Anne skrifaði:
Hej. Jeg er nået til at skulle lave ærmekuppel og forstår ikke hvordan der skal tages ind i den forbindelse. \r\n1. Tages der ind på både start og slut af hver pind?\r\n2. Tages der både ind på ret og vrang pinde?\r\n3. Når der står: 2 masker til ærmet måler X, skal man så blive ved med at tage to masker ind og i så fald, hvor mange masker skal der så være i alt når der står luk de resterende m af?
01.06.2018 - 14:34DROPS Design svaraði:
Hei Anne. Når det står at du skal felle på begynnelsen av hver pinne i hver side, betyr dette at det felles fra både rettsiden og vrangsiden – kun på begynnelsen av pinnen. Når det står fell 4 masker 1 gang, betyr dette at det felles over 2 pinner: Fell 4 masker på starten av pinnen fra retten, snu arbeidet, fell 4 masker på starten av pinnen fra vrangen = 8 masker felt. Videre står det fell 2 masker til arbeidet måler X, da skal det felles på samme måte: 2 masker felles på begynnelsen av hver pinne til riktig mål. God fornøyelse.
06.06.2018 - 13:11
Csikósné Monika skrifaði:
Kedves Drops!Nem értem a * jelölésnél leírt kötésmódot!Kérek szépen segitséget!Mi az pl. hogy kezdőszél vetkező szeme?Köszönöm!Németül is probáltam de úgy sem értem.
03.03.2018 - 19:02DROPS Design svaraði:
Kedves Monika, itt a szegély szélét a lyuksornál félbe hajtjuk, és a kezdőszél szemeit egyenként összekötjük a kötőtűn levő szemekkel - varrás helyett így rögzítjük a dupla szélt. kezdőszél következő szemét kötjük össze a kötőtűn lévő következő szemmel. Sikeres kézimunkázást!
04.03.2018 - 18:45
Hannah Engebjerg skrifaði:
Er det rigtigt forstået at der ikke skal strikkes hulrække i mønster A1 og A3 i starten af mønstret, men hulrække i A2 som jo ligger imellem A1 og A3?
01.03.2018 - 21:53DROPS Design svaraði:
Hej Hannah, ja det stemmer, her strikker du kun retstrik (riller). God fornøjelse!
06.03.2018 - 16:03
Brigitte Fitzel skrifaði:
Sehr schönes Modell leider kann ich die Anleitung nicht finden. Es wird lediglich ein Foto zur Verfügung gestellt. Für eine Info lieben Dank im voraus Gruß Brigitte Fitzel
09.02.2018 - 14:08DROPS Design svaraði:
Liebe Frau Fitzel, die Anleitung kommt noch! Kommen Sie mal wieder vorbei.
09.02.2018 - 17:44
Annica Olsson skrifaði:
Varför kan man inte se mönstret till denna fina jumper?
09.02.2018 - 11:13
Annica Olsson skrifaði:
Sååå gullig midsommarnattsdröm ☺
09.02.2018 - 11:12
Cissi skrifaði:
Lite 50-tal. Jag gillar!!!
16.01.2018 - 11:13
Nadine skrifaði:
Trop mignon, les couleurs, l'effet dentelle, j'ai hâte de le réaliser !
12.12.2017 - 11:38
Lea Cadie skrifaði:
Adorable et simple
11.12.2017 - 21:15
Adele#adelesweater |
|||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||||
Prjónuð peysa með kanti með bylgjumynstri og klauf í hliðum. Stærð S - XXXL. Stykkið er prjónað úr DROPS Belle.
DROPS 187-14 |
|||||||||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað í hring): *1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*. GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.4. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. ATH: Fyrsta umferðin í mynsturteikningu er prjónuð frá röngu! ÚRTAKA-1: Til þess að reikna út hvernig fækka eigi jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 122 lykkjur), deilið þessum lykkjufjölda með fjölda úrtöku sem á að gera (t.d. 20) = 6,1. Í þessu dæmi þá eru prjónaðar ca 5. og 6. hver lykkja slétt saman. ÚRTAKA-2: Öll úrtaka er gerð frá réttu! Fækkið lykkjum á eftir 1 kantlykkju í garðaprjóni þannig: Takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð. Fækkið lykkjum á eftir 1 kantlykkju í garðaprjóni þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á prjóni, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 1 kantlykkja í garðaprjóni. ÚTAUKNING: Öll útaukning er gerð frá réttu! Aukið út um 1 lykkju innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn brugðið svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna, neðan frá og upp. Fyrst er prjónaður kantur í bylgjumynstri með litnum ljós beige. Síðan er skipt yfir í litinn fífill og prjónaðar eru 4 umferðir garðaprjón áður en haldið er áfram í sléttprjóni. Ermar eru prjónaðar fram og til baka á hringprjón. BAKSTYKKI: Fitjið upp 121-121-137-137-153-169 lykkjur með litnum ljós beige á hringprjón 4. Fyrsta umferðin er prjónuð frá röngu þannig: A.1 (= 5 lykkjur), A.2 – veljið mynstur fyrir þína stærð (= 8 mynstureiningar með 14-14-16-16-18-20 lykkjur), A.3 (= 4 lykkjur). Í 2 síðustu umferðum í A.1-A.3 er fitjuð upp 1 ný lykkja í lok umferðar (merkir klauf) – ATH: fækkað er um 1 lykkju í næst síðustu umferð í A.1 = 122-122-138-138-154-170 lykkjur. Þegar A.1 til A.3 er lokið er skipt yfir í litinn fífill. Prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 20-12-18-8-12-16 lykkjur jafnt yfir – lesið ÚRTAKA-1 = 102-110-120-130-142-154 lykkjur. Prjónið 1 umferð slétt frá röngu, 1 umferð slétt frá réttu og 1 umferð slétt frá röngu. Setjið eitt prjónamerki hér. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Prjónið nú sléttprjón með 1 kantlykkju í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, í hvorri hlið, JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 0-1-2-3-4-5 cm fækkið um 1 lykkju í hvorri hlið – lesið ÚRTAKA-2. Fækkið lykkjum svona með ca 4 cm millibili alls 4 sinnum = 94-102-112-122-134-146 lykkjur. Þegar stykkið mælist 21-22-23-24-25-26 cm fellið af lykkjur í hvorri hlið fyrir handveg þannig: Fellið af 3 lykkjur 1-2-2-3-4-5 sinnum, 2 lykkjur 1-1-2-3-4-5 sinnum og 1 lykkja 1-1-3-2-2-2 sinnum = 82-84-86-88-90-92 lykkjur. Haldið síðan áfram í sléttprjóni og 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 35-37-39-41-43-45 cm fellið af miðju 40-40-42-42-44-44 lykkjur fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Fellið síðan af 1 lykkju í næstu umferð frá hálsmáli = 20-21-21-22-22-23 lykkjur fyrir öxl. Haldið síðan áfram þar til stykkið mælist 38-40-42-44-46-48 cm (alls 46-48-50-52-54-56 cm frá öxl og niður). Fellið af. Passið uppá að affellingarkanturinn verði ekki stífur! Prjónið hina öxlina á sama hátt. FRAMSTYKKI: Fitjið upp og prjónið á sama hátt og bakstykki þar til stykkið mælist 30-32-33-35-36-38 cm frá prjónamerki. Setjið nú miðju 22-22-24-24-24-24 lykkjur á þráð fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Fellið síðan af fyrir hálsmáli í byrjun á hverri umferð frá hálsmáli þannig: Fellið af 2 lykkjur 4 sinnum og 1 lykkju 2-2-2-2-3-3 sinnum = 20-21-21-22-22-23 lykkjur fyrir öxl. Haldið síðan áfram þar til stykkið mælist 38-40-42-44-46-48 cm (alls 46-48-50-52-54-56 cm frá öxl og niður). Stillið af við bakstykki. Fellið af. Passið uppá að affellingarkanturinn verði ekki stífur! Prjónið hina öxlina á sama hátt. ERMI: Ermin er prjónuð fram og til baka á hringprjón neðan frá og upp. Fitjið upp 44-46-48-50-52-54 lykkjur á hringprjón 4 með litnum ljós beige. Prjónið mynstur þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, A.4 – ATH: Fyrsta umferð í mynsturteikningu er frá röngu og er prjónuð brugðið frá röngu, 1 kantlykkja í garðaprjóni. Í umferð sem kemur á eftir þar sem prjónað var saman við uppfitjunarkantinn (= umferð með ör í mynsturteikningu) er skipt yfir í litinn fífill. Setjið eitt prjónamerki hér. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Prjónið nú sléttprjón með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 8-5-5-4-4-3 cm er aukið út um 1 lykkju í hvorri hlið – lesið ÚTAUKNING! Aukið svona út í 6. hverri umferð 11-12-7-6-0-0 sinnum og í 4. hverri umferð 0-0-7-9-17-18 sinnum = 66-70-76-80-86-90 lykkjur. Þegar ermin mælist 33-33-32-32-31-31 cm (styttra mál í stærri stærðum vegna lengri ermakúpu og breiðari axla) fellið af fyrir ermakúpu í byrjun á hverri umferð í hvorri hlið þannig: Fellið af 4 lykkjur 1 sinni, 3 lykkjur 1 sinni, 2 lykkjur þar til ermin mælist 40-41-41-42-42-43 cm, fellið af 3 lykkjur 1 sinni og fellið af þær lykkjur sem eftir eru. Ermin mælist ca 44-45-45-46-46-47 cm meðtalinn kantur neðst niðri á ermi. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið axlir með lykkjuspori innan við affellingarkantinn. Saumið ermar í við fram- og bakstykki. Saumið saum undir ermum og haldið síðan áfram niður meðfram hlið að lykkju sem fitjuð var upp fyrir klauf (= 8 cm fyrir klauf). Saumið innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Endurtakið í hinni hliðinni. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Byrjið frá réttu og prjónið upp 100-100-106-106-112-112 lykkjur (meðtaldar lykkjur af þræði að framan) með litnum fífil og á hringprjón 4. Prjónið 4 umferðir GARÐAPRJÓN hringinn – sjá útskýringu að ofan. Prjónið síðan þannig: Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan A.4 í hring þar til umferð 7 í mynsturteikningu hefur verið prjónuð til loka. Prjónið 1 umferð slétt. Fellið af með sléttum lykkjum, en í 4. hverri lykkju er slegið 1 sinni uppá prjóninn. Uppslátturinn er felldur af eins og eigin lykkja. ATH: Affellingarkanturinn má ekki verða stífur, þá kemur kantur með uppábroti að snúa út eftir frágang. Brjótið uppá við gataumferð í A.4 þannig að kantur fyrir saum verði innan á flíkinni. Saumið affellingarkantinn við efsta garðaprjónið. Passið uppá að saumurinn verði ekki stífur! |
|||||||||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #adelesweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 37 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 187-14
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.