DROPS Air
DROPS Air
65% Alpakka, 28% Polyamide, 7% Ull
frá 1364.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 6820.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Foggy Autumn Cardigan

Prjónuð peysa úr DROPS Air. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með laskalínu og tvöföldum kanti að framan. Stærð S - XXXL.

DROPS 236-33
DROPS Design: Mynstur ai-404
Garnflokkur C eða A + A
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL - XXXL

EFNI:
DROPS AIR frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki C)
250-300-300-350-400-400 g litur 10, þoka

DROPS TALA NR 630: 6-6-6-6-7-7 st.

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNN NR 5,5: lengd 80 cm.
DROPS HRINGPRJÓNN NR 5: lengd 80 cm.
DROPS HRINGPRJÓNN NR 4: lengd 80 cm.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 5,5.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 4.
Hægt er að nota MAGIC LOOP aðferðina – þá þarf einungis hringprjón 80 cm í hverju prjónanúmeri.

PRJÓNFESTA:
16 lykkjur á breidd og 20 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm.
ATH: Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Air
DROPS Air
65% Alpakka, 28% Polyamide, 7% Ull
frá 1364.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 6820.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

LASKALÍNA:
Öll útaukning er gerð frá réttu!
Aukið út um 1 lykkju hvoru megin við lykkju með prjónamerki þannig:
Prjónið að lykkju með prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið lykkju með prjónamerki slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn. Aukið svona út við öll prjónamerkin (8 lykkjur fleiri).
Í næstu umferð (ranga) prjónið uppsláttinn þannig:
Á UNDAN lykkju með prjónamerki: Prjónið uppsláttinn snúið brugðið.
Á EFTIR lykkju með prjónamerki: Lyftið uppslættinum yfir á hægri prjón eins og prjóna eigi slétt, stingið vinstri prjóni í lykkjuna og setjið til baka yfir á vinstri prjón (þ.e.a.s. uppslátturinn er snúinn), prjónið uppsláttinn brugðið.

ÚRTAKA:
Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð.

HNAPPAGAT:
Hnappagöt eru prjónuð í hægri kant að framan þannig:
Prjónið yfir fyrstu 6 lykkjur eins og áður, snúið og prjónið til baka yfir 6 lykkjur eins og áður, prjónið alls 3 umferðir yfir 6 lykkjurnar (síðasta umferð er prjónuð frá réttu). Klippið þráðinn.
Prjónið alls 4 umferðir eins og áður yfir þær 6 kantlykkjur að framan (fyrsta umferð er prjónuð frá réttu) og prjónið síðustu lykkju frá réttu saman við næstu lykkju meðfram kanti á peysu eins og áður. Í síðustu umferð frá röngu er prjónað yfir allar kantlykkjur að framan og haldið er áfram eins og áður yfir allar kantlykkjur að framan.
Prjónið hnappagöt þegar kantur að framan mælist:
S: 4, 13, 22, 31, 40 og 48 cm.
M: 4, 14, 23, 33, 41 og 50 cm.
L: 4, 14, 24, 34, 43 og 52 cm.
XL: 6, 16, 26, 36, 45 og 54 cm.
XXL: 4, 13, 22, 31, 40, 48 og 56 cm.
XXXL: 5, 14, 23, 32, 41, 50 og 58 cm.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað fram og til baka, ofan frá og niður. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki heldur áfram fram og til baka á hringprjóna.
Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna.

TVÖFALDUR KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Fitjið upp 79-82-88-91-94-97 lykkjur með DROPS Air yfir hringprjón 4 og hringprjón 5,5 sem haldið er saman.
Dragið út hringprjón 5,5 og haldið lykkjum eftir á hringprjón 4 (uppfitjunin er gerð svona til þess að uppfitjunarkanturinn verði teygjanlegur). Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu.
Prjónið stroff með byrjun frá réttu þannig:
1 kantlykkja í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * 2 lykkjur brugðið, 1 lykkja slétt *, prjónið frá *-* þar til 3 lykkjur eru eftir, prjónið 2 lykkjur brugðið og 1 kantlykkju í garðaprjóni.
Þegar stykkið mælist 9 cm, brjótið stroffið inn þannig að kanturinn verði tvöfaldur – prjónið síðan næstu umferð slétt frá réttu JAFNFRAMT er önnur hver lykkja prjónuð saman með annarri hverri lykkju frá uppfitjunarkantinum. Nú hefur myndast tvöfaldur kantur í hálsmáli.
Skiptið yfir á hringprjón 5,5.
Setjið 1 prjónamerki innan við 1 kantlykkju, berustykkið er nú mælt frá þessu prjónamerki!

BERUSTYKKI:
Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu og aukið út um 13-14-16-9-10-13 lykkjur jafnt yfir = 92-96-104-100-104-110 lykkjur.
Setjið nú 4 prjónamerki í stykkið án þess að prjóna lykkjurnar – þetta er gert þannig:
Teljið 15-16-18-17-18-19 lykkjur (framstykki), setjið 1 prjónamerki í næstu lykkju, teljið 14 lykkjur (ermi), setjið 1 prjónamerki í næstu lykkju, teljið 30-32-36-34-36-40 lykkjur (bakstykki), setjið 1 prjónamerki í næstu lykkju, teljið 14 lykkjur (ermi), setjið 1 prjónamerki í næstu lykkju, nú eru eftir 15-16-18-17-18-19 lykkjur í umferð (framstykki).
Prjónið nú sléttprjón með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið á stykki.
Í næstu umferð frá réttu er aukið út um 1 lykkju hvoru megin við hverja lykkju með prjónamerki – sjá LASKALÍNA að ofan.
Aukið svona út í hverri umferð frá réttu alls 17-19-20-24-26-27 sinnum = 228-248-264-292-312-326 lykkjur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Prjónið sléttprjón með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið þar til stykkið mælist 20-22-24-25-27-29 cm.
Nú skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig:
Prjónið 34-37-39-43-47-49 lykkjur, setjið næstu 46-50-54-60-62-64 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-8-10-10-12-12 lykkjur undir ermi, prjónið 68-74-78-86-94-99 lykkjur, setjið næstu 46-50-54-60-62-64 lykkjur á þráð fyrir ermi og fitjið upp 8-8-10-10-12-12 lykkjur undir ermi og prjónið síðustu 34-37-39-43-47-50 lykkjur.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
= 152-164-176-192-212-222 lykkjur. Prjónið sléttprjón með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið.
Þegar stykkið mælist 24-24-24-25-25-25 cm frá skiptingu, aukið út um 14-14-17-19-20-22 lykkjur jafnt yfir í næstu umferð frá réttu = 166-178-193-211-232-244 lykkjur.
Skiptið yfir á hringprjón 4. Prjónið stroff með byrjun frá röngu þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, * 2 lykkjur slétt, 1 lykkja brugðið *, prjónið frá *-* þar til 3 lykkjur eru eftir, prjónið 2 lykkjur slétt og 1 kantlykkju í garðaprjóni.
Haldið svona áfram þar til stroffið mælist 4 cm. Fellið af. Peysan mælist ca 52-54-56-58-60-62 cm, mælt frá öxl og niður.

ERMI:
Setjið 46-50-54-60-62-64 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjóna 5,5 og prjónið upp 1 lykkju í hverja af 8-8-10-10-12-12 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 54-58-64-70-74-76 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt á milli 8-8-10-10-12-12 lykkja undir ermi. Prjónið sléttprjón hringinn.
Þegar ermin mælist 2 cm frá skiptingu, fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með 4½-4-3-2-2-1½ cm millibili alls 7-8-10-13-14-14 sinnum = 40-42-44-44-46-48 lykkjur.
Þegar ermin mælist 34-33-31-31-29-28 cm frá skiptingu, aukið út um 5-6-7-7-5-6 lykkjur jafnt yfir = 45-48-51-51-51-54 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjón 4. Prjónið stroff (2 lykkjur brugðið, 1 lykkja slétt) yfir allar lykkjur. Fellið af þegar stroffið mælist 8 cm. Ermin mælist ca 42-41-39-39-37-36 cm frá skiptingu.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

HÆGRI KANTUR AÐ FRAMAN:
Kantur að framan er prjónaður neðan frá og upp að hálsmáli. Prjónið upp lykkjur meðfram hægra framstykki, hoppið 90 til 120 cm inn á þráðinn og notið þráðarendann til að prjóna upp lykkjur (með þessu er hægt að prjóna áfram með dokkunni án þess að klippa þráðinn í lokin) þannig:
Byrjið að taka upp lykkjur neðst á framstykki og prjónið upp 1 lykkju í hverja prjónaða umferð meðfram öllu framstykkinu innan við 1 kantlykkju, notið hringprjón 5 og DROPS Air.
Haldið nú áfram með stykki í þeim enda sem dokkan er = neðst á framstykki.
Fitjið upp 12 lykkjur fyrir kant að framan sem viðbót við lykkjur sem teknar voru upp neðst á framstykki (uppfitjunin á lykkjum er gerð frá röngu). Prjónið nú kant að framan yfir 12 lykkjur jafnframt því sem kantur að framan er prjónaður saman með lykkjur sem prjónaðar voru upp meðfram framstykki þannig:

UMFERÐ 1 (rétta): Lyftið fyrstu lykkju yfir á hægri prjón eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, * prjónið 1 lykkju slétt, lyftið 1 lykkju yfir á hægri prjón eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið *, prjónið frá *-* þar til 1 lykkja er eftir af 12 kantlykkjum að framan, lyftið síðustu lykkju yfir á hægri prjón eins og prjóna eigi slétt, með þráðinn aftan við stykkið, prjónið næstu lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð slétt, snúið.
UMFERÐ 2 (ranga): * Lyftið fyrstu / næstu lykkju yfir á hægri prjón eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt *, prjónið frá *-* yfir allar 12 kantlykkjur að framan, snúið.
Endurtakið umferð 1 og 2.
Prjónið HNAPPAGAT – sjá útskýringu að ofan.
Þegar allar lykkjur af framstykki hafa verið prjónaðar saman með kant að framan, prjónið allar lykkjur 2 og 2 slétt saman og fellið af.

VINSTRI KANTUR AÐ FRAMAN:
Kantur að framan er prjónaður neðan frá og upp. Byrjað er að taka upp lykkjur efst við öxl á framstykki, prjónið upp 1 lykkju í hverja prjónaða umferð niður meðfram öllu framstykkinu innan við 1 kantlykkju, notið hringprjón 5 og DROPS Air.
Eftir að lykkjur hafa verið teknar upp fitjið upp 12 lykkjur fyrir kant að framan (= neðst á framstykki). Nú er kantur að framan prjónaður yfir 12 lykkjur jafnframt sem kantur að framan er prjónaður saman með lykkjur sem prjónaðar voru upp meðfram framstykki þannig:

UMFERÐ 1 (ranga): Prjónið 1 lykkju slétt, * lyftið 1 lykkju yfir á hægri prjón eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt *, prjónið frá *-* þar til 1 lykkja er eftir af 12 kantlykkjum að framan, lyftið 2 næstu lykkjum yfir á hægri prjón eins og prjóna eigi brugðið saman með þráðinn framan við stykkið, snúið.
UMFERÐ 2 (rétta): Prjónið 2 lykkjur slétt saman, * lyftið 1 lykkju yfir á hægri prjón eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt *, prjónið frá *-* þar til 1 lykkja er eftir, lyftið síðustu lykkju yfir á hægri prjón eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, snúið.
Endurtakið umferð 1 og 2.
Þegar allar lykkjur af framstykki hafa verið prjónaðar saman með kant að framan, prjónið allar lykkjur saman frá réttu þannig: Lyftið 1 lykkju yfir á hægri prjón eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir og fellið af.

FRÁGANGUR:
Saumið tölur í vinstri kant að framan.

Mynstur

diagram measurements

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 236-33

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (49)

country flag Petra wrote:

Ich stricke gerade die Jacke. Nun bin ich beim weiterstricken des Ärmels mit Nadelspiel aus Bambus , nur sieht das Strickmuster anders aus als mit den Metallnadeln gestrickt. Kann es an den neuen Holznadeln liegen? Was kann ich tun? Über eine Antwort wäre ich dankbar. Grüße

21.04.2024 - 21:48

DROPS Design answered:

Liebe Petra, es kann ja sein, daß das Maschenbild je nach dem Material ändert, in diesem Fall könnnen Sie dann mit der Rundstricknadel aus Metail mit dem Magic loop stricken - siehe Video. Viel Spaß beim Stricken!

22.04.2024 - 08:58

country flag Sarah wrote:

Jeg har et spørgsmål omkring hvad der sker med den sidste maske der strikkes i halskanten. Forstår ikke helt hvad der menes med: “Sæt 1 mærke indenfor 1 kantmaske, bærestykket skal måles fra dette mærke!” Skal denne maske så strikkes med i resten af projektet? Fordi den bliver ikke nævnt fremadrettet i beskrivelsen :))

19.04.2024 - 11:07

DROPS Design answered:

Hei Sarah. Det er en helt vanlig maske, som skal strikkes. Merket du setter innenfor 1 kantmaske er bare et merke du senere skal måle arbeidet i fra. ......Strikk glattstrikk med 1 kantmaske i rille i hver side til arbeidet måler 20-22-24-25-27-29 cm fra merket..... mvh DROPS Design

22.04.2024 - 11:43

country flag Suzanne wrote:

Hi I understand how to do buttonband what I'm confused about is the part that says wind out 90-120 cm of yarn. I don't understand purpose of this couldn't I use from skien the whole time? Pick up and knit stitches from skien, cast on and knit buttonband all from skien?

17.04.2024 - 13:08

DROPS Design answered:

Dear Suzanne, this length will be used to cast on the stitches for the buttonband after you have pick up stitches along front piece - see also the matching video. Happy knitting!

17.04.2024 - 15:22

country flag Laura wrote:

Quite a simple question to start! When you turn your work and work the second row of rib for the collar, is it still garter stitch *p2 k1* or does it become garter stitch *k2 p1*. My collar doesnt seem to have the same rib effect as the image

17.04.2024 - 08:08

DROPS Design answered:

Dear Laura, from RS work: K1, repeat (P2, K1) ending with P2, K1; from WS work: K1, repeat (K2, P1) ending with K2, K1. ie from WS just work K over K and P over P to get rib P2, K1 seen from RS. Happy knitting!

17.04.2024 - 08:40

country flag Cäcilia Suchy wrote:

Stricke gerade die Jacke .Komme gerade nach der Passe beim Rumfteil nur auf 148 Maschen bei Größe M.(2×37+74). Wie kommen sie auf164 Maschen nach der Aufteilung?

16.04.2024 - 16:40

DROPS Design answered:

Liebe Frau Such, es wird jeweils 8 Maschen unter beide Ärmel angeschlagen, so sind es 148+(2x8) = 164 Maschen - siehe Foto 11) in diese Lektion. Viel Spaß beim Stricken!

17.04.2024 - 07:48

country flag Celia wrote:

Había hecho una pregunta sobre un borde delantero, pero ya encontré el video!! Muchas gracias por todo!!!

10.04.2024 - 04:45

country flag Isa wrote:

For the raglan increases , can I use m1r & m1l instead of yarn over to avoid holes? I’m really bad at remembering to twist stitches on purl rows (;_;)

04.04.2024 - 11:39

DROPS Design answered:

Dear Isa, sure, feel free to use your favorite technique for the increases. Happy knitting!

04.04.2024 - 12:53

country flag Lesley Clayton wrote:

Hi there, I’m very new to knitting! On the Foggy cardigan, please can you help me with the instruction “knit all stitches together 2 and 2, then cast off” I’ve worked all the stitches on the front piece together with the band but am stuck on this last bit. Thank you!

26.03.2024 - 18:58

DROPS Design answered:

Dear Lesley, you simply knit 2 stitches together, until the end of the row, then in the next row you cast off all of the stitchest that were left on the needle. I hope that helps. Happy Knitting!

26.03.2024 - 21:54

country flag Denise wrote:

Bonjour, je comprends comment l’on monte des mailles en plus (cf vidéo explicative bases tricot) mais que voulez-vous dire par “sous la manche” cf est-ce après les 50 mailles glissées pour la manche (taille M) lors de la division dos/devants et manche . Pouvez-vous me préciser à quel endroit s’il vous plait

15.03.2024 - 15:01

DROPS Design answered:

Bonjour Denise, dans cette leçon, nous montrons comment monter des mailles sous celles des manches, à partir de la photo 10 (mise des mailles de la 1ère manche en attente), 11 (on monte les mailles sous la manche), 13 (on met les mailles de la 2ème manche en attente); 14 (on monte les mailles sous la 2ème manche) puis 18 comment on va relever les mailles pour la manche. Bon tricot!

15.03.2024 - 15:59

country flag Linda South wrote:

Please can you tell me .if l can knit your patterns with just two needles. As unable to hold the weight of garment while knitting with a circular needle, due to Arthritis in fingers . Linda

13.03.2024 - 16:52

DROPS Design answered:

Dear Mrs South, a lot of our patterns can easily be worked on straight needles instead of circular needles (just as yoke and body here), this lesson will give you some tips to adjust the patterns for straight needles (just as for sleeves in this pattern for example). Happy knitting!

14.03.2024 - 07:52