SusanneVandt skrifaði:
Ang DROPS 257-26 Jeg forstår ikke opskriften på den hæklede kant. Kanten består af 3 hæklede rækker, men den første række forstår jeg slet ikke. Har I mulighed for at lave en lille video ? Vh Susanne
09.04.2025 - 15:27DROPS Design svaraði:
Hej Susanne, du starter med at sætte tråden fast midt under ærmet, hækl 1 luftmaske, 3 luftmasker, 1 fastmaske ca 1,5 cm fra der hvor du startede, 3 lm, 1 fm , 3lm, 1 fm osv. Næste omgang starter med 1 luftmaske, kædemasker frem til først lm bue, 1 fastm om luftmaskebuen, så symbolet med 3lm, 1 halvst, osv :)
10.04.2025 - 08:50
Janni skrifaði:
Hvorfor er der aldrig fotos af ryggen? ( det gælder alle jeres beklædnings opskrifter) Det kunne være rart og nogle gange også behjælpeligt at kunne se begge sider
01.04.2025 - 00:22DROPS Design svaraði:
Hei Janni. Vi har mange plagg med bilder av ryggen, men når ryggen er lik forstykket vil vi ofte bare vise forstykket. mvh DROPS Design
07.04.2025 - 08:39
Estelle-Marie Lesault skrifaði:
It does help, Thank you!
27.02.2025 - 18:21
Estelle Lesault skrifaði:
Thank you for your response! I’m not sure what you mean by 1+16 +1 +30 for example. You count 16 stitches and put the marker on the 16th stitch. Where is this 1 mentioned ? Why not 17 then?
27.02.2025 - 16:55DROPS Design svaraði:
Dear Mrs Lesault, just add the markers in designed stitch, ie insert the 1st marker in the first stitch, count 16 sts, insert the marker in the next stitch, count 30 sts, insert the marker in the next stitch, count 16 sts, insert the marker in the next stitch, there should be now 30 sts after last marker so that you have: 1 st with a marker + 16 sts for sleeve + 1 st with a marker + 30 sts for front piece + 1 st with a marker + 16 sts for sleeve + 1 st with a marker + 30 sts for back piece. Can this help?
27.02.2025 - 17:13
Estelle-Marie Lesault skrifaði:
Hi! So there's a total of 96 stitches at first but when inserting the markers that only includes 92 stitches, is this normal and does it mean a side will be slightly bigger than the other?
27.02.2025 - 11:22DROPS Design svaraði:
Dear Mrs Lesault, note that each of the 4 markers should be inserted in one stitch, and not between stitches, you then have 96 sts in S: 1+16+1+30+1+16+1+30=96 sts. Which side is biggern than which other one? Not sure to understand what you mean here, can you give us more info so that we can check? Thanks for your comprehension.
27.02.2025 - 16:42
Denise Lavonne Houghtaling skrifaði:
I would lied this pattermws
25.02.2025 - 20:56
Anna skrifaði:
Hello. To start the project where it is written to work 3 rounds in A1, does it mean to work 3 rounds only or to work 3 times A1 which would make 6 rounds in total? Thank you.
22.02.2025 - 14:08DROPS Design svaraði:
Dear Anna, you work 3 rounds with A.1 (so round 1, round 2 and round 1 of A.1 again). Happy knitting!
24.02.2025 - 00:15
White Cascade#whitecascadesweater |
||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||||||||||||||||||||||||||
Prjónuð peysa úr 1 þræði DROPS Alpaca eða DROPS Nord og 1 þræði DROPS Kid-Silk. Stykkið er prjónað ofan frá og niður í sléttprjóni með laskalínu, og hekluðum kanti. Stærð S - XXXL.
DROPS 257-26 |
||||||||||||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1. HEKLAÐUR KANTUR: Sjá mynsturteikningu A.2 til A.4. LASKALÍNA: Aukið út 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn eins og útskýrt er að neðan: AUKIÐ ÚT 1 LYKKJU TIL HÆGRI Á UNDAN MERKI: Sláið 1 sinni um hægri prjón með því að leggja þráðinn yfir hægri prjón, prjóna aftan frá og fram, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður brugðið í fremri lykkjubogann. Síðan eru nýjar lykkjur prjónaðar í sléttprjóni. AUKIÐ ÚT 1 LYKKJU TIL VINSTRI Á EFTIR MERKI: Sláið 1 sinni um hægri prjón með því að leggja þráðinn framan við prjóninn og síðan draga þráðinn aftur á bak, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður brugðið í aftari lykkjubogann. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA: Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráð þannig: Prjónið þar til 5 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 6 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr á milli þessa 6 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). LEIÐBEININGAR ERMI: Þegar lykkjur eru prjónaðar upp mitt undir ermi, getur myndast smá gat í skiptingunni á milli lykkja frá fram- og bakstykki og ermi. Hægt er að loka þessu gati með því að taka upp þráðinn á milli tveggja lykkja – þessi þráður er prjónaður snúinn saman með fyrstu lykkju á milli fram- og bakstykkis og ermi, þannig að gatið lokist. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Í uppskriftinni er notast við mismunandi lengdir á prjónum, byrjið á þeirri lengd sem passar lykkjufjölda og skiptið um ef þarf. Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað í hring á hringprjóna frá hægri öxl að aftan og prjónað er ofan frá og niður. Þegar berustykkið hefur verið prjónað til loka, skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykkið er prjónað til loka niður á við í hring á hringprjóna, á meðan ermar eru látnar bíða. Síðan eru ermar prjónaðar niður á við í hring. Í lokin er heklaður kantur í kringum hálsmáli og neðst í kringum báðar ermar. HÁLSMÁL: Fitjið upp 96-100-104-112-112-116 lykkjur á hringprjón 3 með 1 þræði DROPS Alpaca eða 1 þræði DROPS Nord saman með 1 þræði DROPS Kid-Silk (= 2 þræðir). Prjónið MYNSTUR – lesið leiðbeiningar að ofan, þ.e.a.s. prjónið 3 umferðir með A.1. Byrjun umferðar er við hægri öxl að aftan. Setjið 1 merki eftir fyrstu 33-34-35-39-39-40 lykkjur í umferð (= ca fyrir miðju að framan), stykkið er nú mælt frá þessu merki. BERUSTYKKI: Nú eru sett 4 merki í stykkið án þess að prjóna lykkjurnar, merkin eru sett í lykkju og þessar lykkjur eru nú kallaðar fyrir laskalykkjur og eru prjónaðar í sléttprjóni. Setjið 1. Merki í fyrstu lykkju, teljið 16-16-16-20-20-20 lykkjur (= ermi), setjið 2. merki í næstu lykkju, teljið 30-32-34-34-34-36 lykkjur (= framstykki), setjið 3. merki í næstu lykkju,teljið 16-16-16-20-20-20 lykkjur (= ermi), setjið 4. merki í næstu lykkju, það eru 30-32-34-34-34-36 lykkjur eftir í umferð á eftir síðasta merki (= bakstykki). Skiptið yfir á hringprjón 4,5 og prjónið sléttprjón og aukið út fyrir LASKALÍNU – sjá útskýringu að ofan og prjónið þannig: UMFERÐ 1: Prjónið sléttprjón og aukið út fyrir laskalínu hvoru megin við 4 laskalykkjur (= 8 lykkjur fleiri). UMFERÐ 2: Prjónið sléttprjón. Prjónið UMFERÐ 2 og 3 alls 11-11-14-17-21-18 sinnum (= 22-22-28-34-42-36 umferðir prjónaðar) = 184-188-216-248-280-260 lykkjur. Munið eftir að fylgja uppgefinni prjónfestu! Prjónið síðan og aukið út þannig: UMFERÐ 1: Prjónið sléttprjón og aukið út fyrir laskalínu hvoru megin við 4 laskalykkjur (= 8 lykkjur fleiri). UMFERÐ 2: Prjónið sléttprjón. UMFERÐ 3: Prjónið sléttprjón og aukið út fyrir laskalínu á framstykki og bakstykki, þ.e.a.s. aukið út á eftir 2. og 4. merki og á undan 3. og 1. merki – lykkjur eru ekki auknar út á ermum (= 4 lykkjur fleiri). UMFERÐ 4: Prjónið sléttprjón. Prjónið UMFERÐ 1 til 4 alls 6-7-7-6-5-8 sinnum (= 24-28-28-24-20-32 umferðir prjónaðar = 6-7-7-6-5-8 sinnum útaukningar á ermum og 12-14-14-12-10-16 sinnum útaukningar á framstykki/bakstykki) = 256-272-300-320-340-356 lykkjur. Öll útaukning fyrir laskalínu er nú lokið, aukið hefur verið út alls 23-25-28-29-31-34 sinnum á framstykki og bakstykki 17-18-21-23-26-26 sinnum á ermum = 256-272-300-320-340-356 lykkjur í umferð. Prjónið sléttprjón án þess að auka út þar til stykkið mælist 20-22-23-24-26-28 cm frá merki fyrir miðju að framan. Nú skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. SKIPTING FYRIR FRAM- OG BAKSTYKKI OG ERMAR: Í stærð S, M og L skiptist berustykkið mitt í laskalínu, í stærð XL, XXL og XXXL skiptist berustykkið þannig að laskalínur verða staðsettar aðeins inn á framstykki/bakstykki. JAFNFRAMT sem næsta umferð er prjónuð, skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Prjónið 0-0-0-2-4-4 lykkjur sléttprjón (þessar lykkjur tilheyra bakstykki), setjið næstu 52-54-60-64-66-66 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-8-8-12-14-16 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið fyrir miðju undir ermi), prjónið 76-82-90-96-104-112 lykkjur sléttprjón (= framstykki), setjið næstu 52-54-60-64-66-66 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-8-8-12-14-16 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið fyrir miðju undir ermi) og prjónið síðustu 76-82-90-94-100-108 lykkjur eins og áður (= bakstykki). Fram- og bakstykki og ermar er nú prjónað hvert fyrir sig. FRAM- OG BAKSTYKKI: = 164-180-196-216-236-256 lykkjur. Setjið 1 merkiþráð í hvora hlið á fram- og bakstykki, fyrir miðju í 6-8-8-12-14-16 lykkjur sem fitjaðar voru upp undir hvorri ermi og látið merkiþræðina fylgja áfram með í stykkinu, merkiþræðirnir eru notaðir þegar fækka á lykkjum í hliðum á fram- og bakstykki. Prjónið fram að fyrsta merkiþræði, umferðin byrjar hér og prjónað er í hring. Þegar stykkið mælist 6 cm frá skiptingunni, fækkið um 1 lykkju hvoru megin við báða merkiþræðina – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA (= 4 lykkjur færri). Endurtakið úrtöku þegar stykkið mælist 12 cm frá skiptingunni = 156-172-188-208-228-248 lykkjur. Prjónið sléttprjón þar til stykkið mælist 40-42-44-45-47-49 cm frá merki fyrir miðju að framan. Skiptið yfir á hringprjón 3 og prjónið 3 umferðir með A.1. Fellið af með sléttum lykkjum yfir brugðnar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir sléttar lykkjur. Peysan mælist 41-43-45-46-48-50 cm frá merki fyrir miðju að framan og ca 46-48-50-52-54-56 cm frá toppi á öxl. ERMAR: Setjið 52-54-60-64-66-66 lykkjur frá ermi frá öðrum þræðinum á hringprjón 4,5 og prjónið einnig upp 1 lykkju í hverja af 6-8-8-12-14-16 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ERMI = 58-62-68-76-80-82 lykkjur. Setjið 1 merkiþráð mitt í 6-8-8-12-14-16 nýjar lykkjur undir ermi – umferðin byrjar við merkiþráðinn. Prjónið sléttprjón umferðina hringinn – JAFNFRAMT þegar ermin mælist 2 cm frá skiptingunni, fækkið lykkjum fyrir miðju undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA og fækkið lykkjum þannig: Fækkið 2 lykkjur í hverjum 2-2-2-1½-1½-1½ cm alls 2-3-5-8-9-9 sinnum = 54-56-58-60-62-64 lykkjur. Prjónið síðan þar til ermin mælist 41-40-39-38-37-36 cm frá skiptingunni. Skiptið yfir á sokkaprjóna 3 og prjónið 3 umferðir hringinn með A.1. Fellið af með sléttum lykkjum yfir brugðnar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir sléttar lykkjur. Ermin mælist ca 42-41-40-39-38-36 cm frá skiptingunni. HEKLAÐUR KANTUR: Notið heklunál 3,5 og 1 þráð í hvorri tegund (= 2 þræði), lesið LEIÐBEININGAR HEKLAÐUR KANTUR í útskýringu að ofan og byrjið frá réttu fyrir miðju undir ermi / við aðra laskalínu í hálsmáli. Heklið A.2 í fyrstu lykkju, heklið A.3 þar til eftir er ca 1½ cm af umferð, heklið A.4. Klippið þræðina og festið. |
||||||||||||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #whitecascadesweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 31 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 257-26
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.