Martina Hegert skrifaði:
Hallöchen, mir ist aufgefallen, das bei den verkürzten Reihen in der Rückrunde auch glatt rechts gestrickt werden soll. Das ist aber meiner Meinung nach nicht richtig. Es muss doch in der Rückrunde links gestrickt werden. Gruß Martina Hegert
17.04.2024 - 13:16
Rosario skrifaði:
Cuántas madejas se necesita para hacer jersey de la talla L? Es muy bonito
28.03.2024 - 16:13DROPS Design svaraði:
Hola Rosario, para la talla L necesitas 350gr del color 02 y 150g del color 10 de DROPS Soft Tweed. Cada ovillo son 50g así que necesitas 7 ovillos del color 02 y 3 del color 10.
31.03.2024 - 23:36
Zisa skrifaði:
J’ai craqué sur le modèle mais la laine Soft Tweed n’était pas en quantité suffisante, je l’ai réalisé en Sky et c’est un pur bonheur !
25.02.2024 - 21:12
Beate skrifaði:
Ich finde die Beschreibung sehr schlecht und komme damit nicht zurecht. Kann ich den Pullover nicht auch von unten nach oben stricken, so habe ich früher auch Pullover gestrickt. Schon bei der Raglanzunahme scheitere ich an Ihrer Beschreibung, wenn dann bräuchte ich einen Film der genau diese Anleitung beschreibt und nicht nur allgemein gehalten ist. Damit kann ich dann auch nichts anfangen, Leider kann ich ja die Wolle nicht mehr zurückschicken da ich sie bereits bezahlt habe
13.02.2024 - 22:26DROPS Design svaraði:
Liebe Beate, unter Videos sowie Lektion finden Sie 1 Video und 1 Lektion, wo man zeigt, wie man einen Pullover von oben nach unten strickt, sicher kann das Ihnen helfen; hier finden Sie sonnst Anleitungen von unten nach oben. Viel Spaß beim stricken!
14.02.2024 - 08:15
Pia skrifaði:
Hej, vill sticka denna tröja i garnet Drops snow garn grupp E. Stickar ganska hårt? Tänkte sticka i st.L/XL .Hur skall jag göra? Lägga upp flera maskor ? Stickar med stickor 8 och 9 mm. Tacksam för svar.
10.02.2024 - 23:14DROPS Design svaraði:
Hej Pia. Du kan söka på tröjor till dam i garngrupp E, då får du upp många fina mönster som liknar detta som du kan sticka med DROPS Snow. Mvh DROPS Design
15.02.2024 - 13:41
Karolina skrifaði:
Hej! Mam 2 pytania. 1: linię reglanu mają tworzyć 2 czy 4 oczka? Nie wiem czy mam dodawać oczko na reglan dwa oczka przed/za markerem czy jedno oczko przed/za. 2: w 1. rzędzie skróconym- te trzy oczka, za którymi mam obrócić na drugą stronę liczyć razem z nowo dodanym oczkiem na reglan? Z góry dziękuję za odpowiedź!
07.02.2024 - 10:54DROPS Design svaraði:
Witaj Karolino, 1. linię reglanu tworzą 2 oczka. Dodajesz oczka na reglany przed/za tymi 2 oczkami. 2. kolejny rząd skrócony jest liczony razem z poprzednio dodanym oczkiem na reglan. Pozdrawiamy i życzymy miłej pracy!
07.02.2024 - 11:36
Beate skrifaði:
Bei der Maschenprobe habe ich festgestellt, dass ich Nadelstärke 3,5 brauche um auf die 10x10 cm zu kommen. Soll ich dann den ganzen Pullover in 3,5 stricken oder das Halsbündchen in 3? Bei Ihrer Erklärung über die Maschenprobe habe ich das auch das 1. Mal verstanden, wie das mit den Maschen und der Stärke gemeint ist. Danke.
28.01.2024 - 10:41DROPS Design svaraði:
Liebe Beate, sollten Sie die 20 Maschen x 26 Reihen mit den Nadeln Nr 3 bekommen, dann benutzen Sie kleinere Nadeln für das Bündchen, 1 Halbe Nummer oder 1 Nummer unten: 2 oder 2,5. Viel Spaß beim stricken!
29.01.2024 - 12:13
Beate skrifaði:
Nach Durchsicht der Anleitung wurde nur einmal erwähnt, welche Länge der Rundstricknadel ich verwenden soll. Leider danach nicht mehr. Warum fehlt diese Angabe? So komme ich nicht zurecht. Ist das ein Pullover für Anfänger oder Fortgeschrittene?
31.12.2023 - 16:52DROPS Design svaraði:
Liebe Beate, benutzen Sie die passende Länge zu der Maschenanzahl, dh am Anfang beginnen Sie mit der kürzeren Nadeln, und wenn es zuviele Maschen sind, stricken Sie mit der längeren. Viel Spaß beim stricken!
02.01.2024 - 11:11
Hélène skrifaði:
Je n’arrive pas à 40 mailles au début quand on place les marqueurs! J’arrive à 39 mailles! La quarantième maille est au tout début avant le premier marqueur.
11.12.2023 - 20:26DROPS Design svaraði:
Bonjour Hélène, en taille XXL, vous devez placer les marqueurs ainsi: 20 mailles, 1 marqueur, 40 mailles, 1 marqueur, 20 mailles, 1 marqueur, 40 mailles = 20+40+20+40=120 mailles. Bon tricot!
12.12.2023 - 08:54
Ywonne Krantz skrifaði:
Varför står det markör 1,2, 3 och 4. Sedan står det sista markören på varv 2 raglan stickning. Vilken är sista markören nr 4? Väldigt svårförståelig beskrivning. Snart ger jag upp.
18.08.2023 - 15:21DROPS Design svaraði:
Hei Ywonne Oppskriften er oversendt til design avd. for en dobbeltsjekk. Men om du på 2.PINNE (vrangen) strikker glattstrikk og øker til raglan på hver side av alle merketrådene (8 masker økt) og så snu når du har strikket 3 masker forbi den 3. merke (ikke siste), vil det stemme. mvh DROP Design
21.08.2023 - 09:16
Marina Del Rey#marinadelreysweater |
|
![]() |
![]() |
Prjónuð peysa úr DROPS Soft Tweed. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með laskalínu, röndum og klauf í hlið. Stærð S - XXXL.
DROPS 239-5 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- LASKALÍNA: Aukið út um 1 lykkju á undan/eftir 2 lykkjum í hverri skiptingu á milli framstykkis/bakstykkis og erma, prjónamerkið situr á milli þessa 2 lykkja. Lykkjurnar eru auknar út eins og útskýrt er að neðan: Frá réttu: AUKIÐ ÚT TIL HÆGRI UM 1 LYKKJU Á UNDAN PRJÓNAMERKI: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að aftan og lykkjan er prjónuð slétt í fremri lykkjubogann. AUKIÐ ÚT TIL VINSTRI UM 1 LYKKJU Á EFTIR PRJÓNAMERKI: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð slétt í aftari lykkjubogann. Frá röngu: AUKIÐ ÚT TIL HÆGRI UM 1 LYKKJU Á UNDAN PRJÓNAMERKI: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð brugðið í aftari lykkjubogann. AUKIÐ ÚT TIL VINSTRI UM 1 LYKKJU Á EFTIR PRJÓNAMERKI: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að aftan og lykkjan er prjónuð brugðið í fremri lykkjubogann. RENDUR: Þegar stykkið mælist 7-8-8-8-8-9 cm frá stroffi (mælt mitt að framan), prjónið rendur þannig: * 2 cm með litnum gallabuxnablár 3½ cm með litnum marsipan *, prjónið frá *-* þar til prjónaðar hafa verið alls 8-8-8-9-9-9 rendur með litnum gallabuxnablár á fram- og bakstykki/ermar. Síðan er prjónað eins og útskýrt er í uppskrift. GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. ÚRTAKA (á við um miðju undir ermum): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Kantur í hálsmáli og berustykkið er prjónað í hring, ofan frá og niður. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykkið er prjónað í hring á hringprjóna niður að klauf, síðan er framstykkið og bakstykkið prjónað hvort fyrir sig. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna / stuttan hringprjón. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 104-104-112-112-120-128 lykkjur á stuttan hringprjón 3,5 með litnum marsipan í DROPS Soft Tweed. Prjónið stroff hringinn (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) þar til kanturinn í hálsmáli mælist 5 cm. Setjið 4 prjónamerki í stykkið eins og útskýrt er að neðan (þetta er gert án þess að prjóna umferðina). Prjónamerkin eru sett á milli 2 lykkja og eru notuð þegar auka á út fyrir laskalínu. Teljið 1 lykkju og setjið 1. prjónamerkið hér, teljið 20 lykkjur og setjið 2. prjónamerkið hér, teljið 32-32-36-36-40-44 lykkjur og setjið 3. prjónamerkið hér, teljið 20 lykkjur og setjið 4. prjónamerkið hér, það eru 32-32-36-36-40-44 lykkjur á milli 4. og 1. prjónamerkis. HÁLSMÁL: Skiptið yfir á hringprjón 4,5. Nú er hálsmálið prjónað með stuttum umferðum eins og útskýrt er að neðan. UMFERÐ 1 (rétta): Prjónið sléttprjón og aukið út fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan, hvoru megin við 2 fyrstu prjónamerkin (4 lykkjur fleiri), snúið þegar prjónaðar hafa verið 3 lykkjur fram hjá öðru prjónamerkinu. UMFERÐ 2 (ranga): Prjónið sléttprjón og aukið út fyrir laskalínu hvoru megin við öll prjónamerkin (8 lykkjur fleiri), snúið þegar prjónaðar hafa verið 3 lykkjur fram hjá síðasta prjónamerkinu. UMFERÐ 3 (rétta): Prjónið sléttprjón og aukið út fyrir laskalínu hvoru megin við öll prjónamerkin (8 lykkjur fleiri), snúið þegar prjónaðar hafa verið 2 lykkjur fleiri en við fyrri snúning. UMFERÐ 4 (ranga): Prjónið sléttprjón og aukið út fyrir laskalínu hvoru megin við öll prjónamerkin (8 lykkjur fleiri), snúið þegar prjónaðar hafa verið 2 lykkjur fleiri en við fyrri snúning. UMFERÐ 5 (rétta): Prjónið sléttprjón og aukið út fyrir laskalínu hvoru megin við öll prjónamerkin (8 lykkjur fleiri), snúið þegar prjónaðar hafa verið 2 lykkjur fleiri en við fyrri snúning. UMFERÐ 6 (ranga): Prjónið sléttprjón og aukið út fyrir laskalínu hvoru megin við öll prjónamerkin (8 lykkjur fleiri), snúið þegar prjónaðar hafa verið 2 lykkjur fleiri en við fyrri snúning. UMFERÐ 7 (rétta): Prjónið sléttprjón og aukið út fyrir laskalínu hvoru megin við öll prjónamerkin (8 lykkjur fleiri), snúið þegar prjónaðar hafa verið 2 lykkjur fleiri en við fyrri snúning. UMFERÐ 4 (ranga): Prjónið sléttprjón og aukið út fyrir laskalínu hvoru megin við 2 fyrstu prjónamerkin (4 lykkjur fleiri), prjónið þar til 1 lykkja er eftir á undan 1. prjónamerki (byrjun á umferð). Stuttar umferðir hafa verið prjónaðar til loka og aukið hefur verið út 6 sinnum fyrir laskalínu við hvert prjónamerki = 152-152-160-160-168-176 lykkjur í umferð. Síðan er prjónað í hring yfir allar lykkjur. BERUSTYKKI: ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! og lesið RENDUR! Prjónið sléttprjón og haldið áfram með útaukningu fyrir laskalínu þannig: Núna er aukið út fyrir laskalínu í annarri hverri umferð þar til aukið hefur verið út svona alls 7-11-12-12-10-10 sinnum á fram- og bakstykki og ermar. Nú eru 208-240-256-256-248-256 lykkjur í umferð. Haldið áfram að auka út í annarri hverri umferð, en í annað hvert skipti sem aukið er út, er einungis aukið út á framstykki/bakstykki. Þ.e.a.s. aukið er út á framstykki/bakstykki í annarri hverri umferð og á ermum í 4. hverri umferð, aukið er út til skiptis um 4 og 8 lykkjur. Aukið svona út 16-16-16-20-26-30 sinnum á fram- og bakstykki (8-8-8-10-13-15 sinnum á ermum). Nú hefur verið aukið út alls 29-33-34-38-42-46 sinnum á fram- og bakstykki og 21-25-26-28-29-31 sinnum á ermum (meðtalin útaukning í stuttum umferðum í hálsmáli). Á eftir síðustu útaukningu eru 304-336-352-376-404-436 lykkjur í umferð (90-98-104-112-124-136 lykkjur á milli prjónamerkja á framstykki/bakstykki og 62-70-72-76-78-82 lykkjur á milli prjónamerkja á ermum). Prjónið án útaukningar þar til stykkið mælist 21-23-24-25-28-31 cm, mælt mitt að framan á eftir stroffi í hálsmáli. Berustykkið skiptist nú fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Prjónið fram að 1. prjónamerkinu og byrjið umferð hér, setjið fyrstu 62-70-72-76-78-82 lykkjur á þráð án þess að prjóna þær (ermi), fitjið upp 10-10-12-12-14-14 nýjar lykkjur á prjóninn (í hlið undir ermi), prjónið 90-98-104-112-124-136 lykkjur (framstykki), setjið næstu 62-70-72-76-78-82 lykkjur á þráð án þess að prjóna þær (ermi), fitjið upp 10-10-12-12-14-14 nýjar lykkjur á prjóninn (í hlið undir ermi), prjónið 90-98-104-112-124-136 lykkjur (bakstykki). Fram- og bakstykki og ermar er nú prjónað til loka hvert fyrir sig. Héðan er nú stykkið mælt frá! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 200-216-232-248-276-300 lykkjur. Prjónið fyrstu 5-5-6-6-7-7 lykkjur sem fitjaðar voru upp í hlið undir ermi, umferðin byrjar núna hér. Haldið áfram í sléttprjóni og með rendur eins og áður, þegar rendur hafa verið prjónaðar til loka er prjónað með litnum marsipan. Þegar stykkið mælist 17-17-18-19-18-17 cm skiptist stykkið til að gera klauf í hvorri hlið, setjið síðustu 100-108-116-124-138-150 lykkjur í umferð á þráð (bakstykki). FRAMSTYKKI: Prjónið fram og til baka í sléttprjóni með 2 kantlykkjum í GARÐAPRJÓN í hvorri hlið – sjá útskýringu að ofan. Þegar stykkið mælist 10 cm frá þar sem klaufin byrjaði, prjónið 1 umferð frá réttu þar sem aukið er út um 10-10-14-14-16-16 lykkjur jafnt yfir (ekki er aukið út yfir kanlykkjur) = 110-118-130-138-154-166 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 3,5 og prjónið stroff þannig (fyrsta umferðin er frá röngu): Prjónið 2 kantlykkjur í garðaprjóni, * 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt *, prjónið frá *-* þar til 4 lykkjur eru eftir, prjónið 2 lykkjur brugðið og 2 kantlykkjur í garðaprjóni. Haldið áfram fram og til baka í stroffprjóni í 5 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Peysan mælist ca 58-60-62-64-66-68 cm frá öxl og niður. BAKSTYKKI: Setjið til baka 100-108-116-124-138-150 lykkjur inn frá þræði á hringprjón 4,5 og prjónið bakstykkið á sama hátt og framstykkið – munið eftir að skipta yfir á hringprjón 3,5 áður en stroffið byrjar. ERMI: Setjið 62-70-72-76-78-82 lykkjur frá þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjóna eða stuttan hringprjón 4,5 – prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 10-10-12-12-14-14 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 72-80-84-88-92-96 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt undir ermi, þ.e.a.s. mitt í 10-10-12-12-14-14 lykkjurnar sem prjónaðar voru upp undir ermi. Byrjið umferð við prjónamerki og prjónið sléttprjón og rendur eins og áður, þegar rendur hafa verið prjónaðar til loka er prjónað með litnum marsipan. JAFNFRAMT þegar ermin mælist 4 cm frá skiptingu, fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með 3-2-2-1½-1-1 cm millibili alls 8-11-12-13-14-15 sinnum = 56-58-60-62-64-66 lykkjur. Prjónið þar til ermin mælist 31-30-29-29-26-23 cm frá skiptingu (nú eru eftir ca 11 cm að loka máli). Skiptið yfir í litinn gallabuxnablár og prjónið 3 umferðir sléttprjón þar sem aukið er út um 20-22-20-22-24-26 lykkjur jafnt yfir í síðustu umferð = 76-80-80-84-88-92 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjóna 3,5 og litinn marsipan. Prjónið stroff (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 10 cm. Skiptið yfir í litinn gallabuxnablár, prjónið stroff eins og áður þar til stroffið mælist alls 11 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Ermin mælist ca 42-41-40-40-37-34 cm frá skiptingu. Prjónið hina ermina á sama hátt. |
|
![]() |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #marinadelreysweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 30 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 239-5
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.