Debra skrifaði:
It says"work back until it measures 17 inches (size 7/8) now cast off the middle 22 sts for neck and shoulders are finished separately. Now continue in stocking stitch decrease 1 st at neck edge 17 sts remain for shoulder. Continue till work measures 17 inches" The measurements seem to be a little off.
29.12.2017 - 14:59DROPS Design svaraði:
Dear Debra, you first work until 44 cm (= 17.32 inches) then piece measures 45 cm (= 17.72 inches). Happy knitting!
02.01.2018 - 10:06
Monica skrifaði:
Ich hatte die Wolle (Nepal) passend zum KAL-Beginn bestellt. Da war der Verbrauch noch ganz anders angegeben. Dieser wurde nun korrigiert - und ich hab zu wenig graue Nepal da :( Sehr ärgerlich! Nächstes Mal bitte vor KAL-Beginn ausgiebig testen, danke.
03.12.2017 - 19:20
V Thorpe skrifaði:
Been trying to buy wool for this jumper for several days, wool warehouse and Purple sheep have no supplies. Very disappointed, difficult to explain to grandchid that promised umer may not be made. After colours were chosen. Is there likely to be a supply of this yarn available soon?
16.11.2017 - 12:43DROPS Design svaraði:
Dear Mrs V Thorpe, you can have a look there there may be some Air in some of the stores shipping to your country. Air will be then soon back in stock, or see alternatives suggested. Happy knitting!
16.11.2017 - 13:27
Merje skrifaði:
Mulle tundub, et lumememmeta seljaosal on jäänud puudu mõõtude osa enne käeaugu kahandust.
10.11.2017 - 10:15
Elizabeth Higuera skrifaði:
I think the "size in inches" at the top of the materials box is wrong. these look like adult numbers. Very cute pattern!
06.11.2017 - 19:06DROPS Design svaraði:
Dear Elizabeth, thanks for your feedback, measurements have been adjusted. Happy knitting!
09.11.2017 - 08:25
Frosty's Christmas Kids#frostyschristmassweater |
|||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||
Prjónuð peysa / jólapeysa fyrir börn með snjókalli úr DROPS Air eða DROPS Nepal. Stærð 2-12 ára.
DROPS Children 30-28 |
|||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.2 og A.3. Mynsturteikning A.3 sýnir hnút. Mynsturteikning A.2 (snjókall): Öll mynsturteikningin er prjónuð í sléttprjóni. Prjónið með 3 dokkur þannig sleppur maður við löng hopp með þráðinn á bakhlið. Þ.e.a.s. prjónið með 1 dokku með litnum milligrár Air/grár Nepal hvoru megin á peysu og 1 dokku mynsturlit mitt í peysu. ATH: Til að koma í veg fyrir göt í litaskiptum verður að vefja þræðina utan um hvorn annan. LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING (ermi): Byrjið 1 lykkju á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett í miðju á 2 lykkjum), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 lykkjur fleiri). Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Framstykki og bakstykki er prjónað fram og til baka (með eða án snjókalls á bakstykki) hvort fyrir sig á hringprjón. Þetta er gert til að það verði auðveldara að prjóna mynstur. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna/stuttan hringprjón. Saumið síðan ermar saman í ystu lykkjurnar á hliðum. Kantur í hálsmáli er prjónaður í hring í lokin. BAKSTYKKI- án snjókalls: Fitjið upp 52-54-58-60-64-68 lykkjur á hringprjón 4,5 með litnum milligrár Air eða litnum grár Nepal. Prjónið stroff (1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) þar til stykkið mælist 5 cm, skiptið yfir á hringprjón 5,5 og prjónið síðan sléttprjón þar til stykkið mælist 23-25-27-30-33-35 cm. Fellið nú af 1 lykkju í hvorri hlið fyrir handvegi = 50-52-56-58-62-66 lykkjur. Prjónið þar til stykkið mælist 33-36-39-43-47-51 cm. Fellið nú af miðju 16-18-20-22-22-24 lykkjur af fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Haldið áfram í sléttprjóni og fellið af 1 lykkju í næstu umferð frá hálsmáli = 16-16-17-17-19-20 lykkjur eftir á öxl. Prjónið síðan áfram þar til stykkið mælist 34-37-40-44-48-52 cm, prjónið 4 umferðir GARÐAPRJÓN (sjá útskýringu að ofan) yfir allar lykkjur, fellið síðan LAUST af. Stykkið mælist ca 35-38-41-45-49-53 cm frá öxl og niður. Prjónið hina öxlina á sama hátt. BAKSTYKKI – með snjókalli: Fitjið upp 52-54-58-60-64-68 lykkjur á hringprjón 4,5 með litnum milligrár Air eða litnum grár Nepal. Prjónið stroff (1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) þar til stykkið mælist 5 cm, skiptið yfir á hringprjón 5,5 og prjónið síðan sléttprjón. Þegar stykkið mælist ca 6-7-8-9-10-11 cm prjónið frá réttu þannig: 13-14-16-17-19-21 lykkjur sléttprjón, A.2 (= 26 lykkjur) – lesið MYNSTUR og skoðið myndband, 13-14-16-17-19-21 lykkjur sléttprjón. Haldið svona áfram þar til stykkið mælist 23-25-27-30-33-35 cm. Fellið nú af 1 lykkju í hvorri hlið fyrir handveg = 50-52-56-58-62-66 lykkjur. Haldið áfram í sléttprjóni og A.2. Þegar A.2 er lokið er haldið áfram í sléttprjóni með liltnum milligrár Air/grár Nepal þar til stykkið mælist 33-36-39-43-47-51 cm. Fellið nú af miðju 16-18-20-22-22-24 lykkjur fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Haldið áfram í sléttprjón og fellið af 1 lykkju í næstu umferð frá hálsmáli = 16-16-17-17-19-20 lykkjur eftir á öxl. Prjónið síðan áfram þar til stykkið mælist 34-37-40-44-48-52 cm, prjónið 4 umferðir GARÐAPRJÓN (sjá útskýringu að ofan) yfir allar lykkjur, fellið síðan LAUST af. Stykkið mælist ca 35-38-41-45-49-53 cm frá öxl og niður. Prjónið hina öxlina á sama hátt. FRAMSTYKKI – með snjókalli: Fitjið upp 52-54-58-60-64-68 lykkjur á hringprjón 4,5 með litnum milligrár Air eða grár Nepal. Prjónið stroff (1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) þar til stykkið mælist 5 cm, skiptið yfir á hringprjón 5,5 og síðan er prjónað sléttprjón. Þegar stykkið mælist ca 6-7-8-9-10-11 cm prjónið frá réttu þannig: 13-14-16-17-19-21 lykkjur sléttprjón, A.2 (= 26 lykkjur) – lesið MYNSTUR og skoðið myndband, 13-14-16-17-19-21 lykkjur sléttprjón. Haldið svona áfram þar til stykkið mælist 23-25-27-30-33-35 cm. Fellið af 1 lykkju í hvorri hlið fyrir handvegi = 50-52-56-58-62-66 lykkjur. Haldið áfram í sléttprjóni og A.2, þegar A.2 er lokið er haldið áfram í sléttprjóni og litnum milligrár Air/grár Nepal þar til stykkið mælist 31-34-37-40-43-47 cm. Setjið nú miðju 10-12-14-16-16-18 lykkjur á þráð fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Fellið af fyrir hálsmáli í byrjun á hverri umferð frá hálsmáli þannig: 2 lykkjur 1 sinni og 1 lykkja 2 sinnum = 16-16-17-17-19-20 lykkjur eftir á öxl. Prjónið síðan áfram þar til stykkið mælist 34-37-40-44-48-52 cm, prjónið 4 umferðir garðaprjón yfir allar lykkjur, fellið síðan LAUST af. Stykkið mælist ca 35-38-41-45-49-53 cm frá öxl og niður. Prjónið hina öxlina á sama hátt. ERMI: Fitjið upp 28-28-30-30-32-32 lykkjur á sokkaprjón 4,5 með litnum milligrár Air eða litnum grár Nepal. Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð = mitt undir ermi. Prjónið stroff (1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) þar til stykkið mælist 4 cm, skiptið yfir á sokkaprjón 5,5 og síðan er prjónað sléttprjón, skiptið e.t.v. yfir á hringprjón þegar nægilega margar lykkjur eru á prjóni. Þegar stykkið mælist 6 cm er aukið út um 2 lykkjur mitt undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING. Aukið svona út með 4-4-4-4-4-4 cm millibili alls 5-7-7-9-10-11 sinnum = 38-42-44-48-52-54 lykkjur. Þegar stykkið mælist 27-32-36-40-44-48 cm fellið LAUST af. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma innan við affelingarkantinn. Saumið saman framstykki og bakstykki í ystu lykkju. Saumið ermar í. KANTUR Í HÁLSMÁLI Prjónið upp frá réttu ca 58 til 68 lykkjur (lykkjufjöldinn verður að vera deilanlegur með 2) í kringum hálsmál (meðtaldar lykkjur af þræði að framan) á stuttan hringprjón 4,5 með litnum milligrár Air eða litnum grár Nepal. Prjónið stroff (1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) þar til stykkið mælist 4 cm. Fellið LAUST af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – passið uppá að affellingarkanturinn verði ekki stífur. NEF: Fitjið upp 8 lykkjur með 2 þráðum í litnum appelsínugulur Air eða Nepal á prjón 5,5 (skiljið eftir ca 30 cm enda, hann er notaður í fyllingu í lokin). Prjónið síðan með 1 þræði. Prjónið 1 umferð brugðið. Næsta umferð er prjónuð þannig: 1 lykkja slétt, 2 lykkjur slétt saman, 5 lykkjur slétt = 7 lykkjur. Prjónið 1 umferð brugðið. Prjónið 3 lykkjur slétt, 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt = 6 lykkjur. Prjónið 1 umferð brugðið. Prjónið 1 lykkju slétt, 2 lykkjur slétt saman, 3 lykkjur slétt = 5 lykkjur. Klippið frá (skiljið eftir ca 30 cm enda, hann er notaður síðar í frágang), dragið endann í gegnum þær lykkjur sem eftir eru. Saumið saman hliðina og leggið löngu endana frá uppfitjuninni inn í nefið sem fyllingu. Saumið nefið saman mitt á höfuðið á snjókallinum. TREFILL: Fitjið upp 62 lykkjur á prjón 5,5 með litnum páfuglablár Air eða litnum djúpsævi Nepal. Prjónið 2 umferðir í sléttprjóni. Fellið af. Þræðið trefilinn í gegnum peysuna við háls á snjókalli og upp að réttu í hinni hlið á hálsi. Hnýtið trefilinn saman með tvöföldum hnút á framhlið. SNJÓR, TÖLUR OG AUGU: Gerið 12 hnúta með litnum natur Air eða Nepal fyrir snjó og 5 hnúta með afgang af litnum svartur Air eða Nepal fyrir tölur og augu þannig: 1 hnútur: Klippið 1 þráð ca 40 cm. Gerið 4 hnúta utan um prjón 5,5 sjá mynsturteikningu A.3 (þ.e.a.s. gerið 3 LAUSA hnúta, gerið 1 hnút til viðbótar og herðið á þræði á þessum hnút = 1 hnútur). Leggið hnútana yfir framstykki á peysu, þræðið endana í gegn hvoru megin við lykkju á peysu og hnýtið á röngu – sjá mynd. |
|||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||
|
|||||||||||||
![]() |
|||||||||||||
![]() |
|||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #frostyschristmassweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 30 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS Children 30-28
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.