikning A.2 hefur verið uppfærð.

Mynstur

symbols = hveiti
symbols = beige
symbols = brúnn
symbols = bleikvínrauður
symbols = rauður múrsteinn
symbols = rúbínrauður
symbols = gulur
symbols = salvíugrænn
symbols = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat
symbols = útaukningsumferð – sjá útskýringu í uppskrift
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Mistletoe Muse

Jeannette Hurt, Switzerland

Mistletoe Muse

Kalyssa, Switzerland

Mistletoe Muse

Miranda, United Kingdom

Mistletoe Muse

Anne, United States

Skrifaðu athugasemd um DROPS 217-1

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (29)

country flag Gerry wrote:

. How do I do the twisted rib for 217-1 ?

23.03.2024 - 14:41

DROPS Design answered:

Dear Gerry, you can find the description of the twisted rib at the beginning of the neck: "rib (= knit 1 twisted / purl 1) in the round" . Happy Knitting!

23.03.2024 - 22:44

country flag Yvonne wrote:

Prachtig patroon! Staat op mijn wensenlijstje van toekomstige projecten :) Alleen... er is al een kleur uit het assortiment, nr. 28 steenrood. Ik dacht eerst nog dat nr. 25, framboos, misschien gebruikt zou kunnen worden ter vervanging, maar ook deze is inmiddels uit het assortiment. Hebben jullie een suggestie voor een alternatief? Alvast bedankt!

29.01.2024 - 20:12

DROPS Design answered:

Dag Yvonne,

We hebben niet echt een vergelijkbaar garen in dezelfde dikte wat je kunt gebruiken. Je zou even kunnen vragen bij een of meerdere verkooppunten of ze deze kleur nog hebben liggen. Via deze link vind je een lijst met verkooppunten.

31.01.2024 - 20:10

country flag Katarzyna Rutkowska wrote:

Hallo. Is het ook mogelijk om een V hals te breien in een rond gebreide trui?

22.03.2023 - 00:20

country flag Aina Lindhe wrote:

Hej. Jag skulle vilja köpa mönsterkatalog 217, men kan inte hitta det någonstans. Jag är lite äldre och kan inte detta med mönster online så bra så jag vill hellre ha hela katalogen som för i tiden. Kan ni hjälpa mig med det? Mvh Aina Lindhe

16.03.2023 - 16:18

DROPS Design answered:

Hej Aina, vi har ikke mønsterkataloger mere. Men du kan altid få hjælp med at skrive opskriften ud hos din DROPS forhandler når du køber garnet der :)

17.03.2023 - 08:53

country flag Elisabeth Degore wrote:

C'est quoi les flèches dans les explications

22.12.2022 - 10:44

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Degore, les flèches -1 et -2 dans le diagramme A.1 correspondent aux augmentations à intervalles réguliers expliquées sous le paragraphe EMPIÈCEMENT. Bon tricot!

22.12.2022 - 11:07

country flag I Metternich wrote:

Ik wil u hartelijk danken.

18.10.2022 - 22:47

country flag Jean wrote:

Forsto det nå, økte 12 masker skal økes på forstykket og bakstykket i L.

22.08.2022 - 01:55

country flag Jean wrote:

Strikker L, det står at bolen i L skal være 180 masker, men hvis man legger sammen forstykket og bakstykket i teksten ved deling blir det bare 168 masker som er M. Det må være feil? Hva skal jeg gjøre?

22.08.2022 - 01:43

DROPS Design answered:

Hei Jean, Du strikker 84 masker (bakstykket), setter av masker til ermet og deretter legger opp 6 masker under ermet, strikker 84 masker til forstykket og igjen legger opp 6 masker under ermet. 84 + 6 + 84 + 6 = 180 masker. God fornøyelse!

22.08.2022 - 10:34

country flag Julie Picard wrote:

Bonjour, est-ce que je peux faire le même modèle avec une seule couleur? Merci de me répondre. Julie

04.06.2022 - 23:03

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Picard, tout à fait, mais pensez à bien tricoter le diagramme A.2 avec les jetés = augmentations comme indiqué, sans vous préoccuper des couleurs si vous le voulez uni. Bon tricot!

07.06.2022 - 08:19

country flag Aran Hale wrote:

I\'m unsure of how nd when to increase the stitches when working diagram A2. Help please\r\nAran

22.03.2022 - 21:43

DROPS Design answered:

Dear Mrs Hale, in A.2 increase with a yarn over worked twisted on next round when you meet the next to last symbol in diagram key (= black oval), ie on 4th round, work: *1 yarn over, knit 7*, repeat from *-* (= 7 sts + 1 yarn over). On 13th row: *knit 1 with ruby red, 1 yarn over, knit 1 with ruby red, knit 1 with old pink, knit 1 with ruby red, knit 1 with old pink, knit 1 with ruby red, knit 1 with old pink, knit 1 with ruby red, 1 yarn over* (= 8 sts + 2 yarn overs), repeat from *-*. Happy knitting!

23.03.2022 - 07:58