DROPS Alaska
DROPS Alaska
100% Ull
frá 550.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 8250.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Comfy Caramel Trousers

Prjónaðar buxur úr DROPS Alaska. Stykkið er prjónað ofan frá og niður í sléttprjóni. Stærð S - XXXL.

DROPS 237-15
DROPS Design: Mynstur x-479
Garnflokkur C eða A + A
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL - XXXL

EFNI:
DROPS ALASKA frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki C)
750-800-900-1000-1100-1200 g litur 66, toffee

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 5: lengd 40 cm og 60 cm.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 4: lengd 40 cm og 60 cm.
Hægt er að nota MAGIC LOOP aðferðina – þá þarf einungis hringprjón 80 cm í hverju prjónanúmeri.

PRJÓNFESTA:
17 lykkjur á breidd og 22 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm.
ATH: Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Alaska
DROPS Alaska
100% Ull
frá 550.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 8250.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

ÚTAUKNING:
Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á undan / eftir merkiþræði / lykkju með merki eins og útskýrt er í uppskrift.
Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður þannig:
Á UNDAN MERKIÞRÆÐI / LYKKJU MEÐ MERKI Í:
Lyftið uppslættinum yfir á hægri prjón eins og prjóna eigi slétt, setjið uppsláttinn til baka yfir á vinstri prjón, þ.e.a.s. uppslátturinn er snúinn, prjónið uppsláttinn slétt í fremri lykkjubogann (uppslátturinn snýr til hægri). Það eiga ekki að myndast göt.
Á EFTIR MERKIÞRÆÐI / LYKKJU MEÐ MERKI Í:
Prjónið uppsláttinn slétt í aftari lykkjubogann (uppslátturinn snýr til vinstri). Það eiga ekki að myndast göt.
Prjónið síðan útauknar lykkjur í sléttprjóni.

ÚRTAKA (á við um innanverðu á hvorri skálm):
Prjónið þar til 6 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 8 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr mitt á milli þessa 8 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð.

MÆLING:
Vegna þyngdar á garninu eru öll mál á lengdina gerð þegar stykkinu er haldið uppi, annars kemur flíkin til með að verða of síð þegar hún er mátuð.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

BUXUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna frá miðju að aftan, ofan frá og niður. Til að buxurnar verði aðeins hærri að aftan, er prjónuð upphækkun. Stykkið er síðan prjónað í hring áður en það skiptist fyrir skálmar. Hvor skálm er prjónuð í hring á hringprjóna hvor fyrir sig, ofan frá og niður. Að lokum er tvinnuð snúra þrædd í gataumferð í mitti.

KANTUR Í STROFFPRJÓNI:
Fitjið upp 120-128-144-152-168-176 lykkjur á hringprjón 4 með DROPS Alaska. Prjónið 1 umferð slétt. Síðan er prjónað stroff þannig: 1 lykkja slétt, * 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt *, prjónið frá *-* þar til 3 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 2 lykkjur brugðið og 1 lykkju slétt.
Þegar stroffið mælist 3 cm, prjónið gataumferð fyrir snúru þannig: 1 lykkja slétt, * sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 lykkjur brugðið saman, 2 lykkjur slétt *, prjónið frá *-* þar til 3 lykkjur eru eftir í umferð, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur brugðið saman og 1 lykkju slétt.
Haldið áfram með stroff með 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið þar til kanturinn mælist 6-6-6-7-7-7 cm frá uppfitjunarkanti.
Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 6-6-4-10-6-6 lykkjur jafnt yfir = 126-134-148-162-174-182 lykkjur. Prjónið síðan buxurnar eins og útskýrt er að neðan.

BUXUR:
Skiptið yfir á hringprjón 5.
Setjið 1 merki í byrjun umferðar = mitt að aftan. Prjónið upphækkun þannig:
Byrjið frá réttu við merki, prjónið 7-8-9-10-11-12 lykkjur slétt, snúið stykkinu, herðið á þræði, prjónið 14-16-18-20-22-24 lykkjur brugðið, snúið stykkinu, herðið á þræði, prjónið 21-24-27-30-33-36 lykkjur slétt, snúið stykkinu, herðið á þræði, prjónið 28-32-36-40-44-48 lykkjur brugðið.
Haldið svona áfram fram og til baka með því að prjóna yfir 7-8-9-10-11-12 lykkjur fleiri í lok hverrar umferðar í hvorri hlið þar til prjónað hefur verið fram og til baka yfir alls 84-96-108-120-132-144 lykkjur (ekki er prjónað yfir miðju 42-38-40-42-42-38 lykkjur mitt að framan).
Þegar upphækkun hefur verið gerð til loka, prjónið sléttar lykkjur til baka að miðju að aftan. Buxurnar mælast nú ca 5 cm lengri á hæðina mitt að aftan.

Setjið nú 6 merkiþræði í stykkið eins og útskýrt er að neðan. Merkiþræðirnir eru notaðir þegar auka á út.
Skiptið út merki mitt að aftan með merkiþræði, teljið 23-24-27-30-32-33 lykkjur, setjið 1 merkiþráð á undan næstu lykkju, teljið 17-19-20-21-23-25 lykkjur, setjið 1 merkiþráð á undan næstu lykkju, teljið 23-24-27-30-32-33 lykkjur, setjið 1 merkiþráð á undan næstu lykkju (mitt að framan), teljið 23-24-27-30-32-33 lykkjur, setjið 1 merkiþráð á undan næstu lykkju, teljið 17-19-20-21-23-25 lykkjur, setjið 1 merkiþráð á undan næstu lykkju, það eru 23-24-27-30-32-33 lykkjur eftir í umferð á eftir síðasta merkiþræði.
Prjónið sléttprjón hringinn. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Þegar stykkið mælist 3 cm mælt eftir stroff mitt að framan, aukið út um 1 lykkju á UNDAN hverjum merkiþræði – sjá ÚTAUKNING (= 6 lykkjur fleiri).
Þegar stykkið mælist 6 cm mælt eftir stroffi mitt að framan, aukið út um 1 lykkju á EFTIR hverjum merkiþræði – munið eftir ÚTAUKNING (= 6 lykkjur fleiri).
Aukið svona út til skiptist á undan og á eftir 6 merkþráðunum með 3 cm millibili alls 5-6-6-6-6-7 sinnum = 156-170-184-198-210-224 lykkjur.
Þegar stykkið mælist 18-20-22-22-24-26 cm mælt eftir stroff mitt að framan, takið alla merkiþræðina frá.
Nú er sett 1 merki í fyrstu lykkju í umferð og 1 merki í 79-86-93-100-106-113 lykkju í umferð (mitt að aftan og mitt að framan).
Í næstu umferð er aukið út bæði á UNDAN og á EFTIR lykkjum með merki í – munið eftir ÚTAUKNING (= 4 lykkjur fleiri). Aukið svona út í HVERRI umferð alls 6-6-6-8-8-8 sinnum = 180-194-208-230-242-256 lykkjur. Á eftir síðustu útaukningu mælist stykkið ca 27-29-31-33-35-37 cm frá uppfitjunarkanti mitt að framan.
Nú skiptist stykkið við bæði merkin og hvor skálm er prjónuð til loka fyrir sig. Setjið fyrstu 90-97-104-115-121-128 lykkjur á stuttan hringprjón 5 og látið þær 90-97-104-115-121-128 lykkjur sem eftir eru á hvíla á hringprjóni 5. Klippið þráðinn. Héðan er nú mælt!

SKÁLM:
= 90-97-104-115-121-128 lykkjur.
Fitjið upp 3-3-4-4-5-5 lykkjur í byrjun á umferð, prjónið sléttprjón yfir 90-97-104-115-121-128 lykkjur og fitjið upp 3-3-4-4-5-5 lykkjur í lok umferðar = 96-103-112-123-131-138 lykkjur.
Setjið stykkið saman, setjið 1 merkiþráð þar sem stykkið var sett saman (innanverðu á skálm) og prjónið sléttprjón hringinn.
Þegar skálmin mælist 3-3-3-2-2-2 cm, fækkið um 2 lykkjur innan á skálm – lesið ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með 3-3-3-2-1½-1½ cm millibili alls 2-4-7-10-13-15 sinnum = 92-95-98-103-105-108 lykkjur.
Prjónið þar til skálmin mælist 64-65-66-67-68-69 cm, mælt innan á skálm – sjá MÆLING. Mátið e.t.v. buxurnar og prjónið að óskaðri lengd fyrir stroff.
Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 28-31-34-35-39-42 lykkjur jafnt yfir = 120-126-132-138-144-150 lykkjur.
Skiptið yfir á stuttan hringprjón 4. Prjónið stroff (2 lykkjur slétt, 4 lykkjur brugðið) í 12 cm. Fellið af aðeins laust. Skálmin mælist ca 76-77-78-79-80-81 cm.
Prjónið hina skálmina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið saman op á milli skálma (saumið 6-6-8-8-10-10 lykkjur sem fitjaðar voru upp að innanverðu á annarri skálminni saman með 6-6-8-8-10-10 lykkjur sem fitjaðar voru upp að innanverðu á hinni skálminni).

TVINNUÐ SNÚRA:
Klippið 3 þræði Alaska ca 4-4-4½-4½-5-5 metra hver, tvinnið þræðina saman þar til þeir taka í, leggið þá saman tvöfalda og þá koma þeir til með að tvinna sig aftur saman. Hnýtið hnút í hvorn enda.
Byrjið mitt framan á buxum og þræðið snúruna upp og niður í gegnum gataumferð á stroffkanti.

Mynstur

diagram measurements

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 237-15

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (20)

country flag Þórey Rúnarsdóttir wrote:

Sæl, Mér sýnist að það þurfi að laga smá, annar hlutinn hér eigi að vera “á EFTIR” í kaflanum BUXUR: Þegar stykkið mælist 3 cm mælt eftir stroff mitt að framan, aukið út um 1 lykkju á UNDAN hverju prjónamerki – sjá ÚTAUKNING (= 6 lykkjur fleiri). Þegar stykkið mælist 6 cm mælt eftir stroffi mitt að framan, aukið út um 1 lykkju á UNDAN hverju prjónamerki – munið eftir ÚTAUKNING (= 6 lykkjur fleiri).

24.03.2024 - 18:30

DROPS Design answered:

Blessuð Þórey. Takk fyrir ábendinguna. Þetta hefur verið leiðrétt.

26.03.2024 - 09:40

country flag Aloittelija wrote:

Onko näitä housuja mahdollisya tehdä XS kokoisena? Kuinka paljon aloitukseen olisi hyvä kokeilla silmukoita? Esim. 110? Vai muuttuuko housun malli jos tekee vielä pienemmällä silmukka määrällä?

15.01.2024 - 11:24

DROPS Design answered:

Hei, voit kokeilla. Luo tällöin aluksi silmukkamäärä joka on neljällä jaollinen, esim. 108 tai 112 silmukkaa.

16.01.2024 - 18:14

country flag MM wrote:

Hi, I want to substitute drops Alaska to group A yarn, the instructions says “A+A”. Does it mean that I put two strands of group A yarn together and knit?

03.12.2023 - 16:57

DROPS Design answered:

Dear MM, yes, you work with 2 strands of a group A yarn together. You can check the following lesson for more information: https://www.garnstudio.com/lesson.php?id=14&cid=19. Happy knitting!

03.12.2023 - 19:00

country flag Payton wrote:

With the increasing both before and after the stitch markers, before splitting for the legs, how would that work without creating a hole? If there are 2 yo's next to each other, it would create a space below that wouldn't minimize completely with twisting of the stitches. Thanks!

24.07.2023 - 08:54

DROPS Design answered:

Dear Payton, it's normal that there may be a small hole; you can fix this afterwards by making a few small stitches with a yarn needle. Happy knitting!

26.07.2023 - 15:36

country flag Nina Schlichtkrull wrote:

Hi :-) Is there a recipe for the top shown in the picture? Thank you. Best regards Karina

10.07.2023 - 14:54

DROPS Design answered:

Dear Nina, no, we don't have a pattern for the top. Happy knitting!

10.07.2023 - 17:36

country flag Ingrid Verberck wrote:

Betreft patroon DROPS 237-15. Maat L. Vanaf broek 22 cm moet je iedere naald meerderen en dit 6x. Dus 6 toeren. Vervolgens meet de broek dan 31cm.??? Zit hier een fout in? Mvg. Ingrid verberck

12.02.2023 - 16:01

country flag Victoria wrote:

Sorry for the off top: I would really like to knit summer trousers with your patterns, unfortunately there are not so many of them. I don't think these trousers will look nice in Drops loves you 8, am I right?

07.02.2023 - 18:52

DROPS Design answered:

Dear Victoria, we do have some similar patterns worked in cotton yarns - see here, they might look nice with cotton. Just request help from your DROPS store (even per mail or telephone) to find the best matching yarn. Happy knitting!

08.02.2023 - 10:48

country flag Liina Kaev wrote:

Tere! Suuruse M mõõdud ei ole, minu arvestamist mööda, matemaatiliselt võimalikud. Kui kasvatusi alustada eest mõõtes 6cm peale soonikut ja kasvatada 6x iga 3cm järel, siis on töö pikkus peale kasvatusi 21cm…juhendis aga, on ette nähtud 20cm juures silmusemärkijad eemaldada ja kasvatada 4s vaid ees ja taga…!?? Tänud juba ette kaasa mõtlemast! Kõike imelist! Liina✨

24.01.2023 - 13:36

country flag Olga K wrote:

Thank you very much for pattern, I just made it for myself (M). Fast knitting, beautiful model, thanks again!)

30.09.2022 - 21:30

country flag Patrizia wrote:

Buona sera, Vorrei realizzare il pantalone con 2 fili di flora ( o 2 di alpaca) ...me lo consigliate oppure meglio solo la lana? Grazie

09.09.2022 - 17:26

DROPS Design answered:

Buonasera Patrizia, Flora e Alpaca sono due filati appartenenti al gruppo A, quindi li può utilizzare doppiati e verificare che il campione corrisponda a quello indicato prima di procedere. Buon lavoro!

12.09.2022 - 21:48