DROPS Baby Merino
DROPS Baby Merino
100% Ull
frá 924.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 5544.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Catch a Wink

Prjónaður poki fyrir börn úr DROPS BabyMerino. Stykkið er prjónað í garðaprjóni og framhliðarnar skarast yfir hvor aðra, hekluðum kanti og snúru. Stærð fyrirburar – 4 ára.

DROPS Baby 33-6
DROPS Design: Mynstur bm-094-by
Garnflokkur A
-------------------------------------------------------

Stærð: (<0) 0/1 - 1/3 - 6/9 - 12/18 mán (2) ára
Stærð jafngildir ca hæð á barni í cm:
(40/44) 48/52 - 56/62 - 68/74 - 80/86 (92)

Efni:
DROPS BABYMERINO frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
(250) 250-300-300-350 (400) g litur 22, ljós grár
(50) 50-50-50-50 (50) g litur 02, natur

PRJÓNFESTA:
24 lykkjur á breidd og 48 umferðir á hæð með garðaprjóni = 10 x 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNN NR 3: lengd 80 cm fyrir garðaprjón.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir á grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptið yfir á fínni prjóna.

DROPS HEKLUNÁL NR 2,5: fyrir kanta og snúru.

DROPS PERLUTALA, Bogalaga (hvít) NR 521: (4) 5-6-6-6 (6) st.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Baby Merino
DROPS Baby Merino
100% Ull
frá 924.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 5544.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

ÚRTAKA (á við um hliðar á framstykki og meðfram hálsmáli):
Öll úrtaka er gerð frá réttu!
Fækkið lykkjum innan við 1 kantlykkju með garðaprjóni.
Fækkið lykkjum á eftir 1 kantlykkju þannig: Takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir.
Fækkið lykkjum á undan 1 kantlykkju þannig: Byrjið 2 lykkjum á undan kantlykkju og prjónið 2 lykkjur slétt saman.

ÚTAUKNING (á við um hliðar á bakstykki):
Öll útaukning er gerð frá réttu!
Aukið út innan við 1 kantlykkju með garðaprjóni.
Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat.

LEIÐBEININGAR:
Fitjaðar eru upp 10 auka lykkjur neðst niðri á hvorri ermi fyrir uppábrot. Ef þú vilt ekki hafa uppábrot eru einungis fitjaðar upp (9) 9-12-12-10 (13) lykkjur neðst niðri á hvorri ermi, í stað (19) 19-22-22-20 (23) lykkjur. Munið eftir að það verða þá 10 lykkjum færri í hvorri hlið á fjölda lykkja.

HNAPPAGAT (á við um uppábrot neðst niðri á poka):
1 hnappagat = fellið af 2 lykkjur, í næstu umferð eru fitjaðar upp 2 nýjar lykkjur yfir þær lykkjur sem felldar voru af. Ysta hnappagatið er staðsett ca 2 cm inn frá hvorri hlið.
Fellið síðan af fyrir næstu hnappagötum með ca (7) 6-5½-6-7 (8) cm millibili.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

POKI – STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjón. Byrjið á öðru framstykkinu, fitjið upp lykkjur fyrir ermi og prjónið síðan upp að öxl. Prjónið hitt framstykkið alveg eins, nema spegilmynd. Setjið síðan bæði framstykkin saman og prjónið niður yfir bakstykki að loka máli. Bakstykkið er prjónað lengra en framstykkin og er brotið að framstykki. Ef þú vilt ekki hafa uppábrotið er hægt að draga þessar lykkjur frá lykkjufjölda sem er fitjaður upp fyrir ermum – sjá LEIÐBEININGAR!

HÆGRA FRAMSTYKKI:
Fitjið upp (44) 49-52-60-67 (71) lykkjur (meðtalin 1 kantlykkja í hlið) á hringprjón 3 með ljós grár. Prjónið GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan (fyrsta umferð = rétta og prjónið frá miðju að framan).
Þegar stykkið mælist (6) 6-6-8-8 (8) cm fækkið um 1 lykkju í hlið (þ.e.a.s. í lok umferðar frá réttu) – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með (5) 5½-7-7-5½ (5½) cm millibili alls (5) 6-6-7-10 (12) sinnum = (39) 43-46-53-57-59 lykkjur.

HÁLSMÁL:
Þegar stykkið mælist (29) 36-43-52-61 (70) cm fækkið um 1 lykkju fyrir hálsmáli í byrjun á umferð frá réttu – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona í annarri hverri umferð (þ.e.a.s. í hverri umferð frá réttu) alls (20) 20-22-26-28 (29) sinnum og síðan í 4. hverri umferð (þ.e.a.s. í annarri hverri umferð frá réttu) alls 2 sinnum í öllum stærðum.

ERMI:
JAFNFRAMT þegar stykkið mælist (32) 39-47-56-65 (74) cm fitjið upp nýjar lykkjur fyrir ermi í lok umferðar frá réttu þannig: Fitjið upp (4) 6-7-8-7 (8) lykkjur alls (4) 4-4-4-6 (6) sinnum og síðan (19) 19-22-22-20 (23) lykkjur 1 sinni.
Eftir alla úrtöku og útaukningu eru (52) 64-72-79-89 (99) lykkjur á prjóni fyrir öxl/ermi.
Haldið áfram fram og til baka í garðaprjóni þar til stykkið mælist (40) 48-56-66-76 (86) cm. Setið 1 prjónamerki í byrjun á umferð frá réttu (þ.e.a.s. inn að hálsi). Prjónamerki merkir mitt á öxl og brjóta á stykkið síðar upp við þetta prjónamerki. Prjónamerkið á einnig að nota síðar við mælingu á lengd. Haldið áfram í garðaprjóni og fitjið upp 2 nýjar lykkjur í lok 2 næstu umferða frá röngu (þ.e.a.s. að hálsi) = (56) 68-76-83-93 (103) lykkjur á prjóni og síðasta umferð er prjónuð frá röngu. Setjið allar lykkjur á þráð eða látið þær hvíla á prjóni. Prjónið vinstra framstykki eins og útskýrt er að neðan.

VINSTRA FRAMSTYKKI:
Fitjið upp (44) 49-52-60-67 (71) lykkjur (meðtalin 1 kantlykkja í hlið) á hringprjón 3 með ljós grár. Prjónið garðaprjón (fyrsta umferð = rétta og prjónuð frá hlið).
Þegar stykkið mælist (6) 6-6-8-8 (8) cm fækkið um 1 lykkju í hlið (þ.e.a.s. í byrjun á umferð frá réttu) – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með (5) 5½-7-7-5½ (5½) cm millibili alls (5) 6-6-7-10 (12) sinnum = (39) 43-46-53-57-59 lykkjur.

HÁLSMÁL:
Þegar stykkið mælist (29) 36-43-52-61 (70) cm fækkið um 1 lykkju fyrir hálsmáli í lok umferðar frá réttu – sjá ÚRTAKA.
Fækkið lykkjum svona í annarri hverri umferð (þ.e.a.s. í hverri umferð frá réttu) alls (20) 20-22-26-28 (29) sinnum og síðan í 4. hverri umferð (þ.e.a.s. í annarri hverri umferð frá réttu) alls 2 sinnum í öllum stærðum.

ERMI:
JAFNFRAMT þegar stykkið mælist (32) 39-47-56-65 (74) cm fitjið upp nýjar lykkjur fyrir ermi í lok umferðar frá röngu þannig: Fitjið upp (4) 6-7-8-7 (8) lykkjur alls (4) 4-4-4-6 (6) sinnum og síðan (19) 19-22-22-20 (23) lykkjur 1 sinni.
Eftir alla úrtöku og útaukningu eru (52) 64-72-79-89 (99) lykkjur á prjóni fyrir öxl/ermi.
Haldið áfram fram og til baka í garðaprjóni þar til stykkið mælist (40) 48-56-66-76 (86) cm. Setjið 1 prjónamerki í lok umferðar frá röngu (þ.e.a.s. inn að hálsi). Prjónamerkið merkir mitt á öxl og stykkið er síðar brotið upp við þetta merki. Prjónamerkið á síðar að nota til að mæla lengd. Haldið áfram í garðaprjóni og fitjið upp 2 nýjar lykkjur í lok 2 næstu umferða frá réttu (þ.e.a.s. að hálsi) = (56) 68-76-83-93 (103) lykkjur á prjóni. Prjónið 1 umferð slétt frá röngu. Prjónið nú bakstykki eins og útskýrt er að neðan.

BAKSTYKKI:
Prjónið sléttar lykkjur frá réttu yfir allar þær (56) 68-76-83-93 (103) lykkjur á vinstra framstykki, fitjið upp (8) 8-12-12-12 (14) nýjar lykkjur á prjóni fyrir hálsmáli aftan í hnakka og prjónið síðan sléttar lykkjur frá réttu yfir allar (56) 68-76-83-93 (103) lykkjur frá hægra framstykki = (120) 144-164-178-198 (220) lykkjur.
HÉÐAN ER NÚ MÆLT FRÁ PRJÓNAMERKI Á ÖXLUM!
Haldið áfram fram og til baka í garðaprjóni yfir allar lykkjur. Þegar stykkið mælist (6) 7-7-8-8 (9) cm frá prjónamerki eru ermalykkjur felldar af. Fellið af í byrjun á hverri umferð í hvorri hlið þannig: Fellið af (19) 19-22-22-20 (23) lykkjur 1 sinni og síðan (4) 6-7-8-7 (8) lykkjur alls (4) 4-4-4-6 (6) sinnum í hvorri hlið = (50) 58-64-70-74 (78) lykkjur eftir í umferð.
Prjónið síðan áfram þar til stykkið mælist (14) 14-15-16-18 (17) cm frá prjónamerki. Aukið nú út um 1 lykkju í hvorri hlið – sjá ÚTAUKNING (= 2 lykkjur fleiri). Aukið svona út með (5) 5½-7-7-5½ (5½) cm millibili alls (5) 6-6-7-10 (12) sinnum í hvorri hlið = (60) 70-76-84-94 (102) lykkjur.
Prjónið síðan áfram þar til stykkið mælist (40) 48-56-66-76 (86) cm frá prjónamerki. Setjið 1 nýtt prjónamerki í hvora hlið á bakstykki. Þessi prjónamerki merkja uppábrot neðst niðri á poka og stykkið er nú mælt frá nýju prjónamerkjunum.
Haldið áfram í garðaprjóni þar til stykkið mælist (4) 4-4-6-6 (6) cm frá nýju prjónamerkjunum. Í næstu umferð frá réttu er fellt af fyrir (4) 5-6-6-6 (6) HNAPPAGAT jafnt yfir – sjá útskýringu að ofan.
Prjónið síðan þar til stykkið mælist (6) 6-6-8-8 (8) cm frá nýju prjónamerkjum (allur pokinn mælist ca (46) 54-62-74-84 (94) cm frá prjónamerkjum á öxlum). Fellið laust af með sléttum lykkjum frá réttu.

FRÁGANGUR:
Brjótið stykkið saman tvöfalt við prjónamerkjum á öxlum. Saumið sauma undir ermum og hliðarsauma í eitt innan við 1 kantlykkju.

HEKLAÐUR KANTUR MEÐFRAM OPI Á POKA:
Byrjið frá röngu í horni neðst niðri á vinstra framstykki og heklið með heklunál 2,5 með litnum natur meðfram opi á poka þannig:
UMFERÐ 1 (= ranga): 1 fastalykkja í fyrstu lykkju, * 1 loftlykkja, hoppið yfir ca 1-2 lykkjur (prufaðu þig aðeins áfram, kanturinn á að liggja alveg flatur), heklið 1 fastalykkju í næstu lykkju *, heklið frá *-* upp meðfram vinstra framstykki, en við hornið þar sem affellingin fyrir hálmáli byrjaði er hekluð snúra þannig: Heklið 1 fastalykkju í hornið, heklið síðan loftlykkjur í ca 20-25 cm, snúið og heklið 1 keðjulykkju í hverja loftlykkju til baka, heklið síðan 1 fastalykkju aftur í hornið á framstykki.
Haldið áfram með heklaða kantinn í kringum hálsmál fram að horni eftir affellingu í hálsi á hinu framstykkinu, heklið snúru alveg eins og á vinstra framstykki og heklið síðan stykkið áfram meðfram hægra framstykki, endið með 1 keðjulykkju í hornið, snúið stykki.
UMFERÐ 2 (= rétta): Heklið 2 loftlykkjur, 1 fastalykkja um fyrstu loftlykkju, * 4 loftlykkjur, 1 stuðull í 4. loftlykkju frá heklunálinni, hoppið yfir 1 fastalykkju + 1 loftlykkja + 1 fastalykkja, heklið 1 fastalykkju um næstu loftlykkju *, heklið frá *-* út umferðina (passið uppá að heklað sé yfir snúru þannig að snúran liggi neðst), endið með 1 keðjulykkju í fyrstu fastalykkju í byrjun á fyrri umferð. Klippið frá og festið enda.
Heklið alveg eins kant neðst niðri á framstykki þannig: Leggið hægra framstykki yfir vinstra framstykki. Byrjið frá röngu og heklið meðfram kanti neðst niðri á framstykki, þar sem framstykkin koma yfir hvort annað er heklað í gegnum bæði lögin. Klippið frá og festið enda.

HEKLAÐUR KANTUR MEÐFRAM UPPÁBROTI NEÐST Á POKA:
Byrjið frá röngu og heklið alveg eins kant meðfram kanti á uppábroti alveg eins og útskýrt er að ofan. Brjótið upp kantinn með prjónamerkjum. Saumið tölur í framstykki.

HEKLAÐUR KANTUR Í KRINGUM ERMAR:
Byrjið frá röngu og heklið þannig:
UMFERÐ 1: Heklið 1 fastalykkju í fyrstu lykkju, * 1 loftlykkja, hoppið yfir ca 2 umferðir garðaprjón, heklið 1 fastalykkju í næstu lykkju *, heklið frá *-* í kringum alla ermina og endið með 1 keðjulykkju í fyrstu fastalykkju í byrjun á umferð.
UMFERÐ 2: Heklið 2 loftlykkjur, 1 fastalykkja um fyrstu loftlykkju, * 4 loftlykkjur, 1 stuðull í 4. loftlykkju frá heklunálinni, hoppið yfir 1 fastalykkju + 1 loftlykkju + 1 fastalykkja, heklið 1 fastalykkju um næstu loftlykkju *, heklið frá *-* umferðina hringinn og endið með 1 keðjulykkju í 2. loftlykkju í byrjun á umferð. Klippið frá og festið enda. Heklið alveg eins kant neðst niðri í kringum hina ermina. Brjótið upp ermar.

SNÚRA:
Heklið 1 snúru í hvora hlið á poka eins og í hvoru horni á framstykki.
Snúran á hægri hlið er hekluð innan við saum (þ.e.a.s. frá röngu á stykki) og snúran á vinstri hlið er hekluð utan við saum (þ.e.a.s. frá réttu á stykki) – passið uppá að þessar snúrur verði í sömu hæð og hinar tvær.

Mynstur

diagram measurements

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS Baby 33-6

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (40)

country flag Anastasia wrote:

Wird der Rücken dann sozusagen einzeln gestrickt? Und die drei Teile dann zusammengenäht, verstehe ich das richtig?

10.04.2024 - 16:56

DROPS Design answered:

Liebe Anastasia, beide Vorderteile sind von unten nach oben separat gestrickt, dann wird das Rückenteil von oben nach unten (beide Vorderteile + neue Maschen dazwischen) gestrickt, die Maschen für die Ärmel werden dann abgekettet und bis die untere Rand stricken. Die Seiten werden dann zusammengenäht. Viel Spaß beim Stricken!

11.04.2024 - 07:02

country flag Anastasia wrote:

Hallo liebes Drops-Team. Ich verstehe nicht so ganz, wie ich die Rechte und die Linke Seiten verbinden soll. Zuerst wird ja die linke gestrickt und dann zur Seite gelegt, behält aber den Faden, daher verstehe ich nicht, wie es mit der rechten dann zusammengestrikt wird, denn die rechte hat ja auch noch ihren Faden mit Wolle dran. Können Sue mir da bitte helfen.

10.04.2024 - 13:31

DROPS Design answered:

Liebe Anastasia, zuerst stricken Sie das rechte Vorderteil von unten nach oben (bis die 2 x 2 neue Maschen für den Halsausschnitt angeschlagen sind - letzte Reihe ist eine Rückreihe (Maschen stilllegen, Faden abschneiden); dann stricken Sie das linke Vorderteil spiegelverkehrt - die letzte Reihe ist eine Rückreihe; dann stricken Sie das Rückenteil: stricken Sie zuerst alle Maschen vom linken Vorderteil, dann schlagen Sie neue Maschen für den Halsausschnitt und stricken Sie alle Maschen vom rechten Vorderteil. Nun wird das Rückenteil von oben nach unten gestrickt. Viel Spaß beim Stricken!

10.04.2024 - 14:02

country flag Sigrid wrote:

Guten Tag, irgendwie, kann ich mir das Anbringen von 4 Bindebändern nicht vorstellen. Ein Band wird an dem aufliegenden Vorderteil angebracht, eins in entsprechender Höhe an der Seite? Diese sind auf dem Foto gebunden. Eines soll auf dem innenliegenden Vorderteil angebracht werden. Wo wird dieses lang geführt, gibt es eine Öffnung in der Seite zum Durchführen? Bitte um Hilfe Viele Grüße Sigrid

02.01.2024 - 14:45

DROPS Design answered:

Liebe Sigrid, das eine Band ist an der "Spitze" vom rechten Vorderteil und wird zusammen mit einem Band an der Aussenseite an der linken Seite zusammen zugebunden; und das andere Band an der Spitze vom linken Vorderteil wird mit einem Band an der Innenseite an der rechten Seite zusammen zugebunden. Viel Spaß beim stricken!

03.01.2024 - 08:09

country flag Carla wrote:

Cosa si intende con la descrizione : Lavorare 1 ferro diritto dal rovescio del lavoro. ? Grazie

20.07.2023 - 19:53

DROPS Design answered:

Buonasera Carla, deve seguire le indicazioni: il lavoro in piano ha un diritto e un rovescio del lavoro. In questo caso deve lavorare un ferro con tutte le maglie a diritto sul rovescio del lavoro. Buon lavoro!

20.07.2023 - 20:55

country flag Daisy wrote:

Klopt het dat de voorpanden aan de onderrand (deels) aan elkaar worden gehaakt? Dus dat de trappelzak niet in zijn geheel opengeklapt kan worden?

30.06.2023 - 17:13

DROPS Design answered:

Dag Daisy,

Nee de voorpanden worden niet aan elkaar gehaakt, je haakt vanaf één onderkant van een voorpand, dan naar boven, via de hals weer naar beneden over het andere voorpand. Los daarvan wordt langs de onderste flap ook een rand gehaakt. Deze onderste flap vouw je naar boven om vast te knopen.

03.07.2023 - 21:10

country flag Michaela wrote:

Guten Tag, ich würde sehr gern diesen Strampelsack stricken, habe auch schon die Anleitung und alle Kommentare überflogen, aber wollte nochmal ganz sicher gehen: der Sack ist unten geschlossen und die Überschlagkante und die Knöpfe sind lediglich Deko, (oder kann man den Sack hinterher komplett, also auch unten öffnen)? Vielen Dank für ihre Antwort und die vielen schönen Anleitungen!

18.01.2023 - 12:37

DROPS Design answered:

Liebe Michaela, also nicht genau, es sind doch Knopflöcher am Ende Rückenteil, dann wird dieses Teil über die Vorderteil gefaltet und die Knöpfe nähen Sie auf beiden Vorderteilen (siehe letztes Foto). Viel Spaß beim stricken!

18.01.2023 - 17:02

country flag Zuzana wrote:

Ďakujem za pekný návod. Ak to niekomu pomôže, pri veľkosti 6/9 som spotrebovala o dve klbká viac ako je uvedené.

16.12.2022 - 19:42

country flag Cecilia wrote:

No he tenido suficiente lana, 300, para la talla 6/9. Me faltan hacer 15 cm y voy a tener que hacerlo con la lana blanca del reborde, ya que en los sitios donde compro la lana, está agotada 😱😱😱😱

14.02.2022 - 22:50

country flag Joon wrote:

Hallo , ich frage mich - wie schaut der Schlafsack unter dem Umschlag aus ? Werden die beiden Vorderteile mit dem Rückenteil zusammengenäht am unteren Ende und der Umschlag kaschiert nur die Naht oder ist das untere Ende offen und wird nur mit dem Umschlag verschlossen ? Liebe Grüße Joon

18.09.2021 - 14:40

DROPS Design answered:

Liebe Joon, die beiden Vorteile werden zusammen durch die Kante gehäkelt, dh: ... den Rand unten an den Vorderteilen häkeln, dabei dort, wo sich die beiden Vorderteile überlappen, durch beide Schichten häkeln. Viel Spaß beim stricken!

24.11.2021 - 12:14

country flag Hana wrote:

Liebes Drops Team, danke für Ihre Antwort von heute. Sie stimmt rein rechnerisch. Die Bemaßung auf Ihrer Zeichnung gibt bei Größe 68/74 für die Mittellinie 28 cm an, untere Linie 34 cm. Die Proportionen sehen anders aus. Die Maße für das rechte Vorderteil Mitte 22cm, unten 25 cm scheinen zu schmal zu sein oder täuscht die Zeichnung? Danke nochmals und viele Grüße

09.09.2021 - 15:43

DROPS Design answered:

Liebe Hana, die Maßen in der Skizze sind für das Rückenteil - hier lesen Sie, wie die Arbeit gemessen wird. Größe 68/74 ist die 4. Größe - am Ende (unten) vom Rückenteil haben Sie 84 M (-2 Randmaschen für die Naht) sind ca 34 cm = wie unter in der Sizze. Viel Spaß beim stricken!

09.09.2021 - 17:22