Pat skrifaði:
I don’t understand the raglan increases. The instructions seem to say to do two yarn-over increases in a row, separated only by a marker thread. Even with a twist in the stitches on the next row, this is going to leave a gigantic hole. Surely the increases should be on each side of an existing stitch? Thanks for any clarification you can offer. Pat
16.12.2023 - 03:28DROPS Design svaraði:
Dear Pat, for the raglan increases, work as indicated in RAGLAN. Start 1 stitch before the marker, 1 yarn over, knit 1, marker, knit 1, 1 yarn over. These yarn overs are twisted on the next round. As you can see, since there are 2 knit stitches between the yarn overs, there will be no big holes, especially since you work the yarn overs twisted on the next round. Happy knitting!
17.12.2023 - 18:36
Brigitte Delapierre skrifaði:
Beste, ik zoek overal een Kindertrui die met voor en achterkant apart worden gebreid voor leeftijd van 3 j . Deze is hier ook mooi maar is ook met ronde naalden. Vriendelijke groeten
08.11.2023 - 16:08DROPS Design svaraði:
Dag Brigitte,
Om een patroon aan te passen om op rechte naalden te breien hebben we een instructie gemaakt. Deze vind je hier. Dit is niet voor alle patronen geschikt, maar in dit geval zou je de panden en de mouwen los van elkaar kunnen breien en dan bij de raglanlijnen aan elkaar naaien.
13.11.2023 - 06:35
Everaerts Anne-Mie skrifaði:
Beste, ik brei maat 3,dus 72 stkn voor de dubbele hals. Ik maak 2x 3 omslagen, dus 6 meerderingen = 78 stkn. Als ik alle stkn optel: 13+9+28+9+15= 74 Ik zou op 80 stkn moeten uitkomen. Wat doe ik verkeerd? Of is het patroon verkeerd?
12.10.2023 - 23:30
Bunny McBee skrifaði:
I know how to YO. I do not know how to make a twisted purl when going back. Thank you for your hlep.
30.09.2023 - 01:39
Sea Salt#seasaltsweater |
|
![]() |
![]() |
Prjónuð peysa fyrir börn úr DROPS Alaska. Stykkið er prjónað ofan frá og niður í sléttprjóni með laskalínu og tvöföldum kanti í hálsmáli. Stærð 2 – 14 ára.
DROPS Children 47-10 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- LASKALÍNA: Það er aukin út 1 lykkja á undan / eftir 2 lykkjur í hverri skiptingu á milli framstykkis/bakstykkis og erma, prjónamerkið situr á milli þessa 2 lykkja. Aukið út 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt, svo ekki myndist gat. Síðan eru nýjar lykkjur prjónaðar í sléttprjóni. ÚTAUKNING (jafnt yfir): Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn, svo ekki myndist gat. ÚRTAKA (á við um miðju undir ermum): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráð þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (merkiþráður situr á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Tvöfaldur kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað í hring á hringprjóna frá miðju að aftan, ofan frá og niður. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað í hring á hringprjóna. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna / stuttan hringprjón. TVÖFALDUR KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 64-64-72-72-72-72 lykkjur með DROPS Alaska yfir stuttan hringprjón 3,5 og stuttan hringprjón 5 sem haldið er saman. Dragið út stutta hringprjón 5 og haldið lykkjum eftir á hringprjóni 3,5. (uppfitjunin er gerð svona til að uppfitjunarkanturinn verði teygjanlegur). Prjónið stroffprjón þannig: 1 lykkja brugðið, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* þar til 3 lykkjur eru eftir, prjónið 2 lykkjur slétt og 1 lykkju brugðið. Haldið svona áfram með stroff í 7 cm. Næsta umferð er prjónuð þannig: 11-11-13-13-13-13 lykkjur slétt, * 2 lykkjur slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn *, prjónið frá *-* alls 4 sinnum, 24-24-28-28-28-28 lykkjur slétt, * 2 lykkjur slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn *, prjónið frá *-* alls 4 sinnum, 13-13-15-15-15-15 lykkjur slétt = 72-72-80-80-80-80 lykkjur. Stykkið er nú mælt héðan. Setjið 4 prjónamerki í stykkið eins og útskýrt er að neðan (þetta er gert án þess að prjóna lykkjurnar): Teljið 8-8-12-12-12-12 lykkjur (ca hálft bakstykki), setjið 1. prjónamerki á undan næstu lykkju, teljið 16 lykkjur (ermi), setjið 2. prjónamerki á undan næstu lykkju, teljið 20-20-24-24-24-24 lykkjur (framstykki), setjið 3. prjónamerki á undan næstu lykkju, teljið 16 lykkjur (ermi), setjið 4. prjónamerki á undan næstu lykkju. Það eru 12-12-12-12-12-12 lykkjur eftir á prjóni á eftir síðasta prjónamerki (ca hálft bakstykki). Látið prjónamerkin fylgja með í stykkinu – prjónamerkin merkja laskalínu og auka á út lykkjum á undan / eftir prjónmerkjum. Prjónið berustykki eins og útskýrt er að neðan. BERUSTYKKI: Skiptið yfir á hringprjón 5. Prjónið sléttprjón hringinn (uppslátturinn frá útaukningu er prjónaður snúinn, svo ekki myndist gat). ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! JAFNFRAMT er aukið út fyrir LASKALÍNA hvoru megin við 4 prjónamerkin (8 lykkjur fleiri) – lesið útskýringu að ofan. Aukið svona út í annarri hverri umferð alls 3-5-5-4-5-6 sinnum = 96-112-120-112-120-128 lykkjur. Haldið áfram með útaukningu í annarri hverri umferð, en í annað hvert skipti sem aukið er út, er einungis aukið út á framstykki / bakstykki (4 lykkjur fleiri). Þ.e.a.s. það er aukið út á framstykki / bakstykki í annarri hverri umferð og á ermum í 4. hverri umferð. Aukið svona út 12-12-12-14-14-14 sinnum á framstykki / bakstykki (6-6-6-7-7-7 sinnum á ermum). Nú hefur verið aukið út alls 15-17-17-18-19-20 sinnum á framstykki / bakstykki og 9-11-11-11-12-13 sinnum á ermum. Á eftir síðustu útaukningu 168-184-192-196-204-212 lykkjur á prjóni. Prjónið slétt án útaukninga þar til stykkið mælist 14-15-16-17-18-19 cm mælt eftir stroff í hálsmáli. Í næstu umferð skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Prjónið 24-26-30-31-32-33 lykkjur sléttprjón (ca hálft bakstykki), setjið 32-36-36-36-38-40 næstu lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-8-8-10-10-12 nýjar lykkjur á prjóninn (í hlið undir ermi), prjónið 52-56-60-62-64-66 lykkjur sléttprjón (framstykki), setjið 32-36-36-36-38-40 næstu lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-8-8-10-10-12 nýjar lykkjur á prjóninn (í hlið undir ermi), prjónið eins og áður yfir síðustu 28-30-30-31-32-33 lykkjur (ca hálft bakstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. Héðan er nú stykkið mælt! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 120-128-136-144-148-156 lykkjur. Prjónið sléttprjón hringinn. Þegar stykkið mælist 10-13-16-19-20-21 cm frá skiptingu, prjónið 1 umferð sléttprjón þar sem aukið er út um 20-24-24-24-28-28 lykkjur jafnt yfir – lesið ÚTAUKNING = 140-152-160-168-176-184 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 3,5. Prjónið stroffprjón (2 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið) í 6 cm. Fellið af aðeins laust. Peysan mælist ca 34-38-42-46-48-50 cm frá öxl. ERMI: Setjið 32-36-36-36-38-40 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjóna eða stuttan hringprjón 5. Prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 8-8-8-10-10-12 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 40-44-44-46-48-52 lykkjur. Setjið 1 merkiþráð mitt undir ermi – mitt í 8-8-8-10-10-12 nýjar lykkjur. Byrjið umferð við merkiþráðinn og prjónið sléttprjón hringinn. Þegar ermin mælist 3-3-3-4-4-4 cm frá skiptingu, fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi – lesið ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona í 3.-4½.-5½.-6.-7.-6. hverjum cm alls 4-4-4-4-4-6 sinnum = 32-36-36-38-40-40 lykkjur. Prjónið þar til ermin mælist 15-20-23-27-31-35 cm frá skiptingu. Nú eru eftir ca 7 cm að loka máli. Mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd fyrir stroff. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 8-8-8-10-12-12 lykkjur jafnt yfir = 40-44-44-48-52-52 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjóna 3,5. Prjónið stroff (2 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið) í 7 cm. Fellið af aðeins laust. Ermin mælist ca 22-27-30-34-38-42 cm frá skiptingu. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Brjótið stroffið niður að innanverðu á stykki og festið með nokkrum sporum. |
|
![]() |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #seasaltsweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 26 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS Children 47-10
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.