Selina Konrad skrifaði:
Hallo liebes Drops Team! Ich habe die gleiche Frage wie Jule. Also ich habe jetzt die zweite Reihe von Diagramm A1 gestrickt und habe mit der Farbe ocker und mit einer randmasche in Kraus rechts aufgehört. Wenn ich jetzt in Reihe drei eine randmasche in Kraus rechts mache und dann mit ocker anfange, ist ja ocker über ocker und weiß über weiß. Das ist dann nicht versetzt. Muss man am Anfang und am Ende eine randmasche in Kraus rechts Stricken? Liebe Grüße
05.08.2017 - 13:36DROPS Design svaraði:
Liebe Frau Konrad, das Diagram lesen Sie von dem unteren Ecke an der rechten Seite (Vorderseite), und dann rechts nach links bei den Hinreihen und links nach rechts bei den Rückreihen. In den 2 größeren Größe stricken Sie 1 Reihe mit Natur, 1 Reihe mit Oker, 1 Reihe mit Natur, 1 Reihe mit Oker, usw. Viel Spaß beim stricken!
07.08.2017 - 17:47
EMILIE skrifaði:
Bonjour, je tricote le gilet en taille 3/4 a, en uni, j'ai fini l'élargissement du dos (en dessous du col). je ne parviens pas à comprendre comment arriver par la suite à 211 m (quelle est al marche à suivre ?). De plus les diagrammes A1 sont en forme d'entonnoir et je ne comprends pas comment l'empiècement peut aller en s'élargissant. Merci d'avance pour votre aide !
04.05.2017 - 16:16DROPS Design svaraði:
Bonjour Emilie, la veste se tricote de haut en bas, l'empiècement se tricote du col vers les emmanchures (partie arrondie du schéma). On va d'abord commencer par tricoter: 1 m lis, 13 x A.1 (= 6 m au 1er rang), la 1ère m de A.1 (pour que le motif soit symétrique) et 1 m lis. On va ensuite augmenter régulièrement dans chaque motif (cf jetés) pour terminer avec 16 m dans chaque A.1, vous aurez ainsi: 1 m lis, 13 x 16 m, la 1ère m de A.1, 1 m lis soit 211 m. Bon tricot!
05.05.2017 - 08:59
Emilie skrifaði:
Bonjour, je tricote le gilet en taille 3/4 a, en uni, j'ai fini l'élargissement du dos (en dessous du col). je ne parviens pas à comprendre comment arriver par la suite à 211 m (quelle est al marche à suivre ?). De plus les diagrammes A1 sont en forme d'entonnoir et je ne comprends pas comment l'empiècement peut aller en s'élargissant. Merci d'avance pour votre aide !
04.05.2017 - 16:15
Jule skrifaði:
Hallo, was bedeutet: "enden mit der ersten Masche des Diagramms?" Ist das die allererste Masche von Reihe 1 oder von der jeweiligen Reihe? Dann verschiebt sich aber doch das ganze Diagramm und ich habe beispielsweise in Reihe 3 alle Farben übereinander statt versetzt. Oder wo liegt mein Denkfehler?
11.02.2017 - 17:01DROPS Design svaraði:
Liebe Jule, sie werden vor dem Rand-M die erste Masche deer jeweiligen Reihe stricken, so wird das Diagram symetrisch sein (der Umschlag am Anfang der Reihe muss aber nicht am Ende der Reihe gestrickt werden). Viel Spaß beim stricken!
13.02.2017 - 10:04
Prairie Fairy#prairiefairycardigan |
||||||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||||||||||||||
Prjónuð peysa með hringlaga berustykki og norrænu mynstri úr DROPS Lima. Stærð börn 3-12 ára
DROPS Children 27-5 |
||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. Mynstrið er prjónað í sléttprjóni. Sjá mynsturteikningu fyrir rétta stærð. LEIÐBEININGAR: Til að koma í veg fyrir að prjónfestan verði of stíf þegar mynstrið er prjónað er mikilvægt herða ekki á þráðum á bakhlið á stykki. Notið e.t.v. grófari prjóna þegar mynstrið er prjónað ef mynstrið herpist saman. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna ofan frá og niður. BERUSTYKKI: Fitjið upp 84-88-92-96-100 l á stutta hringprjóna nr 3 með litnum beige. 1 l GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, 2 l sl, * 2 l br, 2 l sl *, endurtakið frá *-* og endið með 1 l garðaprjón. Prjónið stroff í 3-3-4-4-5 cm (= kantur í hálsmáli). Skiptið yfir á stutta hringprjóna nr 4. Prjónið 1 umf slétt jafnframt sem lykkjufjöldinn er jafnaður út til 81-87-93-101-108 l. Setjið 1 prjónamerki eftir 40-43-46-50-54 l (= miðja að aftan). Prjónið síðan upphækkun að aftan í sléttprjóni þannig: Prjónið 8 l sl framhjá prjónamerki, snúið við, herðið á þræði og prjónið 16 l br til baka, snúið við, herðið á þræði og prjónið 24 l sl, snúið við og haldið áfram að prjóna yfir 8 l fleiri í hvert skipti sem snúið er við og þar til prjónað hefur verið yfir 24-24-32-32-40 l hvoru megin við prjónamerki við miðju að aftan, snúið við og prjónið sl út umf, prjónið 1 umf br til baka. Prjónið síðan þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, A.1 (= 13-14-15-14-15 mynstureiningar á breidd) endið á fyrstu l í mynstri og 1 kantlykkju í GARÐAPRJÓN – sjá mynsturteikningu fyrir rétta stærð! LESIÐ LEIÐBEININGAR! ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Skiptið yfir á lengri hringprjóna eftir þörf. Þegar A.1 er lokið eru 211-227-243-255-273 l á prjóni. Prjónið 0-1-2-0-1 cm með beige. Stykkið mælist nú ca 15-16-17-17-18 cm fyrir miðju að framan (mælt án stroffs í hálsmáli). Stykkið er nú prjónað með litnum beige og sléttprjóni. Fyrst er prjónuð 1 umf JAFNFRAMT er aukið út um 3-3-3-11-9 l jafnt yfir = 214-230-246-266-282 l. Næsta umf er prjónuð þannig: Prjónið 32-34-36-38-40 l (= framstykki), setjið næstu 44-48-52-58-62 l á þráð fyrir ermi (án þess að prjóna þær fyrst), fitjið upp 6 nýjar l, prjónið 62-66-70-74-78 l (= bakstykki), setjið næstu 44-48-52-58-62 l á þráð fyrir ermi (án þess að prjóna þær fyrst), fitjið upp 6 nýjar l, prjónið 32-34-36-38-40 l (= framstykki). FRAM- OG BAKSTYKKI: = 138-146-154-162-170 l. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Setjið 1 prjónamerki í hvora hlið, mitt í nýju 6 l sem fitjaðar voru upp. Haldið áfram í sléttprjóni og 1 l garðaprjóni í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 3 cm er aukið út um 1 l hvoru megin við prjónamerkin (4 l fleiri). Aukið út með 7-9-10-12-13 cm millibili alls 3 sinnum = 150-158-166-174-182 l. Haldið áfram þar til stykkið mælist 19-23-26-29-32 cm. Prjónið A.2 með eina kantlykkju í hvorri hlið. Skiptið yfir á hringprjóna nr 3. Prjónið 1 umf slétt frá réttu JAFNFRAMT er aukið út um 14 l jafnt yfir = 164-172-180-188-196 l. Prjónið 1 umf br frá röngu. Prjónið síðan þannig: 1 l garðaprjón, 2 l sl, * 2 l br, 2 l sl *, endurtakið frá *-* og endið með 1 l garðaprjón. Prjónið stroff í 3 cm. Fellið síðan af með sl yfir sl og br yfir br. ERMI: Setjið l af öðrum þræðinum á sokkaprjóna nr 4, fitjið að auki upp 6 l mitt undir ermi (setjið 1 prjónamerki mitt í þessa l) = 50-54-58-64-68 l. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Prjónið sléttprjón hringinn með beige. Þegar ermin mælist 2 cm, fækkið um 1 l hvoru megin við prjónamerkið. Endurtakið úrtöku með 4½-3½-4-3-3½ cm millibili alls 5-7-7-10-10 sinnum = 40-40-44-44-48 l. Þegar ermin mælist 18-23-27-30-34 cm, prjónið A.2, skiptið síðan yfir á sokkaprjóna nr 3. Prjónið stroff = 2 l sl, 2 l br í 3 cm, fellið síðan af með sl yfir sl og br yfir br. Prjónið hina ermina á sama hátt. KANTUR AÐ FRAMAN: Prjónið upp frá réttu ca 84 til 118 l meðfram hægra framstykki innan við 1 kantlykkju á hringprjóna nr 3 með litnum beige. Prjónið 1 umf br frá röngu JAFNFRAMT er aukið út jafnt yfir til 102-110-118-130-142 l. Næsta umf er prjónuð frá réttu þannig: * 2 kantlykkjur í garðaprjóni, * 2 l sl, 2 l br *, endurtakið frá *-* þar til 4 l eru eftir og endið með 2 l sl og 2 kantlykkjur í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff. JAFNFRAMT eftir 1 cm er fellt af fyrir 6-6-7-7-7 hnappagötum jafnt yfir. 1 hnappagat = prjónið 2 l slétt saman og sláið 1 sinni uppá prjóninn (fallegast er að fella af í 2 l br séð frá réttu). Efsta hnappagatið á að vera ca 1 cm frá kanti í hálsmáli og neðsta 8-8-10-10-10 cm frá neðri kanti. Fellið af með sl yfir sl og br yfir br þegar kanturinn mælist 3 cm. Endurtakið meðfram vinstra framstykki, nema ekki fella af fyrir hnappagötum á vinstri kanti að framan. FRÁGANGUR: Saumið saman op undir ermum. Saumið tölur í vinstri kant að framan. |
||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #prairiefairycardigan eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 30 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS Children 27-5
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.