DROPS Alpaca Bouclé
DROPS Alpaca Bouclé
80% Alpakka, 15% Ull, 5% Polyamide
frá 1034.00 kr /50g
DROPS Melody
DROPS Melody
71% Alpakka, 25% Ull, 4% Polyamide
frá 1364.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 11990.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Snow Kiss

Prjónuð peysa úr DROPS Alpaca Bouclé og DROPS Melody. Stykkið er prjónað neðan frá og upp í sléttprjóni með háum kanti í hálsmáli og klauf í hliðum. Stærð XS - XXL.

DROPS 237-33
DROPS Design: Mynstur ab-133
Garnflokkur C + D
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
XS - S - M - L - XL - XXL

EFNI:
DROPS ALPACA BOUCLÉ frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki C)
250-300-300-350-350-400 g litur 0100, natur
Og notið:
DROPS MELODY frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki D)
250-300-300-350-350-400 g litur 01, natur

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 7: lengd 40 cm og 80 cm.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 6: lengd 40 cm og 80 cm.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 7.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 6.
Hægt er að nota MAGIC LOOP aðferðina – þá þarf einungis hringprjón 80 cm í hverju prjónanúmeri.

PRJÓNFESTA:
12 lykkjur á breidd og 16 umferðir á hæð með sléttprjóni og 1 þræði í hvorri tegund = 10 x 10 cm.
ATH: Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Alpaca Bouclé
DROPS Alpaca Bouclé
80% Alpakka, 15% Ull, 5% Polyamide
frá 1034.00 kr /50g
DROPS Melody
DROPS Melody
71% Alpakka, 25% Ull, 4% Polyamide
frá 1364.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 11990.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

ÚRTAKA-1 (á við um hálsmál):
Öll úrtaka er gerð frá réttu!
FÆKKIÐ LYKKJUM Í BYRJUN Á UMFERÐ FRÁ HÁLSMÁLI ÞANNIG: 1 lykkja slétt, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (1 lykkja færri).
FÆKKIÐ LYKKJUM Í LOK UMFERÐAR VIÐ HÁLSMÁL ÞANNIG: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 1 lykkja slétt (1 lykkja færri).

ÚRTAKA-2 (á við um mitt undir ermum):
Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 4 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 4 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa 4 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (2 lykkjur færri).

ÚRTAKA-3 (á við um kantinn neðst á ermum):
Byrjið 3 lykkjum á undan lykkju með prjónamerki í, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 1 lykkja brugðið, 1 lykkja slétt (lykkja með prjónamerki í), 1 lykkja brugðið, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (2 lykkjur færri). Fækkið lykkjum alveg eins í hverri úrtökuumferð.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Bakstykkið og framstykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna, neðan frá og upp hvort fyrir sig. Stykkið er saumað saman á öxlum. Síðan eru lykkjur prjónaðar upp meðfram handvegi og ermar eru prjónaðar fram og til baka á hringprjóna, ofan frá og niður þar til ermakúpan hefur verið prjónuð til loka, síðan er afgangur af ermi prjónaður í hring á stuttan hringprjón / sokkaprjóna, ofan frá og niður. Stykkið er saumað saman í hliðum. Að lokum er prjónaður hár kantur í hálsmáli sem brotinn er inn.

BAKSTYKKI:
Fitjið upp 65-69-75-81-87-97 lykkjur á hringprjón 6 með 1 þræði í hvorri tegund (2 þræðir). Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 1 lykkja GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið *, prjónið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 1 lykkju slétt og 1 lykkju í garðaprjóni.
Haldið svona áfram með stroff í 10 cm.
Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem fækkað er um 9-9-9-11-11-13 lykkjur jafnt yfir = 56-60-66-70-76-84 lykkjur.
Skiptið yfir á hringprjón 7. Prjónið síðan sléttprjón með 1 lykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Þegar stykkið mælist 33-34-35-36-37-38 cm, fellið af 2-3-5-5-6-8 lykkjur fyrir handveg í byrjun á 2 næstu umferðum = 52-54-56-60-64-68 lykkjur.
Þegar stykkið mælist 49-51-53-55-57-59 cm, fellið af miðju 18-18-20-20-22-22 lykkjur fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig.
Prjónið áfram og fækkið um 1 lykkju fyrir hálsmáli í næstu umferð frá réttu – sjá ÚRTAKA-1 = 16-17-17-19-20-22 lykkjur eftir á öxl.
Prjónið þar til stykkið mælist 52-54-56-58-60-62 cm. Fellið af aðeins laust.
Prjónið hina öxlina á sama hátt.

FRAMSTYKKI:
Fitjið upp jafnmargar lykkjur eins og á bakstykki og prjónið alveg eins og bakstykki þar til stykkið mælist 45-47-48-50-51-53 cm. Setjið nú miðju 14-14-16-16-16-16 lykkjur á þráð fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig.
Prjónið áfram og fækkið um 1 lykkju fyrir hálsmáli í næstu umferð frá réttu – sjá ÚRTAKA-1. Fækkið lykkjum fyrir hálsmáli í hverri umferð frá réttu alls 3-3-3-3-4-4 sinnum = 16-17-17-19-20-22 lykkjur eftir á öxl.
Prjónið þar til stykkið mælist 52-54-56-58-60-62 cm. Fellið aðeins laust af.
Prjónið hina öxlina á sama hátt.

FRÁGANGUR-1:
Saumið axlasaumana.

ERMI:
Notið hringprjón 7 og 1 þráð í hvorri tegund (2 þræðir), prjónið upp frá réttu 23-24-25-26-28-29 lykkjur frá botni á handvegi upp að öxl og 23-24-25-26-28-29 lykkjur frá öxl og niður að botni á handvegi í hinni hliðinni = 46-48-50-52-56-58 lykkjur meðfram handvegi. Setjið 1 prjónamerki mitt í umferð – ermin á að mælast frá þessu prjónamerki.
Prjónið sléttprjón fram og til baka þar til ermin mælist 2-3-4-4-5-7 cm frá prjónamerki.
Nú er stykkið sett saman á stuttan hringprjón eða sokkaprjóna 7 – afgangur af ermi er prjónaður í hring.
Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð (mitt undir ermi). Látið prjónamerkið fylgja með í stykkinu.
Byrjið umferð við prjónamerki og prjónið sléttprjón.
Þegar ermin mælist 6-7-8-8-9-11 cm frá prjónamerki, fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá ÚRTAKA-2.
Fækkið lykkjum svona með 15-15-10-10-6-5 cm millibili alls 2-2-3-3-5-5 sinnum = 42-44-44-46-46-48 lykkjur.
Prjónið þar til ermin mælist 39-39-39-39-38-37 cm frá prjónamerki. Nú eru eftir ca 10 cm að loka máli. Mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd fyrir stroff.
Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 6-4-8-6-10-8 lykkjur jafnt yfir = 48-48-52-52-56-56 lykkjur.
Skiptið yfir á sokkaprjóna 6. Setjið 1 prjónamerki í fyrstu lykkju í umferð og 1 prjónamerki í 25.-27.-27.-29.-29. lykkju í umferð. Nú eru 23-23-25-25-27-27 lykkjur á milli lykkja með prjónamerki í.
Prjónið stroff (1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið). JAFNFRAMT í fyrstu umferð er fækkað um 1 lykkju hvoru megin við lykkjur með prjónamerki í – sjá ÚRTAKA-3 (4 lykkjur færri).
Fækkið lykkjum svona í 3. hverri umferð alls 6 sinnum = 24-24-28-28-32-32 lykkjur eftir. Eftir síðustu umferð með úrtöku, fellið allar lykkjur af – passið uppá að affellingarkanturinn dragi ekki stykkið saman. Ermin mælist ca 49-49-49-49-48-47 cm.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR-2:
Saumið hliðarsauma frá handvegi og niður – saumið kant í kant í ystu lykkjubogana, en endið sauminn þegar ca 6 cm eru eftir neðst í hvorri hlið (klauf).
Saumið botninn á handvegi – sjá teikningu.

TVÖFALDUR KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Byrjið frá réttu við annan axlasauminn, prjónið upp ca 64 til 76 lykkjur í kringum hálsmál (meðtaldar lykkjur af þræði að framan) á stuttan hringprjón 6 með 1 þræði í hvorri tegund.
Lykkjufjöldinn verður að vera deilanlegur með 2. Prjónið stroff (1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið).
Þegar kanturinn í hálsmáli mælist 16-16-17-17-18-18 cm, aukið út aðra hverja 1 lykkju brugðið til 2 lykkjur brugðið = ca 80 til 95 lykkjur. Prjónið áfram þar til kanturinn í hálsmáli mælist ca 18-18-19-19-20-20 cm. Fellið aðeins laust af.
Brjótið stroffið niður að innanverðu á stykki. Saumið stroffið niður með nokkrum sporum við hvora öxl, þannig að stroffið haldist á sínum stað.

Mynstur

symbols = ermakúpan er saumuð við handveg þannig: Saumið b við B
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 237-33

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (15)

country flag Nancy Gianakas wrote:

Hello, I'm confused regarding the garter stitch. Under the Explanation of the Pattern, the Garter stitch is listed as K all rows. In the pattern, the Garter stitch is instructed to be worked as K1; P1. This will result in a Seed stitch. So, is the ribbing a Garter Stitch (knit all rows), or a Seed Stitch (k1; p1)? Thank you

23.09.2023 - 22:41

DROPS Design answered:

Hi Nancy Gianakas! Only 1 edge stitch on both sides is knitted in garter stitch and it is knitted on every row. A rib is made by repeating K1, P1, always with similar stitches on top of each. Happy knitting!

24.09.2023 - 17:01

country flag Robin wrote:

Hi! I started knitting this Snow Kiss jumper pattern and have finished the back piece. I noticed that the instructions for the front piece do not make space for the armholes, is this correct? Is there only an indent for the arms incorporated in the back piece? Thank you!

04.02.2023 - 08:44

DROPS Design answered:

Dear Robin, the front is worked as the back until you reach the neck. So, you will cast off for the armholes at the same length as the back. Happy knitting!

06.02.2023 - 00:09

country flag Anna Skogen wrote:

Hei! I oppskriften må det være en feil under «forstykke»-delen. Med antall masker og fellinger går det ikke opp i regnestykket. Skal være 17m igjen på pinnen etter fire fellinger, men det er umulig. Skal det da felles flere ganger, eller skulle det vært satt av flere masker til hals?

11.01.2023 - 13:10

country flag Franca Gualdo wrote:

Ihre Antwort macht keinen Sinn: im Muster sind Krausrippen beschrieben und in der Anleitung rechts/links-Bündchen und sonst glatt rechts. Auszug aus der Anleitung: EXPLANATION FOR THE PATTERN: GARTER STITCH (back and forth): Knit all rows. 1 ridge vertically = knit 2 rows.

02.01.2023 - 14:50

DROPS Design answered:

Liebe Frau Gualdo, dies erklärt nur wie man kraus rechts strickt (das steht in vielen Anleitungen), sonnst lesen Sie: RÜCKENTEIL:...Die nächste Hin-Reihe wie folgt stricken: 1 Masche KRAUS RECHTS – siehe oben, * 1 Masche rechts, 1 Masche links *, von *-* wiederholen bis noch 2 Maschen übrig sind, 1 Masche rechts und 1 Masche kraus rechts. - so am Anfang sind nur die Randmaschen kraus rechts gestrickt. Hoffentlich ist es so etwas klarer. Sonnst sagen Sie uns bescheid. Viel Spaß beim stricken!

02.01.2023 - 16:22

country flag Franca wrote:

Laut Anleitung wird in Krausrippen gestrickt, auf den Fotos sehe ich das aber überhaupt nicht: nur rechts/links-Bündchen und glatt rechts.

31.12.2022 - 11:03

DROPS Design answered:

Liebe Franca, laut Anleitung stricken Sie Bündchen und glatt rechts mit jeweils 1 Randmasche krausrechts beidseitig. Viel Spaß beim stricken!

02.01.2023 - 13:45

country flag Martine wrote:

Bonjour je suis rendu au côte des poignets Si je diminue comme indiqué cela me décale les côte 1/1 est-ce normal ? Merci de votre réponse Cdt Martine

18.12.2022 - 17:42

DROPS Design answered:

Bonjour Martine, quand vous diminuez, continuez à tricoter les mailles comme elles se présentent, autrement dit, tous les 2 tours, vous aurez 3 m end/3 m env côte à côte au niveau des diminutions, mais lorsque toutes les diminutions seront faites, les côtes continueront en rond comme avant. Bon tricot!

19.12.2022 - 09:35

country flag Milla wrote:

Hi, I would like to knit this Snow Kiss sweater, it looks wonderful. I am very sensitive to wool and I cannot stand other wools than merino and cashmere. The itching is horrible. I am wondering could I switch the Drops Alpaca Boucle to Drops Big Merino (both group C)? And how much would I need the yarn? And what about switching the Drops Melody yarn (group D) to Drops Merino Extra Fine (group B) and use that Drops Merino Extra Fine yarn doubled? And how much would I need that?

16.12.2022 - 20:31

DROPS Design answered:

Dear Milla, while Alpaca Bouclé and Big Merino are from the same group the texture is completely different and the thickness too: Alpaca Bouclé (50g/140m) and Big Merino (50g/75m). So it would be better to work another sweater, worked with Big Merino or another group C yarn like Nepal or Alaska. The same happens with Melody; the structure is more spongy with 50g/140m. So, working with 2 threads of DROPS Merino Extra Fine will get a completely different texture and it will feel more heavy. So it would be better to check other sweaters in our collection that use DROPS Merino Extra Fine instead. Happy knitting!

18.12.2022 - 17:58

country flag Martine wrote:

Bonjour j aimerais savoir comment faites vous les raccords de pelote de laine bouclette en tricotant en circulaire pour les manches Merci de votre réponse Martine 😁

12.12.2022 - 12:37

DROPS Design answered:

Bonjour Martine, vous pouvez le faire comme vous le faites pour le pull, il existe différentes techniques; celle du joint russe donne de bons résultats par exemple. Bon tricot!

12.12.2022 - 16:09

country flag Beatrice wrote:

Qual è la taglia indossata dalla modella? grazie

28.11.2022 - 16:01

DROPS Design answered:

Buonasera Beatrice, le modelle indossano la taglia M. Buon lavoro!

28.11.2022 - 22:18

country flag Catherine wrote:

Suis je obligée de tricoter avec les aiguilles circulaires ? Merci

21.10.2022 - 08:47

DROPS Design answered:

Bonjour Catherine, non, mais vous devrez alors faire les ajustements nécessaires, par ex. assemblez 1 des épaules et relevez les mailles du col avant de faire la couture du col + de l'autre épaule et tricotez alors les manches. Retrouvez plus d'infos ici. Bon tricot!

21.10.2022 - 09:41