DROPS Alpaca Party - 13 tegundir af alpakka garni á afslætti í allan október!
Product image DROPS Sky yarn
DROPS Sky
74% Alpakka, 18% Polyamide, 8% Ull
frá 1124.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 7868.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS Alpaca Party

Emerald Lake Sweater

Prjónuð peysa úr DROPS Sky. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með háum kanti í hálsmáli, laskalínu, köðlum og klauf í hliðum. Stærð XS - XXL.

Velja stærð:
DROPS 244-12

#emeraldlakesweater

DROPS Design: Mynstur sk-184
Garnflokkur B
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
XS - S - M - L - XL - XXL

GARN:
DROPS SKY frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
350-400-450-450-500-550 g litur 06, sægrænn

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 4,5: lengd 40 cm og 80 cm.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 3: lengd 40 cm og 80 cm.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 4,5.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 3.
DROPS KAÐLAPRJÓNN.
Hægt er að nota MAGIC LOOP aðferðina – þá þarf einungis hringprjón 80 cm í hverju prjónanúmeri.

PRJÓNFESTA:
20 lykkjur á breidd og 26 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm.
ATH: Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

Þú gætir líka haft gaman af...

Product image DROPS Sky
DROPS Sky
74% Alpakka, 18% Polyamide, 8% Ull
frá 1124.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 7868.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.4.

LASKALÍNA:
Aukið út um 1 lykkju á eftir/undan A.2/A.3. Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn.
Uppslátturinn er prjónaður í næstu umferð á eftir og á undan A.2/A.3 þannig:
Á EFTIR A.2/A.3:
Prjónið uppsláttinn snúinn slétt, það á ekki að myndast gat.
Á UNDAN A.2/A.3:
Lyftið uppslættinum yfir á hægri prjón eins og prjóna eigi slétt, stingið inn vinstri prjóni í lykkjuna og setjið til baka yfir á vinstri prjón (uppslátturinn er snúinn), prjónið uppsláttinn slétt, það á ekki að myndast gat.

ÚTAUKNING:
Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn, það á ekki að myndast gat.

ÚRTAKA (á við um miðju undir ermum):
Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráð þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Hár kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað í hring á hringprjóna frá hægri öxl að aftan, ofan frá og niður.
Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað í hring á hringprjóna niður að klauf, síðan er framstykkið og bakstykkið prjónað fram og til baka á hringprjóna að loka máli. Ermar eru prjónaðar í hring á stuttan hringprjón / sokkaprjóna.

HÁR KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Fitjið upp 116-116-116-124-124-124 lykkjur á hringprjón 4,5 með DROPS Sky.
Skiptið yfir á hringprjón 3. Fyrsta umferð er prjónuð þannig: * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* alls 5 sinnum, 2 lykkjur slétt, A.1 * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* alls 3-3-3-4-4-4 sinnum, 2 lykkjur slétt, A.1, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* alls 5 sinnum, 2 lykkjur slétt, A.1, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* alls 3-3-3-4-4-4 sinnum, 2 lykkjur slétt, A.1.
Haldið svona áfram með stroff í 10-10-10-11-11-11 cm. Prjónið síðan berustykki eins og útskýrt er að neðan.

BERUSTYKKI:
Skiptið yfir á hringprjón 4,5. Setjið 1 prjónamerki í stykkið. Stykkið er síðar mælt frá þessu prjónamerki.
Fyrsta umferð er prjónuð þannig: Aukið út um 1 lykkju fyrir LASKALÍNA – lesið útskýringu að ofan, prjónið sléttprjón yfir næstu 22 lykkjur og fækkið jafnframt um 2 lykkjur jafnt yfir (ermi), aukið út um 1 lykkju fyrir laskalínu, prjónið A.2 yfir lykkjur í A.1, aukið út um 1 lykkju fyrir laskalínu, prjónið sléttprjón yfir næstu 14-14-14-18-18-18 lykkjur og fækkið jafnframt um 2-0-0-2-0-0 lykkjur jafnt yfir (framstykki), aukið út um 1 lykkju fyrir laskalínu, prjónið A.2 yfir lykkjur í A.1, aukið út um 1 lykkju fyrir laskalínu, prjónið sléttprjón yfir næstu 22 lykkjur og fækkið jafnframt um 2 lykkjur jafnt yfir (ermi), aukið út um 1 lykkju fyrir laskalínu, prjónið A.2 yfir lykkjur í A.1, aukið út um 1 lykkju fyrir laskalínu, prjónið sléttprjón yfir næstu 14-14-14-18-18-18 lykkjur og fækkið jafnframt um 2-0-0-2-0-0 lykkjur jafnt yfir (bakstykki), aukið út um 1 lykkju fyrir laskalínu, prjónið A.2 yfir lykkjur í A.1.
Nú hafa verið auknar út 8 lykkjur fyrir laskalínu og það eru 140-144-144-148-152-152 lykkjur í umferð.
Í næstu umferð er prjónað sléttprjón án útaukninga og síðasta umferð í A.2 er prjónuð áfram í hverri skiptingu á milli framstykkis/bakstykkis og erma – munið eftir að uppslátturinn er prjónaður snúinn í sitt hvora áttina.

Prjónið nú sléttprjón hringinn, en nú er prjónað A.2 yfir lykkjur í A.2 í hverri skiptingu á milli framstykkis/bakstykkis og erma. A.3 er endurtekið á hæðina.
ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Að auki heldur útaukningin áfram fyrir LASKALÍNA í annarri hverri umferð alls 9-13-16-16-14-10 sinnum, ásamt útaukningu í fyrstu umferð á eftir stroffi = 204-240-264-268-256-224 lykkjur.
Síðan heldur útaukningin áfram fyrir laskalínu í annarri hverri umferð, en í annað hvert skipti sem aukið er út, er einungis aukið út á framstykki/bakstykki. Þ.e.a.s. aukið er út á framstykki/bakstykki í annarri hverri umferð og á ermum í 4. hverri umferð (aukið er út til skiptis 4 og 8 lykkjur).
Aukið svona út 18-16-16-16-20-28 sinnum á framstykki/bakstykki og 9-8-8-8-10-14 sinnum á ermum. Útaukningu fyrir ermar er nú lokið.
Í stærð XS, S og M er útaukningu fyrir framstykki/bakstykki einnig lokið.
Haldið áfram með útaukningu í stærð L, XL og XXL á framstykki/bakstykki 1 sinni til viðbótar.

ALLAR STÆRÐIR:
Það eru núna 312-336-360-368-380-396 lykkjur í umferð og stykkið mælist ca 21-22-25-25-27-30 cm frá prjónamerki eftir stroffi í hálsmáli.
Í næstu umferð skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Setjið fyrstu 56-62-68-68-68-68 lykkjur á þráð fyrir ermi (lykkjur á milli fyrsta og síðasta A.3 í umferð), fitjið upp 8-10-12-16-20-24 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið næstu 100-106-112-116-122-130 lykkjur eins og áður (A.3 + 66-72-78-82-88-96 lykkjur sléttprjón + A.3 = framstykki), setjið næstu 56-62-68-68-68-68 lykkjur á þráð fyrir ermi (lykkjur á milli A.3), fitjið upp 8-10-12-16-20-24 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi) og prjónið síðustu 100-106-112-116-122-130 lykkjur eins og áður (A.3 + 66-72-78-82-88-96 lykkjur sléttprjón + A.3 = bakstykki).
Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. Héðan er nú stykkið mælt!

FRAM- OG BAKSTYKKI.
= 216-232-248-264-284-308 lykkjur.
Setjið 1 merkiþráð í hvora hlið á fram- og bakstykki, mitt í 8-10-12-16-20-24 lykkjur sem fitjaðar voru upp undir hvorri ermi. Látið merkiþræðina fylgja með í stykkinu – merkiþræðirnir eru notaðir þegar skipta á stykkinu upp fyrir klauf í hvorri hlið.
Prjónið í hring eins og áður í sléttprjóni og A.3 (þær 8-10-12-16-20-24 lykkjur sem fitjaðar voru upp undir hvorri ermi eru prjónaðar í sléttprjóni).
Þegar stykkið mælist ca 22-23-22-24-24-23 cm frá skiptingu og prjónaðar hafa verið 2 eða 4 umferðir eftir umferð með snúningi í kaðli í A.3, skiptist stykkið við báða merkiþræðina og hvort stykki er prjónað til loka fyrir sig.

BAKSTYKKI:
= 108-116-124-132-142-154 lykkjur. Prjónið 1 umferð frá röngu þar sem lykkjum er aukið út jafnt yfir þannig - lesið ÚTAUKNING: Prjónið 1 lykkju í garðaprjóni, prjónið sléttprjón yfir næstu 3-4-5-7-9-11 lykkjur og aukið jafnframt út 0-3-2-4-2-4 lykkjur jafnt yfir þessar lykkjur, prjónið A.4 yfir lykkjur í A.3, prjónið sléttprjón yfir næstu 66-72-78-82-88-96 lykkjur og aukið jafnframt út 8-10-12-12-14-14 lykkjur jafnt yfir þessar lykkjur, prjónið A.4 yfir lykkjur í A.3. prjónið sléttprjón yfir næstu 3-4-5-7-9-11 lykkjur og aukið jafnframt út 0-3-2-4-2-4 lykkjur jafnt yfir þessar lykkjur, endið með 1 lykkju í garðaprjóni = 116-132-140-152-160-176 lykkjur.
Skiptið yfir á hringprjón 3. Prjónið næstu umferð frá réttu þannig:

STÆRÐ XS:
2 lykkjur í garðaprjóni, 2 lykkjur slétt, A.4, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* alls 18 sinnum, 2 lykkjur slétt, prjónið A.4, 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff fram og til baka í 6 cm. Fellið af aðeins laust. Peysan mælist ca 54 cm frá öxl.

STÆRÐ S, M, L, XL og XXL:
2 lykkjur í garðaprjóni, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* alls 1-1-2-2-3 sinnum, 2 lykkjur slétt, A.4, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* alls 1-1-2-2-3 sinnum, 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur í garðaprjóni. Haldið svona áfram fram og til baka í 6 cm. Fellið af aðeins laust. Peysan mælist ca 54-56-58-60-62-64 cm frá öxl.

FRAMSTYKKI.
Prjónið á sama hátt og bakstykki.

ERMI:
Setjið 56-62-68-68-68-68 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjóna eða stuttan hringprjón 4,5. Prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 8-10-12-16-20-24 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 64-72-80-84-88-92 lykkjur.
Setjið 1 merkiþráð mitt undir ermi – mitt í 8-10-12-16-20-24 lykkjur.
Byrjið umferð við merkiþráðinn og prjónið sléttprjón hringinn.
Þegar ermin mælist 4-4-3-3-2-2 cm frá skiptingu, fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi – lesið ÚRTAKA.
Fækkið lykkjum svona með 8½-4½-3-2½-2½-2 cm millibili alls 4-7-10-11-12-13 sinnum = 56-58-60-62-64-66 lykkjur.
Prjónið án úrtöku þar til ermin mælist 35-35-33-33-32-30 cm frá skiptingu. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 12-14-16-18-16-18 lykkjur jafnt yfir - munið eftir ÚTAUKNING = 68-72-76-80-80-84 lykkjur.
Skiptið yfir á sokkaprjóna 3. Prjónið stroffprjón hringinn (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 8 cm. Fellið af aðeins laust. Ermin mælist ca 43-43-41-41-40-38 cm frá skiptingu.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Ef óskað er eftir að hafa tvöfaldan kant í hálsmáli, er hægt að brjóta stroffið niður að innanverðu á stykki og festa með nokkrum sporum við hverja laskalínu.

Mynstur

slétt lykkja frá réttu, brugðin lykkja frá röngu = slétt lykkja frá réttu, brugðin lykkja frá röngu
brugðin lykkja frá réttu, slétt lykkja frá röngu = brugðin lykkja frá réttu, slétt lykkja frá röngu
setjið 3 lykkjur á kaðlaprjón framan við stykkið, prjónið 3 lykkjur slétt, prjónið 3 lykkjur slétt af kaðlaprjóni = setjið 3 lykkjur á kaðlaprjón framan við stykkið, prjónið 3 lykkjur slétt, prjónið 3 lykkjur slétt af kaðlaprjóni
setjið 3 lykkju á kaðlaprjón aftan við stykkið, prjónið 3 lykkjur slétt, prjónið 3 lykkjur slétt af kaðlaprjóni = setjið 3 lykkju á kaðlaprjón aftan við stykkið, prjónið 3 lykkjur slétt, prjónið 3 lykkjur slétt af kaðlaprjóni
<br />
á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt, það á ekki að myndast gat <br />
=
á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt, það á ekki að myndast gat
Diagram for DROPS 244-12
Diagram for DROPS 244-12

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!
Ertu búin að klára þetta mynstur?
Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #emeraldlakesweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery.

Skrifaðu athugasemd um DROPS 244-12

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (47)

country flag Elisa skrifaði:

Sono riuscita a proseguire nel lavoro,sono a 3 cm dopo aver diviso il corpo dalle maniche :) ma ho ancora un dubbio: quando dovrò fare gli ultimi 6 cm con i ferri 3,x separare il lavoro devo lavorare con i ferri dritti? ( Sto lavorando con i circolari) Grazie

17.10.2025 - 16:39

DROPS Design svaraði:

Buonasera Elisa, dopo aver diviso le parti si prosegue in piano in ferri di andata e ritorno. Può utilizzare sia i ferri dritti che quelli circolari. Buon lavoro!

17.10.2025 - 23:37

country flag Elisa skrifaði:

Ho letto la vostra risposta,sí lo so che ai margini di A2 ci sono due maglie a rov e che i gettati vanno fatti prima e dopo queste maglie a rov ma ho provato a lavorare i gettati come indicato e quello prima di A2 non viene =a quello dopo A2 (viene perfetto) ho anche provato a lavorarli entrambi a drt ritorto ,vengono meglio ma non = ,quello prima di A2 viene sempre + molle di quello dopo A2,Se prima e dopo A2 facessi una sola maglia a rov e i gettati prima e dopo il rov potrebbe venir?

12.10.2025 - 13:05

country flag Elisa skrifaði:

Ho letto le risposte fornite riguardo ai gettati ma io sto lavorando in circolare,per me il rovescio non esiste. Ho fatto molti tentativi,ho provato a lavorare il gettato prima di A1 facendo un aumento intercalare,poi preso a rov e lavorato a dritto e invece il gettato dopo A2 normalmente a dritto ritorto ma non veniva bene così ho provato a lavorare entrambi con aumento intercalare e poi a dr ritorto e viene meglio ma non bene. Il gettato dopo A2 è perfetto, l' altro ancora un po' mollo :(

11.10.2025 - 23:41

DROPS Design svaraði:

Buongiorno Elisa, gli aumenti per il raglan si lavorano prima del diagramma A.2 e le prime maglie dei due ferri di A.2 sono lavorate a rovescio. Buon lavoro!

12.10.2025 - 09:35

country flag Daniela skrifaði:

Ho provato a lavorare i gettati come indicato ma quelli prima di A2 seppur io li passo sul ferro destro,poi li metto ritorti sul ferro sinistro per poi lavorarli a dritto con il ferro di destra,non vengono bene come quelli dopo A2( perfetti) ma mi viene un buchino più grande e come una riga in diagonale che copre il buco sotto.Ho provato anche a fare un aumento intercalare prima di A2 (poi lavorato come indicato nel pattern),viene un po' meglio ma il problema resta cosa fare?

10.10.2025 - 23:56

DROPS Design svaraði:

Buonasera Elisa, provi a vedere se questo videole può essere di aiuto per lavorare i gettati prima di una maglia a rovescio. Buon lavoro!

11.10.2025 - 19:36

country flag Elisa skrifaði:

Mi dica se ho capito bene: dal primo giro di aumenti subito dopo aver finito il collo a coste,si lavora il giro dopo con i gettati ritorti ,poi si ripetono gli 8 aumenti,nel giro dopo si fanno ritorti,si continua così fino a 16 volte in cui si è aumentato e poi si alternano 4 e 8 au ogni tot ferri giusto? Posso lavorare i gettati con aumenti intercalari ?iniziando da una maglia prima del marker (prima di A3) e una maglia dopo il marker ( dopo A3)?

10.10.2025 - 01:10

DROPS Design svaraði:

Buonasera Elisa, si, gli aumenti sono corretti. Buon lavoro!

11.10.2025 - 19:34

country flag Elisa skrifaði:

Non riesco a fare i gettati prima di A2,li ho fatti come indicato eppure vengono buchi non capisco perché. Non è che essendo nel punto in cui la maglia successiva va lavorata a rov ci sono delle modifiche? Prendo il gettato ritorto e lo lavoro a dritto poi 2 rov poi A2 ma viene con i buchi,invece i gettati dopo A2 mi vengono bene,precisi come devo fare? Attento risposta

09.10.2025 - 23:20

DROPS Design svaraði:

Buonasera Elisa, provi a vedere se questo video la può aiutare a lavorare i gettati prima della maglia rovescio. Buon lavoro!

11.10.2025 - 19:32

country flag Elisa skrifaði:

Ho ancora un dubbio sugli aumenti: c'è scritto che si devono fare gli aumenti prima sul davanti e sul dietro (+4) e poi dopo tot ferri altri 4 aumenti nelle linee raglan delle maniche (+4) ho capito bene? Poi non mi è chiaro come alternare gli aumenti, dopo aver fatto il 1 giro di au (+8 tutti insieme nei raglan),il ferro dopo è con i gettati ritorti senza su e ok,quello dopo si devono ripetere gli au nel davanti e nel dietro (+4) e nel ferro dopo ancora si fanno gli altri 4 nelle maniche?

09.10.2025 - 02:10

DROPS Design svaraði:

Buonasera Elisa, deve continuare con gli aumenti indicati fino al numero di maglie riportato nel modello, poi continuare con gli aumenti diversificati tra corpo e maniche. Buon lavoro!

09.10.2025 - 23:49

country flag Daniela skrifaði:

Non mi è chiaro il diagramma A1,se lo seguo a me viene una lavorazione a grana di riso su quelle 11 maglie,ho provato e mi vengono 4 sezioni di 11 maglie a grana di riso intervallate dal resto delle maglie tutte a 2 a 2 ma così non credo abbia senso. Dopo aver avviato le maglie,dovrei iniziare il ferro sul dritto del lavoro giusto? Può dirmi come dovrebbero essere lavorate sul dritto le 11 maglie di A1? Io ho fatto 2 rov,3d,1r,3dr,2rov ma credo di aver sbagliato, attendo risposta

07.10.2025 - 21:41

DROPS Design svaraði:

Buonasera Daniela, il modello è lavorato in tondo, per cui non c'è diritto e rovescio del lavoro. Il primo giro è: 2 maglie rovescio, 3 maglie diritto, 1 maglia rovescio, 3 maglie diritto, 2 maglie rovescio. Buon lavoro!

09.10.2025 - 23:46

country flag Elisa skrifaði:

Non mi sono chiare un paio di cose: all' inizio del lavoro sono 124 maglie (taglia l) e sono tutte coste 2 a 2 alternate da 11 maglie a legaccio ogni tot giusto? Eppure dalla foto mi sembra che il collo sia fatto solo a coste 2a2?. Poi quando si iniziano gli aumenti raglan e si deve aumentare ogni 2 ferri si intende ogni due ferri lavorati senza su quindi al 3 oppure un ferro faccio gli aumenti,uno no e in quello dopo ripeto?grazie

07.10.2025 - 02:09

DROPS Design svaraði:

Buonasera Elisa, il collo è lavorato a coste intervallate dal motivo A.1 Per gli aumenti "ogni 2 ferri" si intende un ferro con aumenti e un ferro senza. Buon lavoro!

09.10.2025 - 23:43

country flag Viviane skrifaði:

Klopt het dat ik een omslag moet maken bij het einde van de 20 steken voor de mouw, en een omslag bij het begin van het voor/rugpand. Ik krijg dan 2 omslagen na mekaar. Avast bedankt.

04.10.2025 - 00:20

DROPS Design svaraði:

Dag Viviane,

Het klopt dat je aan het begin en einde van de voorpanden en aan het begin en einde van de mouwen moet meerderen voor de raglan door een omslag te maken. Maar de kabels zitten hier nog tussen. Dus omslag - kabel -omslag.

08.10.2025 - 20:09