DROPS Children 49 · Fullt af nýrri hönnun fyrir börn!
Product image DROPS Lima yarn
DROPS Lima
65% Ull, 35% Alpakka
frá 770.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 4620.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS AW2425

Hello Sunshine

Settið samanstendur af prjónaðri basker / alpahúfu og hálsskjóli með blaðamynstri, prjónað ofan frá og niður og prjónuðum handstúkum með blaðamynstri úr DROPS Lima.

DROPS 173-43

#hellosunshineset

DROPS Design: Mynstur nr li-073
Garnflokkur B
----------------------------------------------------------

ALPAHÚFA / BASKER:
Stærð: S/M - M/L
Höfuðmál: ca 54/56 - 56/58 cm

Efni:
DROPS LIMA frá Garnstudio
100-100 g litur nr 2923, gulur

DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (40 cm) NR 3,5 – eða þá stærð sem þarf til að 22 l x 30 umf með sléttprjóni verði 10 x 10 cm.
DROPS HRINGPRJÓNN (40 cm) NR 3 – fyrir stroff.
DROPS KAÐLAPRJÓNN – fyrir kaðla.

HÁLSSKJÓL:
Stærð: S/M - M/L
Mál:
Ummál að ofan ca 44-49 cm (smá strekkt).
Ummál að neðan ca 140-140 cm. Hæð ca 21-23 cm.

Efni:
DROPS LIMA frá Garnstudio
150-150 g litur nr 2923, gulur

DROPS HRINGPRJÓNAR (40 og 80 cm) NR 4 – eða þá stærð sem þarf til að 21 l x 28 umf með sléttprjóni verði 10 x 10 cm.
DROPS HRINGPRJÓNAR (40 og 80 cm) NR 3,5 – fyrir stroff.
DROPS KAÐLAPRJÓNN – fyrir kaðla.

HANDSTÚKUR:
Stærð: S/M - M/L
Mál:
Ummál ca 18-20 cm.
Lengd ca 22-23 cm.

Efni:
DROPS LIMA frá Garnstudio
100-100 g litur nr 2923, gulur

DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 3,5 – eða þá stærð sem þarf til að 22 l x 30 umf með sléttprjóni verði 10 x 10 cm.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 3 – fyrir stroff.
DROPS KAÐLAPRJÓNN – fyrir kaðla.

Í ALLT SETTIÐ:
300-350 g nr 2923, gulur

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

Þú gætir líka haft gaman af...

Product image DROPS Lima
DROPS Lima
65% Ull, 35% Alpakka
frá 770.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 4620.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

ALPAHÚFA / BASKER:

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 (veljið mynsturteikningu fyrir rétta stærð).

GALDRAHRINGUR:
Til þess að koma í veg fyrir göt í miðju er byrjað á þessari aðferð:
Haldið í endann með vinstri hendi og gerið lykkju utan um vinstri vísifingur (frá vinstri að hægri).
Haldið í lykkjuna með vinstri þumli og vísifingri. Stingið prjóninum í gegnum lykkjuna, sækið þráðinn frá dokkunni (þ.e.a.s. leggið þráðinn 1 sinni yfir prjóninn frá þér) og þráðinn til baka í gegnum lykkjuna, sláið 1 sinni uppá prjóninn (þráðurinn er nú lagður aftan við og að þér) og dragið uppsláttinn í gegnum l á prjóni, * stingið prjóninum inn í gegnum lykkjuna, sláið 1 sinni uppá prjóninn (þráðurinn er lagður aftan frá og að þér), dragið uppsláttinn í gegnum lykkjuna, sláið 1 sinni uppá prjóninn (aftan frá og að þér) og dragið uppsláttinn í gegnum síðustu l á hægri prjóni (þ.e.a.s. síðustu l sem var gerð) *, endurtakið frá *-* þar til 14 l eru á prjóni. Deilið l á 4 st sokkaprjóna nr 3,5 og prjónið eins og útskýrt er í uppskrift – JAFNFRAMT er dregið í þráðar endann þannig að lykkjan dragist saman og gatið hverfi.

AFFELLING:
Til að affellingarkanturinn verði ekki of stífur er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn eftir ca 4. hverja l (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg l).

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

ALPAHÚFA / BASKER - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna ofan frá og niður, skiptið yfir á hringprjóna eftir þörf.

ALPAHÚFA / BASKER:
Byrjið með GALDRAHRINGUR – sjá útskýringu að ofan og fitjið upp 14 l með Lima eins og útskýrt er frá að ofan – ATH: Ef óskað er eftir að byrja ekki með galdrahring þá eru fitjaðar upp 14 l á sokkaprjóna nr 3,5 með Lima (þegar húfan hefur verið prjónuð til loka þá er þráðurinn dreginn upp og niður í gegnum lykkjurnar í kringum opið á toppnum og hert að).
Skiptið l á 4 st sokkaprjóna nr 3,5 með 4 lykkjur á hverjum af fyrstu 3 prjónum og 2 lykkjur á síðasta prjóni. Prjónið síðan mynstur hringinn eftir mynsturteikningu A.1 (veljið mynstur fyrir rétta stærð = 7 mynstureiningar 2 l). ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka eru 112 l í umf í báðum stærðum og stykkið mælist ca 19-21 cm ofan frá og niður.
Skiptið yfir á hringprjóna nr 3 og prjónið stroff hringinn (= 2 l sl, 2 l br) – stillið af að prjónaðar séu 2 l sl yfir hvern mynsturkant og 2 l br + 2 l sl + 2 l br á milli mynsturkanta).
Þegar stroffið mælist 3-4 cm (eða að óskaðri lengd) fellið af með sl yfir sl og br yfir br – LESIÐ AFFELLING.

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

HÁLSSKJÓL:

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.2 til A.7.

ÚTAUKNING:
Aukið út um 1 l í skiptingunni á milli br og sl með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn br svo að ekki myndist gat.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

HÁLSSKJÓL - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna ofan frá og niður.

HÁLSSKJÓL:
Fitjið upp 120-135 l á hringprjóna nr 3,5 með Lima. Prjónið 1 umf slétt. Prjónið síðan stroff hringinn (= 2 l sl, 3 l br). Þegar stroffið mælist 3-4 cm er skipt yfir á hringprjóna nr 4. Prjónið síðan mynstur hringinn eftir A.2 (= 8-9 mynstureiningar 15 l) þar til A.2 hefur verið prjónað alls 2 sinnum á hæðina – JAFNFRAMT í síðustu umf eru öllum 3 l br fækkað til 2 l br (fækkið um 1 l með því að prjóna 2 l br saman = 24-27 l færri) = 96-108 l í umf. Prjónið nú 1 mynstureiningu á hæðina eftir A.3 alveg eins. Eftir A.3 mælist stykkið ca 7-8 cm. Prjónið síðan mynstur hringinn eftir A.4 (= 8-9 mynstureiningar 12 l). Þegar A.4 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina eru 128-144 l í umf (meðtalinn uppsláttur í mynstri) – ATH: Endið síðustu umf þegar 2 l eru eftir í umf, setjið 1 prjónamerki (hér byrjar nú umf).
Næsta umf er prjónuð þannig: * Prjónið A.5 (= 13 l), A.6 (= 3 l) *, endurtakið frá *-* alls 8-9 sinnum. Haldið svona áfram með mynstur og aukið út eins og útskýrt er í mynstri. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar A.5 hefur verið prjónað til loka eru 232-261 l í umf. Skiptið yfir á hringprjóna nr 3,5 og prjónið stroff hringinn eftir mynsturteikningu A.7 (= 8-9 mynstureiningar 29 l). JAFNFRAMT eftir 2 umf í stroffprjóni eru auknar út önnur hver 2 l br til 3 l br – LESIÐ ÚTAUKNING = 256-288 l. Eftir næstu 2 umf eru auknar út þær 2 l br sem eftir eru til 3 l br = 280-315 l. Þegar stroffið mælist 3-4 cm fellið laust af með sl yfir sl og br yfir br. Hálsskjólið mælist ca 21-23 cm ofan frá og niður.

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

HANDSTÚKUR:

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.8 og A.9.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

HANDSTÚKUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna.

HÆGRI HANDSTÚKA:
Fitjið upp 50-55 l á sokkaprjóna nr 3 með Lima. Prjónið 1 umf slétt. Næsta umf er prjónuð þannig: * 2 l sl, 3 l br *, endurtakið frá *-* alls 4-5 sinnum, 2 l sl, 1 l br, prjónið mynstur eftir mynsturteikningu A.8 (= 6 l), 1 l br, endurtakið frá *-* alls 4-4 sinnum. Haldið áfram með stroff og A.8 svona þar til stykkið mælist 3 cm. Fækkið nú öllum 3 l br til 2 l br umf hringinn = 40-44 l. Skiptið yfir á sokkaprjóna nr 3,5 og prjónið næstu umf þannig: Prjónið 18-22 l sléttprjón, haldið áfram með A.8 og endið með 16-20 l sléttprjón. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 8-9 cm (endið eins og eftir umf eins og umf merktri með með ör í mynstri), er prjónað mynstur eftir A.9 yfir A.8 (aðrar l eru prjónaðar í sléttprjóni). Haldið svona áfram með mynstur og aukið út of fækkið l eins og útskýrt er í mynstri. Þegar A.9 hefur verið prjónað til loka eru 48-52 l í umf og stykkið mælist ca 15-16 cm. Prjónið 1 umf sléttprjón og setjið JAFNFRAM miðju 10 l í A.9 á þráð fyrir þumal, að auki eru fitjaðar upp 2 nýjar l á prjóninn fyrir aftan þumal = 40-44 l á prjóni. Haldið áfram hringinn í sléttprjóni þar til stykkið mælist 19-20 cm (nú eru eftir ca 3 cm til loka – mátið e.t.v. handstúkuna og prjónið að óskaðri lengd). Skiptið yfir á sokkaprjóna nr 3 og prjónið 1 umf slétt þar sem aukið er út um 4 l jafnt yfir = 44-48 l. Prjónið nú stroff hringinn (= 2 l sl, 2 l br) í 3 cm. Fellið LAUST af með sl yfir sl og br yfir br. Öll handstúkan mælist ca 22-23 cm.

ÞUMALL:
Setjið til baka 10 l af þræði á sokkaprjóna nr 3,5 og prjónið upp 6 nýjar l á bakhlið á þumli = 16 l. Prjónið 2 umf sléttprjón (passið að prjóna þumalinn ekki of fast). Prjónið síðan stroff hringinn (= 2 l sl, 2 l br) í 3-3½ cm (eða að óskaðri lengd). Fellið af með sl yfir sl og br yfir br.

VINSTRI HANDSTÚKA:
Prjónið eins og hægri handstúka, nema spegilmynd, þ.e.a.s. fyrsta umf með stroffi er prjónuð þannig: * 3 l br, 2 l sl *, endurtakið frá *-* alls 4-4 sinnum, 1 l br, A.8 (= 6 l), 1 l br, 2 l sl, endurtakið frá *-* alls 4-5 sinnum. Eftir stoffið eru prjónaðar upp 16-16 l sléttprjón, A.8 og 18-22 l sléttprjón.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 14.08.2017
HÆGRI HANDSTÚKA:..Skiptið yfir á sokkaprjóna nr 3,5 og prjónið næstu umf þannig: Prjónið 18-22 l sléttprjón, haldið áfram með A.8 og endið með 16-20 l sléttprjón. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
VINSTRI HANDSTÚKA:… Eftir stoffið eru prjónaðar upp 16-16 l sléttprjón, A.8 og 18-22 l sléttprjón.

Mynstur

slétt lykkja = slétt lykkja
brugðin lykkja = brugðin lykkja
prjónið 1 lykkju slétt framan í og aftan í sömu lykkju (= 1 lykkja fleiri) = prjónið 1 lykkju slétt framan í og aftan í sömu lykkju (= 1 lykkja fleiri)
sláið 1 sinni uppá prjóninn á milli 2 lykkja, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt (= gat) = sláið 1 sinni uppá prjóninn á milli 2 lykkja, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt (= gat)
sláið 1 sinni uppá prjóninn á milli 2 lykkja, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt/snúinn brugðið eins og útskýrt er í uppskrift (= ekki gat) = sláið 1 sinni uppá prjóninn á milli 2 lykkja, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt/snúinn brugðið eins og útskýrt er í uppskrift (= ekki gat)
Kúla: Prjónið 1 lykkju slétt, 1 lykkju brugðið, 1 lykkju slétt í sömu lykkju (= 3 lykkjur), snúið við og prjónið 4 umferðir sléttprjón fram og til baka yfir þessar 3 lykkjur (1. umferð = brugðið frá röngu), lyftið síðan 2. lykkju af hægri prjóni yfir síðustu lykkju sem var prjónuð, lyftið síðan 3. lykkju yfir síðustu lykkju sem var prjónuð (= 1 lykkja eftir). = Kúla: Prjónið 1 lykkju slétt, 1 lykkju brugðið, 1 lykkju slétt í sömu lykkju (= 3 lykkjur), snúið við og prjónið 4 umferðir sléttprjón fram og til baka yfir þessar 3 lykkjur (1. umferð = brugðið frá röngu), lyftið síðan 2. lykkju af hægri prjóni yfir síðustu lykkju sem var prjónuð, lyftið síðan 3. lykkju yfir síðustu lykkju sem var prjónuð (= 1 lykkja eftir).
engin lykkja, hoppið yfir þessa rúðu = engin lykkja, hoppið yfir þessa rúðu
2 lykkjur slétt saman = 2 lykkjur slétt saman
lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir = lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir
setjið uppsláttinn á kaðlaprjón framan við stykkið, 1 lykkja brugðið, prjónið uppsláttinn snúinn slétt (= ekki gat) = setjið uppsláttinn á kaðlaprjón framan við stykkið, 1 lykkja brugðið, prjónið uppsláttinn snúinn slétt (= ekki gat)
setjið 1 lykkju brugðið á kaðlaprjón aftan við stykkið, prjónið uppsláttinn snúinn slétt (= ekki gat), prjónið 1 lykkju brugðið af kaðlaprjóni = setjið 1 lykkju brugðið á kaðlaprjón aftan við stykkið, prjónið uppsláttinn snúinn slétt (= ekki gat), prjónið 1 lykkju brugðið af kaðlaprjóni
setjið 1 lykkju á kaðlaprjón framan við stykkið, 1 lykkja brugðið, 1 lykkja slétt af kaðlaprjóni = setjið 1 lykkju á kaðlaprjón framan við stykkið, 1 lykkja brugðið, 1 lykkja slétt af kaðlaprjóni
setjið 1 lykkju á kaðlaprjón aftan við stykkið, 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið af kaðlaprjóni = setjið 1 lykkju á kaðlaprjón aftan við stykkið, 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið af kaðlaprjóni
2 lykkjur brugðið saman = 2 lykkjur brugðið saman
lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 2 lykkjur slétt saman, steypið lyftu lykkjunni yfir (= 2 lykkjur færri) = lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 2 lykkjur slétt saman, steypið lyftu lykkjunni yfir (= 2 lykkjur færri)
prjónið 3 lykkjur, lyftið fyrstu lykkjunni sem var prjónuð yfir 2 síðustu lykkjur þannig að lykkjan liggi utan um hinar tvær lykkjurnar (= 1 lykkja færri). = prjónið 3 lykkjur, lyftið fyrstu lykkjunni sem var prjónuð yfir 2 síðustu lykkjur þannig að lykkjan liggi utan um hinar tvær lykkjurnar (= 1 lykkja færri).
setjið 2 lykkjur á kaðlaprjón framan við stykkið, 1 lykkja brugðið, sláið 1 sinni uppá prjóninn, lyftið 1 lykkju af kaðlaprjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir (í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn brugðið) = setjið 2 lykkjur á kaðlaprjón framan við stykkið, 1 lykkja brugðið, sláið 1 sinni uppá prjóninn, lyftið 1 lykkju af kaðlaprjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir (í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn brugðið)
setjið 1 lykkju á kaðlaprjón aftan við stykkið, 2 lykkjur slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja brugðið af kaðlaprjóni (í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn brugðið) = setjið 1 lykkju á kaðlaprjón aftan við stykkið, 2 lykkjur slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja brugðið af kaðlaprjóni (í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn brugðið)
setjið 1 lykkju á kaðlaprjón framan við stykkið, 1 lykkja slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt af kaðlaprjóni (í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt = 1 lykkja fleiri) = setjið 1 lykkju á kaðlaprjón framan við stykkið, 1 lykkja slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt af kaðlaprjóni (í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt = 1 lykkja fleiri)
3 lykkjur brugðið saman = 3 lykkjur brugðið saman
Diagram for DROPS 173-43
Diagram for DROPS 173-43
Diagram for DROPS 173-43

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Skrifaðu athugasemd um DROPS 173-43

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (71)

country flag HACQUARD skrifaði:

Rebonjour. Pour le tour de cou, a la fin de A 5 il reste 27 mailles par dessin, 29 pour commencer les côtes. Est ce qu'il y a des mailles 2mailles de A 6 avant les côtes. Merci de votre réponse.

21.12.2024 - 14:43

DROPS Design svaraði:

Bonjour Mme Hacquard, quand A.5 est terminé, tricotez A.7 sur toutes les mailles du tour autrement dit répétez 8 ou 9 fois (cf taille) les 27 mailles de A.5 + les 2 mailles de A.6 (29x8-9=232-261. Bon tricot!

02.01.2025 - 09:49

country flag HACQUARD skrifaði:

Bonjour Je vous remercie de votre réponse. Là, j'ai un problème avec le tour de cou. Je ne comprends pas combien de fois il faut tricoter les 4rangs du diagramme A6en hauteur. Je vous remercie d'avance.

21.12.2024 - 11:38

DROPS Design svaraði:

Bonjour Mme Hacquard, répétez A.6 en hauteur en même temps que vous continuez A.5, autrement dit, quand A.6 est terminé, reprenez au 1er tour et continuez A.5 en même temps. Bon tricot!

02.01.2025 - 09:43

country flag Hacquard skrifaði:

Bonjour.\r\nDans le diagramme A1 au rang 34, j\' ai 10 mailles apres l\'augmentation au lieu de 9 et à la fin de ce meme rang 34 j\' ai 8 mailles envers et sur le diagramme c\'est 9. Il y a bien 26 mailles au rang 33 ?? 27 au rang 34 ??.\r\nJe vous remercie de m\'eclairer.

17.12.2024 - 06:28

DROPS Design svaraði:

Bonjour Mme Haquard, il y a bien 26 m au tour 33, et au tour 34, on augmente 1 maille dans la 1ère maille (3ème symbole), on a ainsi 27 mailles au tour 34. Bon tricot!

18.12.2024 - 09:13

country flag HACQUARD skrifaði:

Bonjour. Je vous remercie grandement pour votre réponse. Vos explications sont très claires Merci beaucoup

13.12.2024 - 09:16

country flag HACQUARD skrifaði:

Bonjour. Je vous remercie grandement pour votre réponse. Vos explications sont très claires Merci beaucoup

13.12.2024 - 09:11

country flag Hacquard skrifaði:

Bonjour. Tout d'abord merci pour votre réponse à ma précédente question. Aujourd'hui à propos du diagramme A1, au rang 33, j'aimerais que vous me disiez exactement comment on commence à tricoter les 8 premières mailles de ce rang 33 s'il vous plait. Je vous remercie grandement de votre réponse.

10.12.2024 - 14:28

DROPS Design svaraði:

Bonjour Mme Hacquard, au 33ème tour de A.1 (commencez ce tour avec la dernière maille du 32ème tour sur l'aiguille gauche) et tricotez ainsi: 1 jeté (qui sera tricoté torse au tour suivant), glissez 1 m à l'end (la dernière m du tour puis la dernière m end du motif précédent), 2 m ens à l'end, passez la m glissée par-dessus la m tricotée, 1 jeté (tricoté torse au tour suivant), 8 m env, glissez 1 m derrière, 1 m end, tricotez la m à l'env, 1 m env, 1 m end, glissez 1 m devant, 1 m env, tricotez la m à l'end, 8 m env. Bon tricot!

11.12.2024 - 09:38

country flag Hacquard skrifaði:

Bonjour. A propos du béret, j'aimerais savoir si au deuxième rang du diagramme A1 il y a bien 28 mailles en tout 4fois 7 - 3 endroit et une envers dans chaque dessin. Je vous remercie de votre réponse.

08.12.2024 - 22:43

DROPS Design svaraði:

Bonjour Mme Hacquard, tout à fait, on répète 7 fois le diagramme, et, au 1er tour on augmente 2 m dans chaque motif, on va ainsi avoir 4 m au 2ème tour x 7 motifs = 28 mailles sur l'aiguille. Bon tricot!

09.12.2024 - 09:25

country flag Helen skrifaði:

I'm attempting to knit the beret but I'm finding the instructions confusing. How many stitches do I cast on with my magic circle for a smaller sized hat? Is it 112? The A1 graph shows 16 stitches per pattern repeat but the instructions say 14. I'm so confused!

30.11.2024 - 19:04

DROPS Design svaraði:

Hi Helen, You cast on 14 stitches for both sizes (top of beret) according to Magic Circle. The A.1 diagram starts with 2 stitches (diagrams are worked bottom up and from right to left from the right side) which is repeated 7 times in width across the 14 stitches. The increases and decreases for the shape of the beret are included in the diagram. Hope this helps and happy crafting!

03.12.2024 - 06:51

country flag Anne Indsetviken skrifaði:

Hvordan begynner man på lua?

26.09.2024 - 22:43

DROPS Design svaraði:

Hei Anne. Start med MAGISK SIRKEL. Forklaringen står øverst i oppskriften, se gjerne hjelpevideoen: Hvordan legge opp med en sirkel = magic loop. mvh DROPS Design

07.10.2024 - 11:10

country flag Fontaine Patricia skrifaði:

Bonjour je vous remercie beaucoup pour ces précisions je vais donc essayer si j'ai besoin je reviendrais vers vous merci.

27.08.2024 - 18:48