DROPS Alpaca
DROPS Alpaca
100% Alpakka
frá 990.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 7920.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

City Glow

Prjónuð peysa fyrir herra með hringlaga berustykki úr DROPS Alpaca. Stykkið er prjónað ofan frá og niður í klukkuprjóni á berustykki. Stærð S - XXXL.

DROPS 219-7
DROPS Design: Mynstur z-890
Garnflokkur A
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL - XXXL

EFNI:
DROPS ALPACA frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
400-450-450-500-550-600 g litur 9020, ljós perlugrár

PRJÓNFESTA:
24 lykkjur á breidd og 32 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm.
20 lykkjur á breidd og 44 umferðir á hæð með klukkuprjón = 10 x 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 3.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 3: lengd 40 cm og 80 cm fyrir sléttprjón/klukkuprjón.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 2,5.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 2,5: lengd 40 cm og 80 cm fyrir stroff.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Alpaca
DROPS Alpaca
100% Alpakka
frá 990.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 7920.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

ÚRTAKA/ÚTAUKNING (jafnt yfir):
Til þess að reikna út hvernig fækka/fjölga eigi jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð sem fækka á/fjölga eigi út lykkjum (t.d. 126 lykkjur), deilið þessum lykkjufjölda með fjölda úrtöku/útaukninga sem á að gera (t.d. 16) = 7,8.
Í þessu dæmi er lykkjum fækkað með því að prjóna ca 7. og 8. hverja lykkju slétt saman.
Ef auka á út, aukið út með því að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja á eftir ca 8. hverja lykkju (þráðurinn er prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat).

KLUKKUPRJÓN :
UMFERÐ 1: * Sláið 1 sinni uppá prjóninn, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið, prjónið 1 lykkju slétt *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn.
UMFERÐ 2: * Prjónið uppsláttinn og lyftu lykkjuna brugðið saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn.
UMFERÐ 3. * Sláið 1 sinni uppá prjóninn, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið, prjónið uppsláttinn og lyftu lykkjuna slétt saman *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn.
Endurtakið umferð 2 og 3.

ÚRTAKA (á við um ermi):
Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð.

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

PEYSA – STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á stutta hringprjóna/sokkaprjóna.

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Fitjið upp 126-132-138-144-150-156 lykkjur á hringprjóna 2,5 með Alpaca. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff (= 1 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðið) í 3 cm. Setjið eitt prjónamerki hér. HÉÐAN ER NÚ MÆLT!

BERUSTYKKI:
Haldið áfram með stroff í 4 cm, þar til prjónaðir hafa verið alls 7 cm með stroffi. Prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 16-17-18-19-20-22 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚRTAKA/ÚTAUKNING = 110-115-120-125-130-134 lykkjur.
Skiptið yfir á hringprjón 3. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 50-51-54-55-56-62 lykkjur jafnt yfir – munið eftir ÚRTAKA/ÚTAUKNING = 160-166-174-180-186-196 lykkjur. Prjónið eina umferð slétt. Prjónið KLUKKUPRJÓN – sjá útskýringu að ofan – í 4-4-4-5-5-5 cm. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Prjónið 1 umferð slétt þar sem uppslátturinn er prjónaður slétt saman með lykkjunni sem tilheyrir – aukið jafnframt út 68-72-80-88-96-104 lykkjur jafnt yfir = 228-238-254-268-282-300 lykkjur. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið nú klukkuprjón í 5-5-5-6-6-6 cm. Prjónið 1 umferð slétt þar sem uppslátturinn er prjónaður slétt saman með lykkjunni sem tilheyrir – aukið jafnframt út 68-72-80-88-96-104 lykkjur jafnt yfir = 296-310-334-356-378-404 lykkjur. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið nú klukkuprjón í 6-6-6-7-7-7 cm. Prjónið 1 umferð slétt þar sem uppslátturinn er prjónaður slétt saman með lykkjunni sem tilheyrir – aukið jafnframt út 16-29-32-38-42-49 lykkjur = 312-339-366-394-420-453 lykkjur. Prjónið síðan sléttprjón. Þegar stykkið mælist 24-25-26-28-29-30 cm, aukið út 16-29-32-38-42-49 lykkjur jafnt yfir = 328-368-398-432-462-502 lykkjur. Þegar stykkið mælist 26-28-30-32-34-36 cm frá prjónamerki er berustykkið tilbúið. Næsta umferð er prjónuð þannig:

Prjónið fyrstu 47-52-56-62-68-76 lykkjur (= hálft bakstykki), setjið næstu 69-79-86-91-94-99 lykkjur á þráð fyrir ermi og fitjið upp 10-10-12-12-14-14 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið næstu 95-105-113-125-137-152 lykkjur (= framstykki), setjið næstu 69-79-86-91-94-99 lykkjur á þráð fyrir ermi og fitjið upp 10-10-12-12-14-14 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið þær 48-53-57-63-69-76 lykkjur sem eftir eru (= hálft bakstykki).

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Nú eru 210-230-250-274-302-332 lykkjur fyrir fram- og bakstykki. Prjónið sléttprjón hringinn. Þegar stykkið mælist 34 cm er aukið út um 42-46-50-56-61-67 lykkjur jafnt yfir = 252-276-300-330-363-399 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 2,5. Prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðið) hringinn í 3 cm.
Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Peysan mælist ca 66-68-70-72-74-76 cm frá öxl og niður.

ERMI:
Setjið til baka 69-79-86-91-94-99 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á stuttan hringprjón/sokkaprjóna 3 – prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 10-10-12-12-14-14 nýjum lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermum = 79-89-98-103-108-113 lykkjur. Setjið eitt prjónamerki mitt i nýjar lykkjur (= 5-5-6-6-7-7 nýjar lykkjur hvoru megin við prjónamerki). Prjónið sléttprjón hringinn. Þegar ermin mælist 4 cm, fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki undir ermi – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með ca 3½-2-1½-1½-1-1 cm millibili alls 10-14-17-19-20-21 sinnum = 59-61-64-65-68-71 lykkjur. Haldið áfram með sléttprjón þar til ermin mælist 40-38-37-35-34-32 cm. Aukið nú út 13-14-14-16-16-16 lykkjur jafnt yfir = 72-75-78-81-84-87 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 2,5. Prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðið) hringinn í 3 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Ermin mælist ca 43-41-40-38-37-35 cm frá skiptingu.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

Mynstur

diagram measurements

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

City Glow

Marzena Sachmata, Poland

City Glow

Inês, Portugal

City Glow

IntreccidiCeci, Italy

City Glow

Ulla, Finland

Skrifaðu athugasemd um DROPS 219-7

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (16)

country flag AH wrote:

Is there something amiss with the sleeve length? The sleeves seem very short and wide, and get significantly shorter as the sizes get larger. As written they seem like 3/4 length sleeves.

06.12.2023 - 03:11

country flag Rita Eriksen wrote:

Den 3. raden med patentstrikk vrir seg veldig mot høyre, sett i strikkeretning . Hva har jeg gjort galt?

29.08.2023 - 15:04

DROPS Design answered:

Hei Rita. Ta en titt på hjelpevidoen som viser hvordan man strikker helpatent rundt. Kanskje du da ser hva som blir feil. Videoen: Hvordan strikke helpatent rundt finner du under oppskriften. mvh DROPS Design

11.09.2023 - 12:47

country flag Asveig Synøve Jessen Gschib wrote:

Montering,skal halskant brettes og syes ned,\r\nFinner ikke montering på mønsteret

19.12.2022 - 21:35

country flag Maria wrote:

Where it says " When piece measures 24-25-26-28-29-30 cm, increase 16-29-32-38-42-49 stitches evenly = 328-368-398-432-462-502 stitches" - should we measure the piece from the marker in the rib or at the beginning of the rib?

25.07.2022 - 14:56

DROPS Design answered:

Hi Maria, you have to measure from the marker thread in the neck edge. Happy knitting!

25.07.2022 - 16:57

country flag Linn wrote:

Enkelt mönster att förstå. Har inte stickat någon tröja förut. Men det var enkelt att följa med iallafall. Tycker dock att inte att man behöver öka maskorna innan man stickar resåren i slutet av plagget. Såg ut som resåren tappat elasticitet när man gjorde så. Ökade inte på armarnas resår. Blev mycket bättre. Bytte garnet mot Drops You 9 recycled cotton.

22.03.2022 - 11:42

country flag Maria G wrote:

När jag stickat provlappen i helpatent mäter den 8x8 centimeter. Ska jag byta till rundsticka 3,5 i det partiet. Slätstickningen stämmer med sticka nummer 3. Jag undrar också över varför man först ska minska antalet maskor för att på nästa varv öka dem i början på oket?

31.01.2022 - 10:31

DROPS Design answered:

Hej Maria, ja du må prøve med en tykkere pind for at få 10 cm. Man gør det for at få en fin overgang. God fornøjelse!

04.02.2022 - 14:32

country flag Helene Karlsson wrote:

Det fattas ett stycke i avsnittet Fram- och Bakstycke. Efter meningen "När arbetet mäter 34 cm, ökas det 42-46-50-56-61-67 maskor jämnt fördelat = 252-276-300-330-363-399 maskor." ska man byta till sticka 2,5 och sticka resår. Det saknas information om hur långt man ska sticka fram- och bakstycket innan man börjar med resåren.

02.08.2021 - 19:56

DROPS Design answered:

Hei Helene. Når arbeidet måler 34 cm økes det masker jevnt fordelt, så byttes det til pinne 2,5 og det strikkes vrangbord. Det kunne ha vært bedre forklart i oppskriften, men om du ser på målskissen er det 34 cm fra der du begynte å strikke bolen (fram-och bakstykket) før man skal starte på vrangborden. mvh DROPS design

12.08.2021 - 08:04

country flag Anna wrote:

Interestingly, you cannot comment on the original designer. Appartently mentioning her name, and the name of her design is flagged as forbidden. That's poor business conduct.

09.07.2021 - 16:39

country flag Constanza Bustamante wrote:

En el cuello luego de tejer los 3 cm en punto resorte e insertar el hilo marcador, es solo para que sea más fácil medir el largo o porque hay que doblar el cuello?

19.06.2021 - 06:14

DROPS Design answered:

Hola Constanza, es solo para medir, puedes insertar un hilo o un marcapuntos.

27.06.2021 - 19:19

country flag Alessandra Mantegazza wrote:

Vorrei sapere se è possibile realizzare il modello CITY GLOW con il filato Cotton light. Se sì è possibile sapere il numero di maglie da utilizzare? Grazie 💗🧶

16.06.2021 - 20:32

DROPS Design answered:

Buonasera Alessandra, questo modello è realizzato con un filato del gruppo A: può provare a sostituirlo con DROPS Safran. Buon lavoro!

16.06.2021 - 22:16