Truly Wooly |
|||||||
|
|
||||||
Prjónaður heilgalli fyrir börn úr DROPS Merino Extra Fine. Stykkið er prjónað með áferðamynstri og hettu. Stærð fyrirburar – 4 ára.
DROPS Baby 33-8 |
|||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. 1 kantlykkja í garðaprjóni = prjónið lykkjuna slétt frá réttu og slétt frá röngu. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. ÚTAUKNING-1 (á við um skálmar í stærð 3/4 ára): Aukið út um 1 lykkju innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo að ekki myndist gat. Útauknar lykkjur eru prjónaðar jafnóðum inn í A.1. ÚTAUKNING-2 (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 44 lykkjur) og deilið með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 14) = 3,1. Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 3. hverri lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat. HNAPPAGAT (neðan frá og upp): Fellið af fyrir hnappagati í hægri kanti að framan. 1 HNAPPAGAT = prjónið þriðju og fjórðu lykkjur frá kanti slétt saman og sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt eða brugðið (eftir því hvar í mynstrinu þú ert) þannig að það myndist gat. Fellið af fyrir hnappagati þegar stykkið mælist (mælt frá þar sem skálmar eru settar saman): (<0): 5, 10, 15 og 20 cm 0/1 mán: 6, 11, 16, 21 og 26 cm 1/3 mán: 5, 10, 15, 20, 25 og 30 cm 6/9 mán: 6, 12, 17, 22, 27 og 32 cm 12/18 mán: 6, 12, 17, 23, 28 og 34 cm 2 ára: 9, 15, 21, 27, 33 og 39 cm 3/4 ára: 7, 13, 19, 25, 31, 37 og 43 cm ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- HEILGALLI - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Hvor skálm er prjónuð fram og til baka á hringprjón, neðan frá og upp. Skálmarnar eru settar saman og prjónað er fram og til baka á hringprjón frá miðju að framan og upp að ermum. Síðan eru fitjaðar upp nýjar lykkjur fyrir ermar í hvorri hlið og framstykki og bakstykki er síðan prjónað til loka hvort fyrir sig. Stykkið er síðan saumað saman á öxlum. Að lokum eru prjónaðar upp lykkjur í kringum hálsmál og hettan er prjónuð. HÆGRI SKÁLM (séð þegar flíkin er mátuð): Fitjið upp (32) 36-40-40-44 (44-48) lykkjur á hringprjón 4 með Merino Extra Fine. Fyrsta umferðin er prjónuðu frá réttu þannig: 1 kantlykkja í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, prjónið A.1A þar til 3 lykkjur eru eftir á prjóni (= 7-8-9-9-10 (10-11) mynstureiningar með 4 lykkjum), prjónið A.1B (= 2 lykkjur) og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Haldið svona áfram með mynstur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 4 cm er sett 1 prjónamerki í stykkið (prjónamerki merkir uppábrot). Þegar stykkið mælist 14 cm (á einungis við stærð 3/4 ára) er aukið út um 1 lykkju í hvorri hlið – sjá ÚTAUKNING-1 (ekki er aukið út í hinum stærðunum). Endurtakið útaukningu í stærð 3/4 ára þegar stykkið mælist 24 cm = (32) 36-40-40-44 (44-52) lykkjur í umferð. Prjónið síðan áfram þar til stykkið mælist (12) 12-16-23-31 (32-35) cm frá uppfitjunarkanti, en passið uppá að næsta umferð sé prjónuð frá réttu. Fækkið um 1 lykkju í byrjun á 2 næstu umferðum (þ.e.a.s. kantlykkjur eru felldar af) = (30) 34-38-38-42 (42-50) lykkjur. Prjónið síðan 2 næstu umferðir með byrjun frá réttu þannig: Prjónið eins og áður yfir allar lykkjur og fitjið upp (3) 3-3-5-5 (7-7) nýjar lykkjur í lok umferðar (= miðja að aftan). Snúið stykkinu, prjónið A.1 eins og áður yfir allar lykkjur, en passið uppá að mynstrið haldi áfram rétt, fitjið síðan upp (4) 4-4-6-6 (8-8) lykkjur í lok umferðar frá röngu (= miðja að framan). Nú eru (37) 41-45-49-53 (57-65) lykkjur í umferð og stykkið mælist ca (13) 13-17-24-32 (33-36) cm frá uppfitjunarkanti. Geymið stykkið og prjónið vinstri skálm eins og útskýrt er að neðan. VINSTRI SKÁLM (séð þegar flíkin er mátuð): Fitjið upp (32) 36-40-40-44 (44-48) lykkjur á hringprjón 4 og prjónið fyrstu umferð frá réttu þannig: 1 kantlykkja í garðaprjón, prjónið A.1A þar til 3 lykkjur eru eftir á prjóni (= 7-8-9-9-10 (10-11) mynstureiningar með 4 lykkjum), prjónið A.1B (= 2 lykkjur) og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Haldið svona áfram með mynstur. Þegar stykkið mælist 4 cm er sett 1 prjónamerki í stykkið (prjónamerki merkir uppábrot). Þegar stykkið mælist 14 cm (á einungis við stærð 3/4 ára) er aukið út um 1 lykkju í hvorri hlið – sjá ÚTAUKNING-1 (ekki er aukið út í hinum stærðunum). Endurtakið útaukningu í stærð 3/4 ára þegar stykkið mælist 24 cm = (32) 36-40-40-44 (44-52) lykkjur í umferð. Prjónið síðan áfram þar til stykkið mælist (12) 12-16-23-31 (32-35) cm frá uppfitjunarkanti, en passið uppá að næsta umferð sé prjónuð frá réttu. Fækkið um 1 lykkju í byrjun á 2 næstu umferðum (þ.e.a.s. kantlykkjur eru felldar af) = (30) 34-38-38-42 (42-50) lykkjur. Prjónið síðan 2 næstu umferðir með byrjun frá réttu þannig: Prjónið eins og áður yfir allar lykkjur og fitjið upp (4) 4-4-6-6 (8-8) nýjar lykkjur í lok umferðar (= miðja að framan). Snúið stykkinu, prjónið A.1 eins og áður yfir allar lykkjur, en passið uppá að mynstrið haldi áfram rétt, fitjið síðan upp (3) 3-3-5-5 (7-7) lykkjur í lok umferðar frá röngu (= miðja að aftan). Nú eru (37) 41-45-49-53 (57-65) lykkjur í umferð og stykkið mælist ca (13) 13-17-24-32 (33-36) cm frá uppfitjunarkanti. Klippið frá. Setjið nú stykkin saman eins og útskýrt er að neðan. FRAM- OG BAKSTYKKI: Setjið hægri skálm og vinstri skálm á sama hringprjón með hægri skálmina fyrst. Byrjið frá réttu á hægri skálm, prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, haldið áfram með A.1 eins og áður yfir þær lykkjur sem eftir eru á hægri skálm (passið uppá að mynstrið haldi áfram rétt miðað við þar sem skálmin endaði), haldið síðan áfram með mynstur yfir fyrstu (36) 40-44-48-52 (56-64) lykkjur á vinstri skálm (passið uppá að mynstrið haldið áfram rétt) og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni = (74) 82-90-98-106 (114-130) lykkjur í umferð. Setjið 1 nýtt prjónamerki í stykkið! NÚ ER STYKKIÐ MÆLT FRÁ ÞESSU PRJÓNAMERKI! Haldið áfram með A.1 fram og til baka með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið við miðju að framan. Þegar stykkið mælist (3) 3-3-3-4 (5-5) cm frá prjónamerki (stillið af að næsta umferð sé prjónuð frá réttu) fellið af 1 lykkju í byrjun á 2 næstu umferðum (þ.e.a.s. kantlykkjur eru felldar af). Prjónið síðan 2 næstu umferðir með byrjun frá réttu þannig: Prjónið eins og áður yfir allar lykkjur og fitjið upp 3 nýjar lykkjur í lok umferðar (= vinstri kantur að framan). Snúið stykkinu, prjónið A.1 eins og áður yfir allar lykkjur (passið uppá að mynstrið haldi áfram rétt) og fitjið upp 3 nýjar lykkjur í lok umferðar frá röngu (= hægri kantur að framan). Nú eru (78) 86-94-102-110 (118-134) lykkjur í umferð. Haldið áfram með A.1 fram og til baka yfir allar lykkjur (þ.e.a.s. kantlykkjur eru ekki prjónaðar í garðaprjóni). Munið eftir HNAPPAGAT í hægri kanti að framan – sjá útskýringu að ofan. Þegar stykkið mælist (15) 20-24-27-28 (32-36) cm frá nýja prjónamerkinu, þ.e.a.s. (28) 33-41-51-60 (65-72) cm frá uppfitjunarkanti, skiptist stykkið í hvorri hlið. Framstykkin og bakstykkið eru nú prjónuð hvert fyrir sig eins og útskýrt er að neðan. HÆGRA FRAMSTYKKI: Byrjið frá réttu og prjónið eins og áður yfir fyrstu (21) 23-25-27-29 (31-35) lykkjurnar, fitjið síðan upp (9) 13-13-17-17 (21-25) nýjar lykkjur í lok umferðar fyrir ermi. Aðrar lykkjur eru settar á þráð fyrir bakstykki og vinstra framstykki. Haldið áfram með A.1 fram og til baka eins og áður, en passið uppá að mynstrið passi yfir allar lykkjur. JAFNFRAMT eru fitjaðar upp (8) 10-14-14-16 (20-22) nýjar lykkjur fyrir ermi í lok 2 næstu umferðum frá réttu = (46) 56-66-72-78 (92-104) lykkjur í umferð. Haldið áfram með mynstur fram og til baka yfir allar lykkjur þar til stykkið mælist (22) 28-32-35-36 (41-45) cm frá prjónamerki, þ.e.a.s.(35) 41-49-59-68 (74-81) cm frá uppfitjunarkanti. Í byrjun á næstu umferð frá réttu eru fyrstu (8) 8-9-11-11 (12-12) lykkjurnar settar á þráð fyrir hálsmáli, en til að koma í veg fyrir að klippa frá þráðinn sem prjónað er með, prjónið lykkjurnar áður en þær eru settar á þráðinn. Haldið áfram með mynstur fram og til baka eins og áður og fellið af fyrir hálsmáli í byrjun á hverri umferð frá miðju að framan þannig: Fellið af 2 lykkjur 1 sinni og 1 lykkju (1) 1-2-2-2 (3-3) sinnum = (35) 45-53-57-63 (75-87) lykkjur eftir á prjóni. Prjónið síðan áfram þar til allur gallinn mælist ca (24) 30-34-37-39 (44-49) cm frá prjónamerki, þ.e.a.s. (37) 43-51-61-71 (77-85) cm frá uppfitjunarkanti, en passið uppá að næsta umferð sé prjónuð frá réttu. Prjónið 2 umferðir garðaprjón fram og til baka yfir allar lykkjur. Fellið síðan af með sléttum lykkjum frá réttu. Allur gallinn mælist ca (38) 44-52-62-72 (78-86) cm frá uppfitjunarkanti. Prjónið nú bakstykki eins og útskýrt er að neðan. BAKSTYKKI: Setjið fyrstu (36) 40-44-48-52 (56-64) lykkjur af þræði (séð frá réttu) á hringprjón 4 og haldið áfram með A.1 fram og til baka yfir þessar lykkjur eins og áður. JAFNFRAMT eru fitjaðar upp nýjar lykkjur fyrir ermar í lok hverrar umferðar í hvorri hlið þannig: Fitjið upp (9) 13-13-17-17 (21-25) lykkjur 1 sinni í hvorri hlið og síðan (8) 10-14-14-16 (20-22) lykkjur 2 sinnum í hvorri hlið = (86) 106-126-138-150 (178-202) lykkjur í umferð. Haldið áfram með mynstur fram og til baka yfir allar lykkjur þar til stykkið mælist (23) 29-33-36-38 (43-48) cm frá prjónamerki). Í næstu umferð eru felldar af miðju (12) 12-16-20-20 (24-24) lykkjur fyrir hálsmáli og hvor ermi/öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Fellið síðan af 2 lykkjur í næstu umferð frá hálsi = (35) 45-53-57-63 (75-87) lykkjur eftir á prjóni fyrir öxl/ermi. Prjónið síðan áfram þar til allur gallinn mælist ca (24) 30-34-37-39 (44-49) cm frá prjónamerki, en stillið af eftir framstykki og passið uppá að næsta umferð sé prjónuð frá réttu. Prjónið 2 umferðir garðaprjón fram og til baka yfir allar lykkjurnar. Fellið síðan af með sléttum lykkjum frá réttu. Prjónið hina öxlina/ermina alveg eins. Í lokin er vinstra framstykkið prjónað eins og útskýrt er að neðan. VINSTRA FRAMSTYKKI: Setjið til baka þær (21) 23-25-27-29 (31-35) lykkjur sem eftir eru á þræði á hringprjón 4. Byrjið frá réttu og haldið áfram með A.1 fram og til baka eins og áður. JAFNFRAMT eru fitjaðar upp nýjar lykkjur fyrir ermi í lok 3 næstu umferða frá röngu þannig: Fitjið upp (9) 13-13-17-17 (21-25) lykkjur 1 sinni og síðan (8) 10-14-14-16 (20-22) lykkjur 2 sinnum = (46) 56-66-72-78 (92-104) lykkjur í umferð. Haldið áfram með mynstur fram og til baka yfir allar lykkjur þar til stykkið mælist alveg það saman og hægra framstykki. Í byrjun á næstu umferð frá röngu eru fyrstu (8) 8-9-11-11 (12-12) lykkjur settar á þráð fyrir hálsmáli, en til að sleppa við að þurfa að klippa þráðinn frá sem prjónað er með, prjónið lykkjur áður en þær eru settar á þráðinn. Haldið áfram með mynstur fram og til baka eins og áður og fellið af fyrir hálsmáli í byrjun á hverri umferð frá miðju að framan þannig: Fellið af 2 lykkjur 1 sinni og 1 lykkju (1) 1-2-2-2 (3-3) sinnum = (35) 45-53-57-63 (75-87) lykkjur eftir á prjóni. Prjónið síðan áfram þar til allur gallinn mælist ca (24) 30-34-37-39 (44-49) cm frá prjónamerki, þ.e.a.s. (37) 43-51-61-71 (77-85) cm frá uppfitjunarkanti, en passið uppá að næsta umferð sé prjónuð frá réttu. Prjónið 2 umferðir garðaprjón fram og til baka yfir allar lykkjur. Fellið síðan af með sléttum lykkjum frá réttu. Allur gallinn mælist ca (38) 44-52-62-72 (78-86) cm frá uppfitjunarkanti. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma innan við affellingarkantinn. Saumið sauma undir ermum. Saumið sauminn að innanverðu á skálmum innan við 1 kantlykkju í hvorri hlið. Saumið sauminn við miðju að framan frá neðst niðri á kanti að framan og niður innan við 1 kantlykkju í hvorri hlið. Saumið saman op á milli skálma. Brjótið uppá stykkið við prjónamerkið neðst á skálm. Saumið tölur í vinstri kant að framan. HETTA: Prjónið upp frá réttu ca 44 til 70 lykkjur í kringum hálsmál (meðtaldar lykkjur á þræði að framan). Prjónið 1 umferð slétt frá röngu þar sem aukið er út jafnt yfir til (58) 70-74-74-78 (86-86) lykkjur – sjá ÚTAUKNING-2. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu og 1 umferð brugðið frá röngu. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið A.1A þar til 2 lykkjur eru eftir á prjóni og endið með A.1B (= 2 lykkjur). Haldið svona áfram með mynstur þar til hettan mælist (17) 18-19-20-21 (22-23) cm frá garðaprjóni í hálsi, en passið uppá að næsta umferð sé prjónuð frá réttu. Prjónið 2 umferðir garðaprjón fram og til baka yfir allar lykkjurnar. Fellið síðan af með sléttum lykkjum frá röngu. Leggið hettuna saman tvöfalda og saumið saum efst innan við affellingarkantinn. |
|||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||
|
|||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (171)
Silvia Liliana wrote:
En el Patrón me-069- by MONO DE PUNTO PARA BEBÉ En la explicación del tejido del delantero derecho, se indica: " Trabajar 1 pliegue de ida y vuelta sobre todos los puntos. Después rematar....." Necesito explicación de cómo realizar lo que indica ahí. Muchas Gracias
01.02.2022 - 19:07DROPS Design answered:
Hola Silvia, como rematar puntos por el lado derecho (LD) esta explicado AQUI. Saludos!
02.02.2022 - 09:50Ingrid wrote:
I can't get over how great Drops is! Lovely, high quality yarns (no muling, made in Europe) in beautiful colors and variations, fantastic and free patterns, and unparalleled (free!) help and support.
27.01.2022 - 21:21Ingrid wrote:
Hi! I wonder if there might be a mistake in the pattern. On the "body" part - there is a new mark at 3 cm, and then keep going for another 20cm, a total of 33 cm, according to this. Is the first measurement supposed to be 13cm? Very confused!
27.01.2022 - 16:54DROPS Design answered:
Dear Ingrid, the 20 cm (2nd size) under body should be measured from the marker inserted at the beginning of body (not after the first 3 cm and the new sts cast off/cast on) if you add the 13 cm of the leg, you get a total of 33 cm from cast on edge. Can this help?
27.01.2022 - 17:41Claudia wrote:
Buona sera, Essenzialmente non riesco a trovare la giusta sequenza di dritto e rovescio dopo aver intrecciato il vivagno e ad adattare la sequenza in modo che continui nel modo corretto quando aggiungo le maglie per il centro dietro e il centro avanti. Sono una principiante, perdonatemi. Grazie mille ancora
16.01.2022 - 19:43DROPS Design answered:
Buonasera Claudia, deve mantenere il motivo come prima sulle maglie esistenti e adeguarlo alle nuove maglie avviate a ogni lato. Buon lavoro!
18.01.2022 - 23:05Claudia wrote:
Buongiorno, Trovo difficoltà con gli intrecci delle maglie di vivagno delle gambe e con l'aggiustamento dopo l'aumento delle maglie. Potreste suggerirmi la corretta sequenza delle maglie in questi punti?? Grazie :)
14.01.2022 - 15:59DROPS Design answered:
Buonasera Claudia, può indicarci esattamente il punto in cui si trova in difficoltà? Buon lavoro!
15.01.2022 - 22:41Amanda wrote:
Hi! I'm excited to work this cute pattern! Re the leg pattern: When it says "Bind off 1 stitch at beginning of the next 2 rows (i.e. bind off edge stitches)." - do you bind off the first stitch and work a row, then bind off and work the second row before continuing? Or do you bind off the first stitch and cast on at the end of the same row? Are these 4 different rows we are discussing or just 2? Thanks!
06.01.2022 - 20:43DROPS Design answered:
Hi Amanda, You bind of at the beginning of the first row, work the row, turn and bind off the first stitch on the second row. Happy knitting!
07.01.2022 - 07:01Stacey wrote:
Before putting the legs together on the circular needle should I seam them? Thanks!
30.12.2021 - 20:25DROPS Design answered:
Hello Stacey! The inside seam of both legs is sewn together later. Happy knitting!
30.12.2021 - 21:53Marthe Boutin wrote:
Au devant droit, après avoir augmenté 13 mailles pour la manche, on aurait dû lire ensuite augmenter 2 fois 14 mailles et non une fois.
03.12.2021 - 16:35DROPS Design answered:
Bonjour Mme Boutin, tout à fait: vous montez ces mailles à la fin des 2 rangs suivants sur l'endroit: 1 fois à la fin du 1er rang sur l'endroit puis une autre fois à la fin du rang suivant sur l'endroit. Bon tricot!
06.12.2021 - 09:25Marita wrote:
En löytänyt ohjeesta napinläpien paikkaa. Missä kohtaa ne tuossa kuvan puvussa ovat?
26.09.2021 - 16:33DROPS Design answered:
Napinläpien kohdat löytyvät ohjeen alkuosan otsikon NAPINLÄVET alta.
05.10.2021 - 17:12Christa wrote:
Hallo, warum ist der Halsausschnitt am Rücken tiefer als an den Vorderteilen? Gewöhnlich ist das andersrum. Ich würde mich sehr über eine baldige Antwort freuen, weil das Baby doch sehr schnell wächst :) Danke für die Antwort und für die tollen Anleitungen!Grüße Christa
07.09.2021 - 21:52DROPS Design answered:
Liebe Christa, der Halsausschnitt ist beim Vorderteile tiefer = bei einer Länge von (22) 28-32-35-36 (41-45) cm ab der Markierung beginnen Sie Halsausschnitt beim Vorderteil und bei einer Länge von (23) 29-33-36-38 (43-48) cm werden beim Rückenteil die mittleren Maschen für den Halsausschnitt abgekettet. Viel Spaß beim stricken!
08.09.2021 - 07:40