DROPS Fabel
DROPS Fabel
75% Ull, 25% Polyamide
frá 638.00 kr /50g
DROPS Kid-Silk
DROPS Kid-Silk
75% Mohair, 25% Silki
frá 1430.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 17490.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

All about Autumn

Prjónuð síð og stór / oversized peysa úr DROPS Fabel og DROPS Kid-Silk. Stykkið er prjónað neðan frá og upp í sléttprjóni með vösum. Stærð S - XXXL.

DROPS 237-36
DROPS Design: Mynstur fa-519
Garnflokkur A + A + A
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL - XXXL

EFNI:
DROPS FABEL frá Garnstudio (tilheyrir garnflokkur A)
250-300-300-350-350-400 g litur 922, ávaxtapúns
Og notið:
DROPS KID-SILK frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
125-125-150-175-175-200 g litur 42, mandla
Og notið:
DROPS KID-SILK frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
125-125-150-175-175-200 g litur 35, súkkulaði

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNN NR 5,5: lengd 80 cm.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 4: lengd 40 cm og 80 cm.
DROPS PRJÓNAR NR 3.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 5,5.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 4.
Hægt er að nota MAGIC LOOP aðferðina – þá þarf einungis hringprjón 80 cm í hverju prjónanúmeri.

PRJÓNFESTA:
16 lykkjur á breidd og 21 umferð á hæð með sléttprjóni og 1 þræði í DROPS Fabel og 2 þráðum DROPS Kid-Silk (3 þræðir) = 10 x 10 cm.
ATH: Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Fabel
DROPS Fabel
75% Ull, 25% Polyamide
frá 638.00 kr /50g
DROPS Kid-Silk
DROPS Kid-Silk
75% Mohair, 25% Silki
frá 1430.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 17490.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu.

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

ÚRTAKA (á við um úrtöku fyrir hálsmáli):
Öll úrtaka er gerð frá réttu!
FÆKKIÐ UM 2 LYKKJUR Í BYRJUN Á UMFERÐ ÞANNIG:
Prjónið 1 lykkju slétt, prjónið A.1 yfir næstu 3 lykkjur.
FÆKKIÐ UM 2 LYKKJUR Í LOK UMFERÐAR ÞANNG:
Prjónið þar til 4 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið A.1 yfir næstu 3 lykkjur, 1 lykkja slétt.

ÚTAUKNING (á við um ermar):
Prjónið 1 lykkju slétt fram hjá prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið sléttar lykkjur þar til 1 lykkja er eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt.
Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna, neðan frá og upp að handvegi. Síðan skiptist stykkið fyrir bakstykki og framstykki og stykkin eru prjónuð fram og til baka á hringprjóna hvort fyrir sig.
Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna / stuttan hringprjón upp það sem ermakúpan byrjar, síðan er ermakúpan prjónuð fram og til baka á hringprjóna. Að lokum er prjónaður upp kantur í hálsmáli.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Fitjið upp 200-216-228-244-264-288 lykkjur á hringprjón 4 með 1 þræði DROPS Fabel og 2 þráðum DROPS Kid-Silk (3 þræðir). Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið stroff (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið). Þegar stykkið mælist 4 cm, prjónið 1 umferð slétt og fækkið um 24-28-28-28-28-32 lykkjur jafnt yfir = 176-188-200-216-236-256 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 5,5.
Prjónið sléttprjón hringinn. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 23 cm eru vasar prjónaðir þannig:

VASAR:
Nú eru prjónaðir 2 vasar á framstykki þannig:
Vasarnir eru prjónaðir tvöfaldir og saumaðir saman í hlið í lokin.

Prjónið 52-55-61-65-71-79 lykkjur slétt og setjið þær síðan á hjálparprjón / þráð, prjónið 27-29-29-31-33-35 lykkjur slétt, fitjið upp 1 lykkju, snúið. Nú eru vasarnir prjónaðir yfir 28-30-30-32-34-36 lykkjur þannig: Skiptið yfir á prjón 3 og 1 þráð DROPS Fabel. Fyrsta umferðin er prjónuð frá röngu þannig: Prjónið 1 kantlykkju í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, prjónið brugðnar lykkjur og aukið út um 17-17-17-18-21-22 lykkjur jafnt yfir út umferðina og fitjið upp 1 lykkju í lok umferðar = 46-48-48-51-56-59 lykkjur. Prjónið sléttprjón fram og til baka með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Þegar vasinn mælist 36 cm (mælt frá þar sem fyrstu lykkjur voru settar á þráð) prjónið næstu umferð frá réttu þannig: Skiptið yfir á hringprjón 5,5 og 1 þráð DROPS Fabel og 2 þræði DROPS Kid-Silk og prjónið þannig:
Prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið sléttar lykkjur og fækkið um 17-17-17-18-21-22 lykkjur jafnt yfir, þar til 2 lykkjur eru eftir, prjónið 2 lykkjur slétt saman = 27-29-29-31-33-35 lykkjur.
Prjónið sléttar lykkjur yfir næstu 18-20-20-24-28-28 lykkjur frá fram- og bakstykki, prjónið sléttar lykkjur yfir næstu 27-29-29-31-33-35 lykkjur og prjónið vasa yfir þessar lykkjur alveg eins. Þegar vasinn hefur verið prjónaður til loka eru prjónaðar sléttar lykkjur yfir næstu 52-55-61-65-71-79 lykkjur. Prjónið áfram í sléttprjóni.

Þegar stykkið mælist 47-48-49-50-51-52 cm fellið af fyrir handveg þannig: Prjónið 42-43-45-47-51-54 lykkjur slétt (hálft bakstykki), fellið af næstu 4-8-10-14-16-20 lykkjur, prjónið 84-86-90-94-102-108 lykkjur slétt (framstykki), fellið af næstu 4-8-10-14-16-20 lykkjur og prjónið síðustu 42-43-45-47-51-54 lykkjur slétt (hálft bakstykki).
Framstykkið og bakstykkið er síðan prjónað hvort fyrir sig.

BAKSTYKKI:
= 84-86-90-94-102-108 lykkjur. Prjónið sléttprjón.
Þegar stykkið mælist 63-65-67-69-71-73 cm, fellið af miðju 32-32-34-34-36-36 lykkjur fyrir hálsmáli (26-27-28-30-33-36 lykkjur eftir á hvorri öxl).
Hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Í næstu umferð frá hálsmáli er fækkað um 1 lykkju fyrir hálsmáli = 25-26-27-29-32-35 lykkjur.
Fellið af þegar stykkið mælist 66-68-70-72-74-76 cm.
Prjónið hina öxlina á sama hátt.

FRAMSTYKKI:
Prjónið eins og bakstykki þar til stykkið mælist 57-59-60-62-63-65 cm = 84-86-90-94-102-108 lykkjur. Í næstu umferð eru miðju 22-22-20-20-22-22 lykkjur settar á þráð fyrir hálsmáli (31-32-35-37-40-43 lykkjur eftir á hvorri öxl).
Hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Í næstu umferð frá réttu er fækkað um 2 lykkjur fyrir hálsmáli – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona í 4. hverri umferð alls 3-3-4-4-4-4 sinnum = 25-26-27-29-32-35 lykkjur eftir á öxl.
Prjónið þar til stykkið mælist 66-68-70-72-74-76 cm. Fellið af með sléttum lykkjum frá réttu.
Prjónið hina öxlina á sama hátt.

ERMI:
Fitjið upp 44-44-48-48-52-52 lykkjur á sokkaprjóna 4 með 1 þræði DROPS Fabel og 2 þráðum DROPS Kid-Silk (3 þræðir). Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff hringinn (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 5 cm. Prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 6-4-6-4-6-6 lykkjur jafnt yfir = 38-40-42-44-46-46 lykkjur.
Setjið eitt prjónamerki í byrjun á umferð (mitt undir ermi).
Látið prjónamerkið fylgja með í stykkinu – prjónamerkið er notað þegar auka á út mitt undir ermi.
Skiptið yfir á sokkaprjóna 5,5 og prjónið sléttprjón hringinn.
Þegar ermin mælist 9-10-8-10-8-10 cm, aukið út um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki – sjá ÚTAUKNING. Aukið svona út með 3½-3-3-2½-2½-2 cm millibili alls 11-12-13-13-14-15 sinnum = 60-64-68-70-74-76 lykkjur.
Þegar ermin mælist 47-45-45-43-41-39 cm, prjónið ermakúpuna fram og til baka á hringprjóna að loka máli. Prjónið áfram þar til ermin mælist ca 48-48-48-47-46-45 cm, þ.e.a.s. það er klauf 1-3-3-4-5-6 cm efst á ermi. Fellið af.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið axlasauma innan við affellingarkantinn. Saumið ermakúpuna við handveg. Saumið síðan klauf efst á ermi við botninn á handvegi – sjá teikningu. Saumið hliðarsauma á báðum vösum.

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Prjónið upp lykkjur frá réttu meðfram hálsmáli með stuttum hringprjón 4 og 1 þræði DROPS Fabel og 2 þráðum DROPS Kid-Silk (3 þræðir). Prjónið upp 84 til 116 lykkjur (meðtaldar lykkjur af þræði mitt að framan). Lykkjufjöldinn verður að vera deilanlegur með 4. Prjónið stroff (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) yfir allar lykkjur. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur þegar kantur í hálsmáli mælist 5 cm.

Mynstur

symbols = slétt lykkja frá réttu, brugðin lykkja frá röngu
symbols = prjónið 3 lykkjur brugðið saman
symbols = ermakúpan er saumið við handveg þannig: Saumið a við A og b við B
diagram
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 237-36

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (9)

country flag Maikki Oksa wrote:

Ohjeeseen liittyy piirros A.1 . Missähän tuota käytetään. En löytänyt ohjeesta siitä mitääm.

29.10.2023 - 16:32

DROPS Design answered:

Hei, piirros löytyy ohjeen tekstin alapuolelta.

30.10.2023 - 14:18

country flag Ruth Hausner-Pfeiffer wrote:

Da ich Mohair nicht vertrage, muss ich das Garn wechseln. Ich könnte auch mit nur einem oder mit zwei Garnen arbeiten. Haben Sie Vorschläge für mich? Danke für Ihre Bemühungen R. Hausner-Pfeiffer

09.10.2022 - 21:04

DROPS Design answered:

Liebe Frau Hausner-Pfeiffer, benutzen Sie unseren Garnumrechner um die vorschlagene Alternative sowie die neue Garnmenge zu sehen. Gerne kann Ihnen auch Ihr DROPS Laden damit (auch per Telefon oder per E-Mail) helfen, die beste passende Wolle zu finden. Viel Spaß beim stricken!

10.10.2022 - 09:59

country flag Delphine Roland wrote:

Bonjour \r\nJe suis actuellement en train de tricoter ce modèle et je ne vois pas où intervient le diagramme A1. Ai-je oublié quelque chose?\r\nMerci pour votre réponse

12.09.2022 - 12:16

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Roland, le diagramme A.1 n'est utilisé que pour les diminutions de l'encolure devant, pas avant, raison pour laquelle vous ne l'avez peut-être pas encore lu dans les explications - cf DIMINUTIONS (encolure): au tout début des explications. Bon tricot!

12.09.2022 - 17:42

country flag Martina Tauber wrote:

Zu diesem Pullover „All About Autumn“ gab es auch eine Strickjacke. Ich finde die Anleitung nicht mehr online, wird sie wieder veröffentlicht?

11.09.2022 - 20:12

DROPS Design answered:

Liebe Frau Tauber, diese Jacke wird wahscheinlich später kommen - hier finden Sie alle Modellen dieser Kollektion, die schon veröffentlicht wurden. Danke im voraus für Ihren Geduld. Viel Spaß beim stricken!

12.09.2022 - 11:28

country flag Anita wrote:

Lekker kroelen!

02.09.2022 - 19:06

country flag Mahiet Marie wrote:

Cocooning d'automne

08.08.2022 - 03:50

country flag Marie Breward wrote:

Autumn tunuc

07.08.2022 - 02:11

country flag Kirsten wrote:

Hyggesweater med lommer

06.08.2022 - 03:01

country flag Eva wrote:

Schlicht und bequem

05.08.2022 - 11:43