DROPS Merino Extra Fine
DROPS Merino Extra Fine
100% Ull
frá 924.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 7392.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Golden Girl

Prjónuð peysa með köðlum, gatamynstri, laskalínu og A-formi prjónuð ofan frá og niður. Stærð S - XXXL. Stykkið er prjónað úr DROPS Merino Extra Fine.

DROPS 187-25
DROPS Design: Mynstur me-130
Garnflokkur B
-----------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS MERINO EXTRA FINE frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
400-450-500-550-600-650 g litur 30, sinnep

DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (40 og 60 eða 80 cm) NR 4,5 – eða þá stærð sem þarf til að 20 lykkjur og 26 umferðir með sléttprjóni verði 10 cm á breidd og 10 cm á hæð.

DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (40 og 60 eða 80 cm) NR 4 – fyrir garðaprjón - eða þá stærð sem þarf til að 21 lykkja og 42 umferðir með garðaprjóni verði 10 cm á breidd og 10 cm á hæð.

DROPS KAÐLAPRJÓNN – fyrir kaðla.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Merino Extra Fine
DROPS Merino Extra Fine
100% Ull
frá 924.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 7392.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað í hring):
*1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.3.

ÚTAUKNING:
Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á milli 2 lykkja. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn, það eiga ekki að myndast göt.

ÚRTAKA (á við um ermi):
Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð, prjónið 2 lykkjur (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa lykkja), prjónið 2 næstu lykkjur slétt saman.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Berustykki og fram- og bakstykki er prjónað í hring á hringprjón, ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna.

BERUSTYKKI:
Fitjið upp 92-96-100-108-112-120 lykkjur á stuttan hringprjón 4 með Merino Extra Fine. Prjónið 6 umferðir GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Skiptið yfir á hringprjón 4,5. Prjónið næstu umferð (umferðin byrjar við miðju að aftan) þannig:
Prjónið 17-18-19-21-22-24 lykkjur slétt og aukið út um 1 lykkju – lesið ÚTAUKNING (= hálft bakstykki), * sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt *, prjónið frá *-* alls 12 sinnum (= 12 lykkjur fleiri = ermi), 34-36-38-42-44-48 lykkjur og aukið út um 3-1-3-1-3-3 lykkjur jafnt yfir (= framstykki), prjónið frá *-* alls 12 sinnum (= 12 lykkjur fleiri = ermi) og endið með 17-18-19-21-22-24 lykkjur slétt og aukið út um 2-0-2-0-2-2 lykkjur jafnt yfir (= hálft bakstykki) = 122-122-130-134-142-150 lykkjur.
Prjónið 1 umferð slétt, allur uppsláttur er prjónaður snúinn, það eiga ekki að myndast göt.
Prjónið síðan næstu umferð þannig:
Prjónið 15-15-19-19-19-23 lykkjur slétt, A.1a (= 6 lykkjur), 18-18-14-16-20-16 lykkjur slétt, A.2a (= 6 lykkjur), 31-31-39-39-39-47 lykkjur slétt, A.1a yfir næstu 6 lykkjur, 18-18-14-16-20-16 lykkjur slétt, A.2a yfir næstu 6 lykkjur og endið með 16-16-20-20-20-24 lykkjur slétt (= 2 lykkjur fleiri í hverri einingu A.1a og A.2a = alls 8 lykkjur fleiri) = 130-130-138-142-150-158 lykkjur.
ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Aukið nú áfram fyrir laskalínu JAFNFRAMT því sem mynstur er prjónað, lestu báða kaflana áður en þú prjónar áfram:

LASKALÍNA:
Í næstu umferð er aukið út um 1 lykkju með því að slá einu sinni uppá prjóninn hvoru megin við hvert A.1 og A.2 (= alls 8 lykkjur fleiri). Útaukni uppslátturinn er prjónaður slétt í næstu umferð, svo það myndist gat. Aukið svona út í annarri hverri umferð alls 21-25-27-30-33-36 sinnum.

MYNSTUR:
Þegar A.1a og A.2a hefur verið prjóna 1 sinni á hæðina, prjónið A.1b yfir A.1a og A.2b yfir A.2a. Mynsturteikning A.1b og A.2b er endurtekin á hæðina.
Þegar öll útaukning fyrir laskalínu er lokið eru 298-330-354-382-414-446 lykkjur í umferð. Prjónið síðan A.1c yfir A.1b og A.2c yfir A.2b (stilltu af hvora umferð þú byrjar á miðað við mynstur, þ.e.a.s. kaðall heldur áfram eins og áður og gataumferðin er prjónuð hvoru megin við hvern kaðal).

Prjónið síðan áfram þar til stykkið mælist 20-23-24-27-29-31 cm. Prjónið 1 umferð þar sem fækkað er um 2 lykkjur jafnt yfir í hverri einingu A.1c og A.2c (= alls 8 lykkjur færri) = 290-322-346-374-406-438 lykkjur.
Prjónið síðan sléttprjón yfir allar lykkjur.
Nú skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Prjónið 40-44-48-53-59-65 lykkjur slétt (= hálft bakstykki), setjið næstu 64-72-76-80-84-88 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8 lykkjur undir ermi, setjið 1 prjónamerki mitt í nýjar lykkjur, prjónið 81-89-97-107-119-131 lykkjur slétt (= framstykki), setjið næstu 64-72-76-80-84-88 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8 lykkjur undir ermi, setjið 1 prjónamerki mitt í nýjar lykkjur og endið með 41-45-49-54-60-66 lykkjur slétt (= hálft bakstykki) = 178-194-210-230-254-278 lykkjur.
Fram- og bakstykki og ermar er nú prjónað hvert fyrir sig.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
= 178-194-210-230-254-278 lykkjur. Prjónið A.3 (= 6 lykkjur) yfir miðju lykkjur í hlið undir hvorri ermi (= 3 lykkjur hvoru megin við hvort prjónamerki), þær lykkjur sem eftir eru, eru prjónaðar áfram í sléttprjóni. Þegar stykkið mælist 31-30-31-30-30-30 cm (nú eru ca 218-230-250-266-290-314 lykkjur í umferð) frá þar sem fram- og bakstykki skiptist frá ermum er skipt yfir á hringprjón 4 og prjónaðar eru 6 umferðir garðaprjón. Fellið af. Passið uppá að affellingarkanturinn verði ekki stífur, fellið e.t.v. af með 1 númeri grófari prjónum.

ERMI:
Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna. Setjið 64-72-76-80-84-88 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjón 4,5 og prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 8 lykkjum sem fitjaðar voru upp á fram- og bakstykki undir ermi = 72-80-84-88-92-96 lykkjur í umferð. Setjið eitt prjónamerki mitt í nýjar lykkjur undir ermi. Prjónið sléttprjón hringinn. Þegar stykkið mælist 2 cm er fækkað um 2 lykkjur mitt undir ermi – lesið ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með 2½-2-1½-1½-1½-1 cm millibili alls 15-18-19-20-21-22 sinnum = 42-44-46-48-50-52 lykkjur.
Þegar stykkið mælist 44-41-41-38-36-34 cm skiptið yfir á sokkaprjón 4 og prjónið 6 umferðir garðaprjón. Fellið af með sléttum lykkjum. Passið uppá að affellingarkanturinn verði ekki stífur, fellið e.t.v. af með 1 númeri grófari prjónum.
Ermin mælist nú alls 45-42-42-39-37-35 cm frá þar sem ermin skiptist frá fram- og bakstykki.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

Mynstur

symbols = brugðin lykkja
symbols = slétt lykkja
symbols = lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð
symbols = 2 lykkjur slétt saman
symbols = sláið 1 sinni uppá prjóninn á milli 2 lykkja, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt, það eiga að myndast göt
symbols = sláið 1 sinni uppá prjóninn á milli 2 lykkja, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt, það eiga ekki að myndast göt

symbols = setjið 3 lykkjur á kaðlaprjón aftan við stykkið, prjónið 3 lykkjur slétt, prjónið 3 lykkjur slétt af kaðlaprjóni
symbols = setjið 3 lykkjur á kaðlaprjón framan við stykkið, prjónið 3 lykkjur slétt, prjónið 3 lykkjur slétt af kaðlaprjóni
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 187-25

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (14)

country flag Christina wrote:

Hello! Can you explain why the stitches for the body from 178 become 218? As far as I understand the increases from A3 are 4+4=8. Do I knit A3 one time vertically? Thank you

16.08.2022 - 16:31

DROPS Design answered:

Dear Christina, when working A.3 on both sides of the jumper you will increase stitches (4 sts in each A.3 in height = 8 sts are increased after A.3 has been worked one time in height). You then repeat A.3 in height as before until body measures 31 cm from the division. You should have repeat A.3 approx. a total of 5 times in height (= 5 times x 4 sts x 2 sides = 40 sts increased + 178 sts at the beg of body = 218 sts). Happy knitting!

16.08.2022 - 17:10

country flag RJ wrote:

Pls guide how much Drops extra fine merino wool to buy for this Small sized sweater? Thank you.

27.09.2021 - 05:11

DROPS Design answered:

Dear RJ, you will always find the total amount of yarn required in grams at the beg of the pattern, under the header, ie in S: 400 g DROPS Merino Extra Fine /50 g a ball = 8 balls in size S. Happy knitting!

27.09.2021 - 08:43

country flag Roberta Ghezzi wrote:

Vorrei mettere la foto è possibile

02.04.2021 - 18:10

DROPS Design answered:

Buonasera Roberta, a questo link può inserire il suo progetto, oppure pubblicare un posto sui suoi social media e taggarci con #dropsdesign in modo che possiamo vedere il progetto. Buon lavoro!

03.04.2021 - 20:14

country flag Roberta Ghezzi wrote:

Ho fatto questo bel maglione ed ho seguito le vostre istruzioni per la taglia S. non ho fatto le maniche lunghe perchè ho usato un bellissimo cotone color corallo. Lo regalerò ad una giovanissima amica di mio figlio.

02.04.2021 - 17:38

country flag Françoise wrote:

Ma bordure en point mousse du bas du pull rebique et roule vers l’avant . Y a-t-il une raison à cela ? Dois je la refaire en prenant encore des aiguilles plus fines ? Merci de vos conseils !

03.12.2020 - 12:07

DROPS Design answered:

Bonjour Françoise, lavez (en suivant bien les indications de l'étiquette, du nuancier + ces quelques généralités) et faites sécher le pull bien à plat, ajoutez des épingles si besoin pour maintenir le bas. Bonnes finitions!

03.12.2020 - 16:15

country flag Pascaline wrote:

Vous dites "Juste après le jeté, tricotez 1 tour comme avant puis, tricotez A.1C et A.2C " Si je résume; rang 53 : dernière torsade de A1b, rg 54: jeté, rg 55 : normal- rg 56 : jeté (dernier de A1b) puis rg 57 : comme avant en tricotant les jeté à l'endroit comme vous le dites- rg 58 : premier rang de A1c avec jeté et rg 59: rg normal à en croire le diagramme A1c alors que je devrais avoir la torsade (5ème rang), Je suis désolée de ne pas comprendre

05.02.2019 - 11:44

DROPS Design answered:

Bonjour Pascaline, tout à fait, vous allez devoir commencer les jours de A.1c/A2c au 58ème rang et faire la torsade de ces 2 diagrammes au 59ème rang, et continuer ainsi, avec les jours tous les 2 tours de chaque côté de A.1c/A.2c et la torsade en décalage mais toujours tous les 5 tours pour ne pas la décaler entre les diagrammes b et c. Bon tricot!

05.02.2019 - 13:40

country flag Pascaline wrote:

Rebonjour, désolée, je ne comprends pas. L'augmentation par jeté se fait (si je ne me suis pas trompée ) sur les rangs pairs de A1a et A1b, c'est à dire sur les rangs précédents et suivants la torsade. Or, sur A1c, elle se fait sur le rang de la torsade, et sur rang impair, donc ça ne correspond pas..Puis je adapter et faire les jetés sur rangs pair de A1C?

05.02.2019 - 10:47

DROPS Design answered:

Bonjour Pascaline, après les augmentations du raglan, vous tricotez A.1C et A.2C au-dessus de A.1b et A.2b, simplement comme avant (= pas de transition entre les deux diagrammes, vous devez avoir le même nombre de rangs entre les torsades). Juste après le jeté, tricotez 1 tour comme avant puis, tricotez A.1C et A.2C (les jours de chaque côté des torsades vont remplacer les jetés des augmentations du raglan). Vous pouvez ajuster les jours pour qu'ils soient tous les rangs pairs, mais les torsades doivent toujours être faites comme avant, avec 5 rangs entre chaque. Bon tricot!

05.02.2019 - 11:15

country flag Pascaline wrote:

Bonjour Je suis bloquée entre A1b /A2b et A1C/A2C. j'ai fini A1b /A2b par la 21ème augmentation par jeté. Avant de commencer A1c et A2C, dois je faire un retour classique pour tricoter les jetés à l'endroit avant de commencer la première ligne A1C/A2c (dans ce cas là, il y a une ligne en plus entre la torsade =6 rangs au lieu de 5). ou dois-je directement commencer A1C/A2C mais alors, il y a deux jetés de suite, le 21ème rang et la première ligne de A1C/A2C ? merci

05.02.2019 - 07:54

DROPS Design answered:

Bonjour Pascaline, comme le pull se tricote en rond, on n'a pas de rang "retour", mais au tour suivant, tricotez les mailles comme elles doivent l'être: continuez A.1b et A.2b comme avant (si c'est un rang impair du diagramme, commencez A.1c et A.2c, sinon, tricotez encore une fois A.1b et A.2b et au tour suivant (rang impair de A.1b/A.2b, continuez en suivant A.1c/A.2c, en tricotant les jours avant/après les diagrammes si vous êtes sur un rang impair, et la torsade si vous avez bien 5 rangs depuis la dernière torsade. Bon tricot!

05.02.2019 - 09:24

country flag Paco wrote:

BOnjour, Je ne comprends pas dans l'étape raglan: il est indiqué de faire un jeté de chaque côté A1 et A2. On est bien d accord que sur un tour, il y a 2 A1 et deux A2? Donc, ca augmente de 8 mailles comme vous le précisez (2jetes autour de 4 A1/A2). Je ne vois pas comment vous arrivez au chiffre de "augmenter ainsi 21 fois au total tous les 2 tours(je dirais 2 tours= 16 augmentations) je vous remercie

29.01.2019 - 13:22

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Paco, c'est exact, on augmente bien de chaque côté de A.1 et de A.2 soit 8 mailles augmentées par tour d'augmentations. On augmente tous les 2 tours, donc après 2 tours d'augmentations, on aura augmenté un total de 16 mailles, après 3 tours d'augmentations un total de 24 mailles, mais toujours 8 mailles à chaque tour d'augmentations et donc 21 fois tous les 2 tours = 21 x 8 = 168 augmentations sur 21x2 tours = 42 tours. Bon tricot!

29.01.2019 - 16:29

country flag Martine PITSCHON wrote:

Bonjour : je tricote la taille S. Manches : 64m + 8m sous la manche. + 1m ds les 8m montées ? Le total ne peut être 72m ? Faut-il vraiment ajouter ces 8m supplémentaires ? Merci de votre réponse. Martine

10.09.2018 - 12:19

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Pitschon, vous aviez mis 64 m en attente pour la manche et vous relevez ensuite 1 maille dans chacune des 8 mailles montées sous la manche lorsque vous les avez mises en attente (ces mailles ont ensuite été tricotées pour les côtés du pull avec le dos/le devant) = on a bien 72 mailles pour la manche. Bon tricot!

11.09.2018 - 09:44