Anna skrifaði:
Pytanie dotyczy części "przód /tył - w pierwszym rzedzie ściagacza nalezy dodać 32 oczka. Czy to znaczy , że ten sciągacz na dole jest szerszy niż cały sweter ?
01.04.2025 - 17:55DROPS Design svaraði:
Witaj Anno, w tym przypadku ściągacz będzie miał taką samą szerokość jak pozostała część swetra. Gdyby zostało tyle samo oczek co na przodzie i tyle (dżersej) to dół robótki byłby ściągnięty na kształt bombki, z uwagi na specyfikę samego ściegu ściągacza. Pozdrawiamy!
02.04.2025 - 11:00
Heather skrifaði:
I’m knitting size xs it says cast on 100 stitches, count 15 each for the sleeves, 33 for front , 33 for back, I’m left with 4 stitches.
20.03.2025 - 12:53DROPS Design svaraði:
Dear Heather, please note that the markers should be each inserted in one stitch (and not between stitches), so that you will have: 1 stitch with a marker, 15 sts for the sleeve, 1 stitch with a marker, 33 sts for front piece, 1 stitch with a marker,15 sts for the sleeve, 1 stitch with a marker and 33 sts for back piece = 1+15+1+33+1+15+1+33=100. Happy knitting!
20.03.2025 - 15:48
Saskia Havinga skrifaði:
Goedemiddag, In dit patroon staan opdrachten voor meerderen bij het onderdeel de pas. Mij is niet duidelijk over bij iedere andere naald bedoeld wordt de 2e naald, immers bij de meerderingen na de mouw (voor het voor en achterpand) wordt wel heel duidelijk gezegd iedere tweede naald. Kunt u mij adviseren? met vriendelijke groet, Saskia
13.03.2025 - 09:51DROPS Design svaraði:
Dag Saskia,
Met iedere andere naald wordt bedoeld de ene naald wel en de andere naald niet. Dus om de naald meerderen. (Of iedere tweede naald :)
15.04.2025 - 20:03
White Hill#whitehillsweater |
|
![]() |
![]() |
Prjónuð peysa úr DROPS Soft Tweed og DROPS Kid-Silk. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með laskalínu. Stærð XS - XXL.
DROPS 258-34 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- LASKALÍNA: Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður eins og útskýrt er að neðan: Á UNDAN MERKI: Lyftið uppslættinum af vinstri prjóni og setjið til baka yfir á vinstri prjón í gagnstæða átt (stingið inn vinstri prjóni aftan frá þegar uppslátturinn er settur til baka á prjóninn). Prjónið uppsláttinn slétt í fremri lykkjubogann – svo ekki myndist gat. Síðan eru nýjar lykkjur prjónaðar í sléttprjóni. Á EFTIR MERKI: Prjónið uppsláttinn slétt í aftari lykkjubogann – svo ekki myndist gat. Síðan eru nýjar lykkjur prjónaðar í sléttprjóni. LEIÐBEININGAR ERMI: Þegar lykkjur eru prjónaðar upp mitt undir ermi, getur myndast smá gat í skiptingunni á milli lykkja frá fram- og bakstykki og ermi. Hægt er að loka þessu gati með því að taka upp þráðinn á milli tveggja lykkja – þessi þráður er prjónaður snúinn saman með fyrstu lykkju á milli fram- og bakstykkis og ermi, þannig að gatið lokast. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA: Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráð þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Í uppskriftinni er notast við mismunandi lengdir á prjónum, byrjið á þeirri lengd sem passar lykkjufjölda og skiptið um ef þarf. Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað í hring á hringprjón frá hægri öxl að aftan og prjónað er ofan frá og niður. Þegar berustykkið hefur verið prjónað til loka, skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykkið er prjónað til loka niður á við í hring á hringprjóna, á meðan ermar eru látnar bíða. Síðan eru ermar prjónaðar niður á við í hring. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 100-104-104-108-112-116 lykkjur á hringprjón 5,5 með 1 þræði DROPS Soft Tweed og 1 þræði DROPS Kid-Silk (= 2 þræðir). Skiptið yfir á hringprjón 4 (fitjað er upp á grófari prjóna til að uppfitjunarkanturinn verði teygjanlegur). Prjónið stroff hringinn (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 4-4-4-4-4½-4½ cm. Byrjun umferðar er við hægri öxl að aftan. Setjið 1 merki eftir fyrstu 34-35-35-36-37-38 lykkjur í umferð (= ca fyrir miðju að framan), stykkið er nú mælt frá þessu merki. BERUSTYKKI: Skiptið yfir á hringprjón 5,5. Nú eru sett 4 merki í stykkið án þess að prjóna lykkjurnar, merkin eru sett í lykkju og þessar lykkjur eru nú kallaðar fyrir laskalykkjur og eru prjónaðar í sléttprjóni. Setjið 1. merki í fyrstu lykkju, teljið 15 lykkjur (= ermi), setjið 2. merki í næstu lykkju, teljið 33-35-35-37-39-41 lykkjur (= framstykki), setjið 3. merki í næstu lykkju, teljið 15 lykkjur (= ermi), setjið 4. merki í næstu lykkju, það eru 33-35-35-37-39-41 lykkjur á eftir síðasta merki (= bakstykki). Prjónið sléttprjón hringinn og aukið út fyrir LASKALÍNA hvoru megin við 4 merkin – lesið útskýringu að ofan og prjónið þannig: Aukið út fyrir laskalínu í annarri hverri umferð alls 16-17-19-21-22-23 sinnum = 228-240-256-276-288-300 lykkjur (= 8 lykkjur fleiri í hverri útaukningsumferð). Munið eftir að fylgja uppgefinni prjónfestu. Útaukning fyrir ermar er nú lokið, en haldið áfram að auka út fyrir laskalínu á framstykki og bakstykki í annarri hverri umferð 4-4-4-3-4-6 sinnum til viðbótar = 244-256-272-288-304-324 lykkjur í umferð (= 4 lykkjur fleiri í hverri útaukningsumferð). Prjónið e.t.v. áfram án þess að auka út þar til stykkið mælist 19-20-22-23-25-27 cm frá merki eftir kant í hálsmáli. Nú skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. SKIPTING FYRIR FRAM- OG BAKSTYKKI OG ERMAR: JAFNFRAMT sem næsta umferð er prjónuð, skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Prjónið 1 lykkju slétt (= tilheyrir bakstykki), setjið næstu 47-49-53-57-59-61 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-8-10-12-14-16 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið mitt undir ermi), prjónið 75-79-83-87-93-101 lykkjur sléttprjón (= framstykki), setjið næstu 47-49-53-57-59-61 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-8-10-12-14-16 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið mitt undir ermi) og prjónið síðustu 74-78-82-86-92-100 lykkjur sléttprjón (= bakstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. FRAM- OG BAKSTYKKI: = 162-174-186-198-214-234 lykkjur. Setjið 1 merki í aðra hliðina á stykkinu (= fyrir miðju í 6-8-10-12-14-16 lykkjur sem fitjaðar voru upp undir ermi). Prjónið fram að merki, umferðin byrjar hér og prjónað er í hring. Prjónið sléttprjón þar til stykkið mælist 45-47-49-51-52-54 cm frá merki fyrir miðju að framan. Skiptið yfir á hringprjón 4, prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) JAFNFRAMT sem aukið er út um 32-32-34-38-40-44 lykkjur jafnt yfir í umferð 1 = 194-206-220-236-254-278 lykkjur. Þegar stroffið mælist 4-4-4-4-5-5 cm er fellt af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Peysan mælist 49-51-53-55-57-59 cm frá merki fyrir miðju að framan og ca 54-56-58-60-62-64 cm frá toppi á öxl. ERMAR: Setjið 47-49-53-57-59-61 lykkjur frá ermi frá öðrum þræðinum á hringprjón 5,5 og prjónið einnig upp 1 lykkju í hverja af 6-8-10-12-14-16 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ERMI = 53-57-63-69-73-77 lykkjur. Setjið 1 merkiþráð fyrir miðju í 6-8-10-12-14-16 nýjar lykkjur undir ermi – umferðin byrjar við merkiþráðinn. Prjónið sléttprjón hringinn -JAFNFRAMT þegar ermin mælist 2 cm frá skiptingunni, fækkið lykkjum fyrir miðju undir ermi- lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA og fækkið lykkjum þannig: Fækkið um 2 lykkjur í hverjum 7½-6½-4½-3½-2½-2 cm alls 5-6-8-10-12-13 sinnum = 43-45-47-49-49-51 lykkjur. Prjónið síðan þar til ermin mælist 37-37-36-36-33-32 cm frá skiptingunni. Skiptið yfir á sokkaprjóna 4 og prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) JAFNFRAMT sem aukið er út um 7-9-9-9-9-9 lykkjur jafnt yfir í umferð 1 = 50-54-56-58-58-60 lykkjur. Þegar stroffið mælist 4-4-4-4-5-5 cm fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Ermin mælist ca 41-41-40-40-38-37 cm frá skiptingunni. |
|
![]() |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #whitehillsweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 28 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 258-34
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.