Heike Nagelschmidt skrifaði:
Ich finde A1 nicht!
07.10.2024 - 06:44DROPS Design svaraði:
Liebe Frau Nagelschmidt, Diagram A.1 finden Sie nach der Symbolbeschreibung, vor der Maßskizze (2 Diagramme A.1 je nach der Größe + 1 Diagram A.2 daneben). Viel Spaß beim Stricken!
07.10.2024 - 08:59
Joanna Wojciechowska skrifaði:
Kolejny projekt. Wyszedł ślicznie. Jasno i czytelnie zrobiony opis. Ażur dobrze rozpisany. No poprostu samo się dziergało. Dziękuję. Już dziergam następny.
11.09.2024 - 11:55DROPS Design svaraði:
Witaj Joanno, bardzo miło nam to słyszeć. Czekamy na Twoje kolejne piękne prace. Pozdrawiamy!
11.09.2024 - 14:28
Joanna Wojciechowska skrifaði:
Kolejny projekt. Wyszedł ślicznie. Jasno i czytelnie zrobiony opis. Ażur dobrze rozpisany. No poprostu samo się dziergało. Dziękuję. Już dziergam następny.
11.09.2024 - 11:54
Joanna skrifaði:
Kolejny projekt. Wyszedł ślicznie. Jasno i czytelnie zrobiony opis. Ażur dobrze rozpisany. No poprostu samo się dziergało. Dziękuję
11.09.2024 - 11:53
Sri skrifaði:
Dear Drops Team I am new to drops designs and they are very inspiring to knit. I am confused with the size and how to choose right size. My measurements are chest - 100 , waist - 91 and hip 108. which size should I choose in general and is it after blocking or before blocking? Is the jumper size will change after few usages? appreciate help. Best Regards
10.04.2024 - 02:39DROPS Design svaraði:
Dear Shri, All the necessary measurements are on the schematic drawing at the bottom of the instructions, The measurements are of the finished garment, after blocking. Since the measurements are after blocking, they should not change considerably after wearing, if the piece is handled well. We suggest that you take a sweater that fits the intended wearer well, and compare the measurements. Happy Knitting!
10.04.2024 - 06:08
Lianne Künne skrifaði:
Keine Nachrichten mehr! Nervt total
10.02.2024 - 11:26
Lianne Künne skrifaði:
Bitte schicken Sie mir keine Nachrichten mehr. Ich habe keinen Newsletter abonniert und habe schon tausendmal angeklickt, dass ich nichts von Ihnen wünsche. Nervt total
10.02.2024 - 11:24DROPS Design svaraði:
Liebe Frau Künne, am besten klicken Sie auf "unsubscribed/abmelden" in irgendeinen Newsletter-E-Mail oder schreiben Sie uns hello@garnstudio.com. Danke im voraus.
20.02.2024 - 09:27
Johanna skrifaði:
Fliederfrühling
20.01.2024 - 00:03
Lynda Kuit skrifaði:
Butterfly journey
19.01.2024 - 09:55
Angelique skrifaði:
Softly dream
19.01.2024 - 04:06
Lavender Harvest#lavenderharvestsweater |
||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||||||||||||||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Air. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með tvöföldum kanti í hálsmáli, hringlaga berustykki og gatamynstri. Stærð S - XXXL.
DROPS 250-35 |
||||||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð (á við um A.1). ÚTAUKNING (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 92 lykkjur) og deilið lykkjum með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 18) = 5,1. Í þessu dæmi er aukið út jafnt yfir með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 5. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn, svo ekki myndist gat. ÚRTAKA (á við um mitt undir ermum): Byrjið 3 lykkjum á undan merkiþræði, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Í mynstrinu hafa verið notaðir stuttir og langir prjónar, byrjið á lengdinni sem passar og skiptið um ef þarf. Hálsmál og berustykki er prjónað í hring á hringprjón frá miðju að aftan og er prjónað ofan frá og niður. Þegar berustykki hefur verið prjónað til loka er lykkjum skipt fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað til loka niður á við í hring á hringprjóna, á meðan ermar eru látnar bíða. Ermar eru síðan prjónaðar niður á við í hring á sokkaprjóna / hringprjóna. Kantur í hálsmáli er brotin tvöfalt að röngu og saumaður niður. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 92-96-104-104-108-112 lykkjur á hringprjón 5 með DROPS Air. Skiptið yfir á hringprjón 3,5 (lykkjur eru fitjaðar upp á grófari prjóna til að uppfitjunarkanturinn verði teygjanlegur). Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff hringinn (2 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið) í 9 cm. Síðar á að brjóta kant í hálsmáli tvöfalt og við frágang verður kantur í hálsmáli ca 4 cm. Setjið 1 merki í byrjun umferðar (= mitt að aftan). Berustykkið er nú mælt frá þessu merki. BERUSTYKKI. Skiptið yfir á hringprjón 5. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 18-20-20-24-26-28 lykkjur jafnt yfir – lesið ÚTAUKNING = 110-116-124-128-134-140 lykkjur. Prjónið síðan sléttprjón hringinn. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar berustykkið mælist 2-3-4-5-4-6 cm frá merki, aukið út 18-20-20-32-34-36 lykkjur jafnt yfir – munið eftir ÚTAUKNING = 128-136-144-160-168-176 lykkjur. Haldið áfram í sléttprjóni þar til berustykkið mælist 3-4-5-6-5-7 cm frá merki. Nú er prjónað MYNSTUR – lesið útskýringu að ofan, þ.e.a.s. prjónið A.1 alls 16-17-18-20-21-22 sinnum berustykkið hringinn. Haldið svona áfram með mynstur. Jafnframt í hverri umferð merktri með ör í A.1, eru lykkjur auknar út jafnt yfir eins og útskýrt er að neðan – munið eftir ÚTAUKNING. Ör-1: Aukið út 24-24-24-32-32-32 lykkjur jafnt yfir = 152-160-168-192-200-208 lykkjur. Ör-2: Aukið út 24-24-24-24-32-32 lykkjur jafnt yfir = 176-184-192-216-232-240 lykkjur. Ör-3: Aukið út 20-26-32-36-34-40 lykkjur jafnt yfir = 196-210-224-252-266-280 lykkjur. Ör-4: Í þessari umferð eru 252-270-288-324-342-360 lykkjur, fækkið um 8-2-4-4-6-8 lykkjur jafnt yfir í umferð (fækkið um 1 lykkju með því að prjóna 2 lykkjur slétt saman) = 244-268-284-320-336-352 lykkjur. Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka, mælist berustykkið ca 20-21-22-23-25-27 cm frá merki. Nú skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Prjónið fyrstu umferð í A.2 yfir fyrstu 38-42-44-49-53-56 lykkjur (hálft bakstykki), setjið næstu 46-50-54-62-62-64 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-8-10-10-12-14 nýjar lykkjur á prjóninn (í hlið undir ermi), prjónið fyrstu umferð í A.2 yfir næstu 76-84-88-98-106-112 lykkjur (framstykki), setjið næstu 46-50-54-62-62-64 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-8-10-10-12-14 nýjar lykkjur í umferð (í hlið undir ermi) og prjónið fyrstu umferð í A.2 yfir síðustu 38-42-44-49-53-56 lykkjur. Klippið þráðinn. Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. Héðan er nú stykkið mælt. FRAM- OG BAKSTYKKI: = 168-184-196-216-236-252 lykkjur. Setjið 1 merki í aðra hlið á stykki, mitt í 8-8-10-10-12-14 lykkjur sem fitjaðar voru upp undir ermi. Byrjið umferð við merki og prjónið A.2 hringinn (byrjið í 2. umferð í A.2). JAFNFRAMT í fyrstu umferð sem var prjónuð er lykkjufjöldinn jafnaður út til 168-183-195-216-234-252 lykkjur. Í umferð merktri með ör-5 í A.2 er lykkjufjöldinn jafnaður út til 170-185-195-215-235-250 lykkjur. Haldið áfram með mynstur. Þegar A.2 hefur verið prjónað til loka, prjónið sléttprjón hringinn þar til stykkið mælist 23-24-24-25-25-25 cm frá skiptingunni. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 30-31-33-37-41-46 lykkjur jafnt yfir = 200-216-228-252-276-296 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 3,5. Prjónið stroff hringinn (2 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið) í 6 cm. Fellið af. Peysan mælist ca 54-56-58-60-62-64 cm frá öxl. ERMAR: Setjið 46-50-54-62-62-64 lykkjur af þræði í annarri hliðinni á stykki á sokkaprjóna / hringprjóna 5 og prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 8-8-10-10-12-14 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 54-58-64-72-74-78 lykkjur. Setjið 1 merkiþráð mitt í 8-8-10-10-12-14 lykkjur undir ermi, að auki er sett 1 merki mitt ofan á ermi (á milli 2 miðju lykkja á ermi). Nú er prjónað mynstur jafnframt því sem lykkjum er fækkað mitt undir ermi, lestu því báða kaflana áður en þú prjónar áfram. MYNSTUR: Byrjið umferð við merkiþráðinn mitt undir ermi og prjónið A.2 hringinn á erminni (byrjið á umferð 1 í mynsturteikningu). Þegar prjóna á 15. umferð í A.2, teljið út frá miðju á ermi hvar mynstrið á að byrja mitt undir ermi – merkið mitt að ofan á ermi á að passa við ör í A.2. Þegar A.2 hefur verið prjónað til loka, prjónið sléttprjón. ÚRTAKA: Þegar ermin mælist 4-4-3-2-2-2 cm frá skiptingu, fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi – lesið ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona í hverjum 4-4-2-1½-1½-1½ cm alls 3-4-7-10-10-11 sinnum = 48-50-50-52-54-56 lykkjur. Prjónið þar til ermin mælist 39-38-38-38-37-35 cm frá skiptingu. Nú eru eftir 6 cm að loka máli. Mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd fyrir stroff. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 8-10-10-8-10-8 lykkjur jafnt yfir = 56-60-60-60-64-64 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjóna 3,5. Prjónið stroff hringinn (2 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið) í 6 cm. Fellið af. Ermin mælist ca 45-44-44-44-43-41 cm frá skiptingu. FRÁGANGUR: Brjótið niður stroffið efst í hálsmáli að innanverðu að stykki. Saumið stroffið niður þannig að það myndist tvöfaldur kantur í hálsmáli. Til að koma í veg fyrir að kanturinn dragi stykkið saman og beygist út, er mikilvægt að saumurinn sé teygjanlegur. |
||||||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #lavenderharvestsweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 28 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 250-35
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.