DROPS Andes
DROPS Andes
65% Ull, 35% Alpakka
frá 1408.00 kr /100g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 15488.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Whiteout Jacket

Prjónuð peysa með opnu garðaprjóni, fölsku klukkuprjóni og v-hálsmáli úr DROPS Andes. Stærð S - XXXL.

DROPS 206-44
DROPS Design: Mynstur an-062
Garnflokkur E eða C + C
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL - XXXL

EFNI:
DROPS ANDES frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki E)
1100-1300-1400-1550-1700-1900 g litur 0100, natur

PRJÓNFESTA:
9 lykkjur á breidd og 12 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 10: lengd 60 cm eða 80 cm.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

DROPS HORNATALA, NR 536: 4 stykki í allar stærðir.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Andes
DROPS Andes
65% Ull, 35% Alpakka
frá 1408.00 kr /100g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 15488.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 (= falskt klukkuprjón) og A.2.

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

MÆLING:
Öll mál á lengdina eru gerð þegar stykkinu er haldið uppi, annars kemur peysan til með að verða of síð miðað við mál á teikningu þegar flíkin er mátuð.

HNAPPAGAT:
Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan þegar flíkin er mátuð. 1 hnappagat = byrjið frá réttu og prjónið aðra og þriðju lykkju frá kanti slétt saman, sláið síðan 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt svo það myndist gat. Fellið af fyrir hnappagötum þegar stykkið mælist:
S: 6, 14, 23 og 32 cm
M: 6, 15, 24 og 33 cm
L: 6, 16, 25 og 34 cm
XL: 6, 15, 25 og 35 cm
XXL: 6, 16, 26 og 36 cm
XXXL: 7, 17, 27 og 37 cm

ÚRTAKA (á við um hálsmál að framan):
Fækkið lykkjum á hægra framstykki þannig:
Prjónið 5 lykkjur garðaprjón, takið uppsláttinn og sléttu lykkjuna af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið næstu lykkju eins og útskýrt er í mynstri (þ.e.a.s. prjónið annað hvort brugðið eða «prjónið uppsláttinn og sléttu lykkjuna slétt saman», lyftið síðan uppslættinum og sléttu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð/lykkjurnar sem prjónaðar voru saman, prjónið út umferðina. ATH! Það á alltaf að vera 1 klukkuprjóns lykkja við kant að framan.

Fækkið lykkjum á vinstra framstykki þannig:
Prjónið þar til 7 lykkjur eru eftir á prjóni, prjónið 3 næstu lykkju slétt saman, prjónið 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. ATH! Það á alltaf að vera 1 klukkuprjóns lykkja við kant að framan.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka í stykkjum, neðan frá og upp og saumað saman í lokin.
Ermar eru prjónaðar fram og til baka á hringprjón, neðan frá og upp. ATH! Þegar lykkjum fækkar/fjölgar í fölsku klukkuprjóni, er uppslátturinn alltaf talinn + lykkja sem lyft var yfir sem 1 lykkja.

BAKSTYKKI:
Fitjið upp 72-78-81-90-96-105 lykkjur (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið) á hringprjón 10 með Andes. Fyrsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið 1 kantlykkju í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * 1 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðið saman *, prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir, endið með 1 lykkju slétt og 1 kantlykkju í garðaprjóni = 49-53-55-61-65-71 lykkjur. Prjónið síðan frá röngu þannig (mynsturteikning er lesin frá vinstri til hægri): Prjónið 1 kantlykkju garðaprjón, A.1 þar til 1 lykkja er eftir og endið með 1 kantlykkju garðaprjón. Mynstrið byrjar og endar með 1 lykkju slétt í fölsku klukkuprjóni innan við 1 kantlykkju garðaprjón í hvorri hlið á stykki, séð frá réttu. Haldið svona áfram með mynstur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Þegar stykkið mælist 10 cm – SJÁ MÆLING, prjónið næstu umferð þannig – frá röngu: Prjónið brugðið yfir allar lykkjur (haldið áfram með 1 kantlykkju í hvorri hlið).
Prjónið síðan eftir A.2. Prjónið A.2 þar til stykkið mælist ca 31-31-31-34-34-34 cm (stillið af eftir heila mynstureiningu af A.2). Nú er prjónuð 1 umferð þannig – frá réttu: 1 kantlykkja í garðaprjóni, * 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið *, endurtakið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir, prjónið 1 lykkju slétt og 1 kantlykkju í garðaprjóni. Prjónið síðan A.1, fyrsta umferð er prjónuð frá röngu og mynstrið byrjar og endar með 1 lykkju slétt í fölsku klukkuprjóni innan við 1 kantlykkju garðaprjón í hvorri hlið á stykki, séð frá réttu. Þegar stykkið mælist 42-43-44-45-46-47 cm, fellið af 3 lykkjur í hvorri hlið fyrir handveg = 43-47-49-55-59-65 lykkjur. Haldið áfram með A.1. Þegar stykkið mælist 44-46-46-48-50-50 cm, prjónið næstu umferð þannig – frá röngu: Prjónið brugðið yfir allar lykkjur. Síðan er prjónað eftir A.2. Þegar stykkið mælist 58-60-62-64-66-68 cm prjónið 2 umferðir garðaprjón yfir miðju 19-19-21-21-23-23 lykkjur. Þegar stykkið mælist 60-62-64-66-68-70 cm, fellið af fyrir hálsmáli þannig: Fellið af miðju 9-9-11-11-13-13 lykkjur og prjónið hvora öxl til loka fyrir sig = 17-19-19-22-23-26 eftir á hvorri öxl. Haldið áfram með 5 lykkjur garðaprjón við háls og fölsku klukkuprjóni eins og áður. Fellið af þær lykkjur sem eftir eru þegar stykkið mælist 62-64-66-68-70-72 cm.

HÆGRA FRAMSTYKKI:
Fitjið upp 40-43-46-49-52-58 lykkjur (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið) á hringprjón 10 með Andes. Fyrsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, * 1 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðiðr saman *, prjónið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir, endið með 1 lykkju slétt og 1 kantlykkju í garðaprjóni = 29-31-33-35-37-41 lykkjur. Prjónið síðan frá röngu þannig (mynsturteikning er lesin frá vinstri til hægri): Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, A.1 þar til 5 lykkjur eru eftir og endið með 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni. Mynstrið byrjar og endar með 1 lykkju slétt í fölsku klukkuprjóni innan við 1 kantlykkju garðaprjón/5 kantlykkjur að framan í hvorri hlið á stykki, séð frá réttu. Haldið svona áfram með mynstur, þegar stykkið mælist 6-6-6-6-6-7 cm fellið af fyrir fyrsta HNAPPAGAT – sjá útskýringu að ofan. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 10 cm, prjónið næstu umferð þannig – frá röngu: Prjónið brugðið yfir allar lykkjur þar til 5 lykkjur eru eftir, prjónið 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Næsta umferð er prjónuð þannig – frá réttu: 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, A.2 þar til 1 lykkja er eftir, prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni. Haldið áfram með þetta mynstur. Þegar stykkið mælist 31-31-31-34-34-34 cm (stillið af eftir heila mynstureiningu af A.2), prjónið 1 umferð þannig – frá réttu: 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, * 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið *, endurtakið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir, prjónið 1 lykkju slétt og 1 kantlykkju í garðaprjóni. Prjónið síðan A.1 (fyrsta umferð er prjónuð frá röngu) og mynstur byrjar og endar með 1 lykkju slétt í fölsku klukkuprjóni innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni/5 kantlykkjur að framan í hvorri hlið á stykki, séð frá réttu. Haldið áfram með þetta mynstur JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 33-34-35-36-37-38 cm byrjar úrtaka fyrir hálsmáli, lykkjum er fækkað innan við 5 lykkjum garðaprjón – sjá útskýringu að ofan. Fækkið lykkjum með 3½-3½-3-3½-3-3 cm millibili alls 9-9-11-10-11-12 sinnum. Þegar stykkið mælist 42-43-44-45-46-47 cm, fellið af 3 lykkjur í byrjun á umferð frá röngu fyrir handveg. Eftir allar úrtökur fyrir hálsmáli og handveg eru 17-19-19-22-23-26 lykkjur í umferð. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 62-64-66-68-70-72 cm, fellið af.

VINSTRA FRAMSTYKKI:
Fitjið upp 40-43-46-49-52-58 lykkjur (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið) á hringprjón 10 með Andes. Fyrsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, * 1 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðnar saman *, prjónið frá *-* þar til 6 lykkjur eru eftir, endið með 1 lykkju slétt og 5 kantlykkjum í garðaprjóni = 29-31-33-35-37-41 lykkjur. Prjónið síðan frá röngu þannig (mynsturteikning er lesin frá vinstri til hægri): Prjónið 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, A.1 þar til 1 lykkja er eftir og endið með 1 kantlykkju í fölsku klukkuprjóni innan við 1 kantlykkju garðaprjón/5 kantlykkjur að framan í hvorri hlið á stykki, séð frá réttu. Haldið svona áfram með mynstur og prjónið á sama hátt og hægra framstykki, en gagnstætt. Ekki fella af fyrir hnappagötum.

ERMI:
Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjón.
Fitjið upp 39-42-42-45-45-48 lykkjur (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið) á hringprjón 10 með Andes. Fyrsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, * 1 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðið saman *, prjónið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir, endið með 1 lykkju slétt og 1 kantlykkju í garðaprjóni = 27-29-29-31-31-33 lykkjur. Prjónið síðan frá röngu þannig (mynsturteikning er lesin frá vinstri til hægri): Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, A.1 þar til 1 lykkja er eftir og endið með 1 kantlykkju garðaprjón. Þ.e.a.s. mynstrið byrjar og endar með 1 lykkju slétt í fölsku klukkuprjóni innan við 1 kantlykkju garðaprjón í hvorri hlið á stykki, séð frá réttu.
Haldið svona áfram með mynstur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 10 cm, prjónið næstu umferð þannig – frá röngu: Prjónið brugðið yfir allar lykkjur (haldið áfram með 1 kantlykkju í hvorri hlið). Prjónið síðan eftir A.2. Haldið áfram með þetta mynstur. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 12 cm byrja útaukninga í hlið á ermi. Aukið út um 1 lykkju í hvorri hlið innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni, aukið út með 9-8-8-7½-7½-7½ cm millibili alls 5 sinnum = 37-39-39-41-41-43 lykkjur. Lykkjur eru prjónaðar jafnóðum inn í mynstur. Þegar prjónaðar hafa verið 2 mynstureiningar af A.2, prjónið 1 umferð þannig – frá réttu: 1 kantlykkja í garðaprjóni, * 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið *, endurtakið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir, prjónið 1 lykkju slétt og 1 kantlykkju í garðaprjóni. Prjónið síðan A.1 (fyrsta umferð er prjónuð frá röngu) og mynstrið byrjar og endar með 1 lykkju slétt í fölsku klukkuprjóni innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið á stykki, séð frá réttu (eins og áður). Þegar stykkið mælist 41-40-40-38-38-37 cm, prjónið næstu umferð þannig – frá röngu: Prjónið brugðið yfir allar lykkjur. Prjónið síðan eftir A.2. Þegar stykkið mælist 49-48-48-46-45-44 cm (styttra mál í stærri stærðum vegna breiðari axla), fellið af.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið axlasauma. Saumið ermar í og saumið sauma undir ermum og hliðarsauma í eitt í ystu lykkjubogana á garðaprjóni. Saumið tölur í.

Mynstur

symbols = slétt lykkja frá réttu, brugðin lykkja frá röngu
symbols = brugðin lykkja frá réttu, slétt lykkja frá röngu

symbols = sláið 1 sinni uppá prjóninn, lyftið brugðnu lykkjunni yfir á hægri prjón eins og prjóna eigi hana brugðið (frá röngu)
symbols = uppslátturinn og slétta lykkjan er prjónað slétt saman (frá réttu)
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 206-44

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (6)

country flag Francesca wrote:

Vorrei sapere se esiste il modello per la realizzazione all'uncinetto. Grazie

07.02.2020 - 10:07

DROPS Design answered:

Buongiorno Francesca. Questo modello è disponibile solo per ferri. Nei nostri cataloghi ci sono molti modelli all’uncinetto. A questo link trova una selezione di cardigan tra cui ci auguriamo possa trovare un modello di suo gradimento. Buon lavoro!

07.02.2020 - 12:07

country flag Els Van Ettinger wrote:

Kan dit patroon ook op tweevnaalden gebreid worden

05.01.2020 - 22:11

DROPS Design answered:

Dag Els,

We hebben een instructie op de site staan waarin wordt uitgelegd hoe je een patroon aan kunt passen zodat je deze met rechte naalden kunt breien. Deze vindt je hier

08.01.2020 - 10:04

country flag Susan Hicks wrote:

I love the different pattern interest and the shape is perfect for me.

13.07.2019 - 10:26

country flag Marion wrote:

Sehr schönes Modell. Ich würde es gerne stricken.

11.06.2019 - 09:47

country flag Katherine wrote:

I would love this for an everyday sweater. I like that it flairs at the hem, that the pattern changes halfway down the length of it including the sleeves. And if you know me by now - it's v-neck, opens down the front and the hem is long. Very Pretty.

08.06.2019 - 07:14

country flag Giuseppina Grasso wrote:

Lo trovo molto elegante

05.06.2019 - 22:19