Gudrun skrifaði:
Das Stricken ging flott von der Hand, nur hat leider trotz passender Maschenprobe die Mengenangabe für Größe S (400g) nicht ausgereicht. Muss jetzt leider warten, bis die fehlende Wolle ankommt. Dann gibt es eben ein "Nach-Oster-Geschenk" :))
26.03.2013 - 17:25
Åsa skrifaði:
Har kommit till resåren, och vid vändningarna blir det hål. Hur ska jag göra för att det ska bli en snygg resår?
14.03.2013 - 14:22DROPS Design svaraði:
Här ser du hur man gör fina vändningar:
Short rows basic from Garnstudio Drops design on Vimeo.
15.03.2013 - 09:13MARTHA LILIANA ALBA PEREZ skrifaði:
No le puedo encontrar como montar los puntos de manga... no se si se tomen encuenta los rematados que serian los de bajo de la manga...
13.02.2013 - 22:20
Benedikte Nobel skrifaði:
Der er fejl i den danske opskrift. I slutningen af ryg- og forstykke står "På næste omgang tages der 10 m ind i hver side til ærmegab (dvs tag 5 m ind på hver osv) ) Der skal stå "lukkes af". Mvh Benedikte Nobel
09.02.2013 - 14:59
Sigrid skrifaði:
Flott, praktisk og slik eg kunne tenkt meg ein sommardag!
30.01.2013 - 07:36
PAPETTI GIUSEPPINA skrifaði:
MIA FIGLIA SE NE è INNAMORATA E IO DOVRO' FARLA. FANTASTICA
29.01.2013 - 22:39
Jutta skrifaði:
Hallo, wie kette ich den bei der Armausschnittblende 5 M am Ende der Runde ab? Dann habe ich ja die letzte M irgendwo alleine übrig. Oder muss ich, bevor ich dieses Teil zur Seite lege, den Faden abschneiden und durchziehen, so als wäre ich fertig?
26.01.2013 - 13:28DROPS Design svaraði:
Liebe Jutta, ja die letzte Masche wird auch komplett abgekettet, der Faden wird durchgezogen.
27.01.2013 - 17:59Carole skrifaði:
Lovin it !!! fab for summer hope we get one
23.01.2013 - 15:28
Regina skrifaði:
Mein Favorit! Schade, dass ich das Modell nicht jetzt schon (Anleitung noch nicht veröffentlicht) in meine Favoriten aufnehmen kann...
12.01.2013 - 15:57
Moni skrifaði:
Dieses Teil könnte ich mir gut vorstellen....
11.01.2013 - 21:42
Kristin#kristintunic |
|||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||
Prjónuð tunika án erma úr DROPS Cotton Light með berustykki. Stærð S - XXXL
DROPS 147-2 |
|||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað í hring á hringprjóna): *1 umf slétt og 1 umf brugðið*, endurtakið frá *-*. ÚRTAKA: Fækkið lykkjum á undan prjónamerki þannig: Prjónið 2 l slétt saman. Fækkið lykkjum á eftir prjónamerki þannig: Takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- TUNIKA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna. FRAM- OG BAKSTYKKI: Fitjið upp 216-236-260-284-308-336 l á hringprjóna nr 3 með Cotton Light. Prjónið 4 umf GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Skiptið yfir á hringprjóna nr 4 og haldið áfram í sléttprjóni. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA. Þegar stykkið mælist 6-7-8-8-8-8 cm er sett 1 prjónamerki í byrjun umf og 1 prjónamerki eftir 108-118-130-142-154-168 l (= hliðar á fram- og bakstykki).Nú er fækkað um 1 l hvoru megin við bæði prjónamerkin – LESIÐ ÚRTAKA (= 4 l færri). Endurtakið úrtöku með 4½-4-3½-3½-3-3 cm millibili, 9-10-11-12-13-14 sinnum til viðbótar (= alls 10-11-12-13-14-15 úrtökur) = 176-192-212-232-252-276 l. Þegar stykkið mælist ca 49-50-51-52-53-54 cm, prjónið 4 umf garðaprjón yfir miðju 14 l í hvorri hlið (þ.e.a.s. 7 l garðaprjón hvoru megin við bæði prjónamerki – aðrar l eru prjónaðar í sléttprjóni eins og áður). Í næstu umf eru felldar af 10 l í hvorri hlið fyrir handveg (þ.e.a.s. fellið af 5 l hvoru megin við bæði prjónamerki) = 78-86-96-106-116-128 l eftir á fram- og bakstykki. Geymið stykkið og prjónið kant á ermum. KANTUR Á ERMUM: Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna. Fitjið upp 56-58-60-66-70-74 l á sokkaprjóna nr 4 með Cotton Light. Prjónið 4 umf garðaprjón. Í næstu umf eru felldar af 10 l við miðju undir ermi (þ.e.a.s. 5 l í byrjun og 5 l í lok umf) = 46-48-50-56-60-64 l. Geymið stykkið og prjónið hinn kant á ermi á sama hátt. BERUSTYKKI: Setjið inn kant á ermum á sama hringprjón nr 4 eins og fram- og bakstykki (án þess að prjóna inn l) = 248-268-292-324-352-384 l. Setjið 1 prjónamerki – HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Byrjið við miðju að aftan og prjónið 1 umf slétt JAFNFRAMT er fækkað um 10-2-12-2-2-6 l jafnt yfir = 238-266-280-322-350-378 l. Prjónið nú mynstur eftir A.1 (= 17-19-20-23-25-27 mynstureiningar í umf). Þegar A.1 hefur verið prjónað eru 136-152-160-184-200-216 l á prjóni. Prjónið nú stroff (= 1 l sl, 1 l br). JAFNFRAMT þegar stroffið mælist 1-2-3-4-5-6 cm, setjið 1 prjónamerki í miðju-l að framan. Prjónið nú upphækkun að aftan við hnakka með stuttum umferðum – byrjið frá réttu við miðju að aftan og haldið áfram með stroff fram og til baka þannig: Prjónið þar til eftir eru 24-26-28-30-32-34 l á undan l með prjónamerki, snúið við og prjónið frá röngu þar til eftir eru 24-26-28-30-32-34 l á undan l með prjónamerki í hinni hliðinni, snúið við. Prjónið þar til eftir eru 30-32-34-36-38-40 l á undan l með prjónamerki, snúið við og prjónið þar til eftir eru 30-32-34-36-38-40 l á undan l með prjónamerki í hinni hliðinni. Snúið við og prjónið þar til eftir eru 36-38-40-42-44-46 l á undan l með prjónamerki, snúið við og prjónið þar til eftir eru 36-38-40-42-44-46 l á undan l með prjónamerki í hinni hliðinni. Snúið við, prjónið þar til eftir eru 42-44-46-48-50-52 l á undan l með prjónamerki, snúið við og prjónið þar til eftir eru 42-44-46-48-50-52 l á undan l með prjónamerki í hinni hliðinni, snúið við og prjóni fram að miðju að aftan. Prjónið nú hringinn aftur yfir allar l. Prjónið 2 umf stroff. Prjónið nú mynstur eftir A.2 (veldu rétta mynsturteikningu fyrir þína stærð) JAFNFRAMT er fækkað um 8 l jafnt yfir í 1. umf = 128-144-152-176-192-208 l. Þegar A.2 hefur verið prjónað eru 112-126-133-132-144-156 l eftir á prjóni. Skiptið yfir á hringprjóna nr 3 og prjónið 1 umf slétt JAFNFRAMT er fækkað um 28-38-41-36-44-50 l jafnt yfir = 84-88-92-96-100-106 l. Prjónið 1 umf brugðið og 1 umf slétt, áður en fellt er laust af með br. FRÁGANGUR: Saumið saman op undir höndum. |
|||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||
|
|||||||||||||
![]() |
|||||||||||||
![]() |
|||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #kristintunic eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 28 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 147-2
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.