DROPS Paris
DROPS Paris
100% Bómull
frá 352.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 3872.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Athena Cardigan

Prjónuð peysa úr DROPS Paris með hringlaga berustykki, sléttprjóni, garðaprjóni og gatamynstri, prjónuð ofan frá og niður. Stærð S - XXXL.

DROPS 161-10
DROPS Design: Mynstur nr w-552
Garnflokkur C eða A + A
----------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS PARIS frá Garnstudio
550-600-650-750-800-900 gr litur nr 02, ljós turkos

DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (80 cm) NR 5 – eða þá stærð sem þarf til að 17 l og 22 umf með sléttprjóni verði 10 x 10 cm.
DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (80 cm) NR 4,5 – fyrir garðaprjón.
DROPS PERLUTALA: Bogalaga (hvít), NR 522: 7 stk í allar stærðir.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Paris
DROPS Paris
100% Bómull
frá 352.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 3872.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf.

GARÐAPRJÓN (prjónað í hring):
*1 umf sl og 1 umf br *, endurtakið frá *-*.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1. Mynsturteikning sýnir allar umf í mynstri séð frá réttu.

ÚTAUKNING 1:
Aukið út um 1 l með því að slá 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn (þ.e.a.s. prjónið aftan í lykkjubogann í stað framan) til að sleppa við göt.

ÚTAUKNING 2:
Aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn hvoru megin við 2 l í hvorri hlið (prjónamerki er staðsett á milli þessa l). Uppslátturinn er prjónaður snúinn br í næstu umf.

ÚRTAKA:
Öll úrtaka er gerð frá réttu!
Fækkið lykkjum á undan 1 l sléttprjón og prjónamerki þannig: 2 l slétt saman.
Fækkið lykkjum á eftir prjónamerki og 1 l sléttprjón þannig: Takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir.

HNAPPAGAT:
Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan. 1 hnappagat = prjónið þriðju og fjórðu l frá kanti slétt saman og sláið 1 sinni uppá prjóninn.
Fellið af fyrir hnappagötum þegar stykkið mælist:
STÆRÐ S: 2, 10, 18, 26, 34, 42 og 51 cm.
STÆRÐ M: 2, 10, 18, 26, 34, 43 og 52 cm.
STÆRÐ L: 2, 10, 18, 26, 35, 44 og 53 cm.
STÆRÐ XL: 2, 11, 20, 29, 38, 47 og 56 cm.
STÆRÐ XXL: 2, 11, 20, 29, 38, 48 og 58 cm.
STÆRÐ XXXL: 2, 11, 20, 29, 39, 49 og 59 cm.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna, ofan frá og niður.

BERUSTYKKI:
Fitjið upp 101-105-109-113-117-121 l á hringprjóna nr 4,5 með Paris. Prjónið 4 umf GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Skiptið yfir á hringprjóna nr 5 og prjónið innan við 4 kantlykkjur að framan í garðaprjóni í hvorri hlið þannig: (heldur áfram til loka): A.1, JAFNFRAMT í fyrstu umf í mynstri eru aukið út um 12-16-18-18-20-20 l jafnt yfir – LESIÐ ÚTAUKNING 1 = 113-121-127-131-137-141 l (Í 3. umf í A.1 er síðasta l á undan kantlykkju að framan prjónuð slétt). Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka á hæðina, skiptið yfir til baka á hringprjóna nr 4,5. Prjónið garðaprjón JAFNFRAMT er aukið út um 10 l jafnt yfir í 3. umf í garðaprjóni og 6-7-13-15-21-26 l í 9. umf í garðaprjóni (ATH: Aukið út um í einni umf frá réttu. Ekki er aukið út yfir kanta að framan) = 129-138-150-156-168-177 l. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar prjónað hefur verið alls 14-14-16-16-16-20 umf garðaprjón, stykkið mælist 7-7-8-8-8-9 cm, skiptið yfir á hringprjóna nr 5. Prjónið 2 umf sléttprjón. Prjónið nú þannig: * 1 l sl, 2 l br *, endurtakið frá *-* (síðasta l á undan kantlykkju að framan er prjónuð slétt). Þegar stoffið mælist 2 cm er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á undan sl l í hverri br mynstureiningu í umf (= 40-43-47-49-53-56 l fleiri) = 169-181-197-205-221-233 l. Í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt (þ.e.a.s. prjónið aftan í lykkjubogann í stað framan) til þess að koma í veg fyrir göt. Haldið áfram með 1 l sl, 3 l br. Endurtakið útaukningu á undan hverri sl l þegar stroffið mælist 4-4-4-5-6-6 cm = 209-224-244-254-274-289 l.
Haldið áfram með 1 l sl, 4 l br þar til stroff mælist alls 6-6-6-7-8-8 cm. Prjónið 2 umf sléttprjón. Skiptið nú yfir á hringprjóna nr 4,5. Prjónið 4 umf garðaprjón, JAFNFRAMT í fyrstu umf er aukið út um 8-11-11-15-21-28 l jafnt yfir = 217-235-255-269-295-317 l. Skiptið yfir á hringprjóna nr 5 og haldið áfram með A.1 (í 3. umf í A.1 er síðasta l á undan kantlykkju að framan prjónuð í sléttprjóni). Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka á hæðina, skiptið yfir á hringprjóna nr 4,5. Prjónið 4 umf garðaprjón, JAFNFRAMT í fyrstu umf er aukið út um 8-10-10-16-22-28 l jafnt yfir = 225-245-265-285-317-345 l. Haldið nú áfram með hringprjóna nr 5 þannig: Prjónið fyrstu 34-38-41-45-51-56 l (= framstykki), setið næstu 48-50-54-56-60-64 l á þráð (= ermi), fitjið upp 8 nýjar l undir ermi, prjónið næstu 61-69-75-83-95-105 l (= bakstykki), setjið næstu 48-50-54-56-60-64 l á þráð (= ermi), fitjið upp 8 nýjar l undir ermi, prjónið þær 34-38-41-45-51-56 l (= framstykki) sem eftir eru.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Nú eru 145-161-173-189-213-233 l fyrir fram- og bakstykki. Setjið prjónamerki í hvora hlið á fram- og bakstykki þar sem fitjaðar voru upp nýjar l undir ermi (= 4 nýjar l hvoru megin við prjónamerki). STYKKIÐ ER NÚ MÆLT HÉÐAN! Haldið áfram í sléttprjóni. Þegar stykkið mælist 4 cm er fækkað um 1 l hvoru megin við hvort prjónamerki (= 4 l færri) – LESIÐ ÚRTAKA! Endurtakið úrtöku þegar stykkið mælist 11-10-9-8-7-6 cm = 137-153-165-181-205-225 l. Þegar stykkið mælist 18-17-16-15-14-13 cm aukið út um 1 l hvoru megin við hvort prjónamerki – LESIÐ ÚRTAKA 2! (= 4 l fleiri). Endurtakið útaukningu með 2-2½-3-3-3½-4 cm millibili 4 sinnum til viðbótar = 157-173-185-201-225-245 l. Þegar stykkið mælist 32-33-34-35-36-37 cm aukið út um 10-8-11-10-14-8 l jafnt yfir = 167-181-196-211-239-253 l. Skiptið yfir á hringprjóna nr 4,5 og prjónið 6 umf garðaprjón. Fellið af.

ERMI:
Ermin er prjónuð í sléttprjóni, í hring á hringprjóna/sokkaprjóna. Nú eru 48-50-54-56-60-64 l fyrir hvora ermi. Setjið til baka l af þræði yfir á hringprjón/sokkaprjón nr 5 og fitjið upp 8 nýjar l undir ermi = 56-58-62-64-68-72 l. Prjónið 4 umf garðaprjón, haldið síðan áfram í sléttprjón, JAFNFRAMT er sett eitt prjónamerki mitt á milli nýrra l undir ermi. STYKKIÐ ER NÚ MÆLT HÉÐAN!
Þegar stykkið mælist 4 cm er fækkað um 1 l hvoru megin við prjónamerki LESIÐ ÚRTAKA AÐ OFAN! Endurtakið úrtöku með 4-3½-3-2½-2½-2 cm millibili 7-8-9-9-11-12 sinnum til viðbótar = 40-40-42-44-44-46 l. Þegar ermin mælist 35-35-35-34-34-34 cm eru prjónaðar 2 umferðir garðaprjón yfir allar lykkjur, prjónið áfram A.1. Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka á hæðina, skiptið yfir á sokkaprjóna nr 4,5 og aukið út um 1-1-3-3-3-3 l jafnt yfir = 41-41-45-47-47-49 l. Prjónið 4 umf garðaprjón og fellið síðan af, ermin mælist ca 39-39-39-38-38-38 cm.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið saman op undir ermum. Saumið tölur í vinstri kant að framan.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 15.09.2016
ERMI:Ermin er prjónuð með sléttprjóni, í hring á hringprjóna/sokkaprjóna. Nú eru 48-50-54-56-60-64 l fyrir hvora ermi. Setjið til baka l af bandi yfir á hringprjón/sokkaprjón nr 5 og fitjið upp 8 nýjar l undir ermi = 56-58-62-64-68-72 l. Prjónið 4 umf garðaprjón, haldið síðan áfram með sléttprjón, JAFNFRAMT er sett eitt prjónamerki mitt á milli nýju l undir ermi. STYKKIÐ ER NÚ MÆLT HÉÐAN!
Yfirfarið á vefsvæði: 07.05.2019
Leiðrétting - ERMI: Þegar ermin mælist 35-35-35-34-34-34 cm eru prjónaðar 2 umferðir garðaprjón yfir allar lykkjurnar, prjónið áfram A.1.

Mynstur

symbols = sl frá réttu, br frá röngu
symbols = 2 l slétt saman, sláið uppá prjóninn á milli 2 l
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 161-10

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (30)

country flag Concetta wrote:

Volevo sapere come prendere le misure. Devo prendere la misura del collo e poi e in base a questo con il mio campione avvio le maglie. Grazie, vi chiedo per cortesia di essere chiare.

17.03.2023 - 16:22

DROPS Design answered:

Buonasera Concetta, in fondo alla pagina trova uno schema con le misure: lo paragoni a un capo che possiede per trovare la taglia da lavorare. Buon lavoro!

18.03.2023 - 15:08

country flag Martha wrote:

Hi I must say your patterns are not the easiest to follow. What does "in every section P on row" mean in this part of the yoke:- "When rib measures 2 cm / 3/4'', inc by making 1 YO before K st in every section P on row (= 40-43-47-49-53-56 sts inc) = 169-181-197-205-221-233 sts" Thanks

26.08.2022 - 11:20

DROPS Design answered:

Dear Martha, you have now to increase the number of stitches purled in the rib, so that you worked before ribbing K1, P2 - you increase 1 purl to get K1, P3 all the row (with front band sts as before) - then repeat the increase the same way after 4 cm to get rib K1, P4. Hope it's now more clear. Happy knitting!

26.08.2022 - 11:52

country flag Martha E Janik wrote:

Hi I'm making the cardigan and I'm a bit confused. After A1 is completed, the last row is worked on the wrong side, therefore the next row starts on the right side. Then it continues with working in garter stitch and increasing on the 2nd ridge. However instructions say to increase on right side of work. The 2nd ridge is on the wrong side so how can it be to increase on the right side? With the 5th ridge that would work out ok. Thanks

24.08.2022 - 14:15

DROPS Design answered:

Dear Mrs Janik, depending on the size you will work a total of 7-7-8-8-8-10 ridges, this means 14-14-16-16-16-20 rows in total (all knitted); you will increase on the first row in 2nd ridge = 3rd of these 14-16-20 rows (= RS row) and on the first row of the 5th ridge = 10th of these 14-16-20 rows (RS row). Can this help? Happy knitting!

24.08.2022 - 15:18

country flag Carina wrote:

Hola. Si quiero hacer una elevación en la espalda que patrón me recomiendas para hacerla?. Gracias

24.02.2022 - 09:58

DROPS Design answered:

Hola Carina, la elevación en la espalda es una técnica, por lo que para cada patrón tienes que calcular sus puntos. Algunos ejemplos son: 232-1, 223-11, 223-12, 191-3, 191-17. También puedes consultar el siguiente vídeo: https://www.garnstudio.com/video.php?id=894&lang=es

27.02.2022 - 18:39

country flag Maren Butti wrote:

Ich habe diese wunderschöne Jacke aus Brushed alpaca silk, grün gestrickt. Beim Halsausschnitt und Armbündchen habe ich daran gedacht, den Faden doppelt zu nehmen für mehr Stabilität. Bei den Blenden habe ich es leider versäumt. Gibt es eine Idee, die Blenden nachträglich zu festigen? Sie sind so labberig/ empfindlich. Lieben Dank im Voraus, Maren

15.02.2022 - 16:39

DROPS Design answered:

Liebe Frau Butti, vielleicht können Sie die Maschen an den Vorderteilen auffassen und so eine gefaltete Kante stricken? Vielleicht hat Ihr DROPS Laden noch weitere Idee dazu, gerne wird man Ihnen dort weiter helfen, auch telefonisch oder per E-Mail. Viel Spaß beim stricken!

16.02.2022 - 10:45

country flag Annette Van Helvoirt wrote:

Ik zou graag willen weten of ik bij dit patroon de rondbreinaalden kan vervangen door gewone breinaalden, waarbij ik wel een naad heb, die ik later dicht moet naaien.

23.07.2021 - 15:27

DROPS Design answered:

Dag Annette,

De pas kun je eigenlijk niet op rechte naalden breien. Tenzij je een kleine maat breit, maar dan wordt het nog steeds behoorlijk proppen met de steken. Het lijf kun je wel op rechte naalden breien. Voor het lijf moet je dan in de zijnaden extra kantsteken opzetten, die weer weg vallen bij het in elkaar naaien. De mouwen worden van boven naar onder gebreid. Het eerste stuk zou je in de rondt kunnen breien op sokkenbreinaalden en daarna, als er genoeg ruimte is, kun je rechte naalden gebruiken. Bij de mouwen moet je dan ook aan elke kant extra kantsteken opzetten.

26.07.2021 - 16:46

country flag Duverneix wrote:

Bonjour\r\nPeut-on réaliser les manches uniquement avec les aiguilles circulaires car je ne sais pas tricoter avec des aiguilles doubles pointes ? Merci pour vos vonseils.

01.03.2021 - 20:34

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Duverneix, tout à fait, vous pouvez tout tricoter sur aiguille circulaire, pour les plus petites pièces (manches, mais aussi chaussettes, mitaines, etc...) vous pouvez utiliser la technique dite du magic loop (cf vidéo ici). Bon tricot!

02.03.2021 - 08:13

country flag Rita wrote:

Hi there can anyone clarify Inc Tip 1 and how it relates to the A1 pattern. Also I have watched the videos but I find A1 row 2 very Confusing as the video is very fast. I'm a good knitter but this is my first project to knit from the top down. Tkd

07.11.2020 - 18:40

DROPS Design answered:

Dear Rita, increase-tip-1 applies to the first row in A.1 where you have to increase evenly 12 to 20 sts (see size), this meansn when working first row in A.1 = knit all stitches from RS, you will make 12 to 20 yarn overs evenly spaced (read here) - on next row (= row 2 in A.1), purl all stitches from WS, purl yarn overs twisted to avoid holes. Now work row 3 (= K2 tog, YO all the row) and finish with purl all sts from WS (= row 4). Hope this helps, happy knitting!

09.11.2020 - 10:08

country flag Riviere Francoise wrote:

Bonjour, j'en suis à 7 cm puis il faut 2 rangs jersey . s'agit-il de 1 aller retour jersey ou 2 aller retour jersey ? j'ai fait beaucoup de tricot en rond et là j'ai un doute. Merci

02.04.2020 - 12:58

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Rivière, on tricote 2 rangs jersey, soit 1 rang sur l'endroit + 1 rang sur l'envers (avec les mailles des bordures des devants au point mousse comme avant). Bon tricot :)

02.04.2020 - 14:57

country flag Maria Luiza Hasegawa wrote:

Olá, adorei esta peça,é maravilhosa....estou com dificuldade para fazer o A 1....

30.07.2019 - 19:33