DROPS Belle
DROPS Belle
53% Bómull, 33% Viscose, 14% Hör
frá 638.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 5104.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Adele Cardigan

Prjónuð peysa með kanti með bylgjumynstri og klauf í hliðum. Stærð S - XXXL. Stykkið er prjónað úr DROPS Belle.

DROPS 187-13
DROPS Design: Mynstur vs-045
Garnflokkur B
-----------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS BELLE frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
350-350-400-450-450-500 g litur 04, fífill
50-100-100-100-100-100 g litur 03, ljós beige

DROPS HRINGPRJÓNAR (60 eða 80 cm) NR 4 – eða þá stærð sem þarf til að 21 lykkja og 28 umferðir með sléttprjóni verði 10 cm á breidd og 10 cm á hæð.

DROPS PERLUTALA, Blóm (hvít) NR 600: 5 st í allar stærðir.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Belle
DROPS Belle
53% Bómull, 33% Viscose, 14% Hör
frá 638.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 5104.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.4. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. ATH: Fyrsta umferðin í mynsturteikningu er prjónuð frá röngu!

ÚRTAKA-1:
Til þess að reikna út hvernig fækka eigi jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 122 lykkjur), deilið þessum lykkjufjölda með fjölda úrtöku sem á að gera (t.d. 20) = 6,1. Í þessu dæmi þá eru prjónaðar ca 5. og 6. hver lykkja slétt saman.

ÚRTAKA-2:
Öll úrtaka er gerð frá réttu!
Fækkið lykkjum á eftir 1 kantlykkju í garðaprjóni þannig: Takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð.
Fækkið lykkjum á eftir 1 kantlykkju í garðaprjóni þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á prjóni, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 1 kantlykkja í garðaprjóni.

ÚTAUKNING:
Öll útaukning er gerð frá réttu!
Aukið út um 1 lykkju innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn brugðið svo að ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni.

HNAPPAGAT:
Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan. 1 HNAPPAGAT = prjónið þriðju og fjórðu lykkju frá kanti slétt saman og sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt, svo það myndist gat.
Mælt frá prjónamerki á eftir kanti í bylgjumynstri + 4 umferðir garðaprjón neðst niðri á hægra framstykki og fellið af fyrir hnappagötum þegar stykkið mælist:
S: 1, 8, 15, 22 og 29 cm
M: 1, 9, 16, 23 og 30 cm
L: 1, 9, 17, 25 og 32 cm
XL: 1, 10, 18, 26 og 34 cm
XXL: 1, 10, 19, 27 og 35 cm
XXXL: 1, 10, 19, 28 og 37 cm

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna, neðan frá og upp. Fyrst er prjónaður kantur í bylgjumynstri með litnum ljós beige. Síðan er skipt yfir í litinn fífill og prjónaðar eru 4 umferðir garðaprjón áður en haldið er áfram í sléttprjóni. Ermar eru prjónaðar fram og til baka á hringprjón.

BAKSTYKKI:
Fitjið upp 121-121-137-137-153-169 lykkjur með litnum ljós beige á hringprjón 4. Fyrsta umferðin er prjónuð frá röngu þannig: A.1 (= 5 lykkjur), A.2 – veljið mynstur fyrir þína stærð (= 8 mynstureiningar með 14-14-16-16-18-20 lykkjur), A.3 (= 4 lykkjur). Í 2 síðustu umferðum í A.1-A.3 er fitjuð upp 1 ný lykkja í lok umferðar (merkir klauf) – ATH: fækkað er um 1 lykkju í næst síðustu umferð í A.1 = 122-122-138-138-154-170 lykkjur. Þegar A.1 til A.3 er lokið er skipt yfir í fífill. Prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 20-12-18-8-12-16 lykkjur jafnt yfir – lesið ÚRTAKA-1 = 102-110-120-130-142-154 lykkjur. Prjónið 1 umferð slétt frá röngu, 1 umferð slétt frá réttu og 1 umferð slétt frá röngu. Setjið eitt prjónamerki hér. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Prjónið nú sléttprjón með 1 kantlykkju í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, í hvorri hlið, JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 0-1-2-3-4-5 cm fækkið um 1 lykkju í hvorri hlið – lesið ÚRTAKA-2. Fækkið lykkjum svona með ca 4 cm millibili alls 4 sinnum = 94-102-112-122-134-146 lykkjur. Þegar stykkið mælist 21-22-23-24-25-26 cm fellið af lykkjur í hvorri hlið fyrir handveg þannig: Fellið af 3 lykkjur 1-2-2-3-4-5 sinnum, 2 lykkjur 1-1-2-3-4-5 sinnum og 1 lykkja 1-1-3-2-2-2 sinnum = 82-84-86-88-90-92 lykkjur. Haldið síðan áfram í sléttprjóni og 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 35-37-39-41-43-45 cm fellið af miðju 40-40-42-42-44-44 lykkjur fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Fellið síðan af 1 lykkju í næstu umferð frá hálsmáli = 20-21-21-22-22-23 lykkjur fyrir öxl. Haldið síðan áfram þar til stykkið mælist 38-40-42-44-46-48 cm (alls 46-48-50-52-54-56 cm frá öxl og niður). Fellið af. Passið uppá að affellingarkanturinn verði ekki stífur!
Prjónið hina öxlina á sama hátt.

HÆGRA FRAMSTYKKI:
Fitjið upp 65-65-73-73-81-89 lykkjur á hringprjón 4 með litnum ljós beige.
Fyrsta umferð er prjónuð frá röngu þannig: Prjónið A.1 (= 5 lykkjur), A.2 – veljið mynsturteikningu fyrir þína stærð (= 4 mynstureiningar með 14-14-16-16-18-20 lykkjum), A.3 (= 4 lykkjur). Í næst síðustu umferð í mynsturteikningu er fitjuð upp 1 ný lykkja í lok umferðar frá réttu (= merkir klauf í hlið) = 65-65-73-73-81-89 lykkjur. Þegar A.1 til A.3 er lokið er skipt yfir í litinn fífill. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þegar fækkað er um 10-6-9-4-6-7 lykkjur jafnt yfir = 55-59-64-69-75-82 lykkjur. Prjónið 1 umferð slétt frá röngu, 1 umferð slétt frá réttu og 1 umferð slétt frá röngu. Setjið eitt prjónamerki hér. HÉÐAN ER NÚ MÆLT!
Prjónið nú áfram þannig – frá réttu – Munið eftir HNAPPAGAT: 4 kantlykkjur að framan í garðaprjóni (= við miðju að framan), sléttprjón þar til eftir er 1 lykkja, 1 kantlykkja í garðaprjóni (= að hlið), JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 0-1-2-3-4-5 cm fækkið um 1 lykkju í hlið. Fækkið lykkjum svona með ca 4 cm millibili alls 4 sinnum = 51-55-60-65-71-78 lykkjur. Þegar stykkið mælist 21-22-23-24-25-26 cm fellið af lykkjur í hlið fyrir handveg þannig: Fellið af 3 lykkjur 1-2-2-3-4-5 sinnum, 2 lykkjur 1-1-2-3-4-5 sinnum og 1 lykkju 1-1-3-2-2-2 sinnum = 45-46-47-48-49-51 lykkjur. Haldið síðan áfram í sléttprjóni, 1 kantlykkju í garðaprjóni í hlið og 4 kantlykkjur að framan í garðaprjóni við miðju að framan. Þegar stykkið mælist 30-32-33-35-36-38 cm prjónið þannig – frá réttu: Prjónið fyrstu 17-17-18-18-19-20 lykkjur áður en þær eru settar á þráð fyrir hálsmáli. Haldið síðan áfram í sléttprjóni og 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið og fellið af í byrjun á hverri umferð frá hálsmáli þannig: Fellið af 2 lykkjur 3 sinnum og 1 lykkju 2 sinnum = 20-21-21-22-22-23 lykkjur eftir. Haldið síðan áfram þar til stykkið mælist 38-40-42-44-46-48 cm (alls 46-48-50-52-54-56 cm frá öxl og niður). Fellið af. Passið uppá að affellingarkanturinn verði ekki stífur!

VINSTRA FRAMSTYKKI:
Ekki er fellt af fyrir hnappagötum í vinstra framstykki.
Fitjið upp 65-65-73-73-81-89 lykkjur á hringprjón 4 með litnum ljós beige.
Fyrsta umferð er prjónuð frá röngu þannig: Prjónið A.1 (= 5 lykkjur), A.2 – veljið mynsturteikningu fyrir þína stærð (= 4 mynstureiningar með 14-14-16-16-18-20 lykkjum), A.3 (= 4 lykkjur). Í síðustu umferð í mynsturteikningu er fitjuð upp 1 ný lykkja í lok umferðar frá röngu (= merkir klauf í hlið) = 65-65-73-73-81-89 lykkjur. Þegar A.1 til A.3 er lokið er skipt yfir í litinn fífill. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þegar fækkað er um 10-6-9-4-6-7 lykkjur jafnt yfir = 55-59-64-69-75-82 lykkjur. Prjónið 1 umferð slétt frá röngu, 1 umferð slétt frá réttu og 1 umferð slétt frá röngu. Setjið eitt prjónamerki hér. HÉÐAN ER NÚ MÆLT!
Prjónið nú áfram þannig – frá réttu: 1 kantlykkja í garðaprjóni (= í hlið), sléttprjón þar til eftir eru 4 lykkjur, 4 kantlykkjur að framan í garðaprjóni (= miðja að framan), JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 0-1-2-3-4-5 cm fækkið um 1 lykkju í hlið. Fækkið lykkjum svona með ca 4 cm millibili alls 4 sinnum = 51-55-60-65-71-78 lykkjur. Þegar stykkið mælist 21-22-23-24-25-26 cm fellið af lykkjur í hlið fyrir handveg þannig: Fellið af 3 lykkjur 1-2-2-3-4-5 sinnum, 2 lykkjur 1-1-2-3-4-5 sinnum og 1 lykkju 1-1-3-2-2-2 sinnum = 45-46-47-48-49-51 lykkjur. Haldið síðan áfram í sléttprjóni, 1 kantlykkju í garðaprjóni í hlið og 4 kantlykkjur í garðaprjóni við miðju að framan.
Þegar stykkið mælist 30-32-33-35-36-38 cm prjónið þannig – frá röngu: Prjónið fyrstu 17-17-18-18-19-20 lykkjur áður en þær eru settar á þráð fyrir hálsmáli. Haldið síðan áfram í sléttprjóni og 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið og fellið af í byrjun á hverri umferð frá hálsi þannig: Fellið af 2 lykkjur 3 sinnum og 1 lykkju 2 sinnum = 20-21-21-22-22-23 lykkjur eftir. Haldið síðan áfram þar til stykkið mælist 38-40-42-44-46-48 cm (alls 46-48-50-52-54-56 cm frá öxl og niður). Stillið af eftir hægra framstykki. Fellið af. Passið uppá að affellingarkanturinn verði ekki stífur!

ERMI:
Ermin er prjónuð fram og til baka á hringprjón neðan frá og upp.
Fitjið upp 44-46-48-50-52-54 lykkjur á hringprjón 4 með litnum ljós beige. Prjónið mynstur þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, A.4 – ATH: Fyrsta umferð í mynsturteikningu er frá röngu og er prjónuð brugðið frá röngu, 1 kantlykkja í garðaprjóni.
Í umferð sem kemur á eftir þar sem prjónað var saman við uppfitjunarkantinn (= umferð með ör í mynsturteikningu) er skipt yfir í litinn fífill. Setjið eitt prjónamerki hér. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Prjónið nú sléttprjón með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 8-5-5-4-4-3 cm er aukið út um 1 lykkju í hvorri hlið – lesið ÚTAUKNING! Aukið svona út í 6. hverri umferð 11-12-7-6-0-0 sinnum og í 4. hverri umferð 0-0-7-9-17-18 sinnum = 66-70-76-80-86-90 lykkjur. Þegar ermin mælist 33-33-32-32-31-31 cm (styttra mál í stærri stærðum vegna lengri ermakúpu og breiðari axla) fellið af fyrir ermakúpu í byrjun á hverri umferð í hvorri hlið þannig: Fellið af 4 lykkjur 1 sinni, 3 lykkjur 1 sinni, 2 lykkjur þar til ermin mælist 40-41-41-42-42-43 cm, fellið af 3 lykkjur 1 sinni og fellið af þær lykkjur sem eftir eru. Ermin mælist ca 44-45-45-46-46-47 cm meðtalinn kantur neðst niðri á ermi.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið axlir með lykkjuspori innan við affellingarkantinn. Saumið ermar í við fram- og bakstykki. Saumið saum undir ermum og haldið síðan áfram niður meðfram hlið að lykkju sem fitjuð var upp fyrir klauf (= 8 cm fyrir klauf). Saumið innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Endurtakið í hinni hliðinni. Saumið tölur í vinstri kant að framan.

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Byrjið frá réttu og prjónið upp 108-108-114-114-120-120 lykkjur (meðtaldar lykkjur af þræði á framstykki) með litnum fífill á hringprjón 4.
Prjónið 1 umferð slétt frá röngu, 1 umferð slétt frá réttu og 1 umferð slétt frá röngu. Prjónið síðan þannig:
UMFERÐ 1 (rétta): 1 kantlykkja í garðaprjóni, sléttar lykkjur þar til eftir er 1 lykkja, 1 kantlykkja í garðaprjóni.
UMFERÐ 2 (ranga): 1 kantlykkja í garðaprjóni, A.4 þar til eftir er 1 lykkja, 1 kantlykkja í garðaprjóni.
Haldið síðan svona áfram þar til 7. umferð í mynsturteikningu hefur verið prjónuð til loka. Prjónið síðan 1 umferð brugðið frá röngu með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Fellið af með sléttum lykkjum, en á undan 4. hverri lykkjur er slegið 1 sinni uppá prjóninn.
Uppslátturinn er felldur af eins og eigin lykkja. ATH: Affellingarkanturinn má ekki verða stífur, þá kemur uppábrotið að snúa út þegar flíkin er notuð. Brjótið niður við gataumferð í A.4 þannig að faldur fyrir saum verði að innanverður á flíkinni. Saumið affellingarkantinn við efsta garðaprjón. Passið uppá að saumurinn verði ekki stífur!

Mynstur

symbols = slétt frá réttu, brugðið frá röngu
symbols = brugðið frá réttu, slétt frá röngu
symbols = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður brugðið – það á að myndast gat
symbols = 2 lykkjur slétt saman
symbols = prjónið 4 lykkjur slétt saman þannig: Prjónið 4 lykkjur slétt, lyftið þeim til baka yfir á vinstri prjón, steypið næst síðustu lykkju yfir síðustu, endurtakið þar til allar 3 lykkjurnar hafa verið steyptar yfir (= 3 lykkjur færri). Lyftið síðustu prjónuðu lykkjunni til baka yfir á hægri prjón.
symbols = prjónið 4 lykkjur snúnar slétt saman þannig: Prjónið 4 lykkjur slétt, steypið næst síðustu lykkjunni sem var prjónuð yfir síðustu, endurtakið þar til allar 3 lykkjurnar hafa verið steyptar yfir (= 3 lykkjur færri).
symbols = prjónið 5 lykkjur slétt saman þannig: Prjónið 5 lykkjur slétt, lyftið þeim til baka yfir á vinstri prjón, steypið næst síðustu lykkjunni yfir síðustu, endurtakið þar til allar 4 lykkjurnar hafa verið steyptar yfir (= 4 lykkjur færri). Lyftið síðustu prjónuðu lykkjunni aftur til baka yfir á hægri prjón
symbols = prjónið 5 lykkjur snúnar slétt saman þannig: Prjónið 5 lykkjur slétt, steypið næst síðustu lykkjunni sem var prjónuð yfir síðustu, endurtakið þar til allar 4 lykkjurnar hafa verið steyptar yfir (= 4 lykkjur færri).
symbols = þessi umferð er prjónuð þannig: Brjótið uppá gataumferðina (= 4. umferð í mynsturteikningu) upp á röngu á stykki. Setjið fyrstu lykkju í uppfitjunarkanti yst á vinstri prjón, prjónið 2 fyrstu lykkjurnar (þ.e.a.s. fyrstu lykkju á prjóni + fyrstu lykkju frá uppfitjunarkanti) slétt saman. Setjið næstu lykkju á uppfitjunarkanti yst á vinstri prjón, prjónið 2 fyrstu lykkjurnar saman (þ.e.a.s. næsta lykkja í umferð + næsta lykkja frá uppfitjunarkanti). Haldið svona áfram og prjónið lykkju frá uppfitjunarkanti saman við næstu lykkju á vinstri prjóni þar til allar lykkjur hafa verið prjónaðar saman við uppfitjunarkant.
symbols = í þessari umferð er skipt yfir í litinn fífil
diagram
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 187-13

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (10)

country flag Maria Cecília wrote:

Olá! Com respeito, comento um erro em português: o modelo se tricota de baixo para cima e não ao contrário como diz nas instruções ;)

24.02.2022 - 10:43

country flag Giuseppina wrote:

I don't get what I have to do in the * (Star) Line - Line 8. "Den Rand an der Lochreihe (= 4. Reihe/Runde des Diagramms) zur Rückseite der Arbeit klappen." I really don't understand what I have to do here in the first sentence. Can anybody help?

22.12.2020 - 22:26

DROPS Design answered:

Dear Giuseppina, this video (with text in german, but just feel free to edit the language if necessary) is showing how to work this row with the star. Happy knitting!

23.12.2020 - 07:06

country flag Mary wrote:

Finished this lovely cardi today, and was a joy to knit, looks very pretty,. Took a lot of undoing to get the pattern correct, but worth the work as looks lovely. A good yarn to knit with.

25.05.2019 - 11:25

country flag Kee wrote:

Ik lees " kant dan af voor de mouwkop op het begin van iedere naald aan elke kant als volgt: Kant 1 keer 4 steken af, 1 keer 3 steken, en dan steeds 2 steken". Moet ik bij de 1e naald 4 steken afkanten en bij de 2e 3 steken, of moet ik bij de 1e en 2e naald 4 steken afkanten en bij de 3e en 4e 3 steken?

19.04.2019 - 20:41

DROPS Design answered:

Dag Kee,

Je kant bij de eerste naald 4 steken af, dan keer je het werk en kant je weer 4 steken af aan het begin van de teruggaande naald. Daarna kant je 3 steken af op zowel de heen- als teruggaande naald, enzovoort.

21.04.2019 - 17:08

country flag Annika wrote:

Vad menas med lejongap i detta mönster?

30.10.2018 - 07:59

DROPS Design answered:

Hei Annika. Det er garnet i den gule fargen. Jeg ser at dette fargenavnet egentlig skulle vært maskros på svensk (Fargenummer 4) - vi skal få rettet dette i oppskriften. Men det referer altså til det gule garnet. God fornøyelse

30.10.2018 - 09:14

country flag Terese wrote:

Hej! Hur mäter man längden på arbetet. Om man ska tex sticka till 32 cm. Och då får jag olika mått nästan varje gång. Ska arbetet ligga plant eller ska den hänga?

06.06.2018 - 20:38

DROPS Design answered:

Arbetet mäts då det ligger plant. Det är viktigt att man inte sträcker arb då det mäts.

07.06.2018 - 14:27

country flag Mari wrote:

Hei! Jeg trenger hjelp ang ermet. Det står øk hver 6. og hver 4. pinne. Skal jeg da øke først hver 6. pinne 7 ganger (størrelse L) også hver 4. pinne 7 ganger etter det? Eller skal det gjøres samtidig så det blir ca annenhver pinne?

03.05.2018 - 00:36

DROPS Design answered:

Hei Mari. Det skal gjøres etter hverandre. Altså: du skal øke på hver 6 pinne 7 ganger, og når du er ferdig med det skal det økes på hver 4 pinne 7 ganger. God fornøyelse.

23.05.2018 - 12:00

country flag Terese wrote:

Hej!\r\nNu när jag har stickat fram till där man mäter stickfastheten. Så blir det 19m×25v på 10×10cm på st 3.5. Måste jag göra om allt med st 3? Mvh/Terese

28.04.2018 - 11:27

country flag Nancy wrote:

Bij het rechtervoorpand moet je voor maat L 73 steken opzetten met beige. Na iedere naald moet je aan het einde van de naald aan de goede kant, 1 steek meerderen. Zodra je met boterbloem verder gaat, minder je 9 steken en heb je 64 steken op je naald.... waar zijn dan de steken gebleven die je gemeerdert hebt ? Volgens mij klopt er iets niet ?

26.04.2018 - 16:24

DROPS Design answered:

Dag Nancy, Er stond een fout in het patroon. Er moet staan 'een na laastste naald' in plaats van 'de volgende tot laatste naald'. Het is nu gecorrigeerd.

04.06.2018 - 06:28

country flag Ann wrote:

I need some advice reading the pattern charts please! On the right side of the knitting do I read the chart from right to left and on the wrong side from left to right?\r\nThnak you!

27.03.2018 - 17:41

DROPS Design answered:

Dear Ann, yes correct, and start reading diagram starting on the bottom corner on the right side. Happy knitting!

28.03.2018 - 15:13