Perfectly Peach Jacket |
||||||||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||||||||
Prjónuðu peysa úr DROPS Air. Stykkið er prjónað ofan frá og niður í perluprjóni með laskalínu, V-hálsmáli og I-cord. Stærð XS - XXL.
DROPS 248-23 |
||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. KANTUR AÐ FRAMAN MEÐ I-CORD: Í BYRJUN UMFERÐAR: Prjónið kant að framan þannig: Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt og 7 lykkjur í garðaprjóni. Í LOK UMFERÐAR: Prjónið kant að framan þannig: Prjónið þar til 9 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 7 lykkjur í garðaprjóni, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt. Prjónið á sama hátt bæði frá réttu og frá röngu. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.4. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. LASKALÍNA: Öll útaukning er gerð frá réttu! Aukið út um 1 lykkju hvoru megin við 4 lykkjur með merki í. Þær 4 lykkjur með merki eru prjónaðar í sléttprjóni. Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð (= ranga) er uppslátturinn prjónaður þannig – það á ekki að myndast gat: Á UNDAN LYKKJU MEÐ MERKI: Prjónið uppsláttinn snúið brugðið. Á EFTIR LYKKJU MEÐ MERKI: Lyftið uppslættinum yfir á hægri prjón eins og prjóna eigi slétt, setjið uppsláttinn til baka yfir á vinstri prjón, prjónið uppsláttinn brugðið í fremri lykkjubogann. Prjónið síðan nýjar lykkjur inn í mynstur. V-HÁLSMÁL: Öll útaukning er gerð frá réttu! Aukið út fyrir V-hálsmáli innan við 9 kantlykkjur að framan og 1 lykkju í sléttprjóni á báðum framstykkjum. Aukið út þannig: Prjónið vinstri kant að framan, prjónið 1 lykkju sléttprjón, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið þar til 10 lykkjur eru eftir í umferð, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 1 lykkju sléttprjón, prjónið hægri kant að framan. Í næstu umferð (= ranga) er uppslátturinn prjónaður þannig – það á ekki að myndast gat: Á EFTIR HÆGRI KANTI AÐ FRAMAN: Lyftið uppslættinum yfir á hægri prjón eins og prjóna eigi uppsláttinn slétt, stingið vinstri prjóni inn í uppsláttinn og setjið uppsláttinn til baka yfir á vinstri prjón, prjónið uppsláttinn brugðið í fremri lykkjubogann. Á UNDAN VINSTRI KANTI AÐ FRAMAN: Prjónið uppsláttinn snúinn brugðið. Prjónið síðan nýjar lykkjur inn í mynstur. HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan (séð þegar flíkin er mátuð). Fellið af frá réttu þegar 6 lykkjur eru eftir í umferð þannig: Sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 næstu lykkjur slétt saman, prjónið afgang af kanti að framan eins og áður. Í næstu umferð (ranga) er uppslátturinn prjónaður slétt, svo það myndist gat. Fellið af fyrir fyrsta hnappagatinu 1 cm á eftir síðustu útaukningu fyrir V-hálsmáli. Síðan er fellt af fyrir næstu 3 hnappagötum með ca 7-8-8-8½-8½-9 cm millibili. Neðsta hnappagatið á að vera staðsett í skiptingunni á milli sléttprjóns og stroffs. ÚRTAKA (á við um ermar): Öll úrtaka er gerð í umferð í sléttprjóni. Fækkið um 1 lykkju hvoru megin merkiþráðinn þannig: Byrjið við merkiþráðinn, prjónið 1 lykkju slétt, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð, prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði í lok umferðar, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 1 lykkju slétt. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Í mynstrinu eru notaðir stuttir og langir prjónar, byrjið með þá lengd sem passar og skiptið eftir þörf. Byrjað er að prjóna 2 lausa kanta að framan. Síðan eru fitjaðar upp lykkjur á milli þessa kanta að framan fyrir berustykki. Berustykkið er prjónað fram og til baka á hringprjón frá miðju að framan, ofan frá og niður. Þegar berustykkið hefur verið prjónað til loka, er lykkjum skipt fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað til loka niður á við fram og til baka á hringprjóna, á meðan ermar eru látnar bíða. Síðan eru ermar prjónaðar niður á við í hring á sokkaprjóna / hringprjóna. Í lokin eru lausu kantar að framan saumaðir niður við kant í hálsmáli við hnakka. VINSTRI KANTUR AÐ FRAMAN: Fitjið upp 9 lykkjur á prjón 5 með DROPS Air og prjónið þannig: RÉTTA: Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt og 7 lykkjur í GARÐAPRJÓN – lesið útskýringu að ofan. RANGA: Prjónið 7 lykkjur í garðaprjóni, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt. Prjónið svona fram og til baka þar til kantur að framan mælist 17-17-17-17½-18-18 cm, síðasta umferð er prjónuð frá réttu. Klippið þráðinn og leggið stykkið til hliðar. HÆGRI KANTUR AÐ FRAMAN: Fitjið upp 9 lykkjur á prjón 5 með DROPS Air og prjónið þannig: RÉTTA: Prjónið 7 lykkjur í garðaprjóni, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt. RANGA: Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt og 7 lykkjur í garðaprjóni. Prjónið svona fram og til baka þar til kantur að framan mælist 17-17-17-17½-18-18 cm, síðasta umferð er prjónuð frá réttu. Snúið og haldið áfram að prjóna berustykki eins og útskýringu að neðan. BERUSTYKKI: Berustykki er prjónað fram og til baka með KANTUR AÐ FRAMAN MEÐ I-CORD í hvorri hlið, lesið útskýringu að ofan. Fyrsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið eins og áður yfir hægri kant að framan frá röngu, fitjið upp 65-65-65-67-69-69 nýjar lykkjur í umferð, prjónið til loka eins og áður yfir vinstri kant að framan frá röngu = 83-83-83-85-87-87 lykkjur. Setjið 4 merki í stykkið eins og útskýrt er að neðan, þetta er gert án þess að prjóna lykkjurnar: Teljið 10 lykkjur (framstykki), setjið 1 merki í næstu lykkju, teljið 17 lykkjur (ermi), setjið 1 merki í næstu lykkju, teljið 25-25-25-27-29-29 lykkjur (bakstykki), setjið 1 merki í næstu lykkju, teljið 17 lykkjur (ermi), setjið 1 merki í næstu lykkju, það eru 10 lykkjur eftir í umferð (framstykki). Nú er berustykkið prjónað fram og til baka með kanti að framan og mynstri, jafnframt því sem aukið er út fyrir V-hálsmáli og laskalínu – lestu því alla kaflana fram að skiptingu áður en þú prjónar áfram. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Prjónið MYNSTUR frá réttu þannig: Prjónið vinstri kant að framan, prjónið A.1 yfir vinstra framstykki fram að fyrsta merki, * prjónið A.2, endurtakið A.3 fram að næsta merki *, prjónið frá *-* alls 3 sinnum, prjónið A.4 yfir hægra framstykki, endið með hægri kanti að framan. Prjónið frá röngu þannig: Prjónið hægri kant að framan, prjónið brugðið þar til 9 lykkjur eru eftir (munið eftir að snúa uppslættinum í sitt hvora áttina), endið með vinstri kant að framan. Perluprjón / A.3 er endurekið á hæðina – mynsturteikning sýnir perluprjón í hverri umferð frá réttu, síðan eru útauknar lykkjur prjónaðar inn í mynstur. JAFNFRAMT heldur útaukning áfram fyrir V-hálsmáli og laskalínu eins og útskýrt er að neðan. V-HÁLSMÁL: Aukið út fyrir V-HÁLSMÁL – lesið útskýringu að ofan, innan við kant að framan og 1 slétt lykkja í hvorri hlið í 4. hverri umferð alls 11-11-12-12-13-14 sinnum (ásamt útaukningu eins og útskýrt er í mynsturteikningu). 1 cm eftir síðustu útaukningu fyrir V-hálsmáli, er fellt af fyrir fyrsta hnappagati í hægri kanti að framan – lesið HNAPPAGAT að ofan. LASKALÍNA: Aukið út hvoru megin við lykkjur með merki í eins og útskýrt er að ofan í annarri hverri umferð (hverri umferð frá réttu = 8 lykkjur fleiri) alls 11-20-21-22-23-23 sinnum (ásamt útaukningu eins og útskýrt er í mynsturteikningu). Síðan heldur útaukningin áfram fyrir laskalínu í annarri hverri umferð, en í annað hvert skipti sem aukið er út, er einungis aukið út á framstykkjum/bakstykki. Þ.e.a.s. aukið er út á framstykkjum/bakstykki í annarri hverri umferð og á ermum í 4. hverri umferð (aukið er út til skiptis um 8 og 4 lykkjur). Aukið svona út með 11-3-4-4-4-7 sinnum á framstykkjum/bakstykki (5-1-2-2-2-3 sinnum á ermum). Nú hefur verið aukið út alls 22-23-25-26-27-30 sinnum á framstykkjum/bakstykki og 16-21-23-24-25-26 sinnum á ermum. Haldið áfram að prjóna fram og til baka með kanti að framan og perluprjóni/A.3 þar til öll útaukning hefur verið gerð til loka. Á eftir síðustu útaukningu eru 257-281-299-309-321-339 lykkjur í umferð. Síðan er prjónað fram og til baka í perluprjóni án útaukningar þar til stykkið mælist 20-21-23-24-25-27 cm frá miðju að aftan. Síðasta umferð er prjónuð frá röngu. Nú skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar eins og útskýrt er að neðan. SKIPTING FYRIR FRAM- OG BAKSTYKKI OG ERMAR: Prjónið vinstri kant að framan eins og áður, prjónið næstu 35-38-41-42-45-50 lykkjur í perluprjóni/A.3,setjið næstu 49-55-59-61-61-61 lykkjur á þráð fyrir ermi og fitjið upp 8-10-12-14-16-18 nýjar lykkjur í umferð (í hlið undir ermi), prjónið næstu 71-77-81-85-91-99 lykkjur í perluprjóni/A.3, setjið næstu 49-55-59-61-61-61 lykkjur á þráð fyrir ermi og fitjið upp 8-10-12-14-16-18 nýjar lykkjur í umferð (í hlið undir ermi, prjónið næstu 35-38-41-42-45-50 lykkjur í perluprjóni/A.3 og endið með að prjóna hægri kant að framan eins og áður. FRAM- OG BAKSTYKKI: = 175-191-205-215-231-253 lykkjur. Haldið áfram að prjóna perluprjón/A.3 með kanti að framan í hvorri hlið eins og áður þar til stykkið mælist 22-24-24-25-26-26 cm frá skiptingu – stillið af að síðasta umferð sé prjónuð frá réttu. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu þar sem aukið er út um 18-20-22-24-26-28 lykkjur jafnt yfir (lykkjum er ekki aukið út yfir kanta að framan) = 193-211-227-239-257-281 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 4. Prjónið næstu umferð frá réttu þannig: Prjónið kant að framan eins og áður * 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið *, prjónið frá *-* þar til 10 lykkjur eru eftir, prjónið 1 lykkju slétt, endið með kant að framan eins og áður. Haldið svona áfram með stroff í 4 cm. Fellið af. Peysan mælist ca 51-54-56-58-60-62 cm frá öxl. ERMAR: Setjið 49-55-59-61-61-61 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjóna / hringprjóna 5 og prjónið einnig upp 1 lykkju í hverja af 8-10-12-14-16-18 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 57-65-71-75-77-79 lykkjur. Setjið 1 merkiþráð mitt í 8-10-12-14-16-18 nýjar lykkjur undir ermi. Byrjið umferð við merkiþráðinn og prjónið perluprjón / A.3 hringinn eins og áður – stillið af að mynstrið haldi áfram frá berustykki og yfir á ermi. Þegar ermin mælist 4-4-4-4-3-3 cm frá skiptingu, fækkið um 2 lykkjur undir ermi – lesið ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona í ca hverjum 6½-4-3-3-3-3 cm alls 6-9-12-12-13-12 sinnum = 45-47-47-51-51-55 lykkjur. Haldið áfram þar til ermin mælist 43-43-42-42-41-40 cm frá skiptingu. Nú eru eftir 4 cm að loka máli, mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd fyrir stroff. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 5-7-7-5-5-5 lykkjur jafnt yfir í öllum stærðum = 50-54-54-56-56-60 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjóna 4. Prjónið stroff (1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) hringinn í 4 cm. Fellið af. Ermin mælist ca 47-47-46-46-45-44 cm frá skiptingu. FRÁGANGUR: Saumið tölur í vinstri kant að framan. Saumið uppfitjunarkantinn í kanti að framan saman og saumið kanta að framan við hálsmál aftan í hnakka – kantar að framan eru strekktir létt þegar þeir eru saumaðir. |
||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||
|
||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (10)
Ich komme mit den beiden Anfangsblenden nicht zurecht. Sie werden immer beide gleich, auch wenn ich nach Anleitung stricke. Sie müssten doch gegengleich sein, oder? Und sie werden NICHT abgekettet, richtig?
15.07.2024 - 15:41DROPS Design svaraði:
Liebe Stefanie, genau, die Blenden werden nicht abgekettet - bei der rechten Blende wird direkt weitergestrickt und die linke Blende wird dann mit in die Reihe eingestrickt. Die beiden Blenden müssten in Bezug auf den Rand gegengleich sein - die eine Seite der Blenden besteht aus einem geraden Rand, die andere Seite aus einem Knötchenrand. Ansonsten sind die Blenden aber gleich und man kann aufgrund der Krausrippen auch leicht Vorder- und Rückseite verwechseln. Markieren Sie sich am besten die Vorderseite, wenn Sie dann genau nach Anleitung stricken, müsste der gerade Blenden-Rand bei der einen Blende an der rechten und bei der anderen Blende an der linken Seite erscheinen.
16.07.2024 - 17:57Peut-on le tricoter sans aiguilles circulaires, juste des aiguilles droites ? Merci et je vous souhaite une excellente journée .
19.02.2024 - 18:27DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Turbang, tout à fait, l'empiècement et le dos/les devants peuvent juste être tricotés sur aiguille circulaire, pour les manches, cette leçon pourra vous aider à faire les ajustements nécessaires. Bon tricot!
20.02.2024 - 07:47Aurore
20.01.2024 - 14:55Orangeade
18.01.2024 - 20:21Peach party
18.01.2024 - 18:30Fresh summer fruit
18.01.2024 - 16:20Apricot cardigan
18.01.2024 - 15:50Apricose
18.01.2024 - 15:48Peachy Warmth
18.01.2024 - 13:24C'est un beau design adapté au quotidien et la couleur est fraîche !
18.01.2024 - 13:21