DROPS Super Sale - 30 % AFSLÁTTUR á 6 tegundum af bómullargarni í allan júlí!
Product image DROPS Nepal yarn
DROPS Nepal
65% Ull, 35% Alpakka
frá 770.00 kr /50g
Product image DROPS Kid-Silk yarn
DROPS Kid-Silk
75% Mohair, 25% Silki
frá 1540.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 17710.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS Super Sale

Conversation Starter

Prjónuð peysa úr DROPS Nepal og DROPS Kid-Silk. Stykkið er prjónað neðan frá og upp í sléttprjóni, gatamynstri og tvöföldum kanti að framan. Stærð S - XXXL.

Velja stærð:
DROPS 237-4

#conversationstartercardigan

DROPS Design: Mynstur ne-363
Garnflokkur C + A eða D
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL - XXXL

EFNI:
DROPS NEPAL frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki C)
650-750-800-900-950-1050 g litur 8906, skógur

Og notið:
DROPS KID-SILK frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
125-150-150-175-175-200 g litur 19, dökk grænn

DROPS TALA, NR 538: 4-4-4-5-5-5 st.

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNN NR 7: lengd 80 cm.
DROPS HRINGPRJÓNN NR 6: lengd 80 cm.

PRJÓNFESTA:
13 lykkjur á breidd og 15 umferðir á hæð með sléttprjóni og 1 þræði í hvorri tegund = 10 x 10 cm.
ATH: Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

Þú gætir líka haft gaman af...

Product image DROPS Nepal
DROPS Nepal
65% Ull, 35% Alpakka
frá 770.00 kr /50g
Product image DROPS Kid-Silk yarn
DROPS Kid-Silk
75% Mohair, 25% Silki
frá 1540.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 17710.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1. Þegar lykkjufjöldinn er gefinn upp í uppskrift, er A.1 alltaf talið sem 6 lykkjur.

HNAPPAGÖT:
Hnappagöt eru gerð í hægri kanti að framan þannig:
Prjónið yfir fyrstu 6 lykkjur eins og áður, snúið og prjónið til baka yfir 6 lykkjur eins og áður, prjónið alls 3 umferðir yfir 6 lykkjurnar (síðasta umferð er prjónuð frá réttu). Klippið þráðinn.
Prjónið alls 4 umferðir eins og áður yfir þær 6 kantlykkjur að framan sem eftir eru (fyrsta umferð er prjónuð frá réttu) og prjónið síðustu lykkju frá réttu saman með næstu lykkju meðfram kanti á peysu eins og áður. Í síðustu umferð frá röngu er prjónað yfir allar kantlykkjur að framan og haldið er áfram eins og áður yfir allar kantlykkjur að framan.
Prjónið hnappagöt þegar kantur að framan mælist:
S: 6, 16, 26 og 36 cm.
M: 8, 18, 28 og 38 cm.
L: 8, 18, 28 og 38 cm.
XL: 4, 13, 22, 31 og 40 cm.
XXL: 4, 13, 22, 31 og 40 cm.
XXXL: 6, 15, 24, 33 og 41 cm.

ÚTAUKNING (á við um ermar):
Öll útaukning er gerð frá réttu!
Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, 1 lykkja slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 1 lykkja fleiri), prjónið sléttar lykkjur þar til 2 lykkjur eru eftir, sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 1 lykkja fleiri), 1 lykkja slétt og 1 kantlykkja í garðaprjóni.
Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn brugðið. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka í stykkjum neðan frá og upp og saumað saman í lokin. Prjónaður er upp kantur að framan meðfram hvoru framstykki:

BAKSTYKKI:
Fitjið upp 84-92-96-104-112-120 lykkjur á hringprjón 6 með 1 þræði í hvorri tegund (= 2 þræðir).
Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Prjónið stroff með byrjun frá réttu þannig:
3 kantlykkjur að framan í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* þar til 5 lykkjur eru eftir, prjónið 2 lykkjur slétt og 3 kantlykkjur í garðaprjóni.
Þegar stroffið mælist 5 cm, skiptið yfir á hringprjón 7. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu og fækkið um 14-16-16-18-18-18 lykkjur jafnt yfir = 70-76-80-86-94-102 lykkjur. Prjónið sléttprjón með 3 kantlykkjum í garðaprjóni í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 17 cm, prjónið sléttprjón með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið.
Þegar stykkið mælist 43-44-45-46-47-48 cm, fellið af 1-3-4-5-7-9 lykkjur fyrir handveg í byrjun á 2 næstu umferðum = 68-70-72-76-80-84 lykkjur. Haldið áfram í sléttprjóni og 1 kantlykkju í hvorri hlið.
ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Þegar stykkið mælist 58-60-62-64-66-68 cm, fellið af miðju 12-12-14-14-16-16 lykkjur fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka hvor fyrir sig (= 28-29-29-31-32-34 lykkjur eftir á hvorri öxl). Í næstu umferð frá hálsmáli, fellið af 1 lykkju fyrir hálsmáli = 27-28-28-30-31-33 lykkjur. Fellið af þegar stykkið mælist 62-64-66-68-70-72 cm.
Prjónið hina öxlina á sama hátt.

HÆGRA FRAMSTYKKI:
Fitjið upp 40-44-48-52-56-60 lykkjur á hringprjón 6 með 1 þræði í hvorri tegund (= 2 þræðir). Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Prjónið stroff með byrjun frá réttu þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, * 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt *, prjónið frá *-* þar til 3 lykkjur eru eftir og 3 kantlykkjur í garðaprjóni. Þegar stroffið mælist 5 cm, skiptið yfir á hringprjón 7. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig:
1 kantlykkja í garðaprjóni, A.1, prjónið sléttprjón þar til 3 lykkjur eru eftir og fækkið um 4-5-7-8-8-8 lykkjur jafnt yfir og 3 kantlykkjur í garðaprjóni = 36-39-41-44-48-52 lykkjur. Endurtakið A.1 á hæðina. Þegar stykkið mælist 17 cm, prjónið sléttprjón og A.1 eins og áður og 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið.
Þegar stykkið mælist 37-39-39-41-41-42 cm, byrjar úrtaka fyrir hálsmáli í næstu umferð frá réttu þannig:
1 kantlykkja í garðaprjóni, A.1 eins og áður, 1 lykkja slétt, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð, prjónið sléttar lykkjur þar til 1 lykkja er eftir og 1 kantlykkja í garðaprjóni.
Fækkið lykkjum svona í 6. hverri umferð alls 4 sinnum, síðan í 4. hverri umferð alls 4-4-5-5-6-6 sinnum. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 43-44-45-46-47-48 cm, fellið af fyrstu 1-3-4-5-7-9 lykkjur fyrir handveg í næstu umferð frá röngu.
Þegar úrtaka fyrir hálsmáli hefur verið gerð til loka eru 27-28-28-30-31-33 lykkjur eftir á prjóni. Fellið af þegar stykkið mælist 62-64-66-68-70-72 cm.

VINSTRA FRAMSTYKKI:
Fitjið upp 40-44-48-52-56-60 lykkjur á hringprjón 6 með 1 þræði í hvorri tegund (= 2 þræðir). Prjónið 1 umferð brugðið frá réttu. Prjónið stroff með byrjun frá réttu þannig: 3 kantlykkjur í garðaprjóni, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* þar til 1 lykkja er eftir og 1 kantlykkja í garðaprjóni. Þegar stroffið mælist 5 cm, skiptið yfir á hringprjón 7. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig:
3 kantlykkjur í garðaprjóni, prjónið sléttprjón þar til 7 lykkjur eru eftir og fækkið um 4-5-7-8-8-8 lykkjur jafnt yfir, prjónið A.1 og 1 kantlykkju í garðaprjóni = 36-39-41-44-48-52 lykkjur. Endurtakið A.1 á hæðina. Þegar stykkið mælist 17 cm, prjónið sléttprjón og A.1 eins og áður og 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið.
Þegar stykkið mælist 37-39-39-41-41-42 cm, byrjar úrtaka fyrir hálsmáli í næstu umferð frá réttu þannig:
Þegar stykkið mælist 37-39-39-41-41-42 cm, byrjar úrtaka fyrir hálsmáli í næstu umferð frá réttu þannig:
1 kantlykkja í garðaprjóni, prjónið sléttprjón þar til 3 lykkjur eru eftir á undan A.1, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 1 lykkja slétt, A.1 eins og áður og 1 kantlykkja í garðaprjóni.
Fækkið lykkjum svona í 6. hverri umferð alls 4 sinnum, síðan í 4. hverri umferð alls 4-4-5-5-6-6 sinnum. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 43-44-45-46-47-48 cm, fellið af fyrstu 1-3-4-5-7-9 lykkjur fyrir handveg í næstu umferð frá réttu.
Þegar úrtaka fyrir hálsmáli hefur verið gerð til loka eru 27-28-28-30-31-33 lykkjur eftir á prjóni. Fellið af þegar stykkið mælist 62-64-66-68-70-72 cm.

ERMI:
Fitjið upp 50-50-54-54-58-58 lykkjur á hringprjón 6 með 1 þræði í hvorri tegund (2 þræðir). Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Prjónið síðan frá réttu þannig: Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* þar til 1 lykkja er eftir, 1 kantlykkja í garðaprjóni. Þegar stroffið mælist 10 cm, skiptið yfir á hringprjón 7. Prjónið sléttprjón með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Í næstu umferð frá réttu er fækkað um 7-7-9-9-11-11 lykkjur jafnt yfir = 43-43-45-45-47-47 lykkjur. Þegar stykkið mælist 14 cm, aukið út um 1 lykkju í hvorri hlið – sjá ÚTAUKNING!
Aukið svona út með 6-4-4-3½-2½-2 cm millibili alls 6-8-8-9-10-11 sinnum = 55-59-61-63-67-69 lykkjur.

STÆRÐ S:
Prjónið áfram þar til stykkið mælist 48 cm. Fellið af.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

STÆRÐ M-L-XL-XXL-XXXL:
Prjónið áfram þar til ermin mælist 46-45-44-42-40 cm. Setjið 1 prjónamerki í hvora hlið á ermi – prjónamerkið merkir hvar botninn á handvegi byrjar. Prjónið þar til ermin mælist 48-48-48-47-46 cm (þ.e.a.s.ca 2-3-4-5-6 cm frá prjónamerki). Fellið af.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið axlasauma innan við affellingarkantinn. Saumið ermar í. Í stærð M-L-XL-XXL-XXXL: Saumið botninn á handvegi – prjónamerki sem var sett í ermar eiga að passa við hliðar á fram- og bakstykki. Saumið ermi- og hliðarsauma í eitt innan við 1 kantlykkju niður þar til eftir eru ca 16 cm (= klauf).

HÆGRI KANTUR AÐ FRAMAN:
Kantur að framan er prjónaður neðan frá og upp að hálsmáli. Prjónið upp lykkjur meðfram hægra framstykki, hoppið 1½ - 2 metra inn á þráðinn og notið þráðar endann til að prjóna upp lykkjur (með þessu er hægt að prjóna áfram með dokkuna án þess að klippa þráðinn í lokin) þannig:
Byrjið að prjóna upp neðst á framstykki og prjónið upp 1 lykkju í hverja prjónaða umferð meðfram öllu framstykkinu innan við 1 kantlykkju, notið hringprjón 6 og 1 þráð í hvorri tegund.
Haldið nú áfram með stykkið í þeim enda á prjóni þar sem dokkan er = neðst á framstykki.
Fitjið upp 12 lykkjur fyrir kant að framan í viðbót við þær lykkjur sem prjónaðar voru upp neðst á framstykki (uppfitjun á lykkjum er gerð frá röngu). Prjónið nú kant að framan yfir 12 lykkjurnar jafnframt því sem kantur að framan er prjónaður saman með lykkjum sem prjónaðar voru upp meðfram framstykki þannig:

UMFERÐ 1 (rétta): Lyftið yfir fyrstu lykkju á hægri prjón eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, * prjónið 1 lykkju slétt, lyftið yrir 1 lykkju á hægri prjón eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið *, prjónið frá *-* þar til 1 lykkja er eftir af 12 kantlykkjum að framan, lyftið yfir síðustu lykkju á hægri prjón eins og prjóna eigi slétt, með þráðinn aftan við stykkið, prjónið næstu lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð slétt, snúið.
UMFERÐ 2 (ranga): * Lyftið yfir fyrstu/næstu lykkju á hægri prjón eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt *, prjónið frá *-* yfir allar 12 kantlykkjur að framan, snúið.
Endurtakið umferð 1 og 2.
Prjónið HNAPPAGAT – sjá útskýringu að ofan.
Þegar allar lykkjur af framstykki hafa verið prjónaðar saman með kant að framan, prjónið kant í hálsmáli að aftan.

KANTUR Í HÁLSMÁLI AÐ AFTAN:
Prjónið nú 12 kantlykkjur að framan þannig:
UMFERÐ 1: * Lyftið yfir fyrstu/næstu lykkju á hægri prjón eins og prjóna eigi brugðið, með þráðinn framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt *, prjónið frá *-* yfir 12 lykkjur.
Endurtakið umferð 1 bæði frá réttu og röngu í 7½-7½-8-8-9-9 cm.
Í síðustu umferð frá réttu eru allar lykkjur prjónaðar 2 og 2 slétt saman og síðan er fellt af.

VINSTRI KANTUR AÐ FRAMAN:
Kantur að framan er prjónaður neðan frá og upp. Byrjað er að prjóna upp lykkjur efst við öxl á framstykki, prjónið upp 1 lykkju í hverja prjónaða umferð meðfram öllu framstykkinu innan við 1 kantlykkju, notið hringprjón 6 og 1 þráð í hvorri tegund.
Eftir að lykkjur hafa verið prjónaðar upp eru fitjaðar upp 12 lykkjur fyrir kant að framan (= neðst á framstykki).
Nú er kantur að framan prjónaður yfir 12 lykkjur jafnframt því sem kantur að framan er prjónaður saman með lykkjur sem prjónaðar voru upp meðfram framstykki þannig:
UMFERÐ 1 (ranga): Prjónið 1 lykkju slétt, * lyftið yfir 1 lykkju á hægri prjón eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt *, prjónið frá *-* þar til 1 lykkja er eftir 12 kantlykkjum að framan, lyftið yfir 2 næstu lykkjur á hægri prjón eins og prjóna eigi brugðið saman með þráðinn framan við stykkið, snúið.
UMFERÐ 2 (rétta): Prjónið 2 lykkjur slétt saman, * lyftið yfir 1 lykkju á hægri prjón eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt *, prjónið frá *-* þar til 1 lykkja er eftir, lyftið yfir síðustu lykkju á hægri prjón eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, snúið.
Endurtakið umferð 1 og 2.
Þegar allar lykkjur af framstykki hafa verið prjónaðar saman með kant að framan, prjónið kant í hálsmáli að aftan.

KANTUR Í HÁLSMÁLI AÐ AFTAN:
Prjónið nú 12 kantlykkjur að framan þannig:
UMFERÐ 1: * Prjónið 1 lykkju slétt, lyftið yfir næstu lykkju á hægri prjón eins og prjóna eigi brugðið, með þráðinn framan við stykkið *, prjónið frá *-* yfir 12 lykkjur.
Endurtakið umferð 1 bæði frá réttu og röngu í 7½-7½-8-8-9-9 cm.
Í síðustu umferð frá réttu eru allar lykkjur prjónaðar saman þannig:
Lyftið yfir 1 lykkju á hægri prjón eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir. Fellið síðan af.

FRÁGANGUR:
Saumið kant að framan saman mitt að aftan og saumið kantinn við kant í hálsmáli á bakstykkið. Saumið tölur í vinstri kant að framan.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 21.10.2022
Leiðrétting HNAPPAGAT
Yfirfarið á vefsvæði: 04.11.2022
Ný mynsturteikning A.1.

Mynstur

slétt lykkja frá réttu, brugðin lykkja frá röngu<br />
<br />
= slétt lykkja frá réttu, brugðin lykkja frá röngu

brugðin lykkja frá réttu, slétt lykkja frá röngu = brugðin lykkja frá réttu, slétt lykkja frá röngu
þessi rúða sýnir enga lykkju, farðu beint áfram í næsta tákn í mynsturteikningu = þessi rúða sýnir enga lykkju, farðu beint áfram í næsta tákn í mynsturteikningu
á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn
prjónið 3 lykkjur slétt, lyftið fyrstu lykkju sem var prjónuð af þessum 3 lykkjum yfir hinar 2 lykkjurnar, þannig að lykkjan liggi utan um hinar tvær (= 1 lykkja færri) = prjónið 3 lykkjur slétt, lyftið fyrstu lykkju sem var prjónuð af þessum 3 lykkjum yfir hinar 2 lykkjurnar, þannig að lykkjan liggi utan um hinar tvær (= 1 lykkja færri)
ermakúpan er saumuð við handveg þannig: Saumið a við A og b við B = ermakúpan er saumuð við handveg þannig: Saumið a við A og b við B
Diagram for DROPS 237-4
Diagram for DROPS 237-4
Diagram for DROPS 237-4

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!
Ertu búin að klára þetta mynstur?
Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #conversationstartercardigan eða sendu þær inn í #dropsfan gallery.

Skrifaðu athugasemd um DROPS 237-4

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (42)

country flag Patricia skrifaði:

Did i read this pattern right, you knit with 2 balls at the same time? I will probably knit with Fabel. And how much yarn do I need for a xxlarge?

07.06.2025 - 17:57

DROPS Design svaraði:

Dear Patricia, yes, you work with two threads, one of DROPS Nepal, which is the main body of the yarn, and one of DROPS Kid-silk, which will give some hairy effect to the garment. If you want to use DROPS Fabel you will need to use 3 threads of DROPS Fabel to work this piece. You would need 21 balls of DROPS Fabel to work this piece with 3 threads of Fabel. And the texture of the garment will be quite different. Happy knitting!

08.06.2025 - 15:22

country flag THOMAS Bernadette skrifaði:

Bonjour.Je voudrais faire un manteau court EN LE FEUTRANT sur la base de ce modèle (poches et col en plus) Qu’en pensez vous? Pourquoi n’y a-t-il que des «petits »modèles ( gants,chaussons…) Est-ce trop compliqué ? Si c’est le cas, je pensais aussi au principe de différents carrés ou rectangles assemblés façon patchwork. Quoi faire? Je le visualise bien et je sais que cela est probablement faisable mais je ne voudrais pas faire d’erreurs. Merci pour votre réponse.

21.02.2025 - 17:33

DROPS Design svaraði:

Bonjour Mme Thomas, nous n'avons effectivement que des modèles de chaussons feutrés (en plus des modèles pour l'intérieur), pas de vêtements à proprement parler. Pour réaliser un vêtement feutré, vous pourrez probablement vous aider d'un modèle déjà existant des les mesures que vous souhaitez, il vous faudra également compter avec le rétrécissement dû au feutrage, il vous faudra faire un échantillon avant/après feutrage pour avoir vos bonnes mesures, et tout bien recalculer pour augmenter vos chances d'arriver au bon résultat. Bon tricot!

24.02.2025 - 07:36

country flag Fahima skrifaði:

J\'aurais aimé avoir les explications et le chemat sur une feuille et merci d\'avance

10.01.2025 - 06:20

country flag Pascale skrifaði:

Bonjour, sur les photos je vois une tresse de chaque côté. Mais pas dans les explications. L’unique diagramme A1 permet de faire un trou. Merci de votre retour

04.01.2025 - 20:34

DROPS Design svaraði:

Bonjour Pascale, on a bien une petite torsade de chaque côté, torsade réalisée sans aiguilles à torsades avec un petit trou; dans cette vidéo, nous montrons comment réaliser ce type de torsades (une autre technique mais même résultat). Bon tricot!

06.01.2025 - 09:23

country flag Basma skrifaði:

Pour quoi on diminue pour encolure sur le devant droit en passant une maille glissante alors que sur le devant on diminue en tricotant deux mailles ensemble ? Faut-il pas diminuer de la même manière pour les deux devants ?

30.11.2024 - 23:27

DROPS Design svaraði:

Bonjour Mme Basma, les diminutions sont faites en effet miroir, ainsi elles sont symétriques et elles vont suivre la ligne d'encolure. Bon tricot!

02.12.2024 - 09:22

country flag Gloria skrifaði:

Este modelo, se puede hacer con agujas normales. No circulares Gracias

12.10.2024 - 12:23

country flag Gail St John skrifaði:

On the new diagram A.1, it clearly states that the pattern should be worked over 6 stitches; however, there are 7 worked stitches in the second row from the bottom (second row worked). Please explain what to do with the extra stitch or which stitch to leave out.

19.07.2024 - 20:23

DROPS Design svaraði:

Dear Gail, the number under the chart usually indicated the initial number of stitches when you start the chart. In the first row, you have 6 normal stitches, the black square (which is skipped) and a yarn over. Because of the yarn over, the next row will have 7 stitches (none are left out). So from here up to the last 2 rows, you will have 7 stitches, because of the increase in the first row. Then, in order to let A.1 repeat correctly, we decrease 1 stitch in the next to last row and the last row of A.1 has only 6 stitches. So you can easily repeat and align the last row of A.1 to the first row of the next repeat of A.1. Happy knitting!

21.07.2024 - 19:46

country flag Veerle Van Coillie skrifaði:

Mijn vraag hoeft niet meer beantwoord te worden, ik heb het gedaan zoals het beschreven staat. Het wordt gewoon een heel mooi knoopsgat !

09.05.2024 - 08:13

country flag Veerle Van Coillie skrifaði:

Klopt het dat je bij ieder knoopsgat de draad moet afknippen ? Ik vind dat niet zo prettig ! Kan dat niet op een andere manier ?

08.05.2024 - 15:40

DROPS Design svaraði:

Dag Veerle,

Ja, hiervoor moet de draad afgeknipt worden. Ik zou niet weten hoe het op een andere manier kan om hetzelfde resultaat te krijgen.

09.05.2024 - 09:42

country flag Karama skrifaði:

Bonjour, Je ne comprends pas la partie où il faut rabattre les mailles sur le dos pour les emmanchures, quand vous dites au début de chaque rang donc je le fais directement sur les bordures en point mousse ou je saute la bordure et je commence à rabattre sur le jersey apres. Merci

26.02.2024 - 01:46

DROPS Design svaraði:

Bonjour Mme Karama, les 3 mailles point mousse de chaque côté en bas du dos se tricotent jusqu'à 17 cm de hauteur totale, ensuite on continue avec seulement 1 maille lisière au point mousse de chaque côté; pour les emmanchures on rabat les mailles en début de rang de chaque côté pour qu'elles soient symétriques, autrement dit en début de rang sur l'endroit et au début du rang suivant sur l'envers, on continue en jersey, avec, comme avant, 1 maille lisière au point mousse de chaque côté; Bon tricot!

26.02.2024 - 09:54