Henriette skrifaði:
Jeg strikker str. L og er nået til ærmerne, som starter med A4. Jeg har strikket de 100 masker op, men da mønstret går over 6 masker, kommer mønstret jo ikke til at passe, når det sættes sammen under ærmet, da 6 ikke går op i 100. Er det en fejl eller skal det være sådan?
18.05.2025 - 21:53DROPS Design svaraði:
Hej Henriette, nej mønsteret vil ikke passe under ærmet, da det også er her du tager ind for at forme ærmet. Sørg for at mønsteret passer over hinanden på selve ærmet :)
21.05.2025 - 14:36
Sadhana Hardikar skrifaði:
Hello, Thanks for the reply for my last question. I am starting the sleeve now. Do I pick up the 6 cast on stitches inside under sleeve while knitting up the 40+52 stitches? Or 92 stitches are excluding the cast on stitches? Thanks
17.04.2025 - 12:14DROPS Design svaraði:
Hi Sadhana, You do not pick up stitches across the cast-off stitches under the sleeve. The sleeve is worked back and forth to begin with, either side of these stitches, then joined (after the correct length for your size) and continued in the round. The hole under the sleeve is sewn together to finish. Happy Easter!
19.04.2025 - 17:22
Sadhana Hardikar skrifaði:
Hello, I am making a small size. While starting to work A4, first row there is no increase in stitches. From next to last round 30 stitches to be increased. That means 2 stitches per row. Am I correct? If yes How do I adjust the increased stitches in pattern? Thanks Or
30.03.2025 - 13:08DROPS Design svaraði:
Dear Sadhana, in the first round you have no increases for size S. In the next-to-last round (that is, the round right before the last one, and not all rounds until the last one) you increase 30 stitches on that same round. You had 210 stitches so: 210/30 = 7. So you increase all 30 stitches evenly on the same round by working 1 yarn over after every 7th stitch on the round. Happy knitting!
30.03.2025 - 20:14
Hanne Raahauge skrifaði:
Vedr. forstykket på trøjen rammer jeg ikke A2 på bagstykket efter kontrolmål ved ombuk 4 cm yderst langs ærmegabet hvor der blev strikket masker op. Forstykket måler 18 cm men jeg kommer ned over A3 på bagstykket med A1. Jeg strikker str xl.
13.03.2025 - 08:25DROPS Design svaraði:
Hej Hanne, du strikker A.1 til du når ned til A.1 på bagstykket og først nu fortsætter du med A.2 :)
14.03.2025 - 14:15
Sandrine skrifaði:
Merci pour votre réponse rapide. J'ai encore une question : le 1er rang du dos sur le diagramme A.1 ce sont des mailles endroit, sans augmentation, les augmentations commencent au 2ème rang, envers donc. Or vous parlez d'abord d'augmentations sur l'endroit. Je ne comprends pas bien pourquoi. Merci
20.02.2025 - 22:14DROPS Design svaraði:
Bonjour Sandrine, les mailles augmentées figurent dans les diagrammes A.1A et A.1C mais pas les augmentations elles-mêmes, autrement dit, au 1er rang, vous augmentez 1 m avant A.1A et 1 m après A.1C, au 2ème rang, vous avez donc 1 m en plus dans A.1A et A.1C + vous augmentez aussi 1 maille avant A.1A et 1 maille après A.1C comme indiqué dans les explications. On augmente tous les rangs dans ces diagrammes au début du dos, autrement dit aussi bien sur l'endroit que sur l'envers; les cases blanches sont des mailles jersey endroit (à tricoter à l'envers sur l'envers) ,et les croix vont se tricoter à l'envers sur l'endroit. Bon tricot!
21.02.2025 - 08:38
Sandrine skrifaði:
Bonjour, vous parlez du motif À. 1, mais je ne le trouve pas dans les schémas, tous les motifs À. 1 sont suivis d'une lettre.
20.02.2025 - 11:33DROPS Design svaraði:
Bonjour Sandrine, lorsque les diagrammes A.1A à A.1C sont terminés, vous les reprenez comme avant: A.1A, répétez A.1B et terminez par A.1C (ils forment ainsi A.1 à eux 3). Vous avez maintenant suffisamment de mailles pour répéter 4 fois A.1AB en plus entre A.1A et A.1C. Bon tricot!
20.02.2025 - 14:42
Marc Christine skrifaði:
Mon emmanchure fait plus de 10cm ( 13 cm environ) malgré que mes augmentations ne sont pas encore terminées. Est ce un problème pour la suite ? Merci de votre réponse.
23.09.2024 - 15:31DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Marc, mesurez-vous bien au bon endroit? Les 10 cm d'emmanchure en taille S correspondent à environ 21 cm depuis le rang de montage de l'encolure dos; autrement dit, jusqu'aux augmentations, vous devez avoir 11 cm et après les augmentations vous tricotez encore 10 cm. Notez que la tension en hauteur doit être de 28 rangs jersey = 10 cm pour que les mesures soient justes. Bon tricot!
23.09.2024 - 16:46
Henriette Bildt Pedersen skrifaði:
Ka’ simpelhen ikk finde diagram A1…ka’ I hjælpe? 😊
22.07.2024 - 20:41DROPS Design svaraði:
Hej Henriette, du finder diagrammerne nederst i opskriften, A.1A, A.1B og A.1C er på samme række :)
01.08.2024 - 08:11
Sally Woodhead skrifaði:
Hi, I am just starting the first sleeve. I have inserted a marker thread at the bottom of the sleeve opening but I don’t know where to start A4. Can you help? Thanks
21.07.2024 - 11:23DROPS Design svaraði:
Dear Sally, the sleeve is worked as it was knitted up, (from the bottom of the sleeve opening, up the back piece to the top of the shoulder and down the front piece to the bottom of the armhole). The start of the rounds will be in the mid under the sleeve, and the middle of the row is approx. the mid upper sleeve. Now work A.4, ensuring that the marker in the mid upper sleeve is exactly where the black arrow is in A.4. So, you need to count outwards from there, adding repeats on each side, to see in which stitch of A.4 to begin and end the round. You can read the following lesson for more info: https://www.garnstudio.com/lesson.php?id=39&cid=19. Happy knitting!
22.07.2024 - 01:54
Monica Langeland skrifaði:
Da prøver jeg igjen. Jeg strikker herregenser str L Har strikket bakstykket og 2 framstykker. Setter sammen de 2 foran med 43 masker på hver pinne. Legger opp 29 masker (hals) og får da 115 masker. Som er riktig i oppskriften. Når jeg fortsetter med det mønster jeg holder på med (A1) så får jeg det ikke til å stemme. Hva har jeg gjort galt? Det skal jo ikke være 3 masker glattstrikk i ytterkantene her? Eller 🤷♀️
26.06.2024 - 12:17DROPS Design svaraði:
Hej Monica, jo når du har sat stykkerne sammen, strikker du mønsteret helt ud i siderne, det er her du skal sørge for at du har strikket lige langt som på bagstykket, så du kan sætte arbejdet sammen under ærmerne :)
27.06.2024 - 07:41
Variety#varietysweater |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Lima eða DROPS Karisma fyrir herra. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með evrópskri öxl / skáhallandi öxl, áferðamynstri og tvöföldum kanti í hálsmáli. Stærð S - XXXL.
DROPS 233-24 |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.6. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. ÚTAUKNING FRÁ RÉTTU: Aukið út til vinstri á EFTIR PRJÓNAMERKI: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð slétt í aftari lykkjubogann. Aukið út til hægri á UNDAN PRJÓNAMERKI: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að aftan og lykkjan er prjónuð slétt í fremri lykkjubogann. ÚTAUKNING FRÁ RÖNGU: Aukið út til vinstri á EFTIR PRJÓNAMERKI: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að aftan og lykkjan er prjónuð brugðið í fremri lykkjubogann. Aukið út til hægri á UNDAN PRJÓNAMERKI: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð brugðið í aftari lykkjubogann. ÚRTAKA (á við um miðju undir ermum): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Efsti hlutinn á bakstykki er prjónaður fram og til baka á hringprjóna, ofan frá og niður þar til handvegur hefur verið prjónaður til loka. Síðan eru lykkjur prjónaðar upp meðfram hvorri öxl, aukið er út fyrir hálsmáli og framstykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna, ofan frá og niður þar til handvegur hefur verið prjónaður til loka. Framstykkið og bakstykkið er sett saman. Fram- og bakstykkið er prjónað í hring á hringprjón. Lykkjur eru prjónaðar í kringum hvorn handveginn. Ermar eru prjónaðar fram og til baka á hringprjóna, síðan er afgangur af ermi prjónaður í hring á sokkaprjóna / stuttan hringprjón. Að lokum er prjónaður tvöfaldur kantur í hálsmáli í hring. BAKSTYKKI: Fitjið upp 39-39-43-43-47-47 lykkjur á hringprjón 4 með DROPS Lima eða DROPS Karisma. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Setjið 1 prjónamerki innan við ystu 3 lykkjur í hvorri hlið. Prjónamerkin eiga að sitja innan við ystu 3 lykkjur í hverri umferð. Fyrsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: A.1A, aukið út á EFTIR prjónamerki í byrjun á umferð – lesið ÚTAUKNING FRÁ RÉTTU, prjónið A.1B alls 8-8-9-9-10-10 sinnum, prjónið A.1C og aukið jafnframt út á UNDAN prjónamerki í lok umferðar – munið eftir ÚTAUKNING FRÁ RÉTTU. Í næstu umferð (ranga) er aukið út alveg eins – lesið ÚTAUKNING FRÁ RÖNGU. Haldið svona áfram með mynstur og aukið út alveg eins bæði frá réttu og frá röngu alls 30-34-36-40-42-46 sinnum – útauknar lykkjur eru prjónaðar jafnóðum inn í A.1B, en passið uppá að það séu alltaf minnst 3 lykkjur sléttprjón yst í hvorri hlið. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! ATH: Þegar A.1A, A.1B og A.1C hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina, endurtakið A.1A á hæðina alveg eins, þ.e.a.s. í hvert skipti sem A.1 er endurtekið á hæðina er pláss fyrir 4 mynstureiningar fleiri með A.1B á breiddina. Á eftir síðustu útaukningu eru 99-107-115-123-131-139 lykkjur í umferð og stykkið mælist ca 11-12-13-14-15-16 cm frá uppfitjunarkanti. Haldið áfram með mynstur fram og til baka eins og áður þar til stykkið mælist 10-10-10-10-11-12 cm mælt yst meðfram handvegi (stykkið mælist ca 21-22-23-24-26-28 cm frá uppfitjunarkanti mitt að aftan) – endið eftir umferð frá röngu. Nú er prjónað A.2 fram og til baka yfir allar lykkjur. Þegar A.2 hefur verið prjónað til loka, prjónið næstu umferð frá réttu þannig: 1 lykkja sléttprjón, A.3A, prjónið A.3B alls 11-12-13-14-15-16 sinnum, A.3C, 1 lykkja sléttprjón. Haldið svona áfram með mynstur. Þegar bakstykkið mælist 19-20-20-21-22-23 cm, mælt yst meðfram handvegi, klippið þráðinn, setjið lykkjurnar á þráð eða á hjálparprjón. Handvegurinn á bakstykki hefur nú verið prjónaður til loka (A.3 er ekki lokið, heldur er prjónað til loka á fram- og bakstykki). Prjónið framstykkið eins og útskýrt er að neðan. FRAMSTYKKI: Byrjið með hægri öxl (séð þegar flíkin er mátuð). Prjónið upp frá réttu 30-34-36-40-42-46 lykkjur innan við 1 lykkju meðfram hægri öxl á bakstykki (þ.e.a.s. prjónið upp 1 lykkju í hverja umferð frá kanti efst á bakstykki). Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig (þ.e.a.s. frá handvegi): S, M, XXL og XXXL: 3 lykkjur sléttprjón, prjónið A.1B þar til 3 lykkjur eru eftir, endið eftir 3 lykkjur sléttprjón. L og XL: 3 lykkjur sléttprjón, prjónið A.1B þar til 5 lykkjur eru eftir, prjónið 2 fyrstu lykkjurnar í A.1B, endið með 3 lykkjur sléttprjón. ALLAR STÆRÐIR: Haldið svona áfram fram og til baka. Þegar stykkið mælist 5 cm frá þar sem lykkjur voru prjónaðar upp, aukið út lykkjur við hálsmál. Aukið út 1 lykkju fyrir hálsmáli innan við 3 lykkjur í lok hverrar umferðar frá réttu, munið eftir ÚTAUKNING FRÁ RÉTTU! Aukið svona út fyrir hálsmáli alls 6-6-7-7-8-8 sinnum – útauknar lykkjur eru prjónaðar jafnóðum inn í A.1B, en passið uppá að það séu alltaf minnst 3 lykkjur sléttprjón yst við hálsmál. Á eftir síðustu útaukningu eru 36-40-43-47-50-54 lykkjur í umferð. Klippið þráðinn frá þegar síðasta útaukning hefur verið prjónuð til loka. Setjið lykkjur á þráð eða á hjálparprjón. Nú er vinstri öxl prjónuð eins og útskýrt er að neðan. Prjónið upp frá réttu 30-34-36-40-42-46 lykkjur innan við 1 lykkju meðfram vinstri öxl á bakstykki. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Næsta umferð er prjónuð frá réttu (þ.e.a.s. frá hálsmáli): S, M, XXL og XXXL: 3 lykkjur sléttprjón, prjónið A.1D þar til 3 lykkjur eru eftir, endið með 3 lykkjur sléttprjón. L og XL: 3 lykkjur sléttprjón, prjónið A.1E þar til 5 lykkjur eru eftir, prjónið 2 fyrstu lykkjurnar í A.1E, endið með 3 lykkjur sléttprjón. ALLAR STÆRÐIR: Haldið svona áfram með mynstur fram og til baka. Þegar stykkið mælist 5 cm frá þar sem lykkjur voru prjónaðar upp, aukið út lykkjur við hálsmál. Aukið út um 1 lykkju fyrir hálsmáli innan við 3 lykkjur í byrjun á hverri umferð frá réttu, munið eftir ÚTAUKNING FRÁ RÉTTU! Aukið út fyrir hálsmáli svona alls 6-6-7-7-8-8 sinnum – útauknar lykkjur eru prjónaðar jafnóðum inn í A.1D/A.1E, en passið uppá að það séu alltaf minnst 3 lykkjur sléttprjón yst við hálsmál. Á eftir síðustu útaukningu eru 36-40-43-47-50-54 lykkjur í umferð. Næsta umferð er prjónuð frá röngu þannig: Prjónið mynstur eins og áður yfir 36-40-43-47-50-54 lykkjur frá vinstra framstykki, fitjið upp 27-27-29-29-31-31 lykkjur fyrir hálsmáli í lok þessarar umferðar, prjónið mynstur eins og áður yfir 36-40-43-47-50-54 lykkjur frá hægra framstykki = 99-107-115-123-131-139 lykkjur. Haldið áfram með A.1 fram og til baka þar til stykkið mælist ca 16-16-18-18-19-20 cm frá þar sem lykkjur voru prjónaðar upp – endið eftir umferð frá röngu eins og á bakstykki. Nú er sett 1 prjónamerki yst meðfram handvegi, 3-3-4-4-4-4 cm frá þar sem lykkjur voru prjónaðar upp. Takið mál á stykkinu með því að brjóta stykkið við hæsta punkt innst á öxl og við prjónamerki á framstykki – athugið að A.1 nái jafn langt niður á bakstykki og á framstykki. Þetta er mikilvægt til að mynstrið komi til með að passa í hliðum þegar stykkið er sett saman. Stillið lengdina á A.1 eftir þörf. Síðan er A.2 prjónað fram og til baka yfir allar lykkjurnar. Þegar A.2 hefur verið prjónað til loka, prjónið næstu umferð frá réttu þannig: 1 lykkja sléttprjón, A.3A, prjónið A.3B alls 11-12-13-14-15-16 sinnum, A.3C, 1 lykkja sléttprjón. Haldið svona áfram með mynstur þar til framstykkið mælist 25-26-28-29-30-31 cm, mælt yst meðfram handvegi frá þar sem lykkjur voru prjónaðar upp (A.3 er ekki lokið, en endið framstykkið í sömu umferð í mynsturteikningu og á bakstykki – þetta er mikilvægt til að mynstrið komi til með að passa í hliðum þegar stykkið er sett saman). Nú er framstykkið og bakstykkið sett saman fyrir fram- og bakstykki eins og útskýrt er að neðan. FRAM- OG BAKSTYKKI: Prjónið mynstur eins og áður yfir 99-107-115-123-131-139 lykkjur frá framstykki, fitjið upp 6-6-8-8-10-14 nýjar lykkjur í lok þessarar umferðar (í hlið undir ermi), prjónið mynstur eins og áður yfir 99-107-115-123-131-139 lykkjur frá bakstykki og fitjið upp 6-6-8-8-10-14 nýjar lykkjur á prjóninn (í hlið undir ermi) = 210-226-246-262-282-306 lykkjur. Prjónið A.3 til loka – lykkjur sem fitjaðar voru upp í hvorri hlið eru prjónaðar í sléttprjóni þar til A.3 hefur verið prjónað til loka. Nú er prjónað A.4 hringinn á fram- og bakstykki – JAFNFRAMT í fyrstu umferð er aukið út um 0-2-0-2-0-0 lykkjur jafnt yfir = 210-228-246-264-282-306 lykkjur. Í næst síðustu umferð í A.4, aukið út um 30-32-34-36-38-38 lykkjur jafnt yfir = 240-260-280-300-320-344 lykkjur (þetta er gert þar sem næsta umferð dregur stykkið saman). Þegar A.4 hefur verið prjónað til loka, prjónið A.5 hringinn á fram- og bakstykki. A.5 er endurtekið á hæðina þar til stykkið mælist 41-43-45-46-46-48 cm, mælt frá hæsta punkti á framstykki inn við hálsmál (A.5 er prjónað ca 3-4-4-4-4-4 sinnum á hæðina og stykkið mælist ca 19-21-21-20-20-20 cm frá þar sem lykkjur voru fitjaðar upp í hvorri hlið) – JAFNFRAMT í síðustu umferð í A.5, fækkið um 28-32-36-36-40-40 lykkjur jafnt yfir = 212-228-244-264-280-304 lykkjur. Nú er A.6 prjónað hringinn yfir allar lykkjur. Þegar A.6 hefur verið prjónað til loka, prjónið A.1B hringinn yfir allar lykkjur þar til stykkið mælist ca 57-59-61-63-65-67 cm, mælt frá hæsta punkti á framstykki inn við hálsmál – endið þegar prjónaðar hafa verið 2 eða 3 umferðir í sléttprjóni á eftir umferð með brugðnum lykkjum. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 40-44-48-52-60-60 lykkjur jafnt yfir = 252-272-292-316-340-364 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 3. Prjónið stroff (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 5 cm. Fellið aðeins laust af. Peysan mælist ca 62-64-66-68-70-72 cm, mælt frá efsta punkti á öxl á framstykki. HÆGRI ERMI: Notið hringprjón 4, prjónið upp frá réttu 40-42-42-44-46-48 lykkjur frá botni á handvegi upp að öxl (meðfram bakstykki) og 52-54-58-60-62-64 lykkjur frá öxl og niður að botni á handvegi í hinni hliðinni (meðfram framstykki) = 92-96-100-104-108-112 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt í umferð – prjónamerkið er notað til að telja út hvar mynstri á að byrja og til að mæla frá. Byrjið frá röngu með 2. umferð í A.4 og prjónið A.4 fram og til baka – prjónamerkið mitt á ermi á að passa við tákn í A.4. Þegar ermin mælist 1-1-2-2-2-3 cm, setjið stykkið saman og afgangur af ermi er prjónaður í hring á stuttan hringprjón / sokkaprjóna. Þegar A.4 hefur verið prjónað til loka, prjónið A.1B hringinn. JAFNFRAMT þegar ermin mælist 3-5-3-6-5-2 cm frá þar sem stykkið var sett saman, fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með 2½-2-2-1½-1½-1½ cm millibili alls 19-21-22-23-25-26 sinnum = 54-54-56-58-58-60 lykkjur. Prjónið þar til ermin mælist 51-50-48-47-46-44 cm frá þar sem stykkið var sett saman. Nú eru eftir ca 5 cm að loknu máli. Mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd fyrir stroff. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 18-18-20-18-18-20 lykkjur jafnt yfir = 72-72-76-76-76-80 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjón 3. Prjónið stroff (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 5 cm. Fellið aðeins laust af. Ermin mælist alls ca 57-56-55-54-53-52 cm frá þar sem lykkjur voru prjónaðar upp. Saumið botninn á handvegi – sjá teikningu. VINSTRI ERMI: Notið hringprjón 4, prjónið upp frá réttu 52-54-58-60-62-64 lykkjur frá botni á handvegi og upp að öxl (meðfram framstykki) og 40-42-42-44-46-48 lykkjur frá öxl og niður að botni á handvegi í hinni hliðinni (meðfram bakstykki) = 92-96-100-104-108-112 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt í umferð – prjónamerkið er notað til að telja út hvar mynstrið á að byrja og til að mæla frá. Afgangur af ermi er prjónaður á sama hátt og hægri ermi. Saumið botninn á handvegi – sjá teikningu. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Byrjið við aðra axlalínuna og prjónið upp frá réttu innan við 1 kantlykkju ca 116 til 136 lykkjur á stuttan hringprjón 3. Lykkjufjöldinn verður að vera deilanlegur með 4. Prjónið stroff hringinn (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 12 cm. Brjótið stroffið niður að innanverðu á stykkinu og festið með 1 spori við hvora öxl. |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #varietysweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 28 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 233-24
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.