Rose skrifaði:
Pour le DOS "Au rang suivant (sur l’envers), augmenter de la même façon – voir AUGMENTER SUR L’ENVERS.", que veut dire augmenter de la même façon? car sur l'endroit au rang précédent "augmenter APRÈS le marqueur au début du premier rang sur l’endroit) et AVANT le marqueur à la fin du rang " cela veut il dire que sur l'envers je dois augmenter en 1er APRES le marqueur et au bout du rang AVANT le marqueur ? ou est ce l'inverse? merci
30.08.2022 - 21:47DROPS Design svaraði:
Bonjour Rose, vous devez augmenter à 3 mailles des bords de chaque côté, sur l'envers - comme sur l'endroit, vous augmentez après le 1er marqueur et avant le 2ème marqueur. Cette vidéo montre comment procéder pour le dos. Bon tricot!
31.08.2022 - 07:44
Kasia skrifaði:
Jaki rozmiar ma na sobie modelka? Pozdrawiam :)
30.08.2022 - 16:49DROPS Design svaraði:
Witaj, modelka na zdjęciu ma rozmiar S lub M. Jeśli nie wiesz jaki rozmiar wybrać zobacz kurs Drops TUTAJ. Pozdrawiamy!
31.08.2022 - 13:23
Birgit skrifaði:
Honigbiene
08.08.2022 - 09:23
Cecilie Nissen Jøhnk skrifaði:
This is really neat - could there be a variant with just a suggestion of neck? Or even better, a neck that stands up by itself but a little away from the wearers neck? The people I like to knit for are rather sensitive around their necks.
07.08.2022 - 11:15
Trine skrifaði:
Kensington
06.08.2022 - 08:58
LW skrifaði:
Lodge
06.08.2022 - 08:38
M Wilding skrifaði:
Honey Bee
05.08.2022 - 13:21
Eva skrifaði:
Gefinkelter Streif
05.08.2022 - 11:41
Ilona skrifaði:
Tigress
05.08.2022 - 06:39
Eva skrifaði:
Chai latte
04.08.2022 - 14:49
Fudge Stripes#fudgestripessweater |
||||
![]() |
![]() |
|||
Prjónuð peysa úr DROPS Alaska. Stykkið er prjónað ofan frá og niður, í sléttprjóni með evrópskri öxl / skáhallandi öxl, röndum og háum kraga. Stærð S - XXXL.
DROPS 237-16 |
||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. ÚTAUKNING FRÁ RÉTTU: Aukið út til vinstri á EFTIR PRJÓNAMERKI: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð slétt í aftari lykkjubogann. Aukið út til hægri á UNDAN PRJÓNAMERKI: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að aftan og lykkjan er prjónuð slétt í fremri lykkjubogann. ÚTAUKNING FRÁ RÖNGU: Aukið út til vinstri á EFTIR PRJÓNAMERKI: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að aftan og lykkjan er prjónuð brugðið í fremri lykkjubogann. Aukið út til hægri á UNDAN PRJÓNAMERKI: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð brugðið í aftari lykkjubogann. RENDUR FRAM- OG BAKSTYKKI: Prjónið 4 umferðir með litnum svartur, 12 umferðir með litnum toffee. Prjónið frá *-* þar til prjónaðar hafa verið 4 rendur með litnum svartur. RENDUR ERMI: Prjónið 4 umferðir með litnum svartur, 12 umferðir með litnum toffee. Prjónið frá *-* þar til prjónaðar hafa verið 5-5-5-5-4-4 rendur með litnum svartur. ÚRTAKA (á við um miðju undir ermum): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Efra stykkið á bakstykki er prjónað fram og til baka á hringprjóna, ofan frá og niður þar til handvegur hefur verið prjónaður til loka. Síðan eru lykkjur prjónaðar upp meðfram hvorri öxl, aukið er út fyrir hálsmáli og framstykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna, ofan frá og niður þar til handvegur hefur verið prjónaður til loka. Framstykkið og bakstykkið er sett saman. Fram- og bakstykki er prjónað í hring á hringprjóna. Lykkjur eru prjónaðar upp í kringum hvorn handveg. Ermar eru fyrst prjónaðar fram og til baka, síðan í hring á sokkaprjóna / stuttan hringprjón. Að lokum er prjónaður kantur í hálsmáli í hring. BAKSTYKKI: Fitjið upp 28-28-32-34-34-36 lykkjur á hringprjón 5,5 með DROPS Alaska. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Setjið 1 prjónamerki innan við ystu 3 lykkjur í hvorri hlið. Prjónamerkin eiga að sitja innan við ystu 3 lykkjur í hverri umferð. JAFNFRAMT er aukið út á EFTIR prjónamerki í byrjun á umferð (séð frá réttu) og á UNDAN prjónamerki í lok umferðar – sjá ÚTAUKNING FRÁ RÉTTU. Í næstu umferð (ranga) er aukið út alveg eins – sjá ÚTAUKNING FRÁ RÖNGU. Haldið svona áfram og aukið út alveg eins bæði frá réttu og frá röngu alls 28-30-30-32-34-36 sinnum. Á eftir síðustu útaukningu eru 84-88-92-98-102-108 lykkjur í umferð. Héðan er nú stykkið mælt! Prjónið síðan sléttprjón fram og til baka. Þegar ermin mælist 10-11-12-13-14-14 cm (mælt yst meðfram handvegi) eru prjónaðar RENDUR FRAM- OG BAKSTYKKI – sjá útskýringu að ofan. Haldið svona áfram þar til stykkið mælist 15-16-17-18-19-19 cm. Klippið þráðinn, setjið lykkjur á þráð eða hjálparprjón og prjónið framstykkið eins og útskýrt er að neðan. FRAMSTYKKI: Byrjið með vinstri öxl (séð þegar flíkin er mátuð). Prjónið upp 28-30-30-32-34-36 lykkjur innan við ystu lykkju meðfram vinstri öxl á bakstykki (þ.e.a.s. prjónið upp 1 lykkju í hverja umferð frá kanti efst á bakstykki). Prjónið sléttprjón fram og til baka. Þegar stykkið mælist 4 cm frá þar sem lykkjur voru prjónaðar upp, aukið út lykkjur að hálsmáli. Aukið út í byrjun á hverri umferð frá réttu, aukið er út eftir 3 lykkjur, lesið ÚTAUKNING FRÁ RÉTTU. Aukið út um 1 lykkju alls 4 sinnum = 32-34-34-36-38-40 lykkjur. Prjónið 1 umferð frá röngu. Klippið þráðinn, setjið lykkjur á þráð eða hjálparprjón. Prjónið síðan hægri öxl eins og útskýrt er að neðan. Prjónið upp 28-30-30-32-34-36 lykkjur innan við ystu lykkju meðfram hægri öxl á bakstykki. Prjónið sléttprjón fram og til baka. Þegar stykkið mælist 4 cm frá þar sem lykkjur voru prjónaðar upp, aukið út lykkjur við hálsmál. Aukið út í lok hverrar umferðar frá réttu, aukið er út á undan 3 lykkjum, lesið ÚTAUKNING FRÁ RÉTTU. Aukið út um 1 lykkju alls 4 sinnum = 32-34-34-36-38-40 lykkjur. Á eftir síðustu útaukningu er prjónað til baka frá röngu. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið sléttprjón yfir 32-34-34-36-38-40 lykkjur frá hægra framstykki, fitjið upp 20-20-24-26-26-28 lykkjur fyrir hálsmáli í lok þessarar umferðar, prjónið sléttprjón eins og áður yfir 32-34-34-36-38-40 lykkjur frá vinstra framstykki = 84-88-92-98-102-108 lykkjur. Héðan er nú stykkið mælt! Prjónið síðan sléttprjón fram og til baka. Þegar stykkið mælist 18-19-20-21-22-24 cm (mælt yst meðfram handvegi) prjónið RENDUR FRAM- OG BAKSTYKKI – sjá útskýringu að ofan. Haldið áfram þar til stykkið mælist 23-24-25-26-27-29 cm. Setjið nú framstykkið og bakstykkið saman fyrir fram- og bakstykki eins og útskýrt er að neðan. FRAM- OG BAKSTYKKI: Prjónið sléttprjón yfir 84-88-92-98-102-108 lykkjur frá framstykki, fitjið upp 2-4-10-10-14-16 nýjar lykkjur í lok þessarar umferðar (í hlið), prjónið sléttprjón yfir 84-88-92-98-102-108 lykkjur frá bakstykki, fitjið upp 2-4-10-10-14-16 nýjar lykkjur í lok umferðar = 172-184-204-216-232-248 lykkjur. Prjónið sléttprjón og rendur í hring þar til stykkið mælist 48-50-52-54-56-58 cm, mælt frá efsta punkti á öxl á framstykki. Nú skiptist framstykkið og bakstykkið, þannig að það myndast klauf í hliðum. Setjið 86-92-102-108-116-124 lykkjur frá framstykki á þráð eða hjálparprjón og prjónið síðan einungis lykkjur frá bakstykki. BAKSTYKKI: Skiptið yfir á hringprjón 4,5. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem aukið er út um 12-14-12-14-14-18 lykkjur jafnt yfir = 98-106-114-122-130-142 lykkjur. Prjónið næstu umferð frá röngu þannig: 2 kantlykkjur í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt *, prjónið frá *-* þar til 4 lykkjur eru eftir, prjónið 2 lykkjur brugðið og 2 kantlykkjur í garðaprjóni. Haldið svona áfram með mynstur í 8 cm. Fellið af. FRAMSTYKKI: Setjið lykkjur á hringprjón 4,5. Prjónið á sama hátt og bakstykki. VINSTRI ERMI: Notið hringprjón 5,5 og DROPS Alaska, prjónið upp frá réttu 36-38-41-41-44-46 lykkjur frá botni á handvegi upp að öxl (meðfram framstykki) og 24-26-27-29-30-30 lykkjur frá öxl og niður að botni á handvegi á hinni hliðinni (meðfram bakstykki) = 60-64-68-70-74-76 lykkjur meðfram handvegi. Setjið 1 prjónamerki mitt í umferð – ermin er nú mælt frá þessu prjónamerki. Prjónið sléttprjón fram og til baka þar til ermin mælist 1-1-3-3-4-5 cm frá prjónamerki. Nú er stykkið sett saman á stuttan hringprjón eða sokkaprjóna 5,5 – afgangur af ermi er prjónaður í hring. Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð (mitt undir ermi). Látið prjónamerkið fylgja með í stykkinu. Byrjið umferð við prjónamerkið og prjónið sléttprjón. Þegar ermin mælist 3-3-5-5-6-7 cm, fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með 4-3½-3-3-2½-2½ cm millibili alls 8-9-10-10-11-11 sinnum = 44-46-48-50-52-54 lykkjur. JAFNFRAMT þegar ermin mælist 4-4-6-6-7-8 cm, prjónið RENDUR ERMI – sjá útskýringu að ofan. Prjónið áfram þar til ermin mælist 37-37-36-36-35-35 cm frá prjónamerki. Nú eru eftir ca 8 cm að loka máli. Mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd fyrir stroff. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 8-6-8-6-8-6 lykkjur jafnt yfir = 52-52-56-56-60-60 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjóna 4,5. Prjónið stroff (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 8 cm. Fellið aðeins laust af. Ermin mælist ca 45-45-44-44-43-43 cm frá prjónamerki. HÆGRI ERMI: Prjónið á sama hátt og vinstri ermi, en prjónið upp lykkjur í gagnstæðri átt, þ.e.a.s. prjónið upp 24-26-27-29-30-30 lykkjur frá botni á handvegi upp að öxl (meðfram bakstykki) og 36-38-41-41-44-46 lykkjur frá öxl og niður að botni á handvegi í hinni hliðinni (meðfram framstykki). Saumið botninn á handvegi – sjá teikningu. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Byrjið við aðra axlalínuna og prjónið upp frá réttu innan við 1 kantlykkju ca 88 til 108 lykkjur á stuttan hringprjón 4,5. Lykkjufjöldinn verður að vera deilanlegur með 4. Prjónið stroff hringinn (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 14 cm. Fellið aðeins laust af. Kantur í hálsmáli er brotinn inn að innanverðu á stykki. |
||||
Skýringar á teikningu |
||||
|
||||
![]() |
||||
![]() |
||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #fudgestripessweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 33 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 237-16
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.