Nadia Bergamini wrote:
Non capisco il diagramma A1 del modello Maple Wood che significa puntare il ferro destro nella maglia del ferro precedente, lavorare una maglia a dritto e far cadere le maglie dal ferro sinistro. Mi potete indicare un video tutorial. Grazie
01.03.2024 - 23:03DROPS Design answered:
Buongiorno Nadia, deve lavorare sulla maglia del ferro sotto, non quella attuale, e la deve lavorare a diritto. Provi a vedere se questo video le può essere di aiuto. Buon lavoro!
02.03.2024 - 11:19Sandra Faucett wrote:
Hi, Just wondering why there is a ridge at the increase after A2/AX2 and knit 3 on the right side of the front. There isn't a ridge on the left side.. This doesn't look right. Am I doing something wrong.?
21.02.2024 - 17:48DROPS Design answered:
Dear Mrs Faucett, when you work the 2nd round in A.2, ie the round after the increases, knit the yarn overs twisted to avoid holes, you will have: P2, K20, P2 = 24 sts for A.2. Happy knitting!
22.02.2024 - 09:24Marianne Ehler wrote:
Hej Er det korrekt at der i A.2 skal være 5 pinde mellem første snoning (en snoning) og anden snoning (to snoninger, men 7 pinde mellem anden og tredje snoning osv. mvh Marianne
16.11.2023 - 17:07DROPS Design answered:
Hej Marianne, ja det stemmer, da vil snoningerne ser ud som på billedet :)
17.11.2023 - 10:55Tara wrote:
Ik ben bezig met dit patroon maar de telling klopt vlgs mij niet..ik had 116steken op de naald , moet 23 x 8 meerderen en kom dat uit op 300 steken en niet op 310 steken ( 1 na laatste maat!!l en ik heb de 10 vh begin er al bij geteld..
30.01.2023 - 16:07DROPS Design answered:
Dag Tara,
In het begin van de pas (in de eerste naald, die stap voor stap beschreven is) meerder je ook 10 steken midden voor in A.2. Er worden dan 14 steken gemeerderd naar 24 steken.
01.02.2023 - 20:47Tara wrote:
Ik ben bezig met dit patroon maar de telling kloot vlgs mij niet..ik had 116steken op de naald , moet 23 x 8 meerderen en kom dat uit op 300 steken en niet op 310 steken ( 1 na laaste maat!!l
30.01.2023 - 12:58Ann Matthews wrote:
I am confused about diagram A2 by the A.X part. After I have reached the top of the diagram do I start again from the bottom line of A.X working 2 rounds plain before using the cable needle or do I go straight to the first use of the cable needle (round 4 of 24 stitches)? Thanks, Ann
29.11.2022 - 16:20DROPS Design answered:
Hi Ann, You go to the bottom of A.X, with 2 rounds of knit before the cable. Happy knitting!
30.11.2022 - 08:05Giulia wrote:
Posso sapere come qalcolare la quantità di filato da ordinare per una taglia L/XL è in generale come calcolare la quantità di filato per ogni taglia dei vostri modelli gratuiti?
28.07.2022 - 12:29DROPS Design answered:
Buongiorno Giulia, la quantità di filato è riportata a destra della foto per tutte le taglie. Per trovare la taglia corretta, in fondo alla pagina trova uno schema con le misure del capo finito che può confrontare con quelle di un capo già in suo possesso. Buon lavoro!
28.07.2022 - 12:33Olga wrote:
Buongiorno, arrivata alle maniche pongo un quesito. Queste devono iniziare subito totalmente in maglia rasata, o bisogna lavorare comunque in parte il diagramma A.3? Grazie.
07.02.2022 - 10:03DROPS Design answered:
Buonasera Olga, le maniche si lavorano in tondo come indicato nel testo. Buon lavoro!
08.02.2022 - 23:33Edith wrote:
Nimmt man bei der Passe in der 1. Zunahmereihe gleich von 14 auf 24 Maschen zu ?
23.12.2020 - 16:49
Maple Wood |
|||||||||||||||||||
|
|
||||||||||||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Alpaca og DROPS Kid-Silk. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með köðlum, röndum og fölsku klukkuprjóni. Stærð S – XXXL.
DROPS 206-50 |
|||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað í hring): *1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*. ÚTAUKNING-1 (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 73 lykkjur) og deilið lykkjum með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 15) = 4,9. Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn til skiptis á eftir ca 5. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat. RENDUR: ATH: Allar rendur eru prjónaðar með 1 þræði Alpaca (A) og 1 þræði Kid-Silk (KS) = 2 þræðir. RÖND 1: 6-6-6½-6½-7-7 cm með natur (A) og ljós beige (KS). RÖND 2: 2 umferðir með ljós nougat (A) og natur (KS). RÖND 3: 2 umferðir með natur (A) og ljós beige (KS). RÖND 4: 6-6-6½-6½-7-7 cm með ljós nougat (A) og natur (KS). RÖND 5: 2 umferðir með ljós nougat (A) og ljós beige (KS). RÖND 6: 2 umferðir með ljós nougat (A) og natur (KS). RÖND 7: 6-6-6½-6½-7-7 cm með ljós nougat (A) og ljós beige (KS). RÖND 8: 2 umferðir með ljós nougat (A) og beige (KS). RÖND 9: 2 umferðir með ljós nougat (A) og ljós beige (KS). RÖND 10: 6-6-6½-6½-7-7 cm með ljós nougat (A) og beige (KS). RÖND 11: 2 umferðir með nougat (A) og ljós beige (KS). RÖND 12: 2 umferðir með ljós nougat (A) og beige (KS). RÖND 13: 6-6-6½-6½-7-7 cm með nougat (A) og ljós beige (KS). RÖND 14: 2 umferðir með nougat (A) og beige (KS). RÖND 15: 2 umferðir með nougat (A) og ljós beige (KS). RÖND 16: 6-6-6½-6½-7-7 cm með nougat (A) og beige (KS). RÖND 17: 2 umferðir með ljós brunmelerad (A) og ljós beige (KS). RÖND 18: 2 umferðir með nougat (A) og beige (KS). RÖND 19: Prjónið með ljós brúnn (A) og ljós beige (KS) til loka. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.3. LASKALÍNA: Aukið út um 1 lykkju hvoru megin við A.1 í hverri skiptingu á milli fram- og bakstykkis og erma (= 8 lykkjur fleiri í umferð). Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt, svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni. ÚTAUKNING-2 (á við um hliðar á fram- og bakstykki): Öll útaukning er gerð frá réttu! Byrjið 2 lykkjum á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 4 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt í þessum lykkjum), sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð eru uppslættirnir prjónaðir snúnir brugðið svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni. ÚRTAKA (á við um ermi): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa lykkja), takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað í hring á hringprjón, ofan frá og niður. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað í hring á hringprjón, ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á stuttan hringprjón/sokkaprjóna, ofan frá og niður. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 73-77-81-87-91-93 lykkjur á hringprjón 5 með 1 þræði í litnum natur Alpaca og 1 þræði ílitnum ljós beige Kid-Silk (= 2 þræðir). Fyrst er prjónaður rúllukantur, þ.e.a.s. prjónið 3 sléttar umferðir. Skiptið yfir á hringprjón 4 og prjónið 4 umferðir GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Skiptið til baka yfir á hringprjón 5. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 15-15-15-17-25-27 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING-1 = 88-92-96-104-116-120 lykkjur. Prjónið 1 umferð slétt. Setjið 1 prjónamerki mitt í umferð – HÉÐAN ER NÚ MÆLT! BERUSTYKKI: Prjónið nú RENDUR – sjá útskýringu að ofan og mynstur þannig: Prjónið A.1 (= 11 lykkjur), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= útaukning), prjónið 4 lykkjur sléttprjón (= ermi), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= útaukning), prjónið A.1 (= 11 lykkjur), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= útaukning), prjónið 2-3-4-6-9-10 lykkjur sléttprjón, prjónið A.2 (= 14 lykkjur sem auknar er út til 24 lykkjur), prjónið 2-3-4-6-9-10 lykkjur sléttprjón (= framstykki), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= útaukning), prjónið A.1 (= 11 lykkjur), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= útaukning), prjónið 4 lykkjur sléttprjón (= ermi), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= útaukning), prjónið A.1 (= 11 lykkjur), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= útaukning), prjónið sléttprjón yfir 18-20-22-26-32-34 lykkjur sem eftir eru (= bakstykki) og sláið 1 sinni uppá prjóninn (= útaukning). Fyrsta útaukning fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan, er nú lokið. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Haldið áfram með mynstur hringinn A.1 og A.X er endurtekið á hæðina) og aukið svona út í annarri hverri umferð alls 15-18-21-22-23-24 sinnum (meðtalin fyrsta útaukning sem útskýrð er að ofan) = 218-246-274-290-310-322 lykkjur. Aukið síðan út einungis á framstykki og bakstykki (= 4 lykkjur fleiri) í annarri hverri umferð alls 5-5-3-4-5-7 sinnum = 238-266-286-306-330-350 lykkjur. Prjónið síðan án útaukninga þar til stykkið mælist 20-22-24-26-28-30 cm frá prjónamerki. Nú skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar, þ.e.a.s. næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið fyrstu 5 lykkjur (= á bakstykki) eins og áður, setjið næstu 46-52-58-60-62-64 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-8-8-10-12 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið næstu 78-86-90-98-108-116 lykkjur eins og áður (= framstykki), setjið næstu 46-52-58-60-62-64 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-8-8-10-12 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi) og prjónið 63-71-75-83-93-101 lykkjur sem eftir eru (= á bakstykki). Klippið frá. Prjónið síðan fram- og bakstykki og ermar hvert fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! BAKSTYKKI: = 158-174-186-202-226-246 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt í hvora hlið, mitt í 6-6-8-8-10-12 lykkjur sem fitjaðar voru upp undir ermum. Nú eru 84-92-98-106-118-128 lykkjur á framstykki og 74-82-88-96-108-118 lykkjur á bakstykki. Láið prjónamerkin fylgja með í stykkinu, það á að nota þau aðeins síðar þegar auka á út í hliðum á fram- og bakstykki. Byrjið umferð í hlið og byrjið með framstykki. Prjónið síðan mynstur þannig: Prjónið 3-3-4-4-5-6 lykkjur sléttprjón (= í hlið), prjónið A.3 (= 5 lykkjur), prjónið sléttprjón og A.2 yfir næstu 68-76-80-88-98-106 lykkjur eins og áður, prjónið A.3 (= 5 lykkjur), prjónið 6-6-8-8-10-12 lykkjur sléttprjón (= í hlið), prjónið A.3 (= 5 lykkjur), prjónið sléttprjón yfir næstu 58-66-70-78-88-96 lykkjur eins og áður, prjónið A.3 (= 5 lykkjur) og endið með 3-3-4-4-5-6 lykkjur sléttprjón (= í hlið). Þegar fram- og bakstykki mælist 5 cm frá skiptingu í öllum stærðum, aukið út um 1 lykkju hvoru megin við bæði prjónamerkin – sjá ÚTAUKNING-2 (= 4 lykkjur fleiri). Aukið svona út með 6 cm millibili alls 4 sinnum í hvorri hlið = 174-190-202-218-242-262 lykkjur. Prjónið áfram þar til fram- og bakstykki mælist 29 cm frá skiptingu í öllum stærðum – stillið af eftir 6. eða 12. umferð í A.X (nú eru eftir ca 2 cm að loka máli, mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd). Prjónið 1 umferð frá röngu þar sem aukið er út um 10-10-10-14-14-14 lykkjur jafnt yfir (en ekki auka út yfir kaðal) = 184-200-212-232-256-276 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 4. Prjónið 4 umferðir garðaprjón. Skiptið til baka yfir á hringprjón 5. Prjónið 2 umferðir sléttprjón yfir allar lykkjur. Fellið af, en passið uppá að affellingarkanturinn verði ekki stífur. Peysan mælist ca 54-56-58-60-62-64 cm frá öxl og niður. ERMI: Setjið 46-52-58-60-62-64 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjóna/stuttan hringprjón 5 og prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 6-6-8-8-10-12 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermum = 52-58-66-68-72-76 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt í nýjar lykkjur undir ermi, látið prjónamerkið fylgja með í stykkinu, það á að nota það aðeins síðar þegar fækka á lykkjum mitt undir ermi. Byrjið umferð við prjónamerki og prjónið sléttprjón og rendur alveg eins og á fram- og bakstykki. Þegar ermin mælist 2 cm frá skiptingu, fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með 4½-3½-2½-2-1½-1½ cm millibili alls 8-10-13-14-15-16 sinnum = 36-38-40-40-42-44 lykkjur. Prjónið áfram þar til ermin mælist 40-39-37-35-34-32 cm frá skiptingu (nú eru eftir ca 2 cm að loka máli, mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd) – ATH: Það er styttra mál í stærri stærðum vegna víðari hálsmáls og lengra berustykkis. Prjónið 1 umferð þar sem aukið er út um 6 lykkjur jafnt yfir = 42-44-46-46-48-50 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 4. Prjónið 4 umferðir garðaprjón. Skiptið til baka yfir á sokkaprjón 5. Prjónið 2 umferðir með sléttprjóni. Fellið af, en passið uppá að affellingarkanturinn verði ekki stífur. Prjónið hina ermina á sama hátt. |
|||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Friederike André wrote:
Hallo, ich finde das Muster sehr schön. Leider ist Ihnen bei der Umrechnung der Größen ein Grundsatzfehler unterlaufen. Der weitere Halsausschnitt und die längere Passe sind notwendig für meine größere Oberweite. Meine Arme sind genau so lang wie die von anderen Frauen - ca. 50 cm vom Armausschnitt bis zum Handgelenk, nur eben weiter. D.h. es wird vermutlich auch mehr Wolle benötigt. Im Englischen ist es auch falsch. Mir ist derFehler auch in anderen Mustern aufgefallen.
18.08.2023 - 06:42