Wiola skrifaði:
Pytanie do wzoru: DROPS 246-8 rozmiar M:\r\n\"Dalej przerabiać dżersejem, w tym samym czasie dodając oczka na reglan w sumie 10-16-20-19-18-13 razy (w tym dodawanie oczek powyżej) co 2 okrążenia" Czy dobrze rozumiem, że oczka raglanu dodajemy w co drugim rzędzie, łącznie 16 razy? Czyli 16x8 = 128. Dodając już przerobione 140 oczek na drucie, wychodzi z moich obliczeń, że dla rozmiaru M powinno być 268 oczek, a nie 260. Dziękuję!
02.12.2023 - 18:11DROPS Design svaraði:
Witaj Wiolu, kluczowe jest zadanie w nawiasie: "Dalej przerabiać dżersejem, w tym samym czasie dodając oczka na reglan w sumie 10-16-20-19-18-13 razy (w tym dodawanie oczek powyżej) co 2 okrążenia, z każdej strony oczek reglanów = ...260 ...". Czyli: rozmiar M zaczęliśmy od 132 oczek. Później było 1 powtórzenie z dodawaniem oczek na reglan (132+8=140) i zostaje jeszcze 15 powtórzeń z dodawaniem oczek (15 x 8=120 > 120+140=260). Pozdrawiamy!
04.12.2023 - 09:02
Wiola skrifaði:
Poproszę o wyjaśnienie do tego fragmentu: "Przesunąć 4 markery, aby teraz znajdowały się między 2 oczkami, inaczej mówiąc, między oczkiem z markerem i dodanym oczkiem, w miejscu każdego przejścia między tyłem/przodem i rękawami." Czy to oznacza, że markery powinny być umieszczone po 27 oczku na rękawy i po 39 na przód i tył? Dziękuję
01.12.2023 - 18:20DROPS Design svaraði:
Witaj Wiolu, dokładnie tak. Pozdrawiamy!
04.12.2023 - 08:36
Johanna skrifaði:
Was heißt "die Raglanzunahmen beidseitig der Raglanmaschen in jeder 2. Runde insgesamt 10-16-20-19-18-13 x in der Höhe arbeiten (die oben beschriebene Zunahme einschließlich)"? Sollen hier in jeder Runde die 8 Maschen wie vorher zugenommen werden und in jeder 2.Runde zusätzliche Maschen wie beschrieben?
23.11.2023 - 19:08DROPS Design svaraði:
Liebe Johanna, für die Passe stricken Sie in Runden weiter, und gleichzeitig nehmen Sie 8 Maschen für den Raglan in jeder 2. Runde zu, bis insgesamt 10-16-20-19-18-13 Zunahmen (einschl. die beschriebenen Zunahmen) gestrickt wurden. Viel Spaß beim stricken!
24.11.2023 - 07:45
KATHLEEN SWEENEY skrifaði:
I am making a size medium CO 124 st, finished the neck and beginning to place markers for the yoke.. again working a medium size marker 1 (25 sts), marker 2 (35 sts), marker 3 ( 25 sts) finally maker 4 ( 35 stitches) = 120 stitches hmmm off by 4 stitches I am going to use the 3rd set of numbers (37) for front and back and hope that it won't make a difference. I am thinking that it might be a mistake on the pattern . Thanks and looking forward to hearing from you .
18.10.2023 - 20:44DROPS Design svaraði:
Dear Mrs Sweeney, note that the markers should be inserted each in one stitch (and not between stitches), so that you will have: 1+25+1+35+1+25+1+35=124 sts. Happy knitting!
19.10.2023 - 08:05
Misty Day#mistyday |
|
![]() |
![]() |
Prjónuð peysa fyrir herra úr DROPS Lima. Stykkið er prjónað ofan frá og niður í sléttprjóni með laskalínu og tvöföldum kanti í hálsmáli. Stærð S - XXXL.
DROPS 246-8 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- LASKALÍNA: Aukið út um 1 lykkju á eftir / undan 2 lykkjur í sléttprjóni í hverri skiptingu á milli framstykkis / bakstykkis og erma (prjónamerkið situr á milli þessa 2 lykkja og þessar lykkjur eru núna kallaðar laskalínulykkjur í mynstri). Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður eins og útskýrt er að neðan, síðan eru nýjar lykkjur prjónaðar í sléttprjóni. Uppslátturinn er prjónaður á undan og á eftir laskalínulykkjum þannig: Á UNDAN 2 laskalínulykkjum: Lyftið uppslættinum af vinstri prjóni og setjið til baka yfir á vinstri prjón, nema í gagnstæða átt (stingið vinstri prjóni inn aftan frá þegar uppslátturinn er settur til baka yfir á prjóninn). Prjónið uppsláttinn slétt í fremri lykkjubogann (uppslátturinn snýr til hægri). Það á ekki að myndast gat. Á EFTIR 2 laskalínulykkjum: Prjónið uppsláttinn slétt í aftari lykkjubogann (uppslátturinn snýr til vinstri). Það á ekki að myndast gat. ÚTAUKNING: Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn, svo ekki myndist gat. ÚRTAKA (á við um miðju undir ermum og í hliðum á fram- og bakstykki): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 3 lykkjur slétt (prjónamerkið situr í miðju á þessum 3 lykkjum), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (2 lykkjur færri). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Tvöfaldur kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað í hring á hringprjóna frá hægri öxl að aftan, ofan frá og niður. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað í hring á hringprjóna. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna / stuttan hringprjón. TVÖFALDUR KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 120-124-128-132-136-140 lykkjur með DROPS Lima yfir stuttan hringprjón 3 og stuttan hringprjón 4 sem haldið er saman. Dragið út stutta hringprjón 4 og haldið lykkjum eftir á stuttum hringprjóni 3. (uppfitjunin er gerð svona til að uppfitjunarkanturinn verði teygjanlegur). Prjónið stroffprjón (1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið). Þegar stroffið mælist 4½ cm, prjónið 1 umferð brugðið yfir allar lykkjur (uppábrot). Síðan heldur stroffið áfram eins og áður (1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) þar til kantur í hálsmáli mælist 9 cm frá uppfitjunarkanti. Nú er stroffið brotið inn þannig að kanturinn verði tvöfaldur – síðan er næsta umferð prjónuð í stroffprjóni eins og áður jafnframt því sem önnur hver lykkja er prjónuð saman með annarri hverri lykkju frá uppfitjunarkanti. Nú hefur myndast tvöfaldur kantur í hálsmáli. BERUSTYKKI: Skiptið yfir á hringprjón 4. Setjið nú 4 prjónamerki í stykkið eins og útskýrt er að neðan (þetta er gert án þess að prjóna lykkjurnar). Prjónamerkin eru notuð þegar auka á út fyrir laskalínu. Setjið 1. prjónamerki í fyrstu lykkju í umferð (í slétta lykkju), teljið 25 lykkjur (ermi), setjið 2. prjónamerki í næstu lykkju, teljið 33-35-37-39-41-43 lykkjur (framstykki), setjið 3. prjónamerki í næstu lykkju, teljið 25 lykkjur (ermi), setjið 4. prjónamerki í næstu lykkju. Nú eru 33-35-37-39-41-43 lykkjur eftir á eftir síðasta prjónamerki (bakstykki). Prjónið 1 umferð slétt – JAFNFRAMT er aukið út um 1 lykkju í hverja lykkju með prjónamerki í með því að prjóna 1 lykkju slétt framan við og aftan við hverja af þessum 4 lykkjum. Að auki er aukið út um 2 lykkjur jafnt yfir bæði á framstykki og bakstykki – lesið ÚTAUKNING (lykkjum er ekki aukið út yfir ermar) = 128-132-136-140-144-148 lykkjur. Færið 4 prjónamerkin til þannig að þau sitji á milli lykkju með prjónamerki og útauknu lykkju, í hverri skiptingu á milli framstykkis / bakstykkis og erma. Næsta umferð er prjónuð þannig: Byrjið umferð eftir prjónamerki í byrjun umferðar, prjónið 1 lykkju sléttprjón, aukið út um 1 lykkju fyrir LASKALÍNA – lesið útskýringu að ofan, prjónið sléttprjón þar til 1 lykkja er eftir á undan 2. prjónamerki, aukið út um 1 lykkju hvoru megin við laskalínulykkjur, prjónið sléttprjón þar til 1 lykkja er eftir á undan 3. prjónamerki, aukið út um 1 lykkju hvoru megin við laskalínulykkjur, prjónið sléttprjón þar til 1 lykkja er eftir á undan 4. Prjónamerki, aukið út um 1 lykkju hvoru megin við laskalínulykkjur, prjónið sléttprjón þar til 1 lykkja er eftir í umferð (á undan 1. prjónamerki), aukið út um 1 lykkju fyrir laskalínu, prjónið 1 lykkju sléttprjón (8 lykkjur fleiri). Síðan er prjónað sléttprjón jafnframt því sem aukið er út fyrir laskalínu hvoru megin við laskalínulykkjur í annarri hverri umferð alls 10-16-20-19-18-13 sinnum (ásamt útaukningu eins og útskýrt er að ofan) = 208-260-296-292-288-252 lykkjur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Haldið áfram í sléttprjóni og útaukningu fyrir laskalínu, en í annarð hvert skipti sem aukið er út, er einungis aukið út á framstykki / bakstykki (4 lykkjur fleiri í umferð). Þ.e.a.s. aukið er út á framstykki / bakstykki í annarri hverri umferð og á ermum í 4. hverri umferð. Aukið er út til skiptis um 4 og 8 lykkjur. Aukið svona út alls 16-14-12-16-20-28 sinnum á fram- og bakstykki (8-7-6-8-10-14 sinnum á ermum). Nú hefur verið aukið út alls 26-30-32-35-38-41 sinnum á fram- og bakstykki og 18-23-26-27-28-27 sinnum á ermum. Á eftir síðustu útaukningu eru 304-344-368-388-408-420 lykkjur á prjóni. Prjónið sléttprjón án útaukninga þar til stykkið mælist 19-21-23-25-27-29 cm mitt að framan – mælt eftir stroffi í hálsmáli. Berustykkið skiptist nú fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Prjónið 1 lykkju sléttprjón, setjið næstu 61-71-77-79-81-79 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 9-9-11-13-15-21 nýjar lykkjur á prjóninn (í hlið undir ermi), prjónið 91-101-107-115-123-131 lykkjur sléttprjón (framstykki), setjið næstu 61-71-77-79-81-79 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 9-9-11-13-15-21 nýjar lykkjur á prjóninn (í hlið undir ermi), prjónið síðustu 90-100-106-114-122-130 lykkjur í sléttprjóni (bakstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. Héðan er nú stykkið mælt! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 200-220-236-256-276-304 lykkjur. Setjið 1 merkiþráð í hvora hlið á fram- og bakstykki – í miðjulykkju sem fitjuð var upp í handvegi. Prjónið sléttprjón fram að fyrri merkiþræði – umferðin byrjar núna hér. Prjónið sléttprjón hringinn. Þegar stykkið mælist 8 cm frá skiptingu, fækkið um 2 lykkjur í hvorri hlið á fram- og bakstykki – lesið ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona í 8. hverjum cm alls 3 sinnum í hvorri hlið = 188-208-224-244-264-292 lykkjur. Prjónið síðan þar til stykkið mælist 31 cm frá skiptingu. Prjónið 1 umferð sléttprjón þar sem aukið er út um 20-22-22-22-26-30 lykkjur jafnt yfir – munið eftir ÚTAUKNING = 208-230-246-266-290-322 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 3. Prjónið stroffprjón (1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 6 cm. Fellið af aðeins laust. Peysan mælist ca 62-64-66-68-70-72 cm frá öxl og niður. ERMI: Setjið 61-71-77-79-81-79 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á stuttan hringprjón eða sokkaprjóna 4 - prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 9-9-11-13-15-21 lykkjum sem fitjaðar voru upp í hlið undir ermi = 70-80-88-92-96-100 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt í 9-9-11-13-15-21 nýjar lykkjur sem prjónaðar voru upp undir ermi. Byrjið umferð við prjóanmerki og prjónið sléttprjón hringinn. Prjónið þar til ermin mælist 42-41-40-38-37-35 cm frá skiptingu. Nú eru eftir ca 6 cm að loka máli. Mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd fyrir stroff. Prjónið 1 umferð sléttprjón þar sem aukið er út um 6 lykkjur jafnt yfir í öllum stærðum – munið eftir ÚTAUKNING = 60-62-64-66-68-70 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjón 3. Prjónið stroffprjón (1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 6 cm. Fellið af aðeins laust. Ermin mælist ca 48-47-46-44-43-41 cm frá skiptingu. Prjónið hina ermina á sama hátt. |
|
![]() |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #mistyday eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 28 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 246-8
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.