Cloud Chasing#cloudchasingsweater |
|
![]() |
![]() |
Prjónuð peysa með laskalínu úr 3 þráðum DROPS Melody. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með háum kraga og klauf í hliðum. Stærð S - XXXL.
DROPS 194-15 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- ÚRTAKA-1: Byrjið 2 lykkjum á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, (prjónamerki situr hér), takið 1 lykkju óprjónað eins og prjóna eigi hana slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir. ÚRTAKA-2 (á við um ermar): ATH: Svo að úrtakan komi til skiptis hægri og vinstri hlið á stykki er lykkjum fækkað þannig: Í stærð S, M og L er lykkjum fækkað til skiptis í byrjun og í lok umferðar sem úrtakan fer fram í. Í stærð XL, XXL og XXXL er lykkjum fækkað í byrjun á hverri umferð sem úrtakan fer fram í (til skiptis frá réttu og frá röngu). Lykkjum er fækkað frá réttu þannig: Prjónið 2 lykkjur slétt saman. Lykkjum er fækkað frá röngu þannig: Prjónið 2 lykkjur brugðið saman. GALDRALYKKJA: Ef prjónað er í hring á hringprjón sem er of langur fyrir lykkjufjöldann er hægt að gera það þannig: Hringprjóninn á að vera langur og hafa sveigjanlega snúru. Færið lykkjurnar að miðju á snúrunni. Deilið lykkjunum í tvennt og dragið snúruna út á milli lykkja fyrir miðju. Færið lykkjurnar að prjónaendanum í hvorri hlið, passið uppá að lykkjurnar verði ekki snúnar. Þráðurinn sem prjóna á með er á aftari prjóni og þú byrjar á að prjóna með fremri prjóni. Dragið út aftari prjóninn til að prjóna lykkjurnar á þeim fremri. Þegar lykkjur á fremri prjóni hafa verið prjónaðar, snúið við og færið lykkjurnar til baka á auða prjóninn og prjónið hina hliðina á sama hátt. Haldið svona áfram hringinn, passið uppá að draga alltaf út prjóninn í þeirri hlið þar sem þú hefur þráðinn. LASKALÍNA: Aukið er út fyrir laskalínu hvoru megin við hvert prjónamerki (= 8 lykkjur fleiri í umferð). Aukið svona út, byrjið 1 lykkju á undan prjónamerki: Sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat. ÚTAUKNING (á við um fram- og bakstykki): Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat. GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna í byrjun, síðan á hringprjóna með GALDRALYKKJA þar til nægilegar margar lykkjur eru til að halda áfram með hringprjón 60 eða 80 cm eins og venjulegt er. Prjónað er ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar fram og til baka á hringprjón. BERUSTYKKI: Fitjið upp 40-40-44-44-48-52 lykkjur á sokkaprjón 12 með 1 þræði af hverjum lit (= 3 þræðir). Prjónið stroff með 2 lykkjur slétt og 2 lykkjur brugðið þar til stykkið mælist 9 cm. Setjið 4 prjónamerki í stykkið án þess að prjóna lykkjurnar þannig: Fyrsta prjónamerkið í byrjun á umferð, annað prjónamerki á eftir 14-14-16-16-18-20 lykkjur (= bakstykki), þriðja prjónamerki eftir 6 nýjar lykkjur (= ermi), fjórða prjónamerki á eftir 14-14-16-16-18-20 nýjar lykkjur (= framstykki), nú eru eftir 6 lykkjur fram að fyrsta prjónamerki (= ermi). Prjónið 1 umferð slétt, þar sem fækkað er um 1 lykkju hvoru megin við hvert prjónamerki – sjá ÚRTAKA-1 = 32-32-36-36-40-44 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 15, ATH: Í vöruúrvalinu okkar höfum við ekki styttri hringprjóna en 60 cm í prjónastærð 15. Nú hefur lykkjum fækkað þannig að ummálið á stykki er minna en 60 cm í stærð S - XXL. Prjónið þess vegna með GALDRALYKKJA – sjá útskýringu að ofan, þar til lykkjur hafa verið auknar út nægilega til að nota hringprjón 60 eða 80 cm. Prjónið sléttprjón, JAFNFRAMT í 2. umferð byrjar útaukning fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan. Aukið svona út í annarri hverri umferð 8-10-10-11-12-14 sinnum = 96-112-116-124-136-156 lykkjur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Útaukningu fyrir laskalínu í stærð M, L, XXL og XXXL er nú lokið. Í stærð S og XL er prjónuð 1 umferð til viðbótar þar sem aukið er út um 1 lykkju á fram- og bakstykki alveg eins (ekki er aukið út á ermum) = 4 lykkjur fleiri. Nú eru 100-112-116-128-136-156 lykkjur í umferð. Stykkið mælist ca 21-25-25-29-30-35 cm frá eftir stroffi og niður. Haldið síðan áfram án þess að auka út lykkjur í 3-0-2-1-0-0 umferðir til viðbótar. Stykkið mælist ca 25-25-28-30-30-35 cm frá eftir stroff og niður. Næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið 30-32-34-38-40-46 lykkjur (= bakstykki), setjið næstu 20-24-24-26-28-32 lykkjur á þráð (= ermi), fitjið upp 4-4-4-4-6-6 lykkjur undir ermi, prjónið 30-32-34-38-40-46 lykkjur (= framstykki), setjið næstu 20-24-24-26-28-32 lykkjur á þráð (= ermi), fitjið upp 4-4-4-4-6-6 lykkjur undir ermi. Setjið eitt prjónamerki í stykkið. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 68-72-76-84-92-104 lykkjur. Haldið áfram í sléttprjóni. Setjið 1 prjónamerki í hvora hlið, mitt í nýjar lykkjur sem fitjaðar voru upp (= 2-2-2-2-3-3 nýjar lykkjur hvoru megin við prjónamerki) og 34-36-38-42-46-52 lykkjur á milli prjónamerkja á bakstykki og framstykki. Nú er aukið út í hliðum þannig – sjá ÚTAUKNING: Þegar stykkið mælist 5 cm er aukið út um 1 lykkju á undan hverju prjónamerki. Þegar stykkið mælist 8 cm er aukið út um 1 lykkju á eftir hverju prjónamerki. Þegar stykkið mælist 10 cm er aukið út um 1 lykkju á undan hverju prjónamerki. Þegar stykkið mælist 12 cm er aukið út um 1 lykkju á eftir hverju prjónamerki. Nú eru 76-80-84-92-100-112 lykkjur í umferð. Prjónið nú áfram eftir mismunandi stærðum þannig: Stærð S, L, XL og XXL: Haldið síðan áfram hringinn í sléttprjóni þar til stykkið mælist 17-18-18-20 cm. Stærð M og XXXL: Haldið síðan áfram hringinn í sléttprjóni þar til stykkið mælist 19-17 cm og aukið jafnframt út þannig: Þegar stykkið mælist 14 cm er aukið út um 1 lykkju á undan hverju prjónamerki. Þegar stykkið mælist 16 cm er aukið út um 1 lykkju á eftir hverju prjónamerki. ALLAR STÆRÐIR: Nú eru 76-84-84-92-100-116 lykkjur í umferð. Þegar stykkið mælist 17-19-18-18-20-17 cm setjið 38-42-42-46-50-58 lykkjur á bakstykki á þráð. Prjónið síðan stroff fram og til baka yfir 38-42-42-46-50-58 lykkjur á framstykki. Skiptið yfir á hringprjón 12 og prjónið frá réttu: 2 lykkjur GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* þar til 4 lykkjur eru eftir á prjóni, prjónið 2 lykkjur slétt og endið með 2 lykkjur garðaprjón. Haldið svona áfram þar til stroffið mælist 6 cm og stykkið mælist alls 52-54-56-58-60-62 cm frá öxl og niður. Fellið laust af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Setjið lykkjur af þræði (bakstykki) á hringprjón 12, prjónið stroff fram og til baka alveg eins og á framstykki þar til stroffið mælist 12 cm. Klaufin á framstykki er 6 cm löng, klaufin á bakstykki er 12 cm löng. Alls mælist stykkið ca 58-60-62-64-66-68 cm frá öxl og niður á bakstykki. ERMI: Ermar eru prjónaðar fram og til baka á hringprjón og saumaðar saman í lokin. Setjið til baka 20-24-24-26-28-32 lykkjur af þræði á hringprjón 15 og fitjið upp 2-2-2-2-3-3 nýjar lykkjur í hvorri hlið = 24-28-28-30-34-38 lykkjur. Prjónið sléttprjón fram og til baka yfir allar lykkjur. Þegar stykkið mælist 4-4-2-4-4-2 cm fækkið um 1 lykkju hægra megin á stykki – sjá ÚRTAKA-2. Fækkið lykkjum til skiptis í vinstri og hægri hlið á stykki í annarri hverri - annarri hverri – annarri hverri - hverri-hverri-hverri umferð 8-12-12-14-14-18 sinnum (= 4-6-6-7-7-9 sinnum í hvorri hlið) = 16-16-16-16-20-20 lykkjur. Þegar stykkið mælist 33-34-31-30-29-24 cm skiptið yfir á hringprjón 12 og prjónið stroff (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 6 cm. Fellið laust af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Prjónið síðan hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið saum undir ermum í ystu lykkjubogana þannig að saumurinn verði ekki of þykkur. Saumið saman op undir ermum. |
|
![]() |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #cloudchasingsweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 26 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 194-15
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.