Anne Romedahl skrifaði:
Har fået 12 nøgler forærende. Hvor mange nøgler skal der bruges til en str m, det synes jeg ikke, at jeg kan læse nogle steder Hilsen Anne
23.08.2019 - 15:29DROPS Design svaraði:
Hei Anne. Garnmengden står under MATERIALER. I str M til denne genseren brukes det 350 garn (7 nøster). Slik står det i oppskriften: DROPS FLORA fra Garnstudio (tilhører garngruppe A) 300-350-350-400-450-500 g farge 03, lys grå. God Fornøyelse!
09.09.2019 - 11:28
Sandrag skrifaði:
Bonjour, j'aimerais faire ce pull pour ma mère qui préfère les cols montants ! J'ai pensé ne monter que 100m au départ, faire les 3cm de côtes et au tour d'augmentation/diminution, AUGMENTÉ de 20m pour obtenir les 120m (= taille M) avant l'empiècement. Ensuite, j'ai pensé rajouter une partie de côtes anglaises d'environ 3 à 4 cm... Qu'en pensez-vous ? Cela fera t'il un joli col montant ? Merci beaucoup pour votre réponse et votre aide...
21.08.2019 - 08:45DROPS Design svaraði:
Bonjour Sandrine, nous ne sommes malheureusement pas en mesure de pouvoir ajuster chacun de nos modèles à chaque demande, toutefois ces modèles de top down avec col montant pourront peut-être vous aider. Bon tricot!
21.08.2019 - 08:53
Jette skrifaði:
Hej. Jeg vil så gerne strikke en lidt tyk sweater i Flora garn, gerne dobbelt. Men jeg kan ikke finde en opskrift, hvor jeg kan bruge dobbelt Flora? Kan i hjælpe mig? Mvh Jette
02.08.2019 - 22:36DROPS Design svaraði:
Hej Jette, Jo 2 tråde fra garngruppe A giver samme strikkefasthed som garngruppe C. Her finder du nogle opskrifter: Garngruppe C Vælg en af dem som har 16 eller 17 m på 10 cm (det står under billedet). God fornøjelse!
16.08.2019 - 11:09
Mrs O S Poulter skrifaði:
In 50 years of knitting I have never come across English rib and I am finding the instructions difficult to follow. I have found a video, but, ironically, it shows how to do it using the continental knitting method. I cannot adapt this to my knitting method. Is there any chance that you could produce a video using the English method - yarn in the right hand.
20.07.2019 - 22:04DROPS Design svaraði:
Dear Mrs O S Poulter, English rib are worked the same way, even with the yarn in the right hand, just have a look on the a href="https://www.garnstudio.com/video.php?id=188&lang=en">video and follow where the yarn is over needle and not where it is in the hand, ie when making the yo, place the yarn in front of piece, slip next st, and knit the next stitch, the yarn will automatically be over the needle and make the yarn over. Happy knitting!
06.08.2019 - 08:49
Eva Doggen skrifaði:
Hello, you didn't read the complete question... On the first row after the ribbing I have to decrease 25... And the very NEXT row I have to increase 55... So why not have me increase just 30 on the row after the ribbing....
17.07.2019 - 11:08DROPS Design svaraði:
Dear Mrs Doggen, after you have decreased for neck, you then have to increase for yoke and the English rib, this will help to make a nice transition between neck edge and yoke. Happy knitting!
17.07.2019 - 11:16
Eva skrifaði:
Why do see have to decrease on the row after the starting ribbing, only to increase on the next row... Make absolutely no sense at all!
16.07.2019 - 16:50DROPS Design svaraði:
Dear Eva, to make the neck edge wide enough with rib you need more stitches than you will need afterwards for yoke working with larger needles that's the reason why you will need to decrease when neck edge is done. Happy knitting!
17.07.2019 - 10:59
Erna skrifaði:
Mukavan myötäilevä malli, mahtuu takin alle.
10.06.2019 - 19:01
Natalia Gomez Moreno skrifaði:
Sehr schön, schlicht aber nicht langweilig. Ich hoffe, dass sie für den Pullover eine Anleitung bald anbieten können.
10.06.2019 - 08:35
Doris skrifaði:
Wunderschöner Pullover, bitte die Anleitung unbedingt veröffentlichen!
09.06.2019 - 19:11
Ellis skrifaði:
This is something new on ravelr to from last season. possible to make the yoke 2 coloured. easy for beginners
06.06.2019 - 17:55
Winter Bride#winterbridesweater |
|
![]() |
![]() |
Prjónuð peysa með hringlaga berustykki úr DROPS Flora. Stykkið er prjónað ofan frá og niður í klukkuprjóni á berustykki. Stærð S - XXXL.
DROPS 207-3 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- ÚRTAKA/ÚTAUKNING (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig fækka/fjölga eigi jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð sem fækka á/fjölga eigi út lykkjum (t.d. 126 lykkjur), deilið þessum lykkjufjölda með fjölda úrtöku/útaukninga sem á að gera (t.d. 16) = 7,8. Í þessu dæmi er lykkjum fækkað með því að prjóna ca 7. og 8. hverja lykkju slétt saman. Ef auka á út þá er aukið út með því að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja á eftir ca 8. hverja lykkju (þráðurinn er prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat). KLUKKUPRJÓN: UMFERÐ 1: * Sláið 1 sinni uppá prjóninn, takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi brugðið, prjónið 1 lykkju slétt *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn. UMFERÐ 2: * Prjónið uppsláttinn og óprjónuðu lykkjuna brugðið saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn, takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi brugðið *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn. UMFERÐ 3. * Sláið 1 sinni uppá prjóninn, takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi brugðið, prjónið uppsláttinn og óprjónuðu lykkjuna slétt saman *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn Endurtakið umferð 2 og 3. ÚTAUKNING (á við um hliðar á fram- og bakstykki): Öll útaukning er gerð frá réttu. Byrjið 2 lykkjum á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 4 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt í þessum lykkjum), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 lykkjur fleiri). Í næstu umferð eru uppslættirnir prjónaðir snúnir slétt svo ekki myndast göt. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni. ÚRTAKA (á við um ermi): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa lykkja), takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á hringprjón ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á stuttan hringprjón/sokkaprjóna. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 126-132-138-144-150-156 lykkjur á hringprjón 2,5 með Flora. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff (= 1 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðið) í 3 cm. Prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 16-17-18-19-20-22 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚRTAKA/ÚTAUKNING = 110-115-120-125-130-134 lykkjur. Setjið eitt prjónamerki hér. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! BERUSTYKKI: Skiptið yfir í hringprjón 3. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 50-51-54-55-56-62 lykkjur jafnt yfir – munið eftir ÚRTAKA/ÚTAUKNING = 160-166-174-180-186-196 lykkjur. Prjónið eina umferð slétt. Prjónið nú KLUKKUPRJÓN – sjá útskýringu að ofan í 4-4-4-5-5-5 cm. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Prjónið 1 umferð slétt þar sem uppslátturinn er prjónaður slétt saman með lykkjunni sem tilheyrir uppslættinum og aukið jafnframt út 68-72-80-88-96-104 lykkjur jafnt yfir = 228-238-254-268-282-300 lykkjur. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið nú klukkuprjón í 5-5-5-6-6-6 cm. Prjónið 1 umferð slétt þar sem uppslátturinn er prjónaður slétt saman með lykkju sem tilheyrir uppslættinum og aukið jafnframt út um 68-72-80-88-96-104 jafnt yfir = 296-310-334-356-378-404 lykkjur. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið nú klukkuprjón í 6-6-6-7-7-7 cm. Prjónið 1 umferð slétt þar sem uppslátturinn er prjónaður slétt saman með lykkju sem tilheyrir uppslættinum og aukið jafnframt út um 16-29-32-38-42-49 lykkjur = 312-339-366-394-420-453 lykkjur. Prjónið síðan sléttprjón. Þegar stykkið mælist 20-21-22-24-25-26 cm aukið út um 16-29-32-38-42-49 lykkjur jafnt yfir = 328-368-398-432-462-502 lykkjur. Þegar stykkið mælist 22-24-26-28-30-32 cm frá prjónamerki er berustykkið tilbúið. Næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið fyrstu 47-52-56-62-68-76 lykkjur (= hálft bakstykki), setjið næstu 69-79-86-91-94-99 lykkjur á þráð fyrir ermi og fitjið upp 10-10-12-12-14-14 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið næstu 95-105-113-125-137-152 lykkjur (= framstykki), setjið næstu 69-79-86-91-94-99 lykkjur á þráð fyrir ermi og fitjið upp 10-10-12-12-14-14 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið næstu 48-53-57-63-69-76 lykkjur (= hálft bakstykki). FRAM- OG BAKSTYKKI: Nú eru 210-230-250-274-302-332 lykkjur fyrir fram- og bakstykki. Setjið eitt prjónamerki í hvora hlið mitt í nýjar 10-10-12-12-14-14 lykkjur sem fitjaðar voru upp undir ermi í hvorri hlið (= 5-5-6-6-7-7 nýjar lykkjur hvoru megin við prjónamerki). Prjónið sléttprjón hringinn. Þegar stykkið mælist 4 cm er aukið út um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki í hvorri hlið – sjá ÚTAUKNING. Aukið svona út með ca 5 cm millibili alls 5 sinnum = 230-250-270-294-322-352 lykkjur. Þegar stykkið mælist 28 cm, aukið út um 46-50-54-57-62-68 lykkjur jafnt yfir = 276-300-324-351-384-420 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 2,5. Prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðið) hringinn í 3 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Peysan mælist ca 56-58-60-62-64-66 cm frá öxl og niður. ERMI: Setjið til baka 69-79-86-91-94-99 lykkjur af þræði frá annarri hlið á stykki á stuttan hringprjón/sokkaprjóna 3 og prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 10-10-12-12-14-14 nýju lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermum = 79-89-98-103-108-113 lykkjur. Setjið eitt prjónamerki mitt í nýjar lykkjur (= 5-5-6-6-7-7 nýjar lykkjur hvoru megin við prjónamerki). Prjónið sléttprjón hringinn. Þegar ermin mælist 4 cm fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki undir ermi – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með ca 2½-1½-1½-1-1-1 cm millibili alls 12-16-19-21-22-23 sinnum = 55-57-60-61-64-67 lykkjur. Haldið áfram í sléttprjóni þar til ermin mælist 38-36-35-33-32-30 cm. Aukið nú um 11-12-12-14-14-14 lykkjur jafnt yfir = 66-69-72-75-78-81 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 2,5. Prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðið) hringinn í 3 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Ermin mælist ca 41-39-38-36-35-33 cm frá skiptingu. Prjónið hina ermina á sama hátt. |
|
![]() |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #winterbridesweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 24 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 207-3
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.