Astrid Nordvang wrote:
Jeg strikker "Cable snooze" kjörepose. I avsnittet "ALLE STÖRRELSER", der det står "Fortsett arbeidet slik."; gjelder det hele forrige avsnitt? Altså, skal man strikke diagram A2 på nytt? Vil det ikke da bli alt for mange masker? Strikker den störste störrelsen.
25.02.2024 - 19:31DROPS Design answered:
Hei Astrid. Nei, du gjentar kun siste forklaring av mønsteret (1 kantmaske i rille, strikk A.3 over de første 6 maskene, strikk A.6 (= 32 masker), strikk 16 masker vrang, strikk A.6 (= 32 masker), strikk A.3 over de neste 6 maskene og avslutt med 1 kantmaske i rille). Dette gjentar du til arbeidet måler 38 cm. mvh DROPS Design
04.03.2024 - 09:31Lisbeth Andersen wrote:
De 16 midterste masker skal de strikkes vrang på retsiden og ret på vrang siden?
19.01.2024 - 13:20DROPS Design answered:
Hei Lisbeth. Ja, om du ser på nærbildet av babyposen ser du bedre at de 16 midt maskene er vrangen. mvh DROPS Design
22.01.2024 - 13:37Petra Kousková wrote:
Dobrý den, skončila jsem před odstavcem všechny velikosti a nevím, jak má vypadat rubový řádek. Resp. u vel. 0 měsíců je rozepsán líc, rub, líc a potom se má ve všech velikostech opakovat sekvence vzorů. Jak má ale před tím opakováním vypadat rubový řádek? Děkuji, PK
29.12.2023 - 21:52DROPS Design answered:
Dobrý den, Petro! Ano, pletete v uvedeném rozvržení vzorů, a to až do výše 16 cm. Rubová řada rozepsaná není, protože rub je dán už každým použitým vzorem (viz viz popis značek ve schématu). V praxi bude rubová řada vypadat tedy takto: 1 krajové oko vroubkovým (= hladce), 1 obrace, 2 hladce, nahození obrace, 1 obrace, 1 hladce, 9 obr., nah. obrace, 1 hladce, nah. obrace, 1 obrace, 16 hladce, 1 obr, nah. obrace, 1 hladce, nah. obrace, 9 obr., 1 hladce, 1 obr, nah. obr., 1 hl, 1 obr, 1 hl, krajové hladce. Možná to vypadá složitě, ale po pár řadách se vzor začne skládat a vše bude pěkně přehledné. Hodně zdaru! Hana
30.12.2023 - 10:08Monique Menez wrote:
T:1/3, devant, sur un total de 56 m comment faites vous pour faire : A2+14m envers+A2
13.10.2023 - 16:58DROPS Design answered:
Bonjour Mme Menez, en taille 1/3 mois vous avez 68 m, tricotez ainsi: 1 m lisière au point mousse, A.2 (on passe de 26 à 32 m), 14 m jersey envers, A.2 (on passe de nouveau de 26 à 32 m) et 1 m lisière au point mousse soit: 1+26+14+26+1=68 mailles. En taille 0/1 mois et 56 mailles tricotez ainsi: 1 m lisière au point mousse, 6 m jersey envers, A.1 (14 m), 14 m jersey envers, A.1 (14 m), 6 m jersey envers et 1 m lisière au point mousse (- 1+6+14+14+14+6+1=56 m. Bon tricot!
16.10.2023 - 08:36Bente Kongensgaard wrote:
Beklager - nu har jeg slået hjernen til igen. Problemet er løst🥴
03.10.2023 - 21:10DROPS Design answered:
Godt at høre Bente :)
04.10.2023 - 07:15Bente Kongensgaard wrote:
6/9 mdr. Slå 68 m op. Så mangler der 10 masker, når inddeling til mønster starter???? Mvh Bente Kongensgaard
03.10.2023 - 20:59DROPS Design answered:
Hej Bente, fint at du selv har løst det :)
04.10.2023 - 07:15Nancy wrote:
I am knitting the 1/3 size. I am on the Front Piece and am confused by the instruction to "continue this pattern" Does this mean making the A.6 chart on the right side and a purl row for the wrong side?
02.10.2023 - 16:39DROPS Design answered:
Hi Nancy, No, you work the pattern from the wrong side as well. Remember to work the pattern rows from left to right when working from the wrong side. Happy knitting!
03.10.2023 - 06:53Ludivine wrote:
Bonjour, je voudrais que vous m'expliquer en détail le montage des manches taille 1/3 mois, comment faites vous pour monter sur des rangs différents 3 fois 6m et 1 fois 16m ? La vidéo ne m'aide pas étant donné qu'il ne monte qu'une seule fois les mailles et pas sur des rangs différents. Je vous remercie d'avance de votre réponse.
27.09.2023 - 21:05DROPS Design answered:
Bonjour, On monte les mailles à la fin du rang, comme le montre la vídeo, on tricote le rang, on tourne, on tricote le rang sur l'envers et, puis, à la fin de cet rang, on monte de nouvelles mailles, Et on répéte ces 2 pas, à chaque fois que l'on doit monter des mailles en fin de rang. Bon tricot!
28.09.2023 - 11:16Helle Brandt wrote:
Hvorfor skal der ikke tages ud efter de 4 cm retstrikket på bagstykket, som der skal på forstykket. Det giver jo en difference på 12 masker. Jeg håber at høre fra jer
21.08.2023 - 19:15DROPS Design answered:
Hei Helle. På forstykket strikkes det diagrammer som trekker seg sammen, mens på bakstykket strikkes det et annet diagram (som ikke trekker seg sammen). For at forstykket og bakstykket skal ha samme bredde målt i cm, må forstykket ha flere masker enn bakstykket. mvh DROPS Design
28.08.2023 - 11:10
Cable Snooze |
|||||||||||||||||||
|
|
||||||||||||||||||
Prjónaður poki fyrir börn úr DROPS Merino Extra Fine. Stykkið er prjónað með gatamynstri, tvöföldu perluprjóni og hettu. Stærð fyrirburar – 4 ára.
DROPS Baby 33-7 |
|||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Stærð (<0) 0/1 mán: Sjá mynsturteikningu, A.1, A.3, A.4 og A.5. Stærð 1/3 - 6/9 - 12/18 mán (2) ára: Sjá mynsturteikningu A.2, A.3 og A.6. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. HNAPPAGAT-1 (á við um neðst á poka): 1 hnappagat = prjónið 2 lykkjur slétt saman, sláið síðan 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt svo að það myndist gat. Þessi (4) 4-4-5-5 (5) hnappagöt eru staðsett jafnt yfir með ca (4½) 5-6-5½-6 (6) cm millibili. HNAPPAGAT-2 (á við um kant við miðju að framan): Fellið af fyrir hnappagati frá réttu á hægra kanti. 1 HNAPPAGAT = prjónið þriðju og fjórðu lykkju frá kanti slétt saman, sláið síðan 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð (ranga) er uppslátturinn prjónaður slétt svo að það myndist gat. Fellið af fyrir hnappagötum þegar kantur að framan mælist (mælt frá prjónamerki): (<0) mán: 2, 8, 14 og 20 cm 0/1 mán: 2, 8, 14, 20 og 26 cm 1/3 mán: 2, 7, 13, 18, 24 og 29 cm 6/9 mán: 2, 9, 16, 23, 29 og 35 cm 12/18 mán: 2, 8, 14, 20, 26, 32 og 38 cm (2) ára: 2, 8, 15, 21, 28, 34 og 41 cm ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- POKI - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjón í 2 hlutum. Fitjaðar eru upp lykkjur á hvorri hlið fyrir ermum. Stykkið er saumað saman á öxlum/mitt á ermum og undir ermum. Að lokum er prjónuð hetta. FRAMSTYKKI: Fitjið upp (48) 56-68-74-78 (82) lykkjur (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið) á hringprjón 4 með Merino Extra Fine. Prjónið GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Þegar stykkið mælist (2) 2-2-2½-2½ (2½) cm fellið af fyrir (4) 4-4-5-5 (5) hnappagötum jafnt yfir – sjá HNAPPAGAT-1. Haldið áfram í garðaprjóni þar til stykkið mælist (4) 4-4-5-5 (5) cm. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: STÆRÐ (<0) 0/1 MÁN: 1 kantlykkja í garðaprjóni, (2) 6 lykkjur brugðið, A.1 (= 14 lykkjur sem auknar er út til 18 lykkjur), prjónið (14) 14 lykkjur brugðið, prjónið A.1 (= 14 lykkjur sem auknar eru út til 18 lykkjur), prjónið (2) 6 lykkjur brugðið og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni = (56) 64 lykkjur í umferð. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu (kantlykkjur eru prjónaðar í garðaprjóni). Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, A.3 yfir fyrstu (2) 6 lykkjur, A.4 (= 18 lykkjur), prjónið (14) 14 lykkjur brugðið, prjónið A.5 (= 18 lykkjur), prjónið A.3 yfir næstu (2) 6 lykkjur og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Prjónið síðan eins og útskýrt er undir ALLAR STÆRÐIR! STÆRÐ 1/3 - 6/9 - 12/18 mán (2) ÁRA: 1 kantlykkja í garðaprjóni, 0-2-4 (6) lykkjur brugðið, prjónið A.2 (= 26 lykkjur sem auknar eru til 32 lykkjur), prjónið 14-16-16 (16) lykkjur brugðið, prjónið A.2 (= 26 lykkjur sem auknar eru til 32 lykkjur), prjónið 0-2-4 (6) lykkjur brugðið og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni = 80-86-90 (94) lykkjur. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu (kantlykkjur eru prjónaðar í garðaprjóni). Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, prjónið A.3 yfir fyrstu 0-2-4 (6) lykkjur, prjónið A.6 (= 32 lykkjur), prjónið 14-16-16 (16) lykkjur sléttprjón, prjónið A.6 (= 32 lykkjur), prjónið A.3 yfir næstu 0-2-4 (6) lykkjur og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Prjónið síðan eins og útskýrt eru undir ALLAR STÆRÐIR! ALLAR STÆRÐIR: Haldið svona áfram með mynstur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist (16) 18-22-26-32 (38) cm – stillið af að næsta umferð sé prjónuð frá réttu, skiptist framstykkið við miðju að framan og hvort stykki er prjónað til loka fyrir sig. Klippið þráðinn frá. Setjið fyrstu (25) 29-37-40-42 (44) lykkjur séð frá réttu á þráð (= vinstra framstykki). Nú eru (31) 35-43-46-48 (50) lykkjur eftir á prjóni fyrir hægra framstykki. HÆGRA FRAMSTYKKI: = (31) 35-43-46-48 (50) lykkjur. Setjið 1 prjónamerki í stykkið – prjónamerkið á að nota síðar til að mæla fjarlægð frá hnappagötum. Byrjið frá réttu og haldið áfram með mynstur eins og áður, en 6 ystu lykkjur við miðju að framan eru prjónaðar í garðaprjóni (= kantur að framan). Fellið af fyrir hnappagötum í kanti að framan – sjá HNAPPAGAT-2. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist (30) 37-45-54-63 (72) cm frá uppfitjunarkanti eru fitjaðar upp nýjar lykkjur fyrir ermi í lok hverrar umferðar frá réttu (þ.e.a.s. að hlið) þannig: Fitjið upp (4) 6-6-7-9 (12) lykkjur alls 3 sinnum og síðan (14) 15-16-17-18 (18) lykkjur 1 sinni = (57) 68-77-84-93 (104) lykkjur á prjóni (nýjar lykkjur eru prjónaðar jafnóðum inn í A.3). Þegar allar lykkjur hafa verið fitjaðar upp er haldið áfram með mynstur eins og áður, en 12 ystu lykkjurnar á ermi eru prjónaðar í garðaprjóni (kantur með uppábroti). Prjónið síðan áfram þar til stykkið mælist ca (37) 45-52-62-71 (81) cm. Það á að hafa verið prjónaður ca 1 cm á eftir síðasta hnappagati í kanti að framan, en passið uppá að næsta umferð sé prjónuð frá réttu. Í næstu umferð (rétta) eru ystu (7) 8-9-10-10 (11) lykkjur við miðju að framan settar á þráð fyrir hálsmáli, en til að sleppa við að þurfa að klippa þráðinn frá sem prjónað er með, prjónið lykkjurnar áður en þær eru settar á þráðinn. Haldið áfram með mynstur eins og áður. Fellið af fyrir hálsmáli í byrjun á hverri umferð frá hálsmáli þannig: Fellið af 2 lykkjur 1 sinni og síðan 1 lykkju (2) 2-2-2-3 (3) sinnum = (46) 56-64-70-78 (88) lykkjur eftir á prjóni fyrir öxl/ermi. Haldið áfram með mynstur eins og áður þar til stykkið mælist (39) 47-55-65-75 (85) cm, en stillið af að næsta umferð sé prjónuð frá réttu. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu og fækkið jafnframt um (4) 4-6-6-6 (6) lykkjur jafnt yfir lykkjur í A.5/A.6 = (42) 52-58-64-72 (82) lykkjur á prjóni. Prjónið 1 umferð slétt frá röngu. Fellið af með sléttum lykkjum frá réttu, en passið uppá að affellingarkanturinn verði ekki stífur. Stykkið mælist ca (40) 48-56-66-76 (86) cm frá uppfitjunarkanti. Prjónið vinstra framstykki eins og útskýrt er að neðan. VINSTRA FRAMSTYKKI: Setjið til baka (25) 29-37-40-42 (44) lykkjur af þræði á vinstra framstykki á hringprjón. Byrjið frá réttu og haldið áfram með mynstur eins og áður. JAFNFRAMT í lok fyrstu umferðar eru prjónaðar upp 6 nýjar lykkjur aftan við hægri kant að framan, þ.e.a.s. prjónið upp 1 lykkju í hverja og eina af 6 kantlykkjum að framan = (31) 35-43-46-48 (50) lykkjur á prjóni. Haldið áfram með mynstur eins og áður, en 6 ystu lykkjurnar við miðju að framan eru prjónaðar í garðaprjóni (= kantur að framan – ATH: Ekki er fellt af fyrir hnappagötum í vinstri kanti að framan). JAFNFRAMT þegar stykkið mælist (30) 37-45-54-63 (72) cm fitjið upp nýjar lykkjur fyrir ermi í lok hverrar umferðar frá röngu (þ.e.a.s. að hlið) þannig: Fitjið upp (4) 6-6-7-9 (12) lykkjur alls 3 sinnum og síðan (14) 15-16-17-18 (18) lykkjur 1 sinni = (57) 68-77-84-93 (104) lykkjur á prjóni (nýjar lykkjur eru prjónaðar jafnóðum inn í A.3). Þegar allar lykkjur hafa verið fitjaðar upp er haldið áfram með mynstur eins og áður, en 12 ystu lykkjur á ermi eru prjónaðar í garðaprjóni (= kantur með uppábroti). Prjónið síðan áfram þar til stykkið mælist ca (37) 45-52-62-71 (81) cm – stillið af eftir hægra framstykki og passið uppá að næsta umferð sé frá röngu. Í næstu umferð (ranga) eru ystu (7) 8-9-10-10 (11) lykkjurnar við miðju að framan settar á þráð fyrir hálsmáli, en til að sleppa við að þurfa að klippa þráðinn frá sem prjónað er með, prjónið lykkjur áður en þær eru settar á þráðinn. Haldið áfram með mynstur eins og áður. Fellið síðan af fyrir hálsmáli í byrjun á hverri umferð frá hálsmáli þannig. Fellið af 2 lykkjur 1 sinni og síðan 1 lykkju (2) 2-2-2-3 (3) sinnum = (46) 56-64-70-78 (88) lykkjur eftir á prjóni fyrir öxl/ermi. Haldið áfram með mynstur eins og áður þar til stykkið mælist (39) 47-55-65-75 (85) cm, stillið af að næsta umferð sé prjónuð frá réttu. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu og fækkið jafnframt um (4) 4-6-6-6 (6) lykkjur jafnt yfir lykkjur í A.4/A.6 = (42) 52-58-64-72 (82) lykkjur á prjóni. Prjónið 1 umferð slétt frá röngu. Fellið af með sléttum lykkjum frá réttu, en passið uppá að affellingarkanturinn verði ekki stífur. Stykkið mælist ca (40) 48-56-66-76 (86) cm. Prjónið bakstykki eins og útskýrt er að neðan. BAKSTYKKI: Fitjið upp (48) 56-68-74-78 (82) lykkjur og prjónið garðaprjón í (4) 4-4-5-5 (5) cm. Prjónið 2 umferðir sléttprjón með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, prjónið A.3 þar til 1 lykkja er eftir á prjóni og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Haldið svona áfram með mynstur. Þegar stykkið mælist (30) 37-45-54-63 (72) cm fitjið upp nýjar lykkjur fyrir ermar í lok hverrar umferðar í hvorri hlið þannig: Fitjið upp (4) 6-6-7-9 (12) lykkjur alls 3 sinnum í hvorri hlið og síðan (14) 15-16-17-18 (18) lykkjur 1 sinni í hvorri hlið = (100) 122-136-150-168 (190) lykkjur í umferð (nýjar lykkjur eru prjónaðar jafnóðum inn í A.3). Þegar fitjaðar hafa verið upp allar lykkjur er haldið áfram með A.3 eins og áður, en 12 ystu lykkjur á báðum ermum eru prjónaðar í garðaprjóni (= kantur með uppábroti). Þegar stykkið mælist (38) 46-54-64-74 (84) cm fellið af miðju (12) 14-16-18-20 (22) lykkjur fyrir hálsmáli. Fellið síðan af 2 lykkjur í næstu umferð frá hálsmáli = (42) 52-58-64-72 (82) lykkjur eftir á prjóni fyrir öxl/ermi. Haldið áfram með mynstur eins og áður þar til 1 cm er eftir þar til stykkið mælist (40) 48-56-66-76 (86) cm, en passið uppá að næsta umferð sé prjónuð frá réttu. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu og 1 umferð slétt frá röngu. Fellið af með sléttum lykkjum frá réttu, en passið uppá að affellingarkanturinn verði ekki stífur. Prjónið hina öxlina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma/sauma ofan á ermum innan við affellingarkant. Saumið saum undir ermum og niður meðfram hliðum á fram- og bakstykki innan við 1 kantlykkju. Brjótið upp neðstu 3 cm á hvorri ermi og saumið við uppábrot með nokkrum smáum sporum á hvorri hlið. Saumið tölur í neðst niðri á poka (tölur eru saumaðar í meðfram miðju á kant með garðaprjóni á bakstykki, en á röngu þannig að hneppt er í gegnum hnappagöt á framstykki). Saumið í þær tölur sem eftir eru á vinstri kant að framan. HETTA: Prjónið upp frá réttu ca 52 til 72 lykkjur í kringum háls (meðtaldar lykkjur af þræði að framan) á hringprjón 4 með Merino Extra Fine. Prjónið 1 umferð slétt frá röngu. Prjónið síðan 1 umferð slétt frá réttu þar sem aukið er út jafnt yfir til (68) 76-84-88-92 (96) lykkjur. Prjónið A.3 fram og til baka yfir allar lykkjur – JAFNFRAMT eru fitjaðar upp 6 nýjar lykkjur í lok 2 næstu umferða fyrir kanti með uppábroti = (80) 88-96-100-104 (108) lykkjur. Haldið áfram með A.3 yfir allar lykkjur þar til hettan mælist ca (18) 19-20-21-22 (23) cm. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu og 1 umferð slétt frá röngu. Fellið af með sléttum lykkjum frá réttu. Brjótið hettuna saman tvöfalda og saumið saman toppinn innan við affellingarkantinn. Brjótið niður 6 ystu lykkjurnar í hvorri hlið út að réttu og saumið niður kant með uppábroti fallega að hálsmáli með smáu spori. |
|||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Bente Kongensgaard wrote:
Problemet er løst. Beklager.
03.10.2023 - 21:11