Patricia skrifaði:
Bonjour, Je ne comprends pas la consigne : tricoter en jersey au-dessus des 5-6-7-9-12-13 mailles suivantes (= devant). Merci de m’éclairer. Cordialement Patricia
09.01.2025 - 10:48DROPS Design svaraði:
Bonjour Patricia, vous devez simplement tricoter ces 5 à 13 mailles (cf taille) en jersey. Ajoutées aux 4 mailles de bordure devant + A.4, elles forment le devant gauche. Bon tricot!
09.01.2025 - 17:53
Claudie skrifaði:
Bonjour ! Quand je reprends les mailles pour les manches et que je relève 6 mailles, j'obtiens deux trous sous les bras, cela me désespère et voilà trois fois que je défais mon ouvrage . Je me demande aussi où je dois placer un marqueur avant de faire les diminutions pour les manches. Pouvez-vous m'aider s'il vous plait ? Merci d'avance ! Bien cordialement, Claudie
12.12.2020 - 21:02DROPS Design svaraði:
Bonjour Claudie, cette leçon montre, avec la photo 18B comment relever les mailles des manches dans celles montées sous les manches - vous pouvez relever une maille avant la 1ère des 6 + 1 après la dernière des 6 et diminuer ces mailles dès le 1er tour - ou bien utilisez la technique de la photo 18A en montant les 6 mailles, vous pourrez ensuite faire la couture sous les manches (cf vidéo). Votre marqueur doit se trouver au milieu de ces 6 mailles = c'est le milieu sous la manche. Bon tricot!
14.12.2020 - 08:32
Claudie skrifaði:
Bonjour ! Quelle quantité de laine faut-il en drop alpaca et en kid silk pour faire le gilet d'une seule couleur ? D'avance merci beaucoup pour votre réponse ! Claudie
29.10.2020 - 10:51DROPS Design svaraði:
Bonjour Claudie, nous avons uniquement les quantités correspondantes aux rayures présentées et ne sommes malheureusement pas en mesure de pouvoir adapter chacun de nos modèles à chaque demande individuelle, vous pouvez additionner chaque couleur pour votre taille - vous aurez probablement besoin d'un peu moins - votre magasin DROPS devrait pouvoir vous aider. Bon tricot!
29.10.2020 - 13:42
Hanne skrifaði:
Jeg har problemer med raglanfellingen og antall masker. Det står under bærestykke at mønster følges hver 2. Linje. Men dette får jeg ikke til å stemme. Det legges jo til masker så antallet stemmer ikke ved å følge oppskriften. Hva er det jeg ikke forstår?
17.11.2019 - 11:56DROPS Design svaraði:
Hej Hanne, mønsteret du strikker i hver raglanovergang forandres ikke. Du tager ud til raglan på hver side af diagrammerne (8 udtagninger på hver 2. pind). De nye masker strikkes videre i glatstrik. God fornøjelse!
03.12.2019 - 15:13
Christina Rådelius skrifaði:
My favourite!
12.08.2019 - 19:56
Sabine Koehler skrifaði:
Da ich ein absoluter Jacken-Fan bin, ist die einer meiner Favoriten. Und dann diese schoenen Farben! Bin schon gespannt auf die Anleitung!
23.07.2019 - 11:25
Maple Wood Jacket#maplewoodjacket |
||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Alpaca og DROPS Kid-Silk. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með röndum og fölsku klukkuprjóni. Stærð S – XXXL.
DROPS 206-49 |
||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. GARÐAPRJÓN (prjónað í hring): *1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*. ÚTAUKNING-1 (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 81 lykkjur), mínus kanta að framan (t.d. 8 lykkjur) og deilið þeim 73 lykkjum sem eftir eru með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 15) = 4,9. Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn til skiptis á eftir ca 5. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat. RENDUR: ATH: Allar rendur eru prjónaðar með 1 þræði Alpaca (A) og 1 þræði Kid-Silk (KS) = 2 þræðir. RÖND 1: 6-6-6½-6½-7-7 cm með natur (A) og ljós beige (KS). RÖND 2: 2 umferðir með ljós nougat (A) og natur (KS). RÖND 3: 2 umferðir með natur (A) og ljós beige (KS). RÖND 4: 6-6-6½-6½-7-7 cm með ljós nougat (A) og natur (KS). RÖND 5: 2 umferðir með ljós nougat (A) og ljós beige (KS). RÖND 6: 2 umferðir með ljós nougat (A) og natur (KS). RÖND 7: 6-6-6½-6½-7-7 cm með ljós nougat (A) og ljós beige (KS). RÖND 8: 2 umferðir með ljós nougat (A) og beige (KS). RÖND 9: 2 umferðir með ljós nougat (A) og ljós beige (KS). RÖND 10: 6-6-6½-6½-7-7 cm með ljós nougat (A) og beige (KS). RÖND 11: 2 umferðir með nougat (A) og ljós beige (KS). RÖND 12: 2 umferðir með ljós nougat (A) og beige (KS). RÖND 13: 6-6-6½-6½-7-7 cm með nougat (A) og ljós beige (KS). RÖND 14: 2 umferðir með nougat (A) og beige (KS). RÖND 15: 2 umferðir með nougat (A) og ljós beige (KS). RÖND 16: 6-6-6½-6½-7-7 cm með nougat (A) og beige (KS). RÖND 17: 2 umferðir með ljós brunmelerad (A) og ljós beige (KS). RÖND 18: 2 umferðir með nougat (A) og beige (KS). RÖND 19: Prjónið með ljós brúnn (A) og ljós beige (KS) til loka. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.4. LASKALÍNA: Öll útaukning er gerð frá réttu! Aukið út um 1 lykkju hvoru megin við A.2 í hverri skiptingu á milli fram- og bakstykkis og erma (= 8 lykkjur fleiri í umferð). Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt, svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni. ÚTAUKNING-2 (á við um hliðar á fram- og bakstykki): Öll útaukning er gerð frá réttu! Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 4 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt í þessum lykkjum), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 lykkjur fleiri við prjónamerki). Í næstu umferð (ranga) eru uppslættirnir prjónaðir snúnir brugðið svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni. ÚRTAKA (á við um ermi): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa lykkja), takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan (þegar flíkin er mátuð): Fellið af frá réttu þegar 3 lykkjur eru eftir á prjóni þannig: Sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 næstu lykkjur slétt saman og prjónið síðustu lykkju slétt. Í næstu umferð (ranga) er uppslátturinn prjónaður slétt svo það myndist gat. Fellið af fyrir fyrsta hnappagatinu þegar stroff í hálsmáli mælist ca 1½-2 cm. Fellið síðan af fyrir 5-5-6-6-6-6 næstu hnappagötum með ca 9½-9½-8½-8½-9-9½ cm millibili. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað fram og til baka á hringprjón frá miðju að framan, ofan frá og niður. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað fram og til baka, ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á stuttan hringprjón/sokkaprjóna, ofan frá og niður. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 81-85-89-95-99-101 lykkjur (meðtaldar 4 kantlykkjur að framan í hvorri hlið við miðju að framan) á hringprjón 5 með 1 þræði í litnum natur Alpaca og 1 þræði í litnum ljós beige Kid-Silk (= 2 þræðir). Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Prjónið nú rúllukant þannig: Prjónið 1 umferð frá réttu og 1 umferð brugðið frá röngu. Skiptið yfir á hringprjón 4 og prjónið 4 umferðir GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Skiptið til baka yfir á hringprjón 5. Prjónið 1 umferð slétt frá röngu þar sem aukið er út um 15-15-15-17-25-27 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING-1 = 96-100-104-112-124-128 lykkjur. Munið eftir HNAPPAGAT – sjá útskýringu að ofan. Prjónið næstu umferð frá röngu þannig: Prjónið 4 lykkjur slétt, prjónið brugðið þar til 4 lykkjur eru eftir á prjóni, prjónið 4 lykkjur slétt. Setjið 1 prjónamerki mitt í umferð – HÉÐAN ER NÚ MÆLT! BERUSTYKKI: Prjónið nú RENDUR – sjá útskýringu að ofan og mynstur þannig: Prjónið 4 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, prjónið A.1 (= 4 lykkjur), prjónið sléttprjón yfir næstu 5-6-7-9-12-13 lykkjur (= framstykki), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= útaukning), prjónið A.2 (= 11 lykkjur), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= útaukning), prjónið 4 lykkjur sléttprjón (= ermi), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= útaukning), prjónið A.2 (= 11 lykkjur), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= útaukning), prjónið 18-20-22-26-32-34 lykkjur sléttprjón (= bakstykki), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= útaukning), prjónið A.2 (= 11 lykkjur), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= útaukning), prjónið 4 lykkjur sléttprjón (= ermi), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= útaukning), prjónið A.2 (= 11 lykkjur), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= útaukning), prjónið sléttprjón yfir næstu 5-6-7-9-12-13 lykkjur, prjónið A.3 (= 4 lykkjur) og endið með 4 kantlykkjum að framan í garðaprjóni (= framstykki). Fyrsta útaukning fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan, er nú lokið. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Haldið áfram með mynstur fram og til baka og aukið svona út í annarri hverri umferð alls 15-18-21-22-23-24 sinnum (meðtalin fyrsta útaukning sem útskýrð var að ofan) = 216-244-272-288-308-320 lykkjur. Aukið síðan einungis út á framstykki og bakstykki (= 4 lykkjur fleiri) í annarri hverri umferð alls 5-5-3-4-5-7 sinnum = 236-264-284-304-328-348 lykkjur. A.1 til A.3 er endurtekin á hæðina. Prjónið án útaukninga þar til stykkið mælist 20-22-24-26-28-30 cm frá prjónamerki. Nú skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar, þ.e.a.s. næsta umferð frá röngu er prjónuð þannig: Prjónið fyrstu 38-42-44-48-53-57 lykkjur eins og áður (= framstykki), setjið næstu 46-52-58-60-62-64 lykkjur á 1 þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-8-8-10-12 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið næstu 68-76-80-88-98-106 lykkjur eins og áður (= bakstykki), setjið næstu 46-52-58-60-62-64 lykkjur á 1 þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-8-8-10-12 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi) og prjónið þær 38-42-44-48-53-57 lykkjur sem eftir eru eins og áður (= framstykki). Prjónið síðan fram- og bakstykki og ermar til loka fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 156-172-184-200-224-244 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki 41-45-48-52-58-63 lykkjur inn frá hvorri hlið (= í hliðum á fram- og bakstykki). Nú eru 74-82-88-96-108-118 lykkjur á milli prjónamerkja á bakstykki. Látið prjónamerkin fylgja með í stykkinu, þau eru notuð aðeins síðar þegar auka á út í hliðum á fram- og bakstykki. Prjónið síðan mynstur þannig: Prjónið 4 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, prjónið A.1 (= 4 lykkjur), prjónið sléttprjón yfir næstu 25-29-31-35-40-44 lykkjur, prjónið A.4 (= 5 lykkjur), prjónið 6-6-8-8-10-12 lykkjur sléttprjón (= í hlið), prjónið A.4 (= 5 lykkjur), prjónið 58-66-70-78-88-96 lykkjur sléttprjón, prjónið A.4 (= 5 lykkjur), prjónið 6-6-8-8-10-12 lykkjur sléttprjón (= í hlið), prjónið A.4 (= 5 lykkjur), prjónið sléttprjón yfir næstu 25-29-31-35-40-44 lykkjur, prjónið A.3 (= 4 lykkjur) og endið með 4 kantlykkjum að framan í garðaprjóni. Þegar fram- og bakstykki mælist 5 cm frá skiptingu í öllum stærðum, aukið út um 1 lykkju hvoru megin við bæði prjónamerkin – sjá ÚTAUKNING-2 (= 4 lykkjur fleiri). Aukið svona út með 6 cm millibili alls 4 sinnum í hvorri hlið = 172-188-200-216-240-260 lykkjur. Prjónið áfram þar til fram- og bakstykki mælist 29 cm frá skiptingu í öllum stærðum (nú eru eftir ca 2 cm að loka máli, mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd). Prjónið 1 umferð frá röngu þar sem aukið er út um 12-12-12-16-16-16 lykkjur jafnt yfir – munið eftir ÚTAUKNING-1 = 184-200-212-232-256-276 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 4. Prjónið 4 umferðir garðaprjón. Skiptið yfir á hringprjón 5. Prjónið 2 umferðir sléttprjón yfir allar lykkjur. Fellið af, en passið uppá að affellingarkanturinn verði ekki stífur. Peysan mælist ca 54-56-58-60-62-64 cm frá öxl og niður. ERMI: Setjið 46-52-58-60-62-64 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjóna/stuttan hringprjón 5 og prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 6-6-8-8-10-12 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermum = 52-58-66-68-72-76 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt í nýjar lykkjur undir ermi, látið prjónamerkið fylgja með í stykkinu, það á að nota það aðeins síðar þegar fækka á lykkjum mitt undir ermi. Byrjið umferð við prjónamerki og prjónið sléttprjón og rendur alveg eins og á fram- og bakstykki. Þegar ermin mælist 2 cm frá skiptingu, fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með 4½-3½-2½-2-1½-1½ cm millibili alls 8-10-13-14-15-16 sinnum = 36-38-40-40-42-44 lykkjur. Prjónið áfram þar til ermin mælist 40-39-37-35-34-32 cm frá skiptingu (nú eru eftir ca 2 cm að loka máli, mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd) – ATH: Það er styttra mál í stærri stærðum vegna víðari hálsmáls og lengra berustykkis. Prjónið 1 umferð þar sem aukið er út um 6 lykkjur jafnt yfir = 42-44-46-46-48-50 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 4. Prjónið 4 umferðir garðaprjón. Skiptið til baka yfir á sokkaprjón 5. Prjónið 2 umferðir með sléttprjóni. Fellið af, en passið uppá að affellingarkanturinn verði ekki stífur. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið tölur í vinstri kant að framan. |
||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||
|
||||||||||
![]() |
||||||||||
![]() |
||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #maplewoodjacket eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 30 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 206-49
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.