Irene skrifaði:
What equivalent British wool can I use?. Is drops sky the same as double knitting in UK. Thank you
13.06.2019 - 09:58DROPS Design svaraði:
Dear Irene, There isn't any equivalent yarn to Drops Sky, due to its specificity and composition. Any of Drops Yarns belonging to Group B can be an alternative to Drops Sky, but do keep in mind this yarn is really unique in texture. You can find the list of all DROPS Yarns of Group B here: https://www.garnstudio.com/yarn.php?show=drops-sky&action=y&cid=19 Happy Knitting/Crocheting!
13.06.2019 - 11:13
Antonia skrifaði:
Hallo, ich habe angefangen die Jacke zu stricken und stolpere gleich am Anfang über die Angaben für die Knopflöcher ....... wenn die in die rechte Blende eingestrickt werden sollen müssen die dann nicht am Reihenanfang eingearbeitet werden ? Grüße Antonia
12.03.2019 - 22:09DROPS Design svaraði:
Liebe Antonia, die Jacke wird von oben nach unten gestrickt, dh Hinreihe beginnt mit linkem Vorderteil und endet mit rechtem Vorderteil. Viel Spaß beim stricken!
13.03.2019 - 08:07
MARIE skrifaði:
Bonjour, Ce modèle me plaît beaucoup ! Serait-il possible d'en avoir les explications en français ? Merci d'avance !
06.03.2019 - 17:51DROPS Design svaraði:
Bonjour Marie, tous nos modèles sont disponibles en français, cliquez sur la flèche sous la photo pour modifier la langue. Bon tricot!
07.03.2019 - 10:12
Marie Jose Savidan skrifaði:
Me encanta este modelo por favor mandenos las explicaciones. Gracias
29.01.2019 - 19:57
Christel Marinissen skrifaði:
Erg mooi vest, wachten maar op het patroon
14.01.2019 - 08:31
Autumn Spice Cardigan#autumnspicecardigan |
||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||
Prjónuð peysa með laskalínu úr 2 þráðum DROPS Sky. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með áferð og klauf í hliðum. Stærð S - XXXL.
DROPS 202-14 |
||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.5. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð. ÚTAUKNING (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 63 lykkjur), mínus lykkjur í garðaprjóni í hvorri hlið (= 4 lykkjur) og deilið þeim lykkjum sem eftir eru með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 10) = 5,9. Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 6. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat. LASKALÍNA (á við um ermar): Öll útaukning er gerð frá réttu! Aukið út 1 lykkju á eftir/undan prjónamerki á ermum þannig: Prjónið fram að fyrsta prjónamerki á ermi, 1 lykkja slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið fram að 1 lykkju á undan næsta prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt. Endurtakið á hinni erminni (= 4 lykkjur fleiri í umferð). Í næstu umferð (ranga) er uppslátturinn prjónaður brugðið, svo það myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni. ÚRTAKA (á við um ermar): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa lykkja), takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan (þegar stykkið er mátað). Fellið af frá réttu þegar eftir eru 3 lykkjur á prjóni þannig: Sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 næstu lykkjur slétt saman og prjónið síðustu lykkjuna slétt. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt svo það myndist gat. Fellið af fyrir fyrsta hnappagatinu þegar stroff í hálsi mælist ca 1½-2 cm. Fellið síðan af fyrir 4-4-5-5-5-5 næstu hnappagötum með ca 10-10-9-9-10-10 cm millibili. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjón ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna/stuttan hringprjón ofan frá og niður. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 69-71-75-77-79-81 lykkjur á hringprjón 6 með 2 þráðum Sky. Prjónið þannig: UMFERÐ 1 (ranga): Prjónið slétt. UMFERÐ 2 (rétta): Prjónið slétt. UMFERÐ 3: Prjónið 4 kantlykkjur að framan í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, brugðnar lykkjur þar til 4 lykkjur eru eftir á prjóni, 4 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Munið eftir HNAPPAGAT! BERUSTYKKI: Skiptið yfir á hringprjón 7. Prjónið mynstur þannig – munið eftir HNAPPAGAT: 4 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, A.1 yfir næstu lykkju, A.2 (veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð) yfir næstu 12-12-12-14-14-14 lykkjur, setjið eitt prjónamerki hér (= vinstra framstykki), 1 lykkja slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 3-4-6-3-4-5 lykkjur slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt, setjið eitt prjónamerki hér (= ermi), A.3 (veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð) yfir næstu 12-12-12-14-14-14 lykkjur, A.4 yfir næstu lykkju (= miðjulykkja að aftan), A.2 yfir næstu 12-12-12-14-14-14 lykkjur, setjið eitt prjónamerki hér (= bakstykki), 1 lykkja slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 3-4-6-3-4-5 lykkjur slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt, setjið eitt prjónamerki hér (= ermi), A.3 yfir næstu 12-12-12-14-14-14 lykkjur, A.5 yfir næstu lykkju, 4 kantlykkjur að framan í garðaprjóni (= hægra framstykki). Nú hefur verið aukið út um 1 lykkju fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan, í hvorri hlið á ermum (= 4 lykkjur fleiri) og aukið hefur verið út um 1 lykkju hvoru megin við miðjulykkju (A.4) á bakstykki (= 2 lykkjur fleiri) og 1 lykkju innan við A.1/A.5 og kant að framan á framstykki (= 2 lykkjur fleiri) = 77-79-83-85-87-89 lykkjur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Haldið svona áfram fram og til baka og aukið út fyrir laskalínu á ermum í annarri hverri umferð 14-16-16-19-19-19 sinnum til viðbótar (alls 15-17-17-20-20-20 sinnum), JAFNFRAMT þegar mynsturteikning hefur verið prjónuð til loka á hæðina eru 2 síðustu umferðirnar endurteknar 8-10-12-13-16-19 sinnum til viðbótar (þ.e.a.s. þar til það eru 25-29-33-35-41-47 lykkjur sléttprjón á milli A.3 og A.2 á bakstykki og það eru 13-15-17-18-21-24 lykkjur sléttprjón á milli kant að framan og A.2/A.3 á framstykki = 185-203-215-233-247-261 lykkjur. Haldið síðan áfram með áferð yfir 14-14-14-16-16-16 lykkjur í A.2 og A.3, garðaprjón yfir 4 kantlykkjur að framan í hvorri hlið við miðju að framan og sléttprjón yfir þær lykkjur sem eftir eru þar til stykkið mælist 23-25-27-29-31-33 cm mælt frá uppfitjunarkanti og niður mitt að framan. Næsta umferð frá röngu er prjónuð þannig: Prjónið mynstur eins og áður yfir fyrstu 31-33-35-38-41-44 lykkjur (= hægra framstykki), setjið næstu 35-40-42-45-46-47 lykkjur á þráð (= ermi), fitjið upp 10-10-12-12-14-16 lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið næstu 53-57-61-67-73-79 lykkjur (= bakstykki), setjið næstu 35-40-42-45-46-47 lykkjur á þráð (= ermi), fitjið upp 10-10-12-12-14-16 lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið þær 31-33-35-38-41-44 lykkjur sem eftir eru (= vinstra framstykki). HÉÐAN ER NÚ MÆLT! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 135-143-155-167-183-199 lykkjur. Setjið eitt prjónamerki mitt í nýjar lykkjur sem fitjaðar voru upp í hlið undir ermi (= 5-5-6-6-7-8 nýjar lykkjur hvoru megin við prjónamerki). Prjónið mynstur eins og áður yfir 14-14-14-16-16-16 lykkjur í A.2 og A.3, prjónið garðaprjón yfir miðju 4 lykkjur í hvorri hlið (þ.e.a.s. 2 lykkjur garðaprjón hvoru megin við prjónamerki í hvorri hlið) og 4 kantlykkjur að framan í garðaprjón í hvorri hlið við miðju að framan eins og áður. Þær lykkjur sem eftir eru í umferð eru prjónaðar í sléttprjóni. Þegar stykkið mælist 15 cm frá skiptingu, setjið fyrstu og síðustu 36-38-41-44-48-52 lykkjur á þráð fyrir hægra og vinstra framstykki = 63-67-73-79-87-95 lykkjur eftir á prjóni. Prjónið nú framstykki og bakstykki til loka hvort fyrir sig þannig að það myndist klauf í hvorri hlið. BAKSTYKKI: Nú eru 63-67-73-79-87-95 lykkjur fyrir bakstykki. Prjónið mynstur A.2/A.3, sléttprjón og 2 lykkjur í garðaprjón í hvorri hlið eins og áður. Þegar stykkið mælist 26 cm frá skiptingu, aukið út um 10-10-10-12-14-14 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING (jafnt yfir) = 73-77-83-91-101-109 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 6. Prjónið stroff (1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) með 2 kantlykkjur í garðaprjóni í hvorri hlið. Þegar stroffið mælist 4 cm er fellt af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Passið uppá að affellingarkanturinn verði ekki stífur. Skiptið e.t.v. yfir í grófari prjóna þegar fellt er af. Peysan mælist ca 56-58-60-62-64-66 cm frá öxl og niður. HÆGRA FRAMSTYKKI: Setjið til baka lykkjur af bandi á hringprjón 7 = 36-38-41-44-48-52 lykkjur. Prjónið mynstur A.3, 4 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, 2 lykkjur í garðaprjóni að hlið og sléttprjón yfir þær lykkjur sem eftir eru. Þegar stykkið mælist 26 cm frá skiptingu (stillið af eftir bakstykki) aukið út um 5-5-6-7-7-7 lykkjur jafnt yfir – munið eftir ÚTAUKNING (jafnt yfir) = 41-43-47-51-55-59 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 6. Prjónið stroff (1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) með 4 kantlykkjum að framan í garðaprjóni í annarri hliðinni og 2 kantlykkjur í garðaprjóni í hinni hliðinni. Þegar stroffið mælist 4 cm er fellt af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Passið uppá að affellingarkanturinn verði ekki stífur. Skiptið e.t.v. yfir á grófari prjóna þegar fellt er af. Peysan mælist ca 56-58-60-62-64-66 cm frá öxl og niður. VINSTRA FRAMSTYKKI: Prjónið á sama hátt og hægra framstykki. ERMI: Setjið 35-40-42-45-46-47 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á stuttan hringprjón/sokkaprjón 7 og prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 10-10-12-12-14-16 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermum = 45-50-54-57-60-63 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt í nýjar lykkjur sem fitjaðar voru upp (= 5-5-6-6-7-8 nýjar lykkjur hvoru megin við prjónamerki). Prjónið sléttprjón hringinn. Þegar stykkið mælist 4-4-3-5-4-3 cm frá skiptingu er fækkað um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með ca 4-3-3-2-2-2 cm millibili alls 8-10-11-12-12-13 sinnum = 29-30-32-33-36-37 lykkjur. Prjónið áfram þar til ermin mælist 38-37-35-34-32-31 cm frá skiptingu (styttra mál í stærri stærðum vegna víðara hálsmáls og lengra berustykkis). Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 5-6-6-7-8-9 lykkjur jafnt yfir = 34-36-38-40-44-46 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjón 6 og prjónið stroff (1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 4 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur, en til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir 6. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja). Ermin mælist ca 42-41-39-38-36-35 cm frá skiptingu. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið tölur í vinstri kant að framan. |
||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||
|
||||||||||
![]() |
||||||||||
![]() |
||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #autumnspicecardigan eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 24 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 202-14
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.