Dorthe skrifaði:
Dobbelt halskant: Hvordan bliver 76 masker til 60 masker ved indtagning?
15.11.2023 - 21:19DROPS Design svaraði:
Hej Dorthe, du strikker 10 masker hvor du tager 2 masker ind til 8, sæt 1 mærke, strikker 17 masker hvor du tager 4 masker ind til 13, sæt 1 mærke, strik 19 masker hvor du tager 4 masker ind til 15, sæt 1 mærke, strik 17 masker hvor du tager 4 masker ind til 13, sæt 1 mærke, strik 9 masker hvor du tager 2 masker ind. Nu har du 15m på for og bagstykke og 13 masker på ærmerne = 56 masker + de 4 masker med mærketråde = 60 masker :)
16.11.2023 - 15:05
Susan Whelan skrifaði:
When it says to increase for raglan on the body only, does this mean one side of the marker but not the other? I’m attempting my first sweater and I not sure if this is accurate. Thanks!
24.10.2023 - 14:00DROPS Design svaraði:
Dear Mrs Whelan, correct, you will increase at the end of back piece before marker, at the beg of front piece after marker + before the marker at the end of front piece and finally at the beg of back piece after marker. Happy knitting!
24.10.2023 - 17:08
Fialotta skrifaði:
Winter fog
03.08.2023 - 20:25
Inge Voigt skrifaði:
Snowy
03.08.2023 - 13:29
Under the Moon#underthemoonsweater |
|
![]() |
![]() |
Prjónuð peysa úr DROPS Andes. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með laskalínu og klauf í hliðum. Stærð S - XXXL.
DROPS 245-25 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. LASKALÍNA: Þegar prjónað er fram og til baka er uppslátturinn prjónaður frá röngu þannig: Á UNDAN PRJÓNAMERKI: Prjónið uppsláttinn brugðið í aftari lykkjubogann. Það á ekki að myndast gat. Á EFTIR PRJÓNAMERKI: Lyftið uppslættinum af vinstri prjóni og setjið til baka yfir á vinstri prjón, nema í gagnstæða átt (stingið inn vinstri prjón aftan frá þegar uppslátturinn er settur til baka á prjóninn). Prjónið uppsláttinn brugðið í fremri lykkjubogann. Það á ekki að myndast gat. Þegar prjónað er í hring er uppslátturinn prjónaður í næstu umferð þannig: Á UNDAN PRJÓNAMERKI: Lyftið uppslættinum af vinstri prjóni og setjið til baka yfir á vinstri prjón, nema í gagnstæða átt (stingið inn vinstri prjóni aftan frá þegar uppslátturinn er settur til baka á prjóninn). Prjónið uppsláttinn slétt í fremri lykkjubogann (uppslátturinn snýr til hægri). Það á ekki að myndast gat. Á EFTIR PRJÓNAMERKI: Prjónið uppsláttinn slétt í aftari lykkjubogann (uppslátturinn snýr til vinstri). Það á ekki að myndast gat. ÚRTAKA (á við um miðju undir ermum): Byrjið 3 lykkjum á undan merkiþræði, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (merkiþráðurinn er staðsettur á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Tvöfaldur kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað í hring á hringprjóna frá miðju að aftan, ofan frá og niður. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað í hring á hringprjóna, áður en stykkið skiptist fyrir klauf í hliðum og prjónað er fram og til baka. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna / stuttan hringprjón. TVÖFALDUR KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 76-76-80-80-84-84 lykkjur með DROPS Andes yfir stutta hringprjóna 8 og stutta hringprjóna 6 sem haldið er saman. Dragið út hringprjón 8 og haldið lykkjum eftir á hringprjóni 6. (uppfitjunin er gerð svona til að uppfitjunarkanturinn verði teygjanlegur). Prjónið 1 umferð slétt, prjónið síðan stroffprjón þannig: * 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið *, prjónið frá *-* umferðina hringinn. Haldið áfram þar til stykkið mælist 14 cm. Skiptið yfir á hringprjón 8. Nú eru 4 prjónamerki sett í stykkið eins og útskýrt er að neðan, þetta er gert jafnframt því sem lykkjum er fækkað jafnt yfir í umferð. Prjónamerkin eru notuð þegar auka á út fyrir laskalínu og hvert prjónamerki er sett í slétta lykkju. Prjónið sléttar lykkjur yfir næstu 10-10-10-10-12-12 lykkjur og fækkið um 2 lykkjur jafnt yfir, setjið 1. prjónamerki í næstu lykkju (slétt lykkja), prjónið sléttar lykkjur yfir 17 næstu lykkjur og fækkið um 4 lykkjur jafnt yfir, setjið 2. prjónamerki í næstu lykkju, prjónið sléttar lykkjur yfir næstu 19-19-21-21-23-23 lykkjur og fækkið um 4 lykkjur jafnt yfir, setjið 3. prjónamerki í næstu lykkju, prjónið sléttar lykkjur yfir næstu 17 lykkjur og fækkið um 4 lykkjur jafnt yfir, setjið 4. prjónamerki í næstu lykkju, prjónið þær 9-9-11-11-11-11 lykkjur sem eftir eru og fækkið um 2 lykkjur jafnt yfir = 60-60-64-64-68-68 lykkjur í umferð. HÁLSMÁL: Nú er hálsmálið prjónað með stuttum umferðum eins og útskýrt er að neðan. Byrjið mitt að aftan. UMFERÐ 1 (rétta): Prjónið sléttprjón og aukið út fyrir LASKALÍNA – lesið útskýringu að ofan, hvoru megin við fyrstu 2 prjónamerkin (4 lykkjur fleiri), snúið þegar prjónaðar hafa verið 3 lykkjur fram hjá öðru prjónamerki. UMFERÐ 2 (ranga): Prjónið sléttprjón og snúið við þegar prjónaðar hafa verið 3 lykkjur fram hjá síðasta prjónamerki (þ.e.a.s. í hægri hlið á hálsmáli að framan, séð þegar flíkin er mátuð). UMFERÐ 3 (rétta): Prjónið sléttprjón og aukið út fyrir laskalínu hvoru megin við öll prjónamerkin (8 lykkjur fleiri), snúið þegar prjónaðar hafa verið 2 lykkjur fleiri en við fyrri snúning. UMFERÐ 4 (ranga): Prjónið sléttprjón og snúið við þegar prjónaðar hafa verið 2 lykkjur fleiri en við fyrri snúning. UMFERÐ 5 (rétta): Prjónið sléttprjón og aukið út fyrir laskalínu hvoru megin við fyrstu 2 prjónamerkin (4 lykkjur fleiri), prjónið að miðju að aftan. Prjónið 1 umferð yfir allar lykkjur. Stuttar umferðir hafa nú verið prjónaðar til loka og aukið hefur verið út 2 sinnum fyrir laskalínu við hvert prjónamerki = 76-76-80-80-84-84 lykkjur í umferð. Prjónið síðan hringinn yfir allar lykkjur frá miðju að aftan. BERUSTYKKI: ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Prjónið sléttprjón og haldið áfram með útaukningu fyrir laskalínu þannig: Aukið út fyrir laskalínu í annarri hverri umferð 3-3-5-4-3-1 sinnum = 100-100-120-112-108-92 lykkjur. Haldið áfram með útaukningu fyrir laskalínu í annarri hverri umferð, en í annað hvert skipti sem aukið er út er einungis aukið út á framstykki/bakstykki. Þ.e.a.s. aukið er út á framstykki/bakstykki í annarri hverri umferð og á ermum í 4. hverri umferð, aukið er út til skiptis 4 og 8 lykkjur. Aukið svona út 10-12-10-14-16-22 sinnum á fram- og bakstykki (5-6-5-7-8-11 sinnum á ermum). Nú hefur verið aukið út alls 15-17-17-20-21-25 sinnum á fram- og bakstykki og 10-11-12-13-13-14 sinnum á ermum (ásamt útaukningu í stuttum umferðum í hálsmáli). Á eftir síðustu útaukningu eru 160-172-180-196-204-224 lykkjur í umferð. Prjónið sléttprjón þar til stykkið mælist ca 20-23-25-27-28-33 cm, mælt mitt að aftan á eftir stroffi í hálsmáli. Berustykkið skiptist nú fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Prjónið fyrstu 24-26-26-29-32-36 lykkjur (ca hálft bakstykki), setjið næstu 33-35-37-39-39-41 lykkjur á þráð fyrir ermi og fitjið upp 8-8-10-10-12-12 nýjar lykkjur á prjóninn (í hlið undir ermi), prjónið næstu 47-51-53-59-63-71 lykkjur (framstykki), setjið næstu 33-35-37-39-39-41 lykkjur á þráð fyrir ermi og fitjið upp 8-8-10-10-12-12 nýjar lykkjur á prjóninn (í hlið undir ermi), prjónið þær 23-25-27-30-31-35 lykkjur sem eftir eru (ca hálft bakstykki). FRAM- OG BAKSTYKKI: = 110-118-126-138-150-166 lykkjur. Setjið 1 merkiþráð í hvora hlið, mitt í nýjar lykkjur, merkiþræðirnir eru notaðir þegar stykkinu er skipt upp fyrir klauf. Prjónið sléttprjón hringinn yfir allar lykkjur þar til stykkið mælist 22-21-21-21-22-19 cm frá skiptingu. Setjið síðustu 55-59-63-69-75-83 lykkjur á þráð, prjónið áfram yfir fyrstu 55-59-63-69-75-83 lykkjur. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 24-26-28-30-32-34 lykkjur jafnt yfir = 79-85-91-99-107-117 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 6. Prjónið stroff þannig (fyrsta umferð er prjónuð frá röngu: 2 lykkjur GARÐAPRJÓN – lesið útskýringu að ofan, * 1 lykkja brugðið, 1 lykkja slétt *, prjónið frá *-* þar til 3 lykkjur eru eftir, prjónið 1 lykkju brugðið og 2 lykkjur í garðaprjóni. Prjónið stroff svona í 12 cm. Fellið af. Peysan mælist ca 60-62-64-66-68-70 cm frá öxl og niður. Prjónið á sama hátt yfir lykkjur frá bakstykki. ERMI: Setjið 33-35-37-39-39-41 lykkjur af þræði frá annarri hliðinn á stykki á stuttan hringprjón eða sokkaprjóna 8 og prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 8-8-10-10-12-12 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 41-43-47-49-51-53 lykkjur. Setjið einn merkiþráð mitt í nýjar lykkjur. Prjónið sléttprjón hringinn. Þegar stykkið mælist 4 cm, fækkið um 2 lykkjur undir ermi – lesið ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með ca 7-5½-4-3-3-2½ cm millibili alls 5-6-7-8-8-8 sinnum = 31-31-33-33-35-37 lykkjur. Haldið áfram þar til stykkið mælist 37-35-33-32-31-27 cm. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 13-15-13-15-15-15 lykkjur jafnt yfir = 44-46-46-48-50-52 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjóna 6. Prjónið stroffprjón (1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 10 cm. Fellið af. Ermin mælist ca 47-45-43-42-41-37 cm frá skiptingu. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Kantur í hálsmáli er brotinn niður þannig að hann verður tvöfaldur, saumið niður með nokkrum sporum í hvora hlið. |
|
![]() |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #underthemoonsweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 30 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 245-25
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.