Julie Bellew skrifaði:
Hi, is the tension worked on straight needles or as if in the round please? Thank you
06.04.2025 - 18:42DROPS Design svaraði:
Dear Julie, the gauge should form a square, so you need to work back and forth. Remember to use the exact same needles as if you were working the piece (so if you use circular needles you use those same needles for the gauge, working back and forth). Happy knitting!
06.04.2025 - 19:36
Stefania Bernareggi skrifaði:
Buongiorno, forse nella descrizione del motivo A4 non è corretto il numero di aumenti da eseguire? Perché mi pare che il totale delle maglie da raggiungere non corrisponda. Io ho considerato corretto il numero delle maglie totali. Grazie.
01.12.2024 - 15:35DROPS Design svaraði:
Buonasera Stefania, il numero è corretto, c'è un aumento in A.4. Buon lavoro!
13.12.2024 - 23:14
Stefania Bernareggi skrifaði:
Buongiorno, forse nella descrizione del motivo A4 non è corretto il numero di aumenti da eseguire? Perché mi pare che il totale delle maglie da raggiungere non corrisponda. Io ho considerato corretto il numero delle maglie totali. Grazie.
20.11.2024 - 10:04DROPS Design svaraði:
Buonasera Stefania, il numero è corretto, c'è un aumento in A.4. Buon lavoro!
13.12.2024 - 23:15
Tze Moi Ang skrifaði:
I noticed that the sweater showed a lower front panel than back panel but I don’t see any short row shaping in the pattern. How do I make the back piece higher than the front? Thank you.
31.10.2024 - 20:32DROPS Design svaraði:
Dear Mrs Tse Moi, in this pattern neckline is as height on back as on front piece; to get a higher neck on back piece you can work some short rows as shown in this video. Happy knitting!
01.11.2024 - 08:30Mamé skrifaði:
Bonjour. Avec quelle laine plus fine peut on le faire ? Peut on avoir les explications en français ?
18.10.2024 - 14:16DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Mamé, retrouvez les explications en français en cliquant sur le menu déroulant à côté de l'icône imprimante pour changer de langue, ou bien retrouvez tous nos modèles de pulls tricotés de haut en bas, avec empiècement arrondi, toute tension confondue ici, pensez à ajouter le filtre de l'échantillon souhaité pour filtrer votre recherche. Bon tricot!
18.10.2024 - 15:55
Chestnut Season#chestnutseasonsweater |
||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Andes eða DROPS Snow. Stykkið er prjónað ofan frá og niður í sléttprjóni með hringlaga berustykki, tvöföldum kanti í hálsmáli, i-cord og klauf í hliðum. Stærð S - XXXL.
DROPS 255-30 |
||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.4. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð. GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. I-CORD: FYRSTU 2 LYKKJUR: Prjónið í hverri umferð þannig: Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt. SÍÐUSTU 2 LYKKJUR: Prjónið í hverri umferð þannig: Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir í umferð, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt. LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 78 lykkjur) og með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 8) = 9,5. Í þessu dæmi er aukið út jafnt yfir með því að slá 1 sinni uppá prjóninn til skiptis á eftir ca 9. og 10. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn - svo ekki myndist gat. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA (á við um fyrir miðju undir ermum): Til að úrtakan komi til skiptis hægra og vinstra megin við merkiþráðinn, er lykkjum fækkað til skiptist á undan og á eftir merkiþræði í umferðinni sem fækka á lykkjum í. FÆKKIÐ LYKKJUM Á UNDAN MERKIÞRÆÐI ÞANNIG: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 1 lykkja slétt (= 1 lykkja færri). FÆKKIÐ LYKKJUM Á EFTIR MERKIÞRÆÐI ÞANNIG: Prjónið 1 lykkju slétt, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 1 lykkja færri). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Í uppskriftinni er notast við mismunandi lengdir á prjónum, byrjið á þeirri lengd sem passar lykkjufjölda og skiptið um ef þarf. Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað í hring á hringprjóna frá hægri öxl að aftan og prjónað er ofan frá og niður. Þegar berustykkið hefur verið prjónað til loka, skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykkið skiptist fyrir klauf í hvorri hlið og síðan er framstykkið og bakstykkið prjónað til loka fram og til baka hvort fyrir sig. Síðan eru ermar prjónaðar niður á við í hring. Kantur í hálsmáli er brotinn tvöfaldur að röngu og saumaður niður. Ef það stendur 0 í valinni stærð, þá þýðir það að hoppað er yfir leiðbeiningar fram að næstu leiðbeiningum. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 62-64-70-70-74-76 lykkjur á hringprjón 8 með DROPS Andes eða DROPS Snow. Skiptið yfir á hringprjón 6 (fitjað er upp með grófari prjónum til að uppfitjunarkanturinn verði teygjanlegur). Prjónið stroff hringinn (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 13-13-13-15-15-15 cm. Síðar á að brjóta kant í hálsmáli inn að röngu og við frágang verður kantur í hálsmáli ca 6-6-6-7-7-7 cm. Byrjun umferðar er við hægri öxl að aftan. Setjið 1 merki eftir fyrstu 21-22-24-24-25-25 lykkjur í umferð (= ca mitt að framan), stykkið er nú mælt frá þessu merki. BERUSTYKKI: Skiptið yfir á hringprjón 8 og prjónið 1 umferð sléttprjón þar sem aukið er út um 1-5-2-2-4-8 lykkjur jafnt yfir – lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING = 63-69-72-72-78-84 lykkjur. Prjónið síðan í sléttprjóni. Munið eftir að fylgja uppgefinni prjónfestu. Þegar berustykkið mælist 3-3-4-4-4-4 cm frá merki, aukið út lykkjur með því að prjóna MYNSTUR – lesið útskýringu að ofan og prjónið þannig: A.1: Prjónið fyrstu umferð í A.1 alls 21-23-24-24-26-28 sinnum hringinn á berustykki = 84-92-96-120-130-140 lykkjur. Prjónið sléttprjón þar til stykkið mælist 8-8½-9½-9½-9½-9½ cm frá merki. Næsta umferð er prjónuð þannig: A.2: Prjónið fyrstu umferð í A.2 alls 21-23-24-24-26-28 sinnum hringinn á berustykki = 105-115-120-144-156-168 lykkjur. Prjónið sléttprjón þar til stykkið mælist 13-14-15-15-16-16 cm frá merki. Næsta umferð er prjónuð þannig: A.3: Prjónið fyrstu umferð í A.3 alls 21-23-24-24-26-28 sinnum hringinn á berustykki = 126-138-144-168-182-196 lykkjur. Prjónið sléttprjón þar til stykkið mælist 18-19½-20½-20½-22½-22½ cm frá merki. Næsta umferð er prjónuð þannig: A.4: Prjónið fyrstu umferð í A.4 alls 21-23-24-24-26-28 sinnum hringinn á berustykki = 147-161-168-192-208-224 lykkjur. Prjónið sléttprjón jafnframt því sem aukið er út um 5-3-4-4-0-0 lykkjur jafnt yfir í fyrstu umferð = 152-164-172-196-208-224 lykkjur. Þegar berustykkið mælist 21-23-24-24-26-28 cm frá merki fyrir miðju að framan skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. SKIPTING FYRIR FRAM- OG BAKSTYKKI OG ERMAR: JAFNFRAMT sem næsta umferð er prjónuð, skiptið berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Setjið fyrstu 28-30-32-38-38-40 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-8-10-10-12-12 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið mitt undir ermi), prjónið 48-52-54-60-66-72 lykkjur sléttprjón (= framstykki), setjið næstu 28-30-32-38-38-40 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-8-10-10-12-12 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið mitt undir ermi) og prjónið síðustu 48-52-54-60-66-72 lykkjur sléttprjón (= bakstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. FRAM- OG BAKSTYKKI: = 112-120-128-140-156-168 lykkjur. Setjið 1 merkiþráð í hvora hlið á fram- og bakstykki, mitt í 8-8-10-10-12-12 lykkjur sem fitjaðar voru upp undir hvorri ermi og látið merkiþræðina fylgja áfram með í stykkinu, merkiþræðirnir eru notaðir þegar skipta á stykkinu upp fyrir klauf í hvorir hlið. Prjónið fram að fyrsta merkiþræðinum, umferðin byrja hér og prjónað er í hring í sléttprjóni. Þegar stykkið mælist 44-46-47-48-50-52 cm frá merki fyrir miðju að framan, prjónið næstu umferð þannig: Byrjið 1 lykkju á undan byrjun umferðar, setjið 1 lykkju á kaðlaprjón aftan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt, setjið til baka merkiþráðinn á prjóninn, prjónið 1 lykkju slétt af kaðlaprjóni, prjónið þar til 1 lykkja er eftir á undan næsta merkiþræði, setjið 1 lykkju á kaðlaprjón framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt, setjið til baka merkiþráðinn á prjóninn, prjónið 1 lykkja slétt af kaðlaprjóni, prjónið út umferðina eins og áður. Stykkið mælist ca 45-47-48-49-51-53 cm frá merki fyrir miðju að framan. Nú skiptist stykkið fyrir klauf í hvorri hlið á fram- og bakstykki, skiptið stykkinu við merkiþræðina með því að bíða með lykkjur frá bakstykki og prjóna lykkjur frá framstykki fram og til baka eins og útskýrt er að neðan. FRAMSTYKKI: = 56-60-64-70-78-84 lykkjur. Í næstu umferð (= rétta) byrjar stroff JAFNFRAMT því sem aukið er út um 23-25-27-29-33-35 lykkjur jafnt yfir í umferð = 79-85-91-99-111-119 lykkjur, prjónið þannig: Skiptið yfir á hringprjón 6 og prjónið 2 lykkjur í I-CORD og 2 lykkjur í GARÐAPRJÓN – lesið útskýringu að ofan, prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið – munið eftir útaukning) þar til 5 lykkjur eru eftir, prjónið2 lykkjur í garðaprjóni og 2 lykkjur í i-cord. Þegar stroffið mælist 10-10-10-11-11-11 cm fellið af. Peysan mælist 55-57-58-60-62-64 cm frá merki fyrir miðju að framan og ca 60-62-64-66-68-70 cm frá toppi á öxl. BAKSTYKKI: Prjónið á sama hátt og framstykki. ERMAR: Setjið 28-30-32-38-38-40 lykkjur frá ermi frá öðrum þræðinum á hringprjón 8 og prjónið einnig upp 1 lykkju í hverja af 8-8-10-10-12-12 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 36-38-42-48-50-52 lykkjur. Setjið 1 merkiþráð mitt í 8-8-10-10-12-12 nýjar lykkjur undir ermi – umferðin byrjar við merkiþráðinn. Prjónið sléttprjón hringinn í umferð – JAFNFRAMT þegar ermin mælist 4-4-3-2-2-2 cm frá skiptingunni, fækkið lykkjum mitt undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA og fækkið lykkjum þannig: Fækkið um 1 lykkju til skiptis á undan og á eftir merkiþræði í hverjum 5-3½-3-1½-1½-1½ cm alls 6-8-10-16-16-18 sinnum = 30-30-32-32-34-34 lykkjur. Prjónið síðan þar til ermin mælist 34-32-32-32-30-29 cm frá skiptingunni. Skiptið yfir á sokkaprjón 6 og prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) JAFNFRAMT er aukið út um 8-8-10-10-10-10 lykkjur jafnt yfir í umferð 1 = = 38-38-42-42-44-44 lykkjur. Þegar stroffið mælist 10-10-10-11-11-11 cm fellið af. Ermin mælist ca 44-42-42-43-41-40 cm frá skiptingunni. FRÁGANGUR: Brjótið niður stroffið efst í hálsmáli að innanverðu að stykki. Saumið stroffið niður þannig að það myndist tvöfaldur kantur í hálsmáli. Til að koma í veg fyrir að kanturinn dragi stykkið saman og beygist út, er mikilvægt að saumurinn sé teygjanlegur. |
||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||
|
||||||||||
![]() |
||||||||||
![]() |
||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #chestnutseasonsweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 33 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 255-30
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.