Lillian Sølvsten skrifaði:
Hvis man strikker i alpakka brushed med silketråd skal der så bruges 2 tråde ?
02.10.2015 - 07:09DROPS Design svaraði:
Hej Lillian, Her ser du hvilke garner du kan kombinere og hvordan du gør: Klik her!
02.10.2015 - 15:19
Kody Doisy skrifaði:
Bonjour je desire tricoter ce modele ainsi que le sac 140-33. j'ai regarde pour les coloris et il y a toujours une ou plusieurs couleurs qui manquent . Il m'est impossible de me rendre dans un magasin pour voir les qualites et les coloris je n'ai pas de boutique tout pres de chez moi . Je voudrais profiter en meme temps des promotions . Je voulais commander chez Luce laine tricot . J'avais releve Alaska ou Nepal ou Air . Pouvez vous me renseigner SVP ? Merci
30.09.2015 - 11:43DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Kody Doisy, n'hésitez pas à contacter directement votre magasin DROPS par mail ou téléphone pour lui demander conseil, il pourra vous aider et vous renseigner en fonction de vos souhaits. Bon tricot!
30.09.2015 - 14:30
Nati skrifaði:
Könnte mir gefallen, sieht sehr leger aus
10.07.2015 - 11:52
Bodil Jensen skrifaði:
Hvor mange cm skal man strikke ærmerne længere, hvis man skal strikke lange ærmer?
07.07.2015 - 13:13DROPS Design svaraði:
Da er du nødt til at følge en opskrift med lange ærmer. Vi har ikke det som alternativ til denne opskrift, det er muligt at det kommer senere. God fornøjelse!
08.07.2015 - 14:59
Helle Bødker skrifaði:
Synes at ærmerne ser meget korte ud.
02.07.2015 - 06:57
Danielle Dupont skrifaði:
Superbe. Bravo! Et assez simple ne pense .
14.06.2015 - 20:14
Bodil Jensen skrifaði:
Jeg håber opskriften bliver med lange ærmer
11.06.2015 - 08:57
Naya Christensen skrifaði:
Dejlige lyse farver
03.06.2015 - 18:06
Naya Christensen skrifaði:
Dejlige lyse farver
03.06.2015 - 18:06
Liselotte skrifaði:
Fantastisk flot. Lækkert garn.
03.06.2015 - 12:12
Sjona#sjonasweater |
||||||||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Air með hringlaga berustykki og norrænu mynstri. Stærð S - XXXL.
DROPS 166-1 |
||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mysnsturteikningu A.1. Allt mynstrið er prjónað í sléttprjóni. LEIÐBEININGAR: Til að koma í veg fyrir að prjónfestan verði of stíf þá er mikilvægt að herða ekki á þráðum á bakhlið á stykki þegar mynstrið er prjónað. Notið e.t.v. grófari prjóna þegar mynstrið er prjónað ef það herpist aðeins saman. ÚRTAKA-1 (á við um fram- og bakstykki): Fækkið lykkjum á undan prjónamerki þannig (byrjið 3 l á undan prjónamerki): 2 l slétt saman, 1 l sl. Fækkið lykkjum á eftir prjónamerki þannig: 1 l sl, takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir. ÚRTAKA-2 (á við um berustykki): Til þess að reikna út hversu oft eigi að taka úr í umf, þá eru tekin heildartala í umf (t.d. 264 l) og deilt með fjölda úrtöku sem á að gera (t.d. 32) = 8,25. Þ.e.a.s. í þessu dæmi þá er ca 7. hver og 8. hver l prjónuð slétt saman. ÚTAUKNING: Byrjið 1 l á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna. FRAM- OG BAKSTYKKI: Fitjið upp 148-160-176-196-212-232 l á hringprjóna nr 5 með litnum perlugrár. Prjónið 1 umf sl, prjónið síðan stroff (= 2 l sl, 2 l br) í 4 cm. Skiptið yfir á hringprjóna nr 5,5 og prjónið 1 umf þar sem fækkað er um 2-0-0-2-0-2 l jafnt yfir = 146-160-176-194-212-230 l. Setjið 1 prjónamerki í byrjun umf og 1 prjónamerki eftir 73-80-88-97-106-115 l (= hliðar). Prjónið nú sléttprjón. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 8 cm er fækkað um 1 l hvoru megin við bæði prjónamerkin – LESIÐ ÚRTAKA-1 (= 4 l færri). Endurtakið úrtöku með 3 cm millibili, 4 sinnum til viðbótar = 126-140-156-174-192-210 l. Þegar stykkið mælist 24 cm er aukið út um 1 l hvoru megin við bæði prjónamerkin – LESIÐ ÚTAUKNING (= 4 l fleiri). Endurtakið útaukningu með 6-6-7-7-8-8 cm millibili, 2 sinnum til viðbótar = 138-152-168-186-204-222 l. Þegar stykkið mælist 38-39-40-41-42-43 cm fellið af miðju 8 l í hvorri hlið fyrir handveg (þ.e.a.s. fellið af 4 l hvoru megin við bæði prjónamerkin) = 61-68-76-85-94-103 l eftir á fram- og bakstykki. Geymið stykkið og prjónið ermar. ERMI: Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna. Fitjið upp 36-40-40-44-44-48 l á sokkaprjóna nr 5 með litnum perlugrár. Prjónið 1 umf sl, prjónið síðan stroff (= 2 l sl, 2 l br) í 5 cm. Skiptið yfir á sokkaprjóna nr 5,5 og prjónið 1 umf sl þar sem fækkað er um 1-4-2-3-2-3 l jafnt yfir = 35-36-38-41-42-45 l. Setjið 1 prjónamerki í byrjun umf (= miðja undir ermi) og prjónið sléttprjón. Þegar stykkið mælist 8 cm er aukið út um 1 l hvoru megin við prjónamerkið. Endurtakið útaukningu með 2½-2-2-2-1½-1½ cm millibili, 9-11-12-12-13-13 sinnum til viðbótar = 55-60-64-67-70-73 l. Þegar stykkið mælist 35-35-34-34-33-33 cm (styttra mál í stærri stærðum vegna breiðari axla), fellið af 8 l mitt undir ermi (þ.e.a.s. fellið af 4 l hvoru megin við prjónamerkið) = 47-52-56-59-62-65 l eftir á prjóni. Geymið stykkið og prjónið hina ermina á sama hátt. BERUSTYKKI: Setjið ermar á sama hringprjóna og fram- og bakstykki þar sem fellt var af fyrir handveg = 216-240-264-288-312-336 l. Prjónið 0-1-1-2-2-3 cm sléttprjón með litnum perlugrár. Prjónið síðan mynstur hringinn eftir mynstri A.1, JAFNFRAMT í umf merkta með ör 1 í mynstri er fækkað um 24-24-32-32-40-48 l jafnt yfir – LESIÐ ÚRTAKA-2 og LEIÐBEININGAR = 192-216-232-256-272-288 l. Haldið áfram með mynstur. Í umf merktri með ör 2 í mynstri er fækkað um 28-36-40-40-48-48 l jafnt yfir = 164-180-192-216-224-240 l. Haldið áfram með mynstur. Í umf merktri með ör 3 í mynstri er fækkað um 32-42-42-54-56-60 l jafnt yfir = 132-138-150-162-168-180 l. Haldið áfram með mynstur. Í umf merktri merð ör 4 í mynstri er fækkað um 42-44-52-60-62-70 l jafnt yfir = 90-94-98-102-106-110 l. Í umf merktri með ör 5 í mynstri (= síðasta umf), fækkið um 10 l jafnt yfir í öllum stærðum = 80-84-88-92-96-100 l. Prjónið nú upphækkun aftan við hnakka í sléttprjóni með litnum perlugrár, setjið 1 prjónamerki fyrir miðju að aftan, klippið frá og byrjið hér: Prjónið 7 l framhjá prjónamerki fyrir miðju að aftan, snúið við, herðið á þræði og prjónið 14 l br til baka, snúið við og herðið á þræði og prjónið 21 l sl, snúið við, herðið á þræði og prjónið 28 lykkjur brugðið til baka. Haldið svona áfram – prjónið yfir 7 l fleiri í hvert skipti sem snúið er við og prjónað hefur verið yfir alls 56-56-56-70-70-70 l, snúið við og prjónið 1 umf sl fram að miðju að aftan. Skiptið yfir á hringprjóna nr 5, prjónið síðan stroff 2 l sl, 2 l br hringinn yfir allar l í 3-3-4-4-5-5 cm. Fellið laust af með sl yfir sl og br yfir br. Berustykkið mælist ca 20-21-22-23-24-25 cm og öll peysan mælist ca 58-60-62-64-66-68 cm. FRÁGANGUR: Saumið saman op undir ermum. |
||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||
|
||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #sjonasweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 30 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 166-1
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.