Marian skrifaði:
Trabajar 1 pliegue de ida y vuelta sobre todos los puntos. Después rematar de derecho por el lado derecho. En este caso que se repite en ambos delanteros, de cuantos puntos debe ser el pliegue. Posiblemente sea una pregunta absurda, pero por más vueltas que le dé, sigo estancada en este preciso momento. Gracias
28.04.2026 - 14:48
Nadine Brüchmann skrifaði:
Hallo danke für die Beantwortung. Ich weiss welches das rückenteil ist. Ich weiss nur nicht wo ich anfangen zu stricken. Auf der Seite wo der ärmel (also echts fertig ist)und schon die 17 maschen mit oder erst die M einmal rüberstricken und dann das erste Mal die 17M aufnehmen. Ich wriss auch das i h das auf beiden Seiten machen muss,nur wann das 1. Mal?
17.04.2026 - 14:49DROPS Design svaraði:
Liebe Nadine, Sie schlagen direkt in der ersten Reihe, in der Sie die stillgelegten Maschen wieder stricken, am Ende der Reihe die neuen Maschen an. Ob das die Reihe in Richtung rechtes Vorderteil oder linkes Vorderteil ist, spielt keine Rolle. Viel Spaß beim Stricken!
21.04.2026 - 09:05
Nadine Brüchmann skrifaði:
Hallo danke für die Beantwortung. Nun habe ich schon wieder eine Verständnisfrage - und zwar woanders ich das Rückenteil an? An der Seite wo der Arm schon fertig ist die 58 M stricken? Und die 17 madchen gleich am Anfang derReihe aufnehmen? Oder da wo der Faden abgeschnitten ist?
16.04.2026 - 15:07DROPS Design svaraði:
Ich hatte Ihre Frage vielleicht falsch verstanden (siehe unten), in die 4. Größe ist das Rückenteil nach den ersten 31 Maschen, die Sie für das rechte Vorderteil gestrickt haben, die letzen 31 Maschen der Reihe sind für das Linke Vorderteil. Viel Spaß beim Stricken!
16.04.2026 - 17:07
Nadine Brüchmann skrifaði:
Hallo danke für die Beantwortung. Nun habe ich schon wieder eine Verständnisfrage - und zwar woanders ich das Rückenteil an? An der Seite wo der Arm schon fertig ist die 58 M stricken? Und die 17 madchen gleich am Anfang derReihe aufnehmen?
16.04.2026 - 14:56DROPS Design svaraði:
Liebe Frau Brüchmann, für das Rückenteil wird man beidseitig für die Ärmel zunehmen, so wird man (4. Größe) am Ende der 2 ersten Reihen 17 Maschen anschlagen (= 17 M 1 Mal beidseitig), dann wird man 12 Maschen am Ende der 4 nächsten Reihen anschlagen (= 12 M 2 Mal beidseitig), so haben Sie insgesamt: 12+12+17+58+17+12+12=140 Maschen. Viel Spaß beim Stricken!
16.04.2026 - 17:04
Nadine Brüchmann skrifaði:
Bin jetzt bei den 11 Maschen still legen und dann das abketten rechtes vorderteil. Ich weiss nicht wie denn die 11 Maschen still legen, abketten? Wenn nicht was passiert damit.? Bitte um schnelle verständliche Antwort
14.04.2026 - 18:33DROPS Design svaraði:
Liebe Frau Brüchmann, beim rechten Vorderteil stricken Sie die ersten 11 Maschen am Anfang einer Hinreihe und legen Sie diese Maschen still, stricken Sie die restlichen Maschen der Reihe wie zuvor, wenden und die Rückreihe stricken. Jetzt ab Anfang jeder Hinreihe 2 Maschen 1 Mal und 1 Masche 2 Mal abketten. Die stillgelegten Maschen stricken Sie später für die Kapuze. Beim linken Vorderteil sind die ersten 11 Maschen am Anfang einer Rückreihe. Viel Spaß beim Stricken!
15.04.2026 - 07:42
Annett skrifaði:
Jeg forstår ikke rigtig mønsteret
14.04.2026 - 15:32DROPS Design svaraði:
Hej Annett, se videoen som viser hvordan mønsteret strikkes, du finder den ved at klikke på Video øverst i opskriften :)
15.04.2026 - 13:58
Dina skrifaði:
I am working on the truly woolly design in 6 to 9 months. I am at the back where it says slipped the first 58 stitches onto a stitch holder and go back-and-forth at the same time cast on 17 stitches one time each side and then 14 stitches two times each side and it’s saying it should equal 140 stitches while I’m starting with the 31 stitches because the 58 stitches are on a stitch holder. It’s not coming out correctly. Can you help me?
31.03.2026 - 19:44DROPS Design svaraði:
Dear Dina, when dividing piece you should have 31 sts for each front piece and 58 sts for back piece, after you have worked the right front piece, slip all stitches of back piece back onto needle and work as before casting on stitches for back piece, you cast on the new stitches at the end of each row on each side, this means at the end of a row from RS as well as from WS: 58+(17+17)+(12 sts x 2 x 2 sleeves) = 140 sts. Can this help or did I misunderstand your question?
07.04.2026 - 15:45
Anna-Maria skrifaði:
Hello! I’ve compared Estonian and English instructions, but the Estonian one hasn’t been updated. For example the mistakes about the left leg.
21.03.2026 - 13:56
Katharina skrifaði:
Liebes Drops Design-Team, vielen Dank für diese wunderbare Anleitung. Ist es möglich, die Beine separat in Runden zu stricken und dann zusammenzuführen? Was muss ich in dem Fall beachten? Vielen Dank für Ihre Antwort. Herzliche Grüße Katharina
16.03.2026 - 11:11DROPS Design svaraði:
Liebe Katharina, dann brauchen Sie keine Randmasche - die Zunahmen stricken Sie beidseitig aber dann sollen Sie die Zunahmen so stricken, damit das Muster nicht verschoben wird, und dann schlagen Sie die neuen Maschen am hinteren Mitte/Vorne wie erklärt. Viel Spaß beim Stricken!
16.03.2026 - 16:14
Sirpa Pylkkänen skrifaði:
Hei vaikka silmukoita on parillinen määrä ei kuvio täsmää, koska tilanteessa jossa reunasilmukka päätettiin se oli reunimmainen kuvio silmukka. Missä siis teen virheen vai onko ohjeessa virhe?
14.03.2026 - 07:19DROPS Design svaraði:
Hei, reunasilmukoilla ei neulota mallineuletta piirroksen mukaan, vaan niillä neulotaan jokaisella kerroksella ainaoikeaa. Kun reunasilmukat päätetään, kuvio jatkuu kuten aiemmin, mutta reunoissa ei enää neulota ainaoikeaa.
16.03.2026 - 17:49
Truly Wooly#trulywoolyonesie |
|||||||
![]() |
![]() |
||||||
Prjónaður heilgalli fyrir börn úr DROPS Merino Extra Fine. Stykkið er prjónað með áferðamynstri og hettu. Stærð fyrirburar – 4 ára.
DROPS Baby 33-8 |
|||||||
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. 1 kantlykkja í garðaprjóni = prjónið lykkjuna slétt frá réttu og slétt frá röngu. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1: Aukið út um 1 lykkju innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat. Útauknar lykkjur eru prjónaðar jafnóðum inn í A.1. LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-2 (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 44 lykkjur) og deilið með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 14) = 3,1. Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 3. hverri lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat. HNAPPAGAT (neðan frá og upp): Fellið af fyrir hnappagati í hægri kanti að framan. 1 HNAPPAGAT = prjónið þriðju og fjórðu lykkjur frá kanti slétt saman og sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt eða brugðið (eftir því hvar í mynstrinu þú ert) þannig að það myndist hnappagat. Fellið af fyrir hnappagati þegar stykkið mælist (mælt frá þar sem skálmar eru settar saman): (fyrirburar): 5, 10, 15 og 20 cm 0/1 mán: 6, 11, 16, 21 og 26 cm 1/3 mán: 5, 10, 15, 20, 25 og 30 cm 6/9 mán: 6, 12, 17, 22, 27 og 32 cm 12/18 mán: 6, 12, 18, 24, 30 og 36 cm 2 ára: 9, 15, 21, 27, 33 og 39 cm 3/4 ára: 7, 13, 19, 25, 31, 37 og 43 cm ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- HEILGALLI - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Hvor skálm er prjónuð fram og til baka á hringprjón, neðan frá og upp. Skálmarnar eru settar saman og prjónað er fram og til baka á hringprjón frá miðju að framan og upp að ermum. Síðan eru fitjaðar upp nýjar lykkjur fyrir ermar í hvorri hlið og framstykki og bakstykki er síðan prjónað til loka hvort fyrir sig. Stykkið er síðan saumað saman á öxlum. Að lokum eru prjónaðar upp lykkjur í kringum hálsmál og hettan er prjónuð. HÆGRI SKÁLM (séð þegar flíkin er mátuð): Fitjið upp (40) 44-48-48-52 (56-60) lykkjur á hringprjón 4 með DROPS Merino Extra Fine. Fyrsta umferðin er prjónuðu frá réttu þannig: 1 kantlykkja í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, prjónið A.1A þar til 3 lykkjur eru eftir á prjóni (= 9-10-11-11-12 (13-14) mynstureiningar með 4 lykkjum), prjónið A.1B (= 2 lykkjur) og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Haldið svona áfram með mynstur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 4 cm er sett 1 merki í stykkið (merkið merkir uppábrot). Þegar stykkið mælist (5) 5-7-8-10 (12-14) cm er aukið út um 1 lykkju í hvorri hlið – sjá LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1. Endurtakið útaukningu þegar stykkið mælist (8) 8-12-18-20 (22-24) cm = (44) 48-52-52-56 (60-64) lykkjur í umferð. Prjónið síðan áfram þar til stykkið mælist (12) 12-16-23-31 (32-35) cm frá uppfitjunarkanti, en passið uppá að næsta umferð sé prjónuð frá réttu. Fækkið um 1 lykkju í byrjun á 2 næstu umferðum (þ.e.a.s. kantlykkjur eru felldar af) = 42) 46-50-50-54 (58-62) lykkjur. Prjónið síðan 2 næstu umferðir með byrjun frá réttu þannig: Prjónið eins og áður yfir allar lykkjur og fitjið upp 3 nýjar lykkjur í lok umferðar (= miðja að aftan). Snúið stykkinu, prjónið A.1 eins og áður yfir allar lykkjur, en passið uppá að mynstrið haldi áfram rétt, fitjið síðan upp (4) 4-4-4-4 (4-4) lykkjur í lok umferðar frá röngu (= miðja að framan). Nú eru (49) 53-57-57-61 (65-69) lykkjur í umferð og stykkið mælist ca (13) 13-17-24-30 (33-36) cm frá uppfitjunarkanti. Geymið stykkið og prjónið vinstri skálm eins og útskýrt er að neðan. VINSTRI SKÁLM (séð þegar flíkin er mátuð): Fitjið upp (40) 44-48-48-52 (56-60) lykkjur á hringprjón 4 og prjónið fyrstu umferð frá réttu þannig: 1 kantlykkja í garðaprjón, prjónið A.1A þar til 3 lykkjur eru eftir á prjóni (= 9-10-11-11-12 (13-14) mynstureiningar með 4 lykkjum), prjónið A.1B (= 2 lykkjur) og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Haldið svona áfram með mynstur. Þegar stykkið mælist 4 cm er sett 1 merki í stykkið (merkið merkir uppábrot). Þegar stykkið mælist (5) 5-7-8-10 (12-14) er aukið út um 1 lykkju í hvorri hlið – sjá LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1. Endurtakið útaukningu þegar stykkið mælist (8) 8-12-18-20 (22-24) cm = (44) 48-52-52-56 (60-64) lykkjur í umferð. Prjónið síðan áfram þar til stykkið mælist (12) 12-16-23-31 (32-35) cm frá uppfitjunarkanti, en passið uppá að næsta umferð sé prjónuð frá réttu. Fækkið um 1 lykkju í byrjun á 2 næstu umferðum (þ.e.a.s. kantlykkjur eru felldar af) = (42) 46-50-50-54 (58-62) lykkjur. Prjónið síðan 2 næstu umferðir með byrjun frá réttu þannig: Prjónið eins og áður yfir allar lykkjur og fitjið upp 4 nýjar lykkjur í lok umferðar (= miðja að framan). Snúið stykkinu, prjónið A.1 eins og áður yfir allar lykkjur, en passið uppá að mynstrið haldi áfram rétt, fitjið síðan upp 3 lykkjur í lok umferðar frá röngu (= miðja að aftan). Nú eru (49) 53-57-57-61 (65-69) lykkjur í umferð og stykkið mælist ca (13) 13-17-24-30 (33-36) cm frá uppfitjunarkanti. Klippið frá. Setjið nú stykkin saman eins og útskýrt er að neðan. FRAM- OG BAKSTYKKI: Setjið hægri skálm og vinstri skálm á sama hringprjón með hægri skálmina fyrst. Byrjið frá réttu á hægri skálm, prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, haldið áfram með A.1 eins og áður yfir þær lykkjur sem eftir eru á hægri skálm (passið uppá að mynstrið haldi áfram rétt miðað við þar sem skálmin endaði), haldið síðan áfram með mynstur yfir fyrstu (48) 52-56-56-60 (64-68) lykkjur á vinstri skálm (passið uppá að mynstrið haldið áfram rétt) og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni = (98) 106-114-114-122 (130-138) lykkjur í umferð. Setjið 1 nýtt merki í stykkið! NÚ ER STYKKIÐ MÆLT FRÁ ÞESSU MERKI! Haldið áfram með A.1 fram og til baka með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið við miðju að framan. Þegar stykkið mælist (3) 3-3-3-4 (5-5) cm frá merki (stillið af að næsta umferð sé prjónuð frá réttu) fellið af 1 lykkju í byrjun á 2 næstu umferðum (þ.e.a.s. kantlykkjur eru felldar af). Prjónið síðan 2 næstu umferðir með byrjun frá réttu þannig: Prjónið eins og áður yfir allar lykkjur og fitjið upp 4 nýjar lykkjur í lok umferðar (= vinstri kantur að framan). Snúið stykkinu, prjónið A.1 eins og áður yfir allar lykkjur (passið uppá að mynstrið haldi áfram rétt) og fitjið upp 4 nýjar lykkjur í lok umferðar frá röngu (= hægri kantur að framan). Nú eru (104) 112-120-120-128 (136-144) lykkjur í umferð. Haldið áfram með A.1 fram og til baka yfir allar lykkjur (þ.e.a.s. kantlykkjur eru ekki prjónaðar í garðaprjóni). Munið eftir HNAPPAGAT í hægri kanti að framan – sjá útskýringu að ofan. Þegar stykkið mælist (15) 20-24-27-30 (32-36) cm frá nýja merkinu, þ.e.a.s. (28) 33-41-51-60 (65-72) cm frá uppfitjunarkanti, skiptist stykkið í hvorri hlið. Framstykkin og bakstykkið eru nú prjónuð hvert fyrir sig eins og útskýrt er að neðan. HÆGRA FRAMSTYKKI: Byrjið frá réttu og prjónið eins og áður yfir fyrstu (27) 29-31-31-33 (35-37) lykkjur, fitjið síðan upp (7) 13-13-17-17 (21-25) nýjar lykkjur í lok umferðar fyrir ermi. Aðrar lykkjur eru settar á þráð fyrir bakstykki og vinstra framstykki. Haldið áfram með A.1 fram og til baka eins og áður, en passið uppá að mynstrið passi yfir allar lykkjur. JAFNFRAMT eru fitjaðar upp (6) 7-11-12-14 (18-21) nýjar lykkjur fyrir ermi í lok 2 næstu umferðum frá réttu = (46) 56-66-72-78 (92-104) lykkjur í umferð. Haldið áfram með mynstur fram og til baka yfir allar lykkjur þar til stykkið mælist (22) 28-32-35-38 (41-45) cm frá merki, þ.e.a.s.(35) 41-49-59-68 (74-81) cm frá uppfitjunarkanti. Í byrjun á næstu umferð frá réttu eru fyrstu (8) 8-9-11-11 (12-12) lykkjurnar settar á þráð fyrir hálsmáli, en til að koma í veg fyrir að klippa frá þráðinn sem prjónað er með, prjónið lykkjurnar áður en þær eru settar á þráðinn. Haldið áfram með mynstur fram og til baka eins og áður og fellið af fyrir hálsmáli í byrjun hverrar umferðar frá miðju að framan þannig: Fellið af 2 lykkjur 1 sinni og 1 lykkju (1) 1-2-2-2 (3-3) sinnum = (35) 45-53-57-63 (75-87) lykkjur eftir á prjóni. Prjónið síðan áfram þar til allur gallinn mælist ca (24) 30-34-37-41 (44-49) cm frá merki, þ.e.a.s. (37) 43-51-61-71 (77-85) cm frá uppfitjunarkanti, en passið uppá að næsta umferð sé prjónuð frá réttu. Prjónið 2 umferðir garðaprjón fram og til baka yfir allar lykkjur. Fellið síðan af með sléttum lykkjum frá réttu. Allur gallinn mælist ca (38) 44-52-62-72 (78-86) cm frá uppfitjunarkanti. Prjónið nú bakstykki eins og útskýrt er að neðan. BAKSTYKKI: Setjið fyrstu (50) 54-58-58-62 (66-70) lykkjur af þræði (séð frá réttu) á hringprjón 4 og haldið áfram með A.1 fram og til baka yfir þessar lykkjur eins og áður. JAFNFRAMT eru fitjaðar upp nýjar lykkjur fyrir ermar í lok hverrar umferðar í hvorri hlið þannig: Fitjið upp (7) 13-13-17-17 (21-25) lykkjur 1 sinni í hvorri hlið og síðan (6) 7-11-12-14 (18-21) lykkjur 2 sinnum í hvorri hlið = (88) 108-128-140-152 (180-204) lykkjur í umferð. Haldið áfram með mynstur fram og til baka yfir allar lykkjur þar til stykkið mælist (23) 29-33-36-40 (43-48) cm frá merki). Í næstu umferð eru felldar af miðju (14) 14-18-22-22 (26-26) lykkjur fyrir hálsmáli og hvor ermi/öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Fellið síðan af 2 lykkjur í næstu umferð frá hálsmáli = (35) 45-53-57-63 (75-87) lykkjur eftir á prjóni fyrir öxl/ermi. Prjónið síðan áfram þar til allur gallinn mælist ca (24) 30-34-37-41 (44-49) cm frá merki, en stillið af eftir framstykki og passið uppá að næsta umferð sé prjónuð frá réttu. Prjónið 2 umferðir garðaprjón fram og til baka yfir allar lykkjurnar. Fellið síðan af með sléttum lykkjum frá réttu. Prjónið hina öxlina/ermina á sama hátt. Í lokin er vinstra framstykkið prjónað eins og útskýrt er að neðan. VINSTRA FRAMSTYKKI: Setjið til baka þær (27) 29-31-31-33 (35-37) lykkjur sem eftir eru á þræði á hringprjón 4. Byrjið frá réttu og haldið áfram með A.1 fram og til baka eins og áður. JAFNFRAMT eru fitjaðar upp nýjar lykkjur fyrir ermi í lok 3 næstu umferða frá röngu þannig: Fitjið upp (7) 13-13-17-17 (21-25) lykkjur 1 sinni og síðan (6) 7-11-12-14 (18-21) lykkjur 2 sinnum = (46) 56-66-72-78 (92-104) lykkjur í umferð. Haldið áfram með mynstur fram og til baka yfir allar lykkjur þar til stykkið mælist (22) 28-32-35-36 38 (41-45) cm frá merki, þ.e.a.s. (35) 41-49-59-68 (74-81) cm frá uppfitjunarkanti. Í byrjun á næstu umferð frá röngu eru fyrstu (8) 8-9-11-11 (12-12) lykkjur settar á þráð fyrir hálsmáli, en til að sleppa við að þurfa að klippa þráðinn frá sem prjónað er með, prjónið lykkjur áður en þær eru settar á þráðinn. Haldið áfram með mynstur fram og til baka eins og áður og fellið af fyrir hálsmáli í byrjun á hverri umferð frá miðju að framan þannig: Fellið af 2 lykkjur 1 sinni og 1 lykkju (1) 1-2-2-2 (3-3) sinnum = (35) 45-53-57-63 (75-87) lykkjur eftir á prjóni. Prjónið síðan áfram þar til allur gallinn mælist ca (24) 30-34-37-41 (44-49) cm frá prjónamerki, þ.e.a.s. (37) 43-51-61-71 (77-85) cm frá uppfitjunarkanti, en passið uppá að næsta umferð sé prjónuð frá réttu. Prjónið 2 umferðir garðaprjón fram og til baka yfir allar lykkjur. Fellið síðan af með sléttum lykkjum frá réttu. Allur gallinn mælist ca (38) 44-52-62-72 (78-86) cm frá uppfitjunarkanti. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma innan við affellingarkantinn. Saumið sauma undir ermum. Saumið sauminn að innanverðu á skálmum innan við 1 kantlykkju í hvorri hlið. Saumið sauminn við miðju að framan frá neðst niðri á kanti að framan og niður innan við 1 kantlykkju í hvorri hlið. Saumið saman op á milli skálma. Brjótið uppá stykkið við merkið neðst á skálm. Saumið tölur í vinstri kant að framan. HETTA: Prjónið upp frá réttu ca 44 til 70 lykkjur í kringum hálsmál (meðtaldar lykkjur á þræði að framan). Prjónið 1 umferð slétt frá röngu þar sem aukið er út jafnt yfir til (58) 70-74-74-78 (86-86) lykkjur – sjá LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-2. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu og 1 umferð brugðið frá röngu. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið A.1A þar til 2 lykkjur eru eftir á prjóni og endið með A.1B (= 2 lykkjur). Haldið svona áfram með mynstur þar til hettan mælist (17) 18-19-20-21 (22-23) cm frá garðaprjóni í hálsmáli, en passið uppá að næsta umferð sé prjónuð frá réttu. Prjónið 2 umferðir garðaprjón fram og til baka yfir allar lykkjur. Fellið síðan af með sléttum lykkjum frá röngu. Leggið hettuna saman tvöfalda og saumið saum efst innan við affellingarkantinn. |
|||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||
|
|||||||
![]() |
|||||||
![]() |
|||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #trulywoolyonesie eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 28 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2026 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
|||||||
Skrifaðu athugasemd um DROPS Baby 33-8
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.