Sabine Szcepurek skrifaði:
Ich möchte Spirit of Winter stricken, allerdings mit Alpaka und Nadeln 3,5/ 4. Sie hat eine Lauflänge von 133m . Welche Grösse sollte ich nehmen um mit dem Muster klar zu kommen?
04.02.2025 - 11:55DROPS Design svaraði:
Liebe Frau Szcepurek, dann würde Ihre Maschenprobe anders sein, so müssen Sie die ganze Anleitung nach Ihrer eigenen Maschenprobe umrechnen. Schauen Sie mal die Modelle mit Ihrer eigenen Maschenprobe, das kann Ihnen helfen um die Anleitung anzupassen. Viel Spaß beim Stricken!
04.02.2025 - 15:20
MZ skrifaði:
Sorry, aber ich sehe bei A1 und A2 nur das Muster, ohne Zunahmen - emailt mir doch einfach einen Screenshot, danke!
03.02.2025 - 18:50DROPS Design svaraði:
Liebe MZ, die Zunahmen in A.1 und A.2 sind mit dem schwarzen Kästchen gezeichnet - siehe letztes Symbol und ZUNAHMETIPP am Anfang der Anleitung. Viel Spaß beim Stricken!
04.02.2025 - 08:55
MZ skrifaði:
Es fehlen du Zunahmen am Anfang der Passe, vor Beginn des farbigen Musters. Können Sie das bitte zufügen?
03.02.2025 - 18:46
MZ skrifaði:
Es fehlen du Zunahmen am Anfang der Passe, vor Beginn des farbigen Musters. Können Sie das bitte zufügen?
03.02.2025 - 13:32DROPS Design svaraði:
Liebe Mz, die Zunahmen am Anfang der Rundpasse sind im Diagram A.1 sowie A.2 gezeichnet - siehe Diagram für Ihre Größe. Viel Spaß beim Stricken!
03.02.2025 - 15:43
Debora skrifaði:
Buongiorno, bel modello, grazie! Esiste un video che mostra come fare gli aumenti ? Non sono sicura di aver capito come si eseguono. Grazie mille
17.10.2024 - 10:23DROPS Design svaraði:
Buongiorno Debora, provi a vedere se questo video le può essere di aiuto. Buon lavoro!
19.10.2024 - 09:46
Spirit of Winter#spiritofwintersweater |
|||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Snow. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með hringlaga berustykki, tvöföldum kanti í hálsmáli og norrænu mynstri með stórum stjörnum. Stærð S - XXXL.
DROPS 252-29 |
|||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð. Allt mynstrið er prjónað í sléttprjóni. Til að koma í veg fyrir að stykkið missi teygjanleika þegar mynsturprjón er prjónað, er mikilvægt að herða ekki á þráðum á bakhlið á stykki. Skiptið e.t.v. yfir í eitt númer grófari prjóna þegar mynstrið er prjónað ef það herpist aðeins saman. LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING: Þessi samhverfa útaukning gefur 1 nýja lykkju. Fylgdu leiðbeiningum 1-4 að neðan: 1. Lyftið yfir fyrstu lykkju af vinstri prjóni yfir á hægri prjón eins og prjóna eigi brugðið. Hafið þráðinn sem prjónað er með aftan við stykkið. 2. Stingið inn vinstri prjóni aftan í lyftu lykkjuna og síðan inn á milli lyftu lykkjunnar og fyrstu lykkju á hægri prjóni. 3. Sláið 1 sinni uppá prjóninn með þráðinn utan um hægri prjón og dragið uppsláttinn í gegnum lykkjuna þannig að það myndist 1 ný lykkja á hægri prjóni. 4. Sleppi ysta hluta af lykkjunni af vinstri prjóni og prjónið síðan hinn þráðinn á lykkjunni slétt í gegnum fremri lykkjubogann. Nú hefur verið aukið út um 1 lykkju. LEIÐBEININGAR PRJÓN: Þegar lykkjur eru prjónaðar upp mitt undir ermi, getur myndast smá gat í skiptingunni á milli lykkja frá fram- og bakstykki og ermi. Hægt er að loka þessu gati með því að taka upp þráðinn á milli tveggja lykkja – þessi þráður er prjónaður snúinn saman með fyrstu lykkju á milli fram- og bakstykkis og ermi, þannig að gatið lokast. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA: Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráð þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr fyrir miðju á þessum 2 lykkjum), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Í uppskriftinni er notast við mismunandi lengdir á prjónum, byrjið á þeirri lengd sem passar lykkjufjölda og skiptið um ef þarf. Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað í hring frá miðju að aftan og prjónað er ofan frá og niður. Þegar berustykki hefur verið prjónað til loka, skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað til loka niður á við í hring á hringprjóna, á meðan ermar eru látnar bíða. Síðan eru ermar prjónaðar niður á við í hring. Kantur í hálsmáli er brotinn saman tvöfaldur að röngu og saumaður niður. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 56-60-64-64-68-72 lykkjur á hringprjón 8 með litnum ljós beige DROPS Snow. Skiptið yfir á hringprjón 6 (fitjað er upp með grófari prjónum til að uppfitjunarkanturinn verði teygjanlegur). Prjónið stroff hringinn (= 2 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið) í 11-11-11-13-13-13 cm og jafnið lykkjufjöldann út til 54-60-60-60-60-66 lykkjur í síðustu umferð. Síðar á að brjóta kant í hálsmáli inn að röngu og við frágang verður kantur í hálsmáli ca 5-5-5-6-6-6 cm. Setjið 1 merki í byrjun umferðar (= fyrir miðju að aftan), stykkið er nú mælt frá þessu merki. BERUSTYKKI: Nú er prjónað MYNSTUR – lesið útskýringu að ofan og prjónið fyrstu umferð með byrjun frá miðju að aftan þannig: Skiptið yfir á hringprjón 8, prjónið A.1, prjónið A.2 *, prjónið frá *-* alls 6 sinnum berustykkið hringinn. Haldið svona áfram með mynstur og aukið út í mynstri eins og útskýrt er í mynsturteikningu. Munið eftir að fylgja uppgefinni prjónfestu. Þegar berustykkið mælist 21-23-24-25-26-28 cm frá merki fyrir miðju að aftan, skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar – ATH: Öll útaukning í mynsturteikningu á nú að vera lokið = 156-180-180-216-216-228 lykkjur í umferð. Mynstrið er prjónað til loka á fram- og bakstykki og ermum. SKIPTING FYRIR FRAM- OG BAKSTYKKI OG ERMAR: JAFNFRAMT sem næsta umferð er prjónuð, skiptið berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Prjónið 24-28-28-33-34-36 lykkjur eins og áður (= hálft bakstykki), setjið næstu 31-35-35-43-41-43 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-10-6-10-10 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið mitt undir ermi), prjónið 47-55-55-65-67-71 lykkjur eins og áður (= framstykki), setjið næstu 31-35-35-43-41-43 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-10-6-10-10 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið mitt undir ermi) og prjónið síðustu 23-27-27-32-33-35 lykkjur sléttprjón (= hálft bakstykki). Klippið þráðinn. Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. FRAM- OG BAKSTYKKI: = 106-122-130-142-154-162 lykkjur. Setjið 1 merkiþráð í hvora hlið á fram- og bakstykki, mitt í 6-6-10-6-10-10 lykkjur sem fitjaðar voru upp í hvorri hlið undir ermum. Byrjið umferð við annan merkiþráðinn og haldið áfram með mynstur hringinn eins og áður - ATH: Mynstrið kemur ekki til með að ganga jafnt upp í hvorri hlið undir ermum, en prjónið mynstrið eins langt og hægt er þar til 1 lykkja er eftir hvoru megin við merkiþræðina og prjónið þessar 2 lykkjur í grunnlit. Þegar A.1 og A.2 hefur verið prjónað til loka á hæðina, prjónið sléttprjón og kant að framan fram og til baka eins og áður í litnum ljós beige þar til stykkið mælist 43-45-47-47-49-51 cm frá merki fyrir miðju að framan. Skiptið yfir á hringprjón 6 og prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið), JAFNFRAMT sem aukið er út um 22-22-26-30-30-34 lykkjur jafnt yfir í umferð 1 = 128-144-156-172-184-196 lykkjur. Þegar stroffið mælist 6-6-6-7-7-7 cm fellið af. Peysan mælist 49-51-53-55-56-58 cm frá merki fyrir miðju að aftan og ca 54-56-58-60-62-64 cm frá toppi á öxl. ERMAR: Setjið 31-35-35-43-41-43 lykkjur frá ermi frá öðrum þræðinum á hringprjón 8 og prjónið einnig upp 1 lykkju í hverja af 6-6-10-6-10-10 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi - lesið LEIÐBEININGAR PRJÓN = 37-41-45-49-51-53 lykkjur. Setjið 1 merkiþráð mitt í 6-6-10-6-10-10 nýjar lykkjur undir ermi – merkiþráðurinn er notaður þegar fækka á lykkjum mitt undir ermi. Nú á að prjóna mynstur JAFNFRAMT því sem lykkjum er fækkað mitt undir ermi – lesið þess vegna MYNSTUR og ÚRTAKA að neðan áður en ermin er prjónuð áfram. MYNSTUR: Munið eftir úrtöku að neðan áður en prjónað er áfram. Byrjið umferð við merkiþráðinn mitt undir ermi og haldið áfram með mynstur frá berustykki – ATH: Stjarnan er ekki samhverf á erminni og mynstrið kemur ekki til með að ganga jafnt upp mitt undir erminni, en prjónið mynstrið eins langt og hægt er þar til 1 lykkja er eftir hvoru megin við merkiþráðinn og prjónið þessar 2 lykkjur í grunnlit. Þegar mynstrið hefur verið prjónað til loka á hæðina, prjónið sléttprjón með litnum ljós beige. ÚRTAKA: Þegar ermin mælist 2 cm frá skiptingunni, fækkið lykkjum mitt undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA að ofan og fækkið lykkjum þannig: Fækkið um 2 lykkjur í hverjum 3-3-2½-2-2-1½ cm alls 2-4-5-7-7-8 sinnum = 33-33-35-35-37-37 lykkjur. Prjónið síðan þar til ermin mælist 40-38-37-36-37-35 cm frá skiptingunni. Skiptið yfir á sokkaprjóna 6 og prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið) JAFNFRAMT er aukið út um 7-7-9-9-7-7 lykkjur jafnt yfir í umferð 1 = 40-40-44-44-44-44 lykkjur. Þegar stroffið mælist 6-6-6-7-7-7 cm fellið af. Ermin mælist ca 46-44-43-43-44-42 cm frá skiptingunni. FRÁGANGUR: Brjótið niður stroffið efst í hálsmáli að innanverðu að stykki. Saumið stroffið niður þannig að það myndist tvöfaldur kantur í hálsmáli. Til að koma í veg fyrir að kanturinn dragi stykkið saman og beygist út, er mikilvægt að saumurinn sé teygjanlegur. |
|||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||
|
|||||||||||||
![]() |
|||||||||||||
![]() |
|||||||||||||
![]() |
|||||||||||||
![]() |
|||||||||||||
![]() |
|||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #spiritofwintersweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 27 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 252-29
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.