Cathy skrifaði:
Bonjour, j'ai tricoté ce modèle en Belle, en taille S et j'adore le modèle et sa construction. Mon échantillon était bon mais il est un peu trop large pour moi, je regrette que vous ne proposiez pas de taille XS
11.05.2025 - 08:18
Wanda skrifaði:
Bonjour, il y a un problème avec les diminutions des manches. La mesure entre 2 diminutions doit être plus ou moins divisée par 2 si l'on veut pouvoir faire toutes les diminutions avant de terminer la manche ! Par exemple en taille L, 8 diminutions tous les 6 cm ne peuvent être faites dans une manche mesurant 33 cm depuis la division sous la manche.
30.04.2025 - 11:20DROPS Design svaraði:
Bonjour Wanda et merci pour votre retour, effectivement, les diminutions des manches ont été corrigées. Bon tricot!
06.05.2025 - 10:50
Wanda skrifaði:
Bonjour, la séparation pour le dos/devants et bras est en réalité beaucoup plus bas que les mesures données sur le dessin. Si je calcule en rangs depuis le haut du dos pour la taille L, il y a 37 rangs au départ( après le montage), 2 rangs, puis 48 rangs (augmentation pour les manches et le col V) et enfin 8 rangs (augmentation pour le dos et les devants), ce qui fait au total 95 rangs, qui correspondent à 33-34 cm (gauge) et non pas à 25 cm comme indiqués sur le modèle !
20.04.2025 - 09:47DROPS Design svaraði:
Bonjour Wanda, dans ce type de modèle avec épaules européennes, les rangs tricotés pour le dos ne sont pas pris en compte dans la hauteur d'emmanchures (cf onglets vidéos/leçons pour visualiser comment se tricote le dos); pour les devants, on tricote d'abord 10,5 cm en tailleL puis 20 cm après avoir relevé les mailles des manches - les 10,5 cm tricotés auparavant vont se répartir à la fois sur le devant et le dos (car les épaules tombent vers l'arrière, cf photos et vidéos/leçons), ainsi, vous aurez bien environ 25 cm de hauteur d'emmanchures. Bon tricot!
23.04.2025 - 08:44
Hannah skrifaði:
Hi, I'm having the same issue as Min: I cannot line up the stitches for the right shoulder with the pattern on the back piece. I'd have to start the setup row with purl 3, then start the ribbing for it to align. Or pick up one fewer, but that doesn't make any sense either. It would be the same on the left, the last 3 stitches before the neck are knit stitches.
12.04.2025 - 21:26DROPS Design svaraði:
Dear Hannah, the 2 stitches in stocking stitch are the edges and should stay the same as you work the whole back. You increase right before or right after the 2 stitches in stocking stitch, not in between them. So you should still have these 2 stitches in stocking stitch. That means that these stitches will be knitted on right side rows and purled on wrong side rows. The pattern shouldn't misalign due to these 2 stitches. Happy knitting!
14.04.2025 - 00:41
Min skrifaði:
Hi, I’m really sorry for bothering you again, but I really don’t think it’s possible to line up the shoulder and back in the size L in either the way you describe it or the pattern describes. Unless you shift the ribbing on the shoulder, but I’m afraid this will mess up the rest. The thing is, I don’t have 2 stocking stitches at the end of back piece, I have a purl and 3 knits. So if I wanted to match up the shoulder I would have to do 1edge stitch, k3,p1, etc.
04.04.2025 - 12:15DROPS Design svaraði:
Dear Min, the 2 stitches in stocking stitch are the edges and should stay the same as you work the whole back. You increase right before or right after the 2 stitches in stocking stitch, not in between them. So you should still have these 2 stitches in stocking stitch. Happy knitting!
06.04.2025 - 22:33
Min skrifaði:
Hi thx for the reply, I can’t seem to reply to your answer so I’ll post a new question. Maybe you misunderstood, I didn’t mean the sleeve and back piece, but the back piece and (right) shoulder piece don’t match up. So the first time you pick up stitches. This is supposed to match up right? According to the pictures? But it’s not matching up for me.. I was wondering if this is supposed to be like this or not
03.04.2025 - 16:05DROPS Design svaraði:
Dear Min, sorry for misunderstanding, the stitches on shoulders should match, make sure to pick up 1 stitch in each of the 2 sts in stocking stitches at the end of back piece = the 2 sts at the beg of shoulder and then pick up sts towards neck ending with 1 edge stitch. As you increased a number of sts divisible by 4, you should now work rib lined up over rib on back piece. Happy knitting!
04.04.2025 - 08:07
Min skrifaði:
Hi, when I pick up stitches for the right shoulder and knit according to pattern, my rib pattern doesn’t align with the back piece. But when I look at the pictures of this pattern it is aligned correctly. What could I be missing? It seems my stitches are shifted by one stitch to the left. But I had the right stitch count and everything. When picking up stitches you knit into every row + the one still on the needles, right? I’m knitting size L
03.04.2025 - 13:52DROPS Design svaraði:
Dear Min, when picking up the stitches for sleeves, work them as explained (K1, P3 on first row from WS) and continue working the stitches on back piece as before, even if rib do not match,. Just work the stitches as explain on first row from WS after picking up sts then work always K over K and P over P. If you look at the picture on the top page, you will see that the rib do not match between sleeve and back piece, but the rib on back piece should continue as before and the new stitches increased on sleeves will be incorporated into rib on sleeves. Happy knitting!
03.04.2025 - 15:52
Biance skrifaði:
I am knitting a size medium. For the left front shoulder, it says to " knit up 1 edge stitch outermost on the shoulder in garter stitch" after knitting up 37 stitches to get 38 stitches. Does this essentially mean to make 1 (M1)?
31.03.2025 - 11:37DROPS Design svaraði:
Dear Biance, you pick up 1 stitch in each of the 37 rows worked on back piece + 1 stitch in the next stitch at the edge of back piece = this is the edge stitch on left front shoulder and you now get 38 sts for shoulder. The edge stitch will be worked in garter stitch until it will be decreased just before putting stitches aside. Happy knitting!
31.03.2025 - 12:42
Iris skrifaði:
Hallo, in der Anleitung fängt man für das Rückenteil in Größe L mit 33 Maschen an. Gibt es keine Randmaschen? Wie strickt man denn dann die erste und letzte Masche?
30.03.2025 - 17:08DROPS Design svaraði:
Liebe Iris, man braucht nur 33 Maschen in L und die 2 ersten + die 2 letzten Maschen werden dann glattrechts gestrickt (und die anderen Maschen werden im Bündchen 1 re, 3 links gestrickt). Viel Spaß beim Stricken!
31.03.2025 - 09:07
Devon skrifaði:
This pattern appears to be missing the yarn info and knitting gauge. How much of what kind of yarn is required?
14.03.2025 - 10:07DROPS Design svaraði:
Dear Devon, thanks for noticing, US pattern will be updated asap - please take a look at the English /UK pattern for all these info until pattern is updated. thank you. Happy knitting!
14.03.2025 - 16:01
Summer's Whisper Wrap#summerswhisperwrap |
|
![]() |
![]() |
Prjónuð peysa úr DROPS Belle. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með evrópskri öxl og stroffprjóni. Stærð S – XXXL.
DROPS 257-21 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1: Þessi útaukning kemur til með að gefa 1 lykkju sem er slétt frá réttu og brugðin frá röngu: AUKIÐ ÚT 1 LYKKJU TIL VINSTRI: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja á frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð slétt í aftari lykkjubogann. AUKIÐ ÚT 1 LYKKJU TIL HÆGRI: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að aftan og lykkjan er prjónuð slétt í fremri lykkjubogann. LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-2: Þessi útaukning kemur til með að gefa 1 lykkju sem er brugðin frá réttu og slétt frá röngu: AUKIÐ ÚT 1 LYKKJU TIL VINSTRI: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja á frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð brugðið í fremri lykkjubogann. AUKIÐ ÚT 1 LYKKJU TIL HÆGRI: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð brugðið í aftari lykkjubogann. V-HÁLSMÁL: Aukið út fyrir V-HÁLSMÁL í hvoru framstykki út að stroffprjónsmynstri í 3. hverri umferð innan við 2 lykkjur sléttprjón eins og útskýrt er að neðan. Útaukning er gerð til skiptis frá réttu og röngu – fyrsta útaukning er gerð frá réttu. Til að auka út í stroffprjóni, verður 1.- 3. útaukning slétt frá réttu og 4. útaukning verður brugðin frá réttu. Prjónið 1. til 4. ÚTAUKNING alls 3-3-4-4-4-4 sinnum (= alls 12-12-16-16-16-16 útaukningar fyrir v-hálsmáli í hvorri hlið). Aukið út þannig: ÚTAUKNING 1 (= rétta – notið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1): Prjónið 2 lykkjur slétt, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið eins og áður þar til 2 lykkjur eru eftir, aukið út 1 lykkju til hægri, 2 lykkjur slétt. Prjónið 2 umferðir sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur. ÚTAUKNING 2 (= ranga – notið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-2): Prjónið 2 lykkjur brugðið, aukið út 1 lykkju til hægri, prjónið eins og áður þar til 2 lykkjur eru eftir, aukið út 1 lykkju til vinstri, 2 lykkjur brugðið. Prjónið 2 umferðir sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur. ÚTAUKNING 3 (= rétta – notið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1): Prjónið 2 lykkjur slétt, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið eins og áður þar til 2 lykkjur eru eftir, aukið út 1 lykkju til hægri, 2 lykkjur slétt. Prjónið 2 umferðir sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur. ÚTAUKNING 4 (= ranga – notið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1, þessi lykkja verður brugðin frá réttu): Prjónið 2 lykkjur brugðið, aukið út 1 lykkju til hægri, prjónið eins og áður þar til 2 lykkjur eru eftir, aukið út 1 lykkju til vinstri, 2 lykkjur brugðið. Prjónið 2 umferðir sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur. Þegar öll útaukning fyrir v-hálsmáli hefur verið gerð til loka, byrjar umferðin og endar með 1 lykkju brugðið innan við 2 lykkjur slétt (séð frá réttu). LEIÐBEININGAR ÚRTAKA: Fækkið um 2 lykkjur fyrir miðju undir ermi þannig: Prjónið þar til 1 lykkja er eftir á undan lykkju með merki, prjónið 3 lykkjur slétt / lykkjur brugðið saman (= 2 lykkjur færri). Þessi lykkja er nú fyrir miðju undir ermi. Mynstrið gengur ekki jafnt upp fyrir miðju undir ermi áður en lykkjum hefur verið fækkað 4 sinnum. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Í mynstrinu hafa verið notaðir stuttir og langir prjónar, byrjið á lengdinni sem passar og skiptið um ef þarf. Stykkið er fyrst prjónað fram og til baka á hringprjóna. Byrjið á að fitja upp lykkjur aftan í hnakka. Síðan er bakstykkið prjónað niður á við, jafnframt því sem aukið er út í hvorri hlið á stykki þar til fjöldi lykkja á axlavídd hefur verið náð. Bakstykkið hefur fengið litla skáhallandi öxl. Bakstykkið er látið bíða á meðan framstykkin eru prjónuð hvort fyrir sig. Byrjað er að prjóna upp lykkjur meðfram annarri öxlinni frá bakstykki, prjónið fram og til baka. Endurtakið á hinni öxlinni. Nú eru lykkjur prjónaðar upp fyrir ermar meðfram hliðum á framstykkjum og lykkjur frá bakstykki eru settar til baka á prjóninn. Prjónað er fram og til baka yfir allt berustykkið, jafnframt því sem lykkjur eru auknar út fyrir ermar og fyrir v-hálsmáli. Síðar er einnig aukið út fyrir framstykkin / bakstykkið. Þegar berustykkið hefur verið prjónað til loka, skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykkið er prjónað til loka niður á við í hring. Í lokin er prjónuð 1 snúra á hvort framstykki. BAKSTYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna. Fitjið upp 25-25-33-33-33-33 lykkjur á hringprjón 4 með DROPS Belle. UMFERÐ 1 (= ranga): Prjónið 2 lykkjur brugðið, prjónið stroffprjón (= 1 lykkja slétt / 3 lykkjur brugðið) þar til 3 lykkjur eru eftir í umferð, endið með 1 lykkju slétt og 2 lykkjur brugðið. Auka á lykkjum í hvorri hlið í hverri umferð innan við 2 lykkjur sléttprjón, aukið út fyrir stroffprjón (þ.e.a.s. 1 lykkja brugðið / 3 lykkjur slétt séð frá réttu). Prjónið og aukið út fyrir stroffprjón þannig: UMFERÐ 2 (= rétta): Lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1 og prjónið 2 lykkjur slétt, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur þar til 2 lykkjur eru eftir, aukið út 1 lykkju til hægri, 2 lykkjur slétt. UMFERÐ 3 (= ranga): Lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-2 og prjónið 2 lykkjur brugðið, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur þar til 2 lykkjur eru eftir, aukið út 1 lykkju til hægri, 2 lykkjur brugðið. UMFERÐ 4 (= rétta): Lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1 og prjónið 2 lykkjur slétt, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur þar til 2 lykkjur eru eftir, aukið út 1 lykkju til hægri, 2 lykkjur slétt. UMFERÐ 5 (= ranga): Lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1 (þessi lykkja verður brugðin frá réttu) og prjónið 2 lykkjur brugðið, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur þar til 2 lykkjur eru eftir, aukið út 1 lykkju til hægri, 2 lykkjur brugðið. Á EFTIR UMFERÐ 5: Prjónið UMFERÐ 2 til 5 alls 8-9-9-9-10-11 sinnum (= 32-36-36-36-40-44 umferðir prjónaðar), á eftir síðustu útaukningu eru = 89-97-105-105-113-121 lykkjur í umferð. Klippið þráðinn, setjið lykkjur á þráð eða á hjálparprjón. HÆGRI ÖXL: Finnið hægri öxl á bakstykki þannig: Leggið bakstykkið flatt með réttun upp, leggið bakstykkið þannig að lykkjur af þræði / hjálparprjóni snúi að þér, hægri hlið á stykki = hægri öxl. Nú eru lykkjur prjónaðar upp meðfram bakstykkis hægri skáhallandi öxl – byrjið frá réttu við öxl og prjónið upp lykkjur inn að hálsmáli þannig: Prjónið upp 1 kantlykkju yst á öxl (kantlykkjan er alltaf prjónuð í garðaprjóni, síðar á að fækka um þessa lykkju og er hún er notuð til að taka upp lykkjur fyrir ermi) og prjónið síðan upp 1 lykkju í hverja prjónaða umferð innan við ystu lykkju (= 32-36-36-36-40-44 lykkjur), prjónið í lokin upp 1 síðustu lykkju í axlarlínu inn við hálsmál = 34-38-38-38-42-46 lykkjur. Öll mál á lengdina á framstykki eru gerð frá þessum kanti þar sem lykkjur voru prjónaðar upp. Fyrsta umferð er prjónuð frá röngu, prjónið stroffprjón þannig: 2 lykkjur brugðið, prjónið stroffprjón (= 1 lykkja slétt / 3 lykkjur brugðið) þar til 4 lykkjur eru eftir, 1 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðið, endið með 1 kantlykkju í GARÐAPRJÓN – lesið leiðbeiningar að ofan. Frá réttu er prjónað þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, 2 lykkjur slétt, prjónið stroffprjón (= 1 lykkja brugðið / 3 lykkjur slétt) þar til 3 lykkjur eru eftir í umferð, endið með 1 lykkju brugðið og 2 lykkjur slétt. Prjónið fram og til baka með sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur + 1 kantlykkja í garðaprjóni. Þegar stykkið mælist 10½-10½-10½-10½-12½-12½ cm frá kanti þar sem lykkjur voru prjónaðar upp, prjónið síðustu umferð frá röngu JAFNFRAMT sem fækkað er um kantlykkju með því að prjóna síðustu 2 lykkjur 2 lykkjur brugðið saman = 33-37-37-37-41-45 lykkjur. Klippið þráðinn og setjið lykkjur á þráð eða á hjálpaprjón. Nú er vinstra framstykkið prjónað meðfram vinstri öxl eins og útskýrt er að neðan. VINSTRI ÖXL: Finnið vinstri öxl á bakstykki þannig: Leggið bakstykkið flatt með réttuna upp, leggið bakstykkið þannig að lykkjur af þræði / hjálparprjóni snúi að þér, vinstri hlið á stykki = vinstri öxl. Nú eru lykkjur prjónaðar upp meðfram bakstykkis vinstri skáhallandi öxl – byrjið frá réttu við hálsmál og prjónið upp lykkjur inn að handvegi þannig: Prjónið upp 1 lykkju í axlarlínu inn við hálsmál þannig að það verði samhverft miðað við hægri öxl, prjónið áfram upp 1 lykkju í hverja prjónaða umferð innan við ystu lykkju 32-36-36-36-40-44 masker) og prjónið upp 1 lykkju í hverja umferð innan við ystu lykkju (= 33-37-37-37-41-45 lykkjur) og prjónið í lokin upp 1 kantlykkju yst á öxl (kantlykkjan er alltaf prjónuð í garðaprjóni, síðar á að fækka um þessa lykkju og er hún er notuð til að taka upp lykkjur fyrir ermi) = 34-38-38-38-42-46 lykkjur. Öll mál á lengdina á framstykki eru gerð frá þessum kanti þar sem lykkjur voru prjónaðar upp. Fyrsta umferð er prjónuð frá röngu, prjónið stroffprjón þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, 2 lykkjur brugðið, prjónið stroffprjón (= 1 lykkja slétt / 3 lykkjur brugðið) þar til 3 lykkjur eru eftir, endið með 1 lykkja slétt og 2 lykkjur brugðið. Frá réttu er prjónað þannig: 2 kantlykkjur slétt, prjónið stroffprjón (= 1 lykkja brugðið / 3 lykkjur slétt) þar til 4 lykkjur eru eftir í umferð, 1 lykkja brugðið, endið með 2 lykkjur slétt og 1 kantlykkju í garðaprjóni. Prjónið fram og til baka með sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur + 1 kantlykkja í garðaprjóni. Þegar stykkið mælist 10½-10½-10½-10½-12½-12½ cm frá kanti þar sem lykkjur voru prjónaðar upp, prjónið síðustu umferð frá röngu JAFNFRAMT sem fækkað er um kantlykkju með því að prjóna síðustu 2 lykkjur 2 lykkjur brugðið saman = 33-37-37-37-41-45 lykkjur. Síðan eru framstykkin og bakstykkið sett saman og prjóna á upp lykkjur yfir ermakúpu, snúið og haldið áfram að prjóna eins og útskýrt er að neðan. BERUSTYKKI: Byrjið með lykkjur frá vinstra framstykki og prjónið frá réttu þannig: Prjónið eins og áður yfir lykkjur á vinstra framstykki (= 33-37-37-37-41-45 lykkjur), setjið 1 merki í umverð, prjónið upp 25-25-25-25-29-29 lykkjur meðfram vinstra framstykki (= lykkjur fyrir ermi – lykkjur eru prjónaðar upp innan við kantlykkju í garðaprjóni), setjið 1 merki í umferð, prjónið lykkjur frá bakstykki frá réttu eins og áður (= 89-97-105-105-113-121 lykkjur), setjið 1 merki í umferð, prjónið upp 25-25-25-25-29-29 lykkjur meðfram hlið á hægra framstykki (= lykkjur fyrir ermi – lykkjur eru prjónaðar upp innan við kantlykkju í garðaprjóni), setjið 1 merki í umferð, prjónið lykkjur frá hægra framstykki frá réttu eins og áður (= 33-37-37-37-41-45 lykkjur) = 205-221-229-229-253-269 lykkjur. Næsta umferð er prjónuð frá röngu þannig: Prjónið sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur fram að merki (= hægra framstykki), færið merkið yfir á hægri prjón, prjónið næstu 24-24-24-24-28-28 lykkjur í stroffprjóni (= 1 lykkja slétt / 3 lykkjur brugðið), endið með 1 lykkju slétt (= 25-25-25-25-29-29 lykkjur fyrir ermi), færið merkið yfir á hægri prjón, prjónið lykkjur frá bakstykki sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur eins og áður að næsta merki, færið merkið yfir á hægri prjón, prjónið næstu 24-24-24-24-28-28 lykkjur í stroffprjóni (= 1 lykkja slétt / 3 lykkjur brugðið), endið með 1 lykkju slétt (= 25-25-25-25-29-29 lykkjur fyrir ermi), færið merkið yfir á hægri prjón, prjónið lykkjur frá vinstra framstykki sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur. Síðan á að prjóna stykkið fram og til baka yfir allar lykkjur með sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur. Merkin aðskilja ermar frá framstykkjum / bakstykki – stroffprjónsmynstur á ermum er prjónað óháð frá stroffprjónsmynstri á framstykkjum / bakstykki. Það á að auka út fyrir ermar eins og útskýrt er að neðan JAFNFRAMT sem aukið er út í hvorri hlið fyrir V-HÁLSMÁL – lesið leiðbeiningar að ofan. Aukið út 2 lykkjur fyrir hvora ermi innan við merkin í hverri umferð frá réttu (= 4 lykkjur fleiri). Aukið er út fyrir stroffprjónsmynstri (= 3 lykkjur slétt / 1 lykkja brugðið séð frá réttu) – þ.e.a.s. notið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1 til að auka út 1 lykkju slétt, notið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-2 til að auka út 1 lykkju brugðið. Prjónið þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið eins og áður fram að 1. Merki (= framstykki), * færið merkið yfir á hægri prjón, aukið út 1 lykkju til vinstri (= útaukning fyrir ermi), prjónið að næsta merki, aukið út 1 lykkju til hægri (= útaukning fyrir ermi), færið merkið yfir á hægri prjón *, prjónið fram að næsta merki (= bakstykki), prjónið frá *-* 1 sinni til viðbótar, prjónið eins og áður út umferðina (= framstykki). UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur, passið uppá að útauknar lykkjur séu prjónaðar inn í mynstur sem nú þegar hefur verið prjónað á ermum. Prjónið UMFERÐ 1 og 2 alls 18-20-24-24-20-20 sinnum (= 36-40-48-48-40-40 umferðir prjónaðar) – munið eftir að auka út fyrir v-hálsmáli. Síðan á einnig að auka út á framstykkjum og bakstykki (= 8 lykkjur fleiri), munið eftir að auka út fyrir stroffprjón þannig að áferðin haldi áfram á framstykkjum / bakstykki eins og áður – þ.e.a.s. það verður 1 lína með 2 lykkjur sléttprjón að ermi. Prjónið næstu umferð þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið eins og áður þar til 2 lykkjur eru eftir á undan 1. merki, aukið út 1 lykkju til hægri, prjónið 2 lykkjur sléttprjón, * færið merkið yfir á hægri prjón, aukið út 1 lykkju til vinstri (= útaukning fyrir ermi), prjónið eins og áður að næsta merki, aukið út 1 lykkju til hægri (= útaukning fyrir ermi), færið merkið yfir á hægri prjón *, prjónið 2 lykkjur sléttprjón, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið eins og áður þar til 2 lykkjur eru eftir á undan 3. merki, aukið út 1 lykkju til hægri, prjónið 2 lykkjur sléttprjón, prjónið frá *-* 1 sinni til viðbótar, prjónið 2 lykkjur sléttprjón, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið eins og áður út umferðina (= framstykki). UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur, passið uppá að útauknar lykkjur séu prjónaðar inn í mynstur sem nú þegar hefur verið prjónað í stroffprjóni á ermum, framstykkjum og bakstykki. Prjónið UMFERÐ 1 og 2 alls 4-4-4-4-8-8 sinnum (= 8-8-8-8-16-16 umferðir prjónaðar). Öll útaukning er nú lokið. Aukið hefur verið út 12-12-16-16-16-16 sinnum fyrir v-hálsmáli, 22-24-28-28-28-28 sinnum fyrir ermar og 4-4-4-4-8-8 sinnum á framstykkjum / bakstykki = 333-357-389-389-429-445 lykkjur. Það eru 69-73-81-81-85-85 lykkjur fyrir hvora ermi, 49-53-57-57-65-69 lykkjur fyrir hvort framstykki og 97-105-113-113-129-137 lykkjur fyrir bakstykki. Ermin mælist nú ca 16-17-20-20-20-20 cm mælt fyrir miðju á ermi frá þar sem lykkjur voru prjónaðar upp. Þegar peysan er brotin tvöföld við öxl, mælist stykkið ca 21-22-25-25-26-26 cm yst meðfram handveg. Nú skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. SKIPTING FYRIR FRAM- OG BAKSTYKKI OG ERMAR: JAFNFRAMT sem næsta umferð er prjónuð, skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Prjónið fyrstu 49-53-57-57-65-69 lykkjur eins og áður, setjið næstu 69-73-81-81-85-85 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 7-7-7-15-15-23 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið fyrir miðju undir ermi), prjónið næstu 97-105-113-113-129-137 lykkjur eins og áður, setjið næstu 69-73-81-81-85-85 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 7-7-7-15-15-23 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið fyrir miðju undir ermi), prjónið síðustu 49-53-57-57-65-69 lykkjur eins og áður. Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. FRAM- OG BAKSTYKKI: = 209-225-241-257-289-321 lykkjur. Prjónið stroffprjónsmynstur (= 1 lykkja brugðið / 3 lykkjur slétt séð frá réttu) fram og til baka í mynstur sem nú þegar hefur verið prjónað – nýjar lykkjur undir ermi ganga jafnt upp í mynstur. Prjónið svona fram og til baka þar til stykkið mælist 28-29-28-30-31-33 cm frá lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Peysan mælist ca 52-54-56-58-60-62 cm. ERMAR: Setjið 69-73-81-81-85-85 lykkjur frá ermi frá öðrum þræðinum á hringprjón 4 og prjónið einnig upp 1 lykkju í hverja af 7-7-7-15-15-23 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 76-80-88-96-100-108 lykkjur. Prjónið stroffprjón hringinn í nú þegar prjónað mynstur eins og áður (= 1 lykkja brugðið / 3 lykkjur slétt) – nýjar lykkjur undir ermi ganga jafnt upp í mynstri. Setjið 1 merki í miðju af 7-7-7-15-15-23 nýjar lykkjur undir ermi, umferðin byrja hér. Prjónið hringinn þar til stykkið mælist 3 cm frá skiptingunni. Fækkið um 2 lykkjur fyrir miðju undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona í hverjum 4-3½-3-2-2-1½ cm alls 8-8-8-12-12-16 sinnum = 60-64-72-72-76-76 lykkjur – mynstrið gengur upp í kringum ermi þegar úrtöku er lokið. Prjónið þar til ermin mælist 55-54-53-54-54-53 cm, mælt frá þar sem lykkjur voru prjónaðar upp fyrir ermi meðfram öxl, stykkið mælist ca 39-37-33-34-34-33 cm frá skiptingunni fyrir miðju undir ermi. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. SNÚRA: Notið sokkaprjóna 4 og prjónið upp 2 lykkjur í annarri hliðinni neðst í v-hálsmáli (þ.e.a.s. síðasta útaukning fyrir v-hálsmáli). Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan þannig: * Færið allar lykkjur yfir á hægri hlið á sokkaprjóni án þess að snúa stykkinu við, herðið á þræði og prjónið aftur slétt yfir báðar lykkjurnar *, prjónið frá *-* þar til snúran mælist ca 20 cm eða að óskaðri lengd. Klippið og festið þráðinn. Endurtakið á hinu framstykkinu. |
|
![]() |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #summerswhisperwrap eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 30 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 257-21
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.