Grey Thistle Sweater#greythistlesweater |
|||||||
![]() |
![]() |
||||||
Prjónuð oversize / stór peysa úr DROPS Soft Tweed. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með evrópskri öxl / skáhallandi öxl, áferðamynstri og tvöföldum kanti í hálsmáli. Stærð XS - XXXL.
DROPS 264-36 |
|||||||
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. Þegar lykkjur eru auknar út í mynstri eiga útauknar lykkjur að prjónast í sléttprjóni (slétt frá réttu, brugðið frá röngu) þar til pláss er fyrir heila rúðu (= 2 lykkjur) á breidd. LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1: AUKIÐ ÚT UM 1 LYKKJU TIL VINSTRI – frá réttu: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð slétt í aftari lykkjubogann. AUKIÐ ÚT UM 1 LYKKJU TIL HÆGRI – frá réttu: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að aftan og lykkjan er prjónuð slétt í fremri lykkjubogann. LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-2: AUKIÐ ÚT UM 1 LYKKJU TIL VINSTRI – frá röngu: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að aftan og lykkjan er prjónuð brugðið í fremri lykkjubogann. AUKIÐ ÚT UM 1 LYKKJU TIL HÆGRI – frá röngu: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð brugðið í aftari lykkjubogann. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA: Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráðinn þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, prjónið 2 lykkjur slétt saman (merkið situr á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). LEIÐBEININGAR PRJÓN: Þegar prjónaðar eru stuttar umferðir myndast lítið gat þegar stykkinu er snúið við – hægt er að loka þessu gati með því að herða á þræði eða nota aðferðina German Short Rows þannig: Lyftið fyrstu lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið. Leggið síðan þráðinn yfir hægri prjón og herðið vel á þræði á bakhlið (þannig verða til tvær lykkjur á prjóninum). Þessar lykkjur eru prjónaðar saman í næstu umferð. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Í uppskriftinni eru notaðir prjónar af mismunandi lengd, byrjað er á þeirri lengd sem hentar fjölda lykkja og breyttu eftir þörfum. Stykkið er fyrst prjónað fram og til baka á hringprjóna. Byrjið á að fitja upp lykkjur aftan í hnakka. Prjónið síðan bakstykki niður á við samtímis sem aukið er út í hvorri hlið á stykki þar til lykkjufjöldi fyrir axlarvídd hefur verið náð. Bakstykkið hefur fengið smá skáhallandi öxl. Prjónið síðan niður að handvegi. Nú bíður bakstykkið á meðan framstykkið er prjónað. Framstykkið er fyrst prjónað í 2 stykkjum. Byrjið á að prjóna upp lykkjur meðfram annarri öxlinni frá bakstykki, samtímis sem aukið er út við hálsmál. Endurtakið á hinni öxlinni. Hægra og vinstra framstykki er sett saman þegar útaukningu er lokið fyrir hálsmáli. Síðan er framstykkið prjónað niður að handvegi. Nú er framstykkið og bakstykkið sett inn á sama hringprjón og fram- og bakstykkið er prjónað niður á við í hring á hringprjóna. Lykkjur eru prjónaðar upp fyrir ermar í kringum handveg og ermar eru prjónaðar niður á við. Fyrst er prjónað fram og til baka með stuttum umferðum til að forma ermakúpu, síðan eru ermarnar prjónaðar niður á við í hring. Í lokin eru lykkjur prjónaðar upp í kringum hálsmál og prjónaður er kantur í hálsmáli. BAKSTYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna. Fitjið upp 28-32-32-32-32-36-36 lykkjur á hringprjón 5 með DROPS Soft Tweed. Prjónið MYNSTUR – lesið útskýringu að ofan og prjónið þannig: UMFERÐ 1 (= ranga): Prjónið brugðið. UMFERÐ 2 (= rétta): Lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1 og prjónið 3 lykkjur slétt, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið A.1, þar til 3 lykkjur eru eftir (mynstrið byrjar og endar á sama hátt í hvorri hlið), aukið út 1 lykkju til hægri, prjónið 3 lykkjur slétt. UMFERÐ 3 (= ranga): Lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-2 og prjónið 3 lykkjur brugðið, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið A.1 þar til 3 lykkjur eru eftir (útauknar lykkjur eru prjónaðar eins og útskýrt er í MYNSTUR), aukið út 1 lykkju til hægri, prjónið 3 lykkjur brugðið. Á EFTIR UMFERÐ 3: Prjónið UMFERÐ 2 og 3 alls 16-17-19-21-23-24-25 sinnum (= 32-34-38-42-46-48-50 umferðir prjónaðar). Á eftir síðustu útaukningu eru = 92-100-108-116-124-132-136 lykkjur í umferð. Setjið 1 merki yst í hliðina. Héðan er nú stykkið mælt frá! Prjónið síðan mynstur eins og áður með 3 lykkjur í sléttprjóni í hvorri hlið - Munið að fylgja prjónfestunni – þar til stykkið mælist 11-10-10-11-11-11-9 cm mælt frá merki yst meðfram handvegi. Nú eru lykkjur auknar út í hvorri hlið fyrir handveg. ÚTAUKNING FYRIR HANDVEG: UMFERÐ 1 (= rétta): Munið eftir LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1 og prjónið 3 lykkjur slétt, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið mynstur eins og áður þar til 3 lykkjur eru eftir, aukið út 1 lykkju til hægri, prjónið 3 lykkjur slétt. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið mynstur eins og áður með 3 lykkjur brugðið í hvorri hlið. Prjónið UMFERÐ 1 og 2 alls 2-4-4-4-4-4-8 sinnum (= 4-8-8-8-8-8-16 umferðir prjónaðar) = 96-108-116-124-132-140-152 lykkjur í umferð. Prjónið síðan þar til stykkið mælist 13-13-13-14-14-14-15 cm, mælt frá merki yst meðfram handvegi, endið eftir umferð frá röngu. Klippið þráðinn, setjið lykkjurnar á þráð eða á hjálparprjón, nú er vinstra framstykkið prjónað meðfram vinstri öxl eins og útskýrt er að neðan. VINSTRA FRAMSTYKKI: Finnið vinstri öxl á bakstykki þannig: Leggið bakstykkið flatt með réttuna upp, leggið bakstykkið þannig að lykkjur frá þræði / hjálparprjóni snúa að þér, vinstri hlið á stykki = vinstri öxl. Nú eru lykkjur prjónaðar upp meðfram bakstykkis vinstri skáhallandi öxl – byrjið frá réttu við hálsmál og prjónið upp lykkjur út að handvegi þannig: Prjónið upp 1 lykkju í hverja prjónaða umferð, innan við ystu lykkju = 32-34-38-42-46-48-50 lykkjur. Öll mál á lengdina á framstykki eru gerð frá þessum kanti þar sem lykkjur eru prjónaðar upp. Prjónið mynstur þannig (fyrsta umferð er prjónuð frá röngu): UMFERÐ 1 (= ranga): 3 lykkjur brugðið, prjónið A.1 þar til 3 lykkjur eru eftir (munið eftir að mynsturteikningin er lesin frá vinstri til hægri þegar prjónað er frá röngu), prjónið 3 lykkjur brugðið. UMFERÐ 2 (= rétta): 3 lykkjur slétt, haldið áfram með A.1 þar til 3 lykkjur eru eftir, prjónið 3 lykkjur slétt. Haldið svona áfram með mynstur fram og til baka. Þegar stykkið mælist 5-5-6-6-7-7-7 cm, aukið út lykkjur að hálsmáli þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Munið eftir LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1 og prjónið 3 lykkjur slétt, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið mynstur eins og áður út umferðina. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið mynstur eins og áður með 3 lykkjur brugðið í hvorri hlið. Prjónið UMFERÐ 1 og 2 alls 8 sinnum (= 16 umferðir prjónaðar) = 40-42-46-50-54-56-58 lykkjur (næsta umferð er prjónuð frá réttu). Klippið þráðinn, setjið lykkjurnar á þráð eða á hjálparprjón, nú er hægra framstykkið prjónað meðfram hægri öxl eins og útskýrt er að neðan. HÆGRA FRAMSTYKKI: Nú eru prjónaðar upp lykkjur meðfram bakstykkis hægri skáhallandi öxl – byrjið frá réttu við öxl og prjónið upp lykkjur inn að hálsmáli þannig: Prjónið upp 1 lykkjur í hverja prjónaða umferð innan við ystu lykkju = 32-34-38-42-46-48-50 lykkjur. Öll mál á lengdina á framstykki eru gerð frá þessum kanti þar sem lykkjur eru prjónaðar upp. Prjónið mynstur þannig (fyrsta umferð er prjónuð frá röngu): UMFERÐ 1 (= ranga): 3 lykkjur brugðið, prjónið A.1 þar til 3 lykkjur eru eftir – ATH: Byrjið A.1 frá hálsmáli á sama hátt og A.1 endaði við hálsmál á vinstra framstykki, A.1 kemur þá til með að enda við handveg á sama hátt og A.1 byrjaði við handveg á vinstra framstykki þ.e.a.s. mynstrið á að speglast í hvorri hlið í hálsmáli), prjónið 3 lykkjur brugðið. UMFERÐ 2 (= rétta): 3 lykkjur slétt, haldið áfram með A.1 þar til 3 lykkjur eru eftir, prjónið 3 lykkjur slétt. Haldið svona áfram með mynstur fram og til baka. Þegar stykkið mælist 5-5-6-6-7-7-7 cm, aukið út lykkjur að hálsmáli þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið mynstur eins og áður þar til 3 lykkjur eru eftir, aukið út 1 lykkju til hægri, prjónið 3 lykkjur slétt - munið eftir LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið mynstur eins og áður með 3 lykkjur brugðið í hvorri hlið. Prjónið UMFERÐ 1 og 2 alls 8 sinnum (= 16 umferðir prjónaðar) = 40-42-46-50-54-56 lykkjur (næsta umferð er prjónuð frá réttu). Prjónið síðan framstykkin saman eins og útskýrt er að neðan. FRAMSTYKKI (hægra og vinstra stykki sett saman): Fyrsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið mynstur sem þegar er byrjað eins og áður yfir allar lykkjur á hægra framstykki, fitjið upp 12-16-16-16-16-20-20 lykkjur fyrir hálsmáli í lok þessarar umferðar, prjónið mynstur sem þegar er byrjað eins og áður yfir allar lykkjur á vinstra framstykki = 92-100-108-116-124-132-136 lykkjur í umferð. Næsta umferð er prjónuð frá röngu þannig: 3 lykkjur brugðið, prjónið mynstur eins og áður þar til 3 lykkjur eru eftir, prjónið 3 lykkjur brugðið. Prjónið þar til stykkið mælist 23-24-26-27-29-31-29 cm frá kanti þar sem lykkjur voru prjónaðar upp. Nú er aukið út í hvorri hlið fyrir handveg. ÚTAUKNING FYRIR HANDVEG: UMFERÐ 1 (= rétta): Munið eftir LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1 og prjónið 3 lykkjur slétt, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið mynstur eins og áður þar til 3 lykkjur eru eftir, aukið út 1 lykkju til hægri, prjónið 3 lykkjur slétt. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið mynstur eins og áður með 3 lykkjur brugðið í hvorri hlið. Prjónið UMFERÐ 1 og 2 alls 2-4-4-4-4-4-8 sinnum (= 4-8-8-8-8-8-16 umferðir prjónaðar) = 96-108-116-124-132-140-152 lykkjur í umferð. Prjónið síðan þar til stykkið mælist 25-27-29-30-32-34-35 cm, mælt frá kanti þar sem lykkjur voru prjónaðar upp – stillið af að mynstrið endar í sömu umferð í mynsturteikningu eins og á bakstykki, þ.e.a.s. A.1 á framstykki á að byrja og enda á sama hátt og A.1 á bakstykki innan við 3 lykkjur í sléttprjóni í hvorri hlið – endið með umferð frá röngu. Nú er framstykkið og bakstykkið sett saman fyrir fram- og bakstykki eins og útskýrt er að neðan. Stykkið er nú mælt héðan! FRAM- OG BAKSTYKKI: Prjónið A.1 yfir allar 96-108-116-124-132-140-152 lykkjur frá framstykki (einnig yfir 3 lykkjur í sléttprjóni í hvorri hlið, passið uppá að mynstrið haldi rétt áfram frá berustykki), fitjið upp 4-4-4-4-4-8-8 nýjar lykkjur í lok þessarar umferðar (= í hlið fyrir miðju undir ermi), prjónið A.1 yfir allar 96-108-116-124-132-140-152 lykkjur frá bakstykki og fitjið upp 4-4-4-4-4-8-8 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið fyrir miðju undir ermi) = 200-224-240-256-272-296-320 lykkjur í umferð. Haldið áfram með mynstur sem þegar er byrjað hringinn yfir allar lykkjur í umferð. Prjónið þar til stykkið mælist 25-25-25-25-25-24-25 cm frá skiptingunni, endið eftir slétta umferð í mynstri. Skiptið yfir á hringprjón 3,5 og prjónið fyrstu umferð þannig: Prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið) jafnframt sem aukið er út um 25-28-30-32-34-37-40 lykkjur jafnt yfir með því að auka út 1 lykkju í annarri hverri brugðinni einingu í mynstri = 225-252-270-288-306-333-360 lykkjur. Síðan er prjónað stroff þannig: * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt, 3 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* umferðina hringinn. Þegar stroffið mælist 4-4-4-5-5-6-6 cm fellið af aðeins laust með sléttum lykkjum. Peysan mælist ca 54-56-58-60-62-64-66 cm, mælt frá innst við hálsmál. ERMAR: Ermin er prjónuð frá handveg og niður. Leggið stykkið flatt og setjið 1 merki efst í handveg = fyrir miðju ofan á öxl - ATH! Miðja ofan á öxl er ekki á sama stað og lykkjur voru prjónaðar upp fyrir framstykki, heldur ca 6 til 10 cm niður á framstykki. Notið hringprjón 5 og prjónið upp lykkjur (notið e.t.v. fínni prjóna). PRJÓNIÐ UPP LYKKJUR ÞANNIG: Byrjið fyrir miðju í nýjum lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi – prjónið upp 68-72-76-84-88-96-100 lykkjur – stillið af að prjónaðar séu upp jafn margar lykkjur hvoru megin við merki. ERMAKÚPA: Til að flíkin passi betur prjónið A.1 með stuttum umferðum fram og til baka yfir ermakúpuna, umferðin byrjar fyrir miðju undir ermi og prjónið þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið slétt frá miðju undir ermi þar til 9-11-13-15-17-11-11 lykkjur eru eftir á undan merki ofan á öxl, prjónið A.1 yfir næstu 18-22-26-30-34-22-22 lykkjur, snúið stykkinu – lesið LEIÐBEININGAR PRJÓN. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið A.1 yfir fyrstu 20-24-28-32-36-26-26 lykkjur, lykkjurnar eru prjónaðar jafnóðum inn í A.1, snúið stykkinu. UMFERÐ 3 (= rétta): Prjónið A.1 þar til prjónað hefur verið 2-2-2-2-2-4-4 lykkjum fram hjá þar sem snúið var við í fyrra skipti, snúið stykkinu. UMFERÐ 4 (= ranga): Prjónið A.1 þar til prjónað hefur verið 2-2-2-2-2-4-4 lykkjum fram hjá þar sem snúið var við í fyrra skipti, snúið stykkinu. Endurtakið síðan UMFERÐ 3 og 4. Prjónið þar til snúið hefur verið við alls 18-18-18-18-18-18-20 sinnum (= 9-9-9-9-9-9-10 sinnum í hvorri hlið og síðasta umferð er prjónuð frá röngu). Á EFTIR SÍÐASTA SKIPTI SEM SNÚIÐ ER VIÐ: Í síðasta skipti sem umferð 4 er prjónuð þá endar umferðin með að snúa stykkinu, prjónið síðan frá réttu að byrjun á umferð (fyrir miðju undir ermi). Setjið 1 merkiþráð fyrir miðju undir ermi, það á að nota hann þegar fækka á lykkjum undir ermi. Látið merkiþráðinn fylgja áfram með í stykkinu. ERMIN ÁFRAM NIÐUR: Haldið áfram með A.1 hringinn yfir allar lykkjur JAFNFRAMT því sem fækka á lykkjum undir ermi, lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA og fækkið lykkjum þannig: Þegar ermin mælist 2 cm mælt fyrir miðju undir ermi er fækkað um 2 lykkjur í hverjum 2-2-2-2-2-1½-1½ cm alls 4-4-4-8-8-8-8 sinnum = 60-64-68-68-72-80-84 lykkjur í umferð. Prjónið síðan þar til ermin mælist 47-46-45-43-42-40-39 cm frá miðju ofan á öxl – endið eftir slétta umferð yfir allar lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjóna 3,5 og prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið) jafnframt sem aukið er út um 7-8-8-8-9-10-10 lykkjur jafnt yfir með því að auka út 1 lykkju í annarri hverri brugðinni einingu í mynstri = 67-72-76-76-81-90-94 lykkjur. Prjónið síðan stroff þannig: * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt, 3 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* þar til 4-0-4-4-0-0-4 lykkjur eru eftir, endið með 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið í stærð XS, M, L og XXXL (í stærð S, XL og XXL gengur stroffið upp með 9 lykkjur). Þegar stroffið mælist 4-4-4-5-5-6-6 cm fellið af aðeins laust með sléttum lykkjum. Ermin mælist ca 51-50-49-48-47-46-45 cm, mælt frá miðju ofan á öxl. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Notið hringprjón 3,5. Byrjið frá réttu við aðra axlalínuna og prjónið upp ca 84-92-92-96-96-104-108 lykkjur í kringum hálsmál innan við ystu lykkju, prjónið 1 umferð slétt þar sem lykkjufjöldinn e.t.v. er jafnaður út – lykkjufjöldinn verður að vera deilanlegur með 4. Prjónið stroff hringinn (= 2 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið) – stillið af að byrjun á stroffi sé þannig að stroffprjónið fyrir miðju að framan passi fallega yfir lykkjurnar sem fitjaðar voru upp í hálsmáli – prjónið þessar miðjulykkjur með brugðnum lykkjum yfir sléttar lykkjur og sléttar lykkjur yfir brugðnar lykkjur frá mynstri. Prjónið þar til stroffið mælist 9-9-9-10-10-11-11 cm. Skiptið yfir á hringprjón 5 og fellið af aðeins laust. Brjótið niður stroffið að innanverðu að stykki. Saumið stroffið niður þannig að það myndist tvöfaldur kantur í hálsmáli. Til að koma í veg fyrir að kanturinn dragi stykkið saman og beygist út, er mikilvægt að saumurinn sé teygjanlegur. |
|||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||
|
|||||||
|
|||||||
|
|||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #greythistlesweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 34 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
|||||||
Skrifaðu athugasemd um DROPS 264-36
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.